Alþýðublaðið - 23.08.1939, Síða 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGUR 23. ágúst 1939 192. TÖLUBLAÐ
Samningur Hitlers og Stalins hefir auk
ið ófriðarhættuna um allan helming.
■ •»-
Stríðsundirbitttingur fi algleymingi um alla Evrópu.
Deiiurnar á Siglufirði:
Nep ðánægia yfir afstoðu Sveins
Benediktssonar 09 Þormóðs Eyj-
ólfssonar í síMarverksmiðjumálinu
Hnjaskið, sem Sveinn Ben. varð fyrir, al-
gert innanflokksmál Sjálfstæðismanna.
F) EILURNAR innan Sjálf-
stæðisflokksins og
Framsóknarflokksins á Siglu
firði út af afstöðu stjórna
þessara flokka til verk-
smiðjumálsins halda áfram.
Er þetta og eðlilegt, þar sem
þetta mál snertir svo mjög
hagsmuni Siglufjarðarbæjar.
Þeir menn, sem hafa verið að
reyna að koma í veg fyrir, að
Siglfirðingar reisi síldarverk-
smiðjuna Rauðku, hafa borið út
alls konar sögur um gang máls-
ins og meðal annars látið svo
heita, að það væru kommúnist-
ar, sem einkum berðust fyrir
málinu.
Sannleikurinn er sá, að Al-
þýðuflokksmenn og Sjálfstæð-
isflokksmenn á Siglufirði hafa
staðið alveg einhuga um málið
og gert allt, sem unnt var til að
koma því áleiðis. Þeir hafa og
haft með sér talsverðan hluta
Framsóknarflokksins, yfirleitt
aðra Framsóknarmenn en Þor-
móð Eyjólfsson og þrengstu klík-
una, sem honum fylgir.
Hins vegar hafa kommúnistar,
einkum upp á síðkastið, að eins
viljað nota málið til æsinga,
en þeim hefir orðið lítið ágengt,
af því að Alþýðuflokksmenn og
Sjálfstæðismenn hafa haldið á
málinu með festu og af skilningi.
Núna seinustu dagana er ver-
ið að bera það út, að á Siglu-
firði ríki eins konar uppreisnar-
ástand. En þetta er algerlega til-
hæfulaust. Að vísu hefir nokkr-
um flokksmönnum þeirra Þor-
móðs og Sveins runnið í skap
við þá, vegna þess, að þeir telja,
að þeir hafi svikið á hinn auð-
virðilegasta hátt bæði málstað
síldarútgerðarmanna og Siglu-
fjarðarbæjar.
Hefir gremja flokksmanna
Sveins Benediktssonar komið
l'ram í því, að þeir neita að vera
með honum á dansleikjum og
oðrum opinberum skemmti-
stöðum, og einn eða tveir þeirra
hrintu eitthvað við honum á
klúbbballi sem verzlunarmenn
á Siglufirði, allt Sjálfstæðis-
menn, héldu mjög nýlega og
lauk þeim viðskiptum með því,
eins og Alþýðublaðið hefir áður
skýrt frá, að þeir ráku Svein
út af ballinu. Sá, sem stóð fyrir
þeirri ráðstöfun er fyrrverandi
formaður Sjálfstæðisflokksfé-
lagsins á Siglufirði, Jón Gísla-
son, og einn helzti áhrifamaður
Sjálfstæðisflokksins á Siglu-
firðij og sá sem stjakaði við hon.
um er meðlimur í Félagi ungra
Sjálfstæðismanna, Tryggvi Fló-
ventsson, sonur eins af elztu
bæjarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins á Siglufirði.
Sveinn hefir þannig orðið fyr.
ir því, að flokksmenn hans á
Siglufirði hafa látið í ljós við
hann fyrirlitningu sína. En saga
Morgunblaðsins um, að einhver
Alþýðuflokksmaður hafi ráðizt
á Svein og barið hann, er til-
hæfulaus uppspuni. Hnjaskið og
fyrirlitningin, sem Sveinn Bene-
diktsson hefir orðið fyrir á
Siglufirði, hefir verið hreint
innanflokksmál hjá Sjálfstæðis-
flokknum. Aðrir hafa ekki lát-
ið neitt í ljós um það opinber-
lega, þó að Siglfirðingar beri
yfirleitt líkar tilfinningar í
brjósti til Sveins og Sjálfstæðis-
menn hafa látið í ljós.
Frh. á 4. síðu.
LONDON í morgun. FÚ.
