Alþýðublaðið - 05.09.1939, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ÞRIOJUÐAGUH 9. SEPT. 19».
Fyriraæli nn hlntieysi íslands.
A]þýSublaðið flutti í gær ítarlega grein eftir Stefán Jóh. Stef-
ánsson félagsmálaráðherra um alþjóðaþingmannafundinn í Oslo í
ágúst og birti mynd frá setningu hans, Hér er önnur mynd frá
íundinum. Hún sýnir Hamilton Fish, fulltrúa í senati Banda-
ríkjaþingsins, og Stefán Jóh. Stefánsson, þegar þeir eru að hlusta
á ræðu Hambros stórþingsforseta í Noregi.
♦ --------;---------------'A
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI:
F. R. VALDEMARSSON.
í fjarveru hans:
STEFÁN PÉTURSSON.
AFGREIÐSÍL A:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR:
4900: Afgreiðsla, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (innl. fréttir).
4902: Ritstjóri.
4903: V. S. Vilhjálms (heima).
4S05: Alþýðuprentsmiðjan.
4906: Afgreiðsla.
5021 Stefán Pétursson (heima).
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
♦ -----:------------------♦
Hlnlr seku.
M ENN eru lostnir skelfingu
yfir þeirri ægilegu stað-
reynd, að Evrópa skuli enn einu
sinni, og það aðeins tuttugu ár-
um eftir að milljónamorðin
tóku enda í heimsstyrjöldinni,
vera orðin vettvangur blóðugrar
stórveldastyrjaldar. Mönnum
blöskfar, að sú villimennska
skuli geta endurtekið sig svo
fljótt á okkar menningaröld, að
milljónir manna skuli með
köldu blóði og að yfirlögðu ráði
vera brytjaðar niður til þess að
gera út um þrætumál og fuil-
nægja ágirnd og hégómagirnd
ævintýramanna, sem að réttu
lagi ættu hvergi heima í siðuðu
þjóðfélagi annars staðar en á
vitlausraspítala.
Og þó er ekki hægt að segja,
að styrjöldin komi neinum á ó-
vart. Allt frá því, að nazisminn
brauzt til valda á Þýzkalandi,
hefir hugsandi mönnum um all-
an heim verið það ljóst, að hann
stefndi að nýju stríði um yfir-
ráðin í Evrópu og heiminum
yfirleilt. Og það stríð hefir verið
svo nákegt hvað eftir annað síð-
ustu tvö árin, að ekki hefir mun-
að nema hársbreidd, að upp úr
logaði eins og nú er orðin raun
á.
Aldrei hefir stríð yfirleitt
verið undirbúið á eins sam-
vizkulausan hátt og að eins yfir-
lögðu ráði eins og þetta stríð
þýzka nazismans. Með köldu
blóði 'hefir hver einasti samn-
ingur verið rofinn, sem stjórn
hans hefir gert við aðrar þjóðir,
hvert einasta loforð verið svikið,
sem hún hefir gefið þeim.
Hversu oft hefir Hitler ekki
lýst því yfir, að hann hefði
engar frekari kröfur að gera til
landa á kostnað annarra ríkja í
Evrópu, ef hann fengi þeirri
kröfunni framgengt, sem hann
var með í það og það skipti?
Fyrst var það Saarhéraðið. Þá
sór hann og sárt við lagði, að
liann myndi aldrei láta sér detta
í hug að skerða sjálfstæði
Austurríkis. Tveimur áru-m
síðar var Austurríki innlimað.
