Alþýðublaðið - 26.08.1939, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR LAUGARDAGUR 26. ágúst 1939 GViamOX ‘S6T
£K
Itler hikaðl f gœr og bað Nevllle Hender
son sendiherra Breta f Berlln um vlðtal.
Glaða sólsbin fyrir
kvika er ðti.
Sendiherrann
-----<=•---
flýgur til London I dag til að gefa skýrslu.
Búizt við gððri veiði um
Iielgina, ef huifeuna lægir
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins.
KHÖFN 1 morgun.
LÍTILL VONARNEISTI um það, að friðurinn haldist,
hefir vaknað á ný við það, að Hitler hikaði í gær við
það að láta til skarar skríða gegn Póllandi, og bað alveg
óvænt Sir Neviíle Henderson, sendiherra Breta, sem hann
vísaði á bug í Berchtesgaden á miðvikudaginn, um viðtal.
Það er algerlega ókunnugt, hvað þeim hefir farið á
milli, en það er tilkynnt í morgun, að Sir Neville muni
fljúga til London í dag til þess að gefa brezku stjórninni
skýrslu um viðtalið. Þess er jafnframt getið, að hann muni
aðeins dvelja stutta stund í London.
Þrátt fyrir þennan frest heldur stríðsundirbúningur-
inn áfram fullum fetum í flestum löndum álfunnar. Hern-
aðarsáttmáli Englands og Póllands var formlega undirrit-
aður í London í gær af Lord Halifax og sendiherra Pól-
verja.
Hermálafulltrúar brezku stjórnarinnar lögðu af stað
frá Moskva í gærkveldi.
Þá er það tilkynnt í Berlín,
að fyrirhuguðum hátíðahöldum
við Tannenberg á Austur-Prúss-
landi á morgun, þar sem Hitler
átti að halda ræðu, í tilefni af
25 ára afmæli hins fræga sig-
urs Þjóðverja yfir Rússum þar
í heimsstyrjöldinni, hafi verið
frestað um óákveðinn tíma. En
ekkert er látið uppi um ástæð-
una til þess, aðeins getgátur
hafa komið fram um það, að sú
ráðstöfun hafi verið gerð í vin-
áttuskyni við Rússa, eftir að
Hitler hefir tryggt sér hlutleysi
þeirra, ef til ófriðar skyldi
koma.
Orðrómur barst út um það frá
Berlín í nótt, að flokksþingi
nazista í Niirnberg hafi einnig
vérið frestað.
Striðsóttim fer vaxandi
um alla Evripu.
Fullyrt er, að foringjaráð
þýzka flughersins hafi þegar
flutt bækistöð sína frá Berlín
og komið sér fyrir á ókunnum
stað fyrir utan borgina.
Þjóðverjum á Englandi hefir
verið ráðlagt að hverfa heim', og
munu þýzkir blaðamenn í Lond-
on fara þaðan í kvöld. Þýzk
skip, sem eru á höfum úti. hafa
fengið skipun um að snúa tafar-
laust heim til Þýzkalands, og
þýzk skip, sem stödd eru heima,
hafa verið kyrrsett þar.
Ferðamenn flýja í írafári
hvaðanæva úr Evrópu, hver
heim til sín. Með pólska skip-
inu ,,Batory“ komu 500 ferða-
menn og flóttamenn frá Danzig
til Kaupmannahafnar í gær, þar
á meðal ensku blaðamennirnir,
sem undanfarið hafa dvalið í
Danzig.
Talsímasambandið milli Þýzka
lands og Póllands og Þýzka-
lands og Danmerkur er rofið
síðan í gærkveldi, en ekki er
enn kunnugt, hvort það hefir
slitnað, eða verið slitið.
Boosevelt Itrekar áskor-
un sina til Hitlers.
Roosevelt Bandaríkjaforseti
hefir sent Hitler aöra áskorun um
að leysa deilumálin friðsamlega,
og gerði hann það, er hann hafði
fengið svar frá forseta Póllands,
þar sem hann fellst á það fyrir
Póllands hönd, að tilraun sé gerö
til þess að leysa deiluna sam-
kvæmt tillögum Roosevelts.
Segir Moscicki Póllandsforseti
í svari sínu, að ótölulegum fjölda
Frh. á 4. síðu.
Þýzkir hermenn á leið til pólsku landamæranna nema staðar til þess að slökkva þorstann
í steikjandi sólarhitanum.
Daladier sýnir fram á
svik Rússa við friðinn.
Frakkland mun gera skyldu sína, ef
til ófriðar kemur, segir hann.
London í morgun. FÚ.
ÐALADIER, forsætisráð
herra Frakklands, flutti
útvarpsræðu í gærkvöldi.
Hann ræddi um þýzk-rúss-
neska sáttmálann, hvernig hann
er tilkominn, á hvaða tíma og
undir hvaða kringumstæðum
hann varð til, og benti á, að
hann gæti aðeins komið í veg
fyrir, að Þýzkaland sýndi Rúss-
um ágengni eða Rússar Þjóð-
verjum, en nú vildi svo til, að
þeir ættu engin sameiginleg
Hitler og tveir helztu ráðunautar hans þessa dagana: Keitel
hershöfðingi (til vinstri) og Raeder sjóliðsforingi (til hsagri).
landamæri. En sjálf samkomu
lagsaðferð Rússa og Þjóðverja
og það, hvenær samningurinn
var undirskrifaður, sýndi, að
hættan hefði vaxið, ekki aðeins
fyrir PóIIand, heldur og fyrir
Frakkland og aðrar þjóðir.