X 73N RIBBENTROP fór frá Salzburg til Berlín í gær og
* ræddi skamma stund við Hitler, en þaðan flaug hann
til Königsberg í Austur-Prússlandi, og í morgun var ráð-
gert, að hann flygi þaðan til Moskva. í fylgd með honum
er Gaus aðstoðarutanríkismálaráðherra og fleiri embættis-
menn og aðstoðarmenn, meðal þeirra Schmidt, túlkur sá,
sem starfaði á Munchenráðstefnunni í fyrrahaust. — Að
minnsta kosti tvær flugvélar eru í leiðangrinum til Moskvc
Víða í álfunni er nú hert á öllu hernaðareftirliti. Hcrr
aðarlegum viðbúnaði er haldið áfram í Þýzkalandi og Pól-
landi, en hvarvetna er frestað öllum heimfararleyfum landa-
mæraliðs, t. d. í Hollandi, Svisslandi og víðar. Annars stað-
ar hefir herlið verið kallað til æfinga, svo sem í Grikk-
iandi, en raunverulega er það gert til þess að hafa herlið
til taks.
í öllum löndum, nema minnstu ríkjunum, eru heilir
herir viðbúnir, og í sumum löndum standa nú yfir miklar
heræfingar, svo sem Rúmeníu, Póllandi, Þýzkalandi og Bret-
landi.
Einhver launmál á bak við
samninginn i M»skva?
Hinn fyrirhugaði vináttu-
samningur Rússa og Þjóðverja
er hvarvetna umræðuefni
stjórnmálamanna, blaðanna og
alls almennings. Fregnirnar um,
hvað til stæði komu mönnum
svo á óvart, að því fer fjarri, að
menn hafi enn áttað sig til fulls
á, hvað hér er að gerast, því að
sá ótti kemur víða fram, að hér
liggi eitthvað meira á bak við
en komið er í ljós.
Stjórnmálamenn og blöð lýð-
ræðisríkjanna ræða af varfærni
um þetta mál, og virðist sú skoð-
10 þúsnnd tnnnur vorn salt-
aðar i Siglifirði í nótt.
un ríkjandi, að ekki verði enn
fyrir sagt um frekari samkomu-
lagsumleitanir í Moskva milli
Breta, Frakka og Rússa. Sumir
ætla, að hlutleysissamningur
Rússa og Þjóðverja þurfi ekki
að kollvarpa þeim samkomu-
lagsumleitunum.
Síórsigur mSuflultreld-
anna segja fasista-
Veiðiveður var ekki gott i nótt,
fór batnandi með morgninum.
en
¥ T M 10 þúsund tunnur
voru saltaðar á Siglu-
firði í nótt af skipum, sem
komið höfðu í gær og fyrri-
nótt. Fá skip komu inn í nótt,
því að rigning var og slæmt
veiðiveður, en í dag er gott
veður og búizt við mörgum
skipum.
Ennþá er nóg af síld í sjón-
um og veiðist hún á Haganes-
vík, við Grímsey, á Húnaflóa
og við Langanes.
í gær og fyrradag hefir tölu-
viert komið til Siglufjarðar af
isíld í bræðslu. Þessi skip komu
(hteð síld í bræðslu:
Ölafur Bjarnason 700 mál,
Gulltoppur 30 mál, Marz
70, Grótta 40, Már 30,
Dóra 100, Alden 350, Hringur 60,
Síldin og Báran 30, Stathav 50,
Leo 60, Sjöfn 60, Sæunn 70, Sæ-
finnur 250, Hilmir 50, Fylkir 200,
Gloria 150, Björgvin 10, Glaður
50, Gyllir og Fylkir 30, Rúna 40,
Erlingamir, I. og II. 10, Asbjörn
10, Auðbjörn 15, Drifa 70, Mugg-
ur 30, Valþór 25, Arthur & Fann-
ey 400, Frigg 20, Stella 50, Rifs-
nes 70, Júní 1000, Huginn Rvk.
1100, Stuðlafoss 30, Síldin 200,
Venus 500, Arsæll 100, Ágústa
200, Gunnbjöm 300, Sæborg 140,
Öli Garða 300, Sviði 200, Bjarki
200, Sæfinnur 50, Fylkir 50, Veiga
50.
1 gær komu þessi skip með síld
í söltun til Siglufjarðar:
Freyja 127 tunnur, Óðinn 131,
Snorri 227, Reynir og Víðir 146,
Frigg 215, Fylkir 366, Val]‘ór og
Þráinn 156, Sæfinnur 407, Rúna
180, Auðbjörn 321, Glaður 324,
Stella 379, Ingólfur og Eggert
303, Veiga og Gísli J. Johnsen
233, Súlan 317.