Þá sór hann þess dýran eið, að
það væri síðasta landamæra-
breytingin, sem Þýzkaland færi
fram á í Evrópu. En hálfu öðru
ári seinna hótaði hann Tékkó-
slóvakíu stríði, ef hann fengi
ekki Súdetahéruðin. Það nægði
til þess að hann fékk einnig
þau. Þá lofaði hann frammi
fyrir öllum heiminum að virða
hin nýju landamæri Tékkósló-
vakíu. Hann kærði sig ekki um
að leggja undir sig nein lönd,
nema þau, sem væru byggð
Þjóðverjum. En aðeins hálfu
ári seinna hafði hann svikið
þetta loforð, eins og öll fyrri, og
innlimað sjö milljónir Tékka í
Þýzkaland. Og nú var röðin
komin að Póllandi, sem hann
fyrir fimm árum hafði gert
sinn fyrsta öryggissáttmála við
ÍKISST J ÓRNIN hefir
gefið út reglur til
tryggingar hlutleysi landsins
í ófriði, og eru þær samhljóða
reglum þeim, sem Danmörk,
Finnland, Noregur og Svíþjóð
hafa sett, enda gerðar í sam-
einingu af ríkisstjórnum
allra þessara landa.
Hlutleysisreglurnar hljóða
þannig:
í ófriði milli erlendra ríkja skal
urn hlutleysi íslands fara eftir
fyrirmælum þeim, er hér greinir,
frá þeim tíma og í þeim mæli,
er konungur ákveður.
1. gr.
Herskip ófriðarríkja megakoma
á íslenzkar hafnir og í íslenzka
landhelgi, annars með þeim und-
antekninigum og skilmálum, sem
hér á eftir getur.
2. gr.
1. Kafbátar ófriðarríkja, sem
búnir eru út til ófriðarathafna,
rnega ekki fara um íslenzka land-
helgi né hafa þar dvöl.
Bann þetta tekur þó ekki til
kafbáta, sÉfti neyðzt hafa til að
fara inn á bannsvæði vegna sjó-
tjóns eða ofviðris, enda gefi þeir
þá til kynna^með alþjóðamerki
orsökina til vistar sinnar þar. En
víkja skal kafbátur út úr íslenzkri
landhelgi svo fljótt sem verða
má, eftir aö orsökin til komu
hans þangað er niður fallin. Með-
an kafbátur heldur sig inni í
landhelgi, skal hann jafnan vera
ofansjávar og hafa uppi ríkisfána
sinri!
2. Konungur getur bannað her-
skipum ófribarrikja aðgang að
einstökum höfnum eða öðrum
takmörkuðum svæðum íslenzkrar
landhelgi, ef það kynni að þykja
náuðsynlegt af sérstökum ástæð-
um til verndar forráðarétti ríkis-
ins ■ eða hlutleysisgæzlu, enda
verði almennra grundvallarreglna
þjóðarréttar gætt.
3. Enn fremúr áskilur konungur
sér rétt til að banna þeim her-
skipum ófribarríkja hafnir eða
skipalægi, er ekki hafa gætt á-
kvæða, er rétt íslenzk stjórnar-
völd hafa sett, eða brotið hafa
hlutleys'isákyæði ríkisins-
3. gr.
1. Víkingaskip mega ekki sigla
og heitið friði og vináttu í sam-
fleytt tíu ár!
Það verður í öllu falli ekki
sagt, að England og Frakkland
hafi vonum fyrr gripið til vopna
til þess að gera enda á slíkum
yfirgangi og slíku ofbeldi, En
vissulega hafa þau til síðustu
stundar gert sér vonir um það að
geta varðveitt friðinn með öfl-
ugum samtökum þeirra ríkja,
sem ekki voru í bandalagi við
árásarmanninn. En sú von varð
að engu við hin óheyrilegu svik
Sovét-Rússlands við málstað
friðarins. — Vináttusamningur
Stalins og Hitlers var rýtings-
stungan í bak friðarins, fanta-
bragðið, sem ofurseldi milljónir
manna þeim ógurlegu hörmung-
um, sem nú eru byrjaðar og
enginn veit, hvenær taka enda.