Hann komst meðal annars svo
að orði:
„Fyrír Pólverja er um lií og
frelsi að ræða, og þegar ég segi
það, á ég við, a*5 um líf og
frelsi 33 milljóna Pólverja sé að
ræða, og vér munum standa við
allar skuldbindingar vorar við þá
og við allt mannkynið.
Ef til styrjaldar kemur, er bar-
izt um rétt og frelsi alls mann-
kynsins. Ég þarf ekki að hvetja
neinn franskan mann eða konu til
að gera skyldu sína. Þið vitið
öll, hver skylda ykkar er, og
munuÖ gera hana fúslega og
mögiunarlaust, hversu þung sem
hún verður.
Utanríkismálanefnd franska
þingsins hefir komið saman á
fund og lýst yfir vanþöknun
sinni á því, hvemig þýzk-rúss-
neski aáttmálinn er til orðinn og
fram kominn. Aðeins kommúnist-
ar greiddu atkvæði á móti þess-
ari yfirlýsingu.
Franskir og brezklr
verkamenn halda saman
Forseti franska verkalýðs-
sambandsins, Jouhaux, og aðal-
ritari þess hafa símað stjórn
brezka varkalýðssambandsins,
til þess að lýsa yfir og staðfesta
Prh. á 4. sftu.
Styrjold nærri ö-
nmflýjanleg seg-
ir Halvdan Koht.
Danir ern bjartsýnni.
KHÖFN í morgun. FU.
HALVDAN KOHT, utanrík-
ismálaráðherra Norð-
manna, lætur í ljós, að styrjöld
sé nærri óumflýjanleg. Útlend-
ir stjórnmálamenn, sem ráð-
herrann hefir talað við, búast
við styrjöldinni í september.
Hann telur, að Noregur hafi
mikla möguleika til þess að
standa utan styrjaldarinnar, en
eigi í vændum stórkostlegar
fjárhagslegar og viðskiptalegar
þrengingar.
Stjórnmálamenn í Danmörku
telja síðustu skeyti bera þess
vitni, að útlitið sé heldur að
skána.
GLAÐASÓLSKIN og gott
veður er nú á Siglufirði
eftir rigninguna og kuldann í
gær og í fyrrinótt. Gott veður
er nú fyrir öllu Norðurlandi,
en iiokkur kvika er úti fyrir.
Öll skipin eru nú að veiðum
eða að leita að síld, aðallega
á austanverðu veiðisvæðinu.
Um 2 þúsund tunnur voru salt-
laðar í nótt á Siglufirði, en frem-
ur lítið á öðrum stöðum. Alis er
nú búið að salta á öllu landinu
i 185 þúsund tunnur, en á sama
tíma í fyrra var búið að salta í
229 þúsund tunnur, en alls var
saltað í fyíríra í 343 þúsund tunn-
ur. Bræðslusíldaraflinn er hins
vegar miklu minni en hann var
um þetta leyti í fyrra.
’Aðeins örfá skip hafa komið
til Siglufjarðar siðan í gær og
ekkert þeirra með verulegan afla.
Allir Kveldúlfstogaramir komu
Jinn i nótt til Hjalteyrar, en að-
eins með slatta, frá 300 og upp
í 800 mál hver.
Fréttaritari Alþýðublaðsins á
Siglufirði sagði í morgun, að
menn teldu almennt víst, að ef
veÖur yrði gott og kvikuna lægði,
þá myndi fást góður afli núna
um helgina.
íþróttahátfðin verðnr
ð
AMORGUN kl. 1,30 hefst
hátíð sú, er Í.R.R. gengst
fyrir í sambandi við Meistara-
mótið. Dagskrá hátíðarinnar
verður á þessa leið:
Kl. 1,30 safnast keppendur
mótsins, öldungarnir, stjórnir
Í.S.Í., stjórnir íþróttafélaganna
og fulltrúar stórstúkunnar sam-
an hjá K.R.-húsinu og ganga
út að Austurvelli.
Kl. 1,45 leikur Lúðrasveit
Reykjavíkur á Austurvelli.
Kl. 2 heldur Jakob Moller
ráðherra ræðu á svölum Alþing-
ishússins. Síðan verður gengið í
skrúðgöngu suður á íþróttavöll.
Frh. á 4. sftfo.
Japanir breyta ni
oagnvart Bretom
i stefbo
i Kfna.
Byrjaðir að heiisa þeim að hermannasið!
London í morgun. FÚ.
P RAMKOMA japanskra
hermanna í Shanghai
gagnvart brezkum hermönn-
um og lögreglumönnum er
gerbreytt orðin, og eru hinir
japönsku hermenn farnir að
heilsa þeim að hermannasið.
Frestað heíir verið brottför
skips þess, sem fara átti frá
Hongkong með brezka þegna,
Japanski aðalræðismaðurinn í
Hongkong sagði í gær, að hann
sæi enga ástæðu til þess, að
brezkir menn flyttu konur sín-
ar og börn brott frá Hongkong
vegna yfirvofandi Evrópustyrj-
aldar. Sambúð hrezkra og jap-
anskra hermanna á landamær-
um Hongkongsvæðisins kvað
hann vinsamlega.
Talsmaður japanska utanrík
ismálaráðuneytisins hefir neit-
að því, að Japönum hafi verið
boðið að taka þátt í þýzk-rúss-
Frh i 4. aftu.