Til Djúpuvíkur kom Hilmir i
gær með 1100 mál og Baldur
var á leiðinni með 1000 mál.
Von var á fleiri toguram þangað
í morgun með um 1Q0Q mál.
Þýzku og ítölsku blöðin halda
því hins vegar fram, að þessi
samningsgerð, sem þau telja
víst, að verði fljótt lokið, sé
stórkostlegur stjórnmálasigur
fyrir möndulveldin, og einkan-
lega mikilvægur á þeim tíma-
mótum, sem nú eru, og aðvara
blöðin, einkanlega hin ítölsku,
lýðræðisríkin viðvíkjandi Dan-
zig, en það hlutverk hafa ítölsku
blöðin rækt af kappi seinustu
daga.
Brezku blöðin hvetja til að
halda saman og standa við öll
sín loforð gagnvart Pólverjum,
en Pólverjar sjálfir láta engan
bilbug á sér finna. Ráðherra-
fundir héldu áfram í öllum höf-
uðborgum álfunnar fram á nótt.
Otsakar samningnrinn
stefnnbrejrtingn Jagana?
í Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna, er litið svo á,
að fregnin þurfi ekki að vera
eins ógnvekjandi og hún virtist
í fyrstu, en verði af þessari
samningsgerð, hljóti aðstöðu-
munurinn og viðhorf allt í Ev-
rópu að breytast. Einnig kæmi
hún til með að hafa mikil áhrif
í Austur-Asíu.
Bandaríkjamenn ætla, að
samningsgerðin muni hafa stór-
Fxh. 4 4. aíÖu.
Ribbentrop (til hægri) og Ciano greifi í Salzburg á dögunum.
í dag er Ribbenlrop í Moskva.
?ulltrúar sovétstjórnarinnar á járnbrautarstöð í Moskva við
fcomu ensku og frönsku hermálasérfræðinganna fyrir rúmri
viku síðan.
Bretar lita ajfio aivarieg-
ia augum á ástandil.
Brezka þingið kallað saman á morgun?
----- ■» —
LONDON í gærkveldi. FÚ.
ÐUR en ráðuneytisfundur-
inn hófst í London í gær,
ræddi Chamberlain við Sir
Kingsley Wood flugmálaráð-
lierra, Sir John Simon fjár-
málaráðherra og Sir Samuel
Hoare innanríkisráðherra. -—
Chamberlain veitti einnig á-
heyrn Sir Arthur Greenwood,
þingleiðtoga jafnaðarmanna.
Leiðtogi frjálslyndra manna í
stjórnarandstöðu, Sir Archibald
Sinclair, leggur af stað frá Skot.
landi til London í fyrramálið.
Engin opinber íilkynning
liggur fyrir um ráðuneytisfund-
inn, en ganga má út frá því sem
gefnu, að umræðuefnið hafi
verið viðhorfið í alþjóðamálum
með tilliti til hins fyrirhugaða
hlutleysissáttmála Sovét-Rúss-
lands og Þýzkalands.
Meðal stjórnmálamanna er
talið ekki ólíklegt, að þingið
verði kallað saman, og orðróm-
ur gengur um, að það verði sett
næstkomandi fimmtudag. Á
fimmtudagsmorgun kemur
þingflokkur Alþýðuflokksins
saman á fund, en miðstjórn
flokksins á morgun.
Þegar Arthur Greenwood
kom af fundi Chamberlains,
sagði hann, að hann teldi horf-
urnar mjög alvarlegar, og væri
það skylda hvers borgara að
forðast allar æsingar og taka ró-
lega hverju, sem að höndum
bæri, og vera ákveðnir og ör-
uggir í baráttunni gegn ofbeld-
inu, en að koma í veg fyrir of-
beldi og ágengni væri eini veg-
urinn til þess að tryggja friðinn
í álfunni.
Hvort til styrjaldar kemur
eða friður helzt, er undir Hitler
komið, sagði hann, en ef þjóð-
irnar verða fyrir þessu ógurlega
áfalli, að styrjöldin skelli á, get-
um vér haft góða samvizku. Er
ég og sannfærður um, sagði
Greenwood, að brezka þjóðin
mun horfa örugg fram á leið.
Blað Gðbbels undirstrib-
ar sbyldleibann við Stalin
1 dag lofa þýzku blö&in há-
stöfum hina endurnýjuðu þýzk-
rússnesku vináttu, og þeirn virð-
ist „kommúnisminn" gleymdur
með öllu. „Angriff“, blað Göb-
bels, telur heimsókn von Ribben-
Frh. á A. «4Ö*i.