En eitt er víst: Það verður
margt breytt í Evrópu — við
endalok þess stríðs, sem nú er
hafið. Og það mun vera margra
von, að um það bil verði að
minnsta kosti nokkrum einræð-
isherrum færra í álfunni, engu
síður en keisaradæmum við
lok síðustu styrjaldar. Þær
blóðfórnir, sem nú eru fram
undan, væru þá, þrátt fyrir allt,
ekki til einskis færðar.
-------------»----------
inn á íslenzkar hafnir eða hafa
þvöl í ’islenzkri landhelgi.
2. Svo er og vopnuðum kaup-
förum, er ófriðaraðili hefir for-
ræði á, bannað að sigla inn á
íslenzka höfn eða hafa dvöl i ís-
lenzkri landhelgi, enda sé vopna-
búnaður þess ætlaður til annars
en sjálfsvarnar einnar.
4. gr.
1. Herskip ófriðarríkja mega
ekki hafa dvöl á íslenzkri höfn,
islenzku skipalægi eða í íslenzkri
landhelgi annars lengur en 24
klukkustundir, nema um sjótjón,
strand eða ofviðri sé að tefla eða
svo sé háttað sem í 3. og 4.
tölul. greinar þessarar se_gir. En
sögla skal skip þá þegar brott, er
orsökin til seinkunar þess er nið-
ur fallin. Nú verður skip fyrir
sjötjóní eða strandi, og setur þá
rétt íslenzkt yfirvald frest, er
telja megi nægilegan til viðgerð-
ar á skipinu eöa til að ná því
út- Þó verður enginn frestur fram
yfir 24 klukkustundir veittur, ef
augljóst er, að skip verði ekki
gert sjófært á hæfilegum fresti
eða ef tjón er orðið af völdum
heraðilja frá fjaridríki þess.
Ákvæði þessi um takmörkun á
dvalarfresti herskipa taka ekki til
herskipa, sem einvörðungu er
ætlað að s\arfa í þarfir trúar-
bragða, vísinda eða mannúðar né
heldur til spítalaherskipa í þarfir
heraðiljá.
2. Fleiri en 3 herskip sama ó-
friöarríkis eða ríkja, sem gerzt
hafa bandamenn í þeim ófriði,
raega ekki samtímis hafa dvöl á
sömu íslenzkri höfn eða skipa-
lægi eða á höfnum eða skipa-
lgegjum á sarna strandsvæði,
enda hafi strönd verið skipt í á-
kveðin svæði í þessu skyni.
3. Nú eiga herskip frá báðum
ófriðaraðiljum dvöl í sömu ís-
lenzku höfn eða sama íslenzka
skipalægi, og ma þá skip ann-
ars ófriöaraðiljans ekki fara af
höfn eða skipalægi fyrr en 24
klukkustundum hið skemmsta
eftir brottför skips hins ófriðar-
aðiljans. Sigla skulu skipin brott
í sömu röð sem þau komu, enda
sé ekki svo háttað um það skip-
ið, sem fyrr kom, að lengja skuli
því dvalarfrestinn.
4. Nú hefií herskip ófriðarað-
ilja og kaupfar, er siglir undir
fána fjandrikis hans, samtímis
dvöl á sömu íslenzkri höfn eða
sama íslenzku skipalægi, og má
herskipið þá ekki fara brott af
höfn eða skipalægi fyrr en 24
klukkustundum hið skemmsta
frá bmttför kaupfarsins. Skulu
'rétt yfirvöld svo skipa brottför
kaupfars, að dvöl berskips leng-
ist ekki að óþörfu.
5. gr.
1. Á íslenzkri höfn eða íslenzku
skipalægi má þær einar bætur
gera á spjöllum á herskipi, sem
óhjákvæmilega nauðsynlegar eru
til þess að skipið verði haffært,
og aldrei má bæta slíkt skip með
þeim hætti, að það verði að fær-
ara til öfriðarathafna. Tjón á
herskipi, sem vitanlega er orðið
af völdum heraðilja fjandrikis
þess, má ekki bæta með efni eða
vinnu, er útvegub sé á íslenzku
forráðasvæði. Islenzk stjórnar-
völd kveða á um það, hvaða við-
gerðir megi fram fara, enda skal
framkvæma þær svo fljótt, sem
kostur er, og sé frests þess gætt,
ter í 1, tölul- 4. gr. segir.
2. Herskip ófriðarrikja mega
ekki nota íslenzka höfn eða is-
lenzka landhelgi annars til að
endurnýja eða auka herbirgðir
sinar eða skottækí eða til að
fullna áhöfn sína.
'3. Ekki mega herskip ófriðar-
rikis taka vistrr á íslenzkri höfn
•eða íslenzku skipalægi framar
því, sem nauðsynlegt er til venju-
legs vistaforða á friðartímum.
4. Um úthlutun eldsneytis í ís-
lenzkri höfn eða íslenzku skipa-
lægi eru herskip ófriðarríkis háð
þeim fyrirmælum, sem urn önnur
erlend skip gilda að þessu leyti.
Þó má herskip ófriðarríkis aðeins
fá svo mikið eldsneyti, sem því
nægir til næstu hafnar í sínu
landi, og þó aldrei .meira en
þarf til að fylla hin eiginlegu
kolarúm þess eða eldsneytis-
geyrna. Sama herskip má ekki
taka eldsneyti á íslenzkri höfn
eða íslenzku skipalægi fyrr en 3
mánuÖir eru liðnir frá því, er það
íók þar síðast eldsneyti.
6. gr.
Herskip ófriðarríkja skulu nota
löggilta hafnsögumenln í íslenzkrí
landhelgi, þar sem boðið er að
nota hafnsögumenn. Annars er
þeim bannað að nota löggilta
íslenzka hafnsögnmenn, nema til
að vama sjávarháska, er þau eru
í neyð stödd.
7. gr.
1. Með hertekið skip erlends
^jóðernis má ekki fara inn á ís-
lenzka höfn eða íslenzkt skipa-
lægi, nema það sé óhaffært eða
ofviðri eða vistaskortur eða elds-
neytis valdi. Skip, sem með þess-
um hætti em komin á íslenzka
höfn eða íslenzkt skipalægi,
skulu sigla brott þegar er orsökin
tll komu þeirra þangað er niður
fallin.
2. Öfriðarríki má ekki setja
skipatökudóm á íslenzku landi
eða á skipi í íslenzkri landhelgi.
Einnig er sala á herteknu skipi á
íslenzkri höfn eða á íslenzku
skipalægi bönnuð.
t 8. gr.
1. Herloftför ófriðaraðilja, að
frátöldum sjúkraloftförum og
loftfömm, sem flutt eru á her-
skipum, mega ekki koma inn á
íslenzkt forráöasvið, nema öðru-
yísi sé mælt fyrir um einstðk
svæði þess samkvæmt almennum
grundvallarreglum þjóðaréttar.
2. Loftför, sem herskip ófriðar-
ríkis hefir meðferðis, mega ekki
fara af skipinu meðan það er í
íslenzkri landhelgi.
9. gr.
1. Herskipum og loftförum ó-
friðaraðilja er skylt að virða for-
ráðarétt ríkisins og varast hverja
þá athöfn, sem brjóta muni í
bága við hlutleysi þess,
2. Bannaðar eru allar fjand-
samlegar athafnir á íslenzku for-
ráðasviði, þar á meðal stöðvun,
rannsókn og hertaka skipa og
loftfara, bæði hlutlausra og
þeirra, er til þjóðernis fjandríkis
teljast. Nú hefir skip eða loftfar
verið þar hertekið, og skal það
þá iaust látið með yfinnönnum
sínum, áhöfn og fanni.
10. gr.
Gæta skal vandlega gildandi
ákvæða um hollustuháttu, hafn-
sögu, tolla, umferð, hafnir og
lögreglu. •
11. gr.
Enginn heraðila má hafa ís-
lenzkt forráðasvið að undirstöðu
ófriðarathöfnum gagnvart and-
stæðingi sínum.
12. gr.
1. Bannað er heraðiljimr eða
þeirn, sem fyrir þá starfa, að
setja upp eða starfrækja á ís-
lenzku forráðasviði loftskeyta-
stöðvar eða önnur tæki til skeyta-
sendingar til heraöilja á landi,
ejó eða í lofti.
2. Hreyfanlegar loftskeytastöðv
ar ófriðaraðilja, hvort sem þæi
teljast til hemaðartækja eða ekki,
má ekki nota áísl. forráðasviði til
loftskeytasendinga, nema gert sé
í nauðum eða til sambands við
íslenzk stjórnarvöld urn íslenzkar
loftskeytastöðvar á landi eða á
íslenzkum skipum, sem íslenzk
lögregla ræður yfir.
13. gr.
Á íslenzku forráðasviði er öll-
um bannað að gera athuganir,
í loftfari eða með öðram hætti
á hreyöngum eða ófriðarathöfn-
um heraðilja eða vamarráðstöf-
unum, í því skyni að veita hin-
um ófriöaraðiljanum vitneskju
þar um.
14. gr.
1. Ófriðarríki má ekki setja
eldsneytisforða á íslenzkt land
eða á skip með bækistöð í ís-
lenzkri landhelgi.
2. Skip eða loftför, sem ber-
sýnilega era í föram til þess að
jiytja eldsneyti eða aÖrar nauð-
synjHr uemt til heraðilja, mega
ekki taka slíkar nauðsynjar á ís-
lenzkri höfn eða íslenzku skipa-
lceg*i framar en þau sjálf þurfa.
15. gr.
1. Skip, sem ætluð eru tiltálma
kaupferðum á hafi eða til aðstoð-
ar við fjandsamlegar athafnir
gagnvart nokkrum heraðilja, má
ekki búa út eða vopna á ís-
lenzku forráðasviði. Eigi má
skip, sem slíkt hlutverk er ætlað,
og að nokkru eða öllu er út
búið til ófriðarathafna á íslenzku
forráðasviði, fara þaðan burt.
2. Loftfar, sem árásir geturgert
á heraöilja, eða hefir meðferðis
efni eða tæki, er svo má ’fyrir
koma eða nota, að það megi
slíkar árásir gera, má ekki fara af
íslenzku forráðasviði, ef ástæða
er til að ætla, að nota eigi það
gegn ófriðaraðilja. Ekki má held-
ur vinna nokkra vinnu á íslenzku
forráðasviði við loftfar, er miÖ-
ar til að undirbúa brottför þess
í áðurnefndu skyni.
v
16. gr,
íslenzkur þegn eþa útlendingur,
sem búsettur er hér eða hefir hér
á landi dvöl, má eigi með nokkr-
um hætti veita til þess lið sitt,
að framangreind eða nokkur önn-
ur gildandi ákvæði um för er-
lendra herskipa eða herloftfara
inn á íslenzk forráðasvið, um
skyldur þeirra meðan þau dvelj-
ast þar eða urn brottför þeirra
þaðan, verði brotin eða þeirra
eigi gætt í ófriði milli erlendra
ríkja.
Þetta er hér með gert almenn-
íngi kunnugt.
Forsætisráðherrann, 14. júní 1938.
Hermann Jónasson.
Jóhann Frimaitö,
sem verið hefir sfcólástjóri
Iðnskólans á Akureyri síðastlið-
in 14 ár, hefir verið skipaður
skiótastjóri alþýðuskólans í
Reykbolti í Borgarfirði. Er* Jó«
hann kominn til Reykholts og
tekinri víð þvi starii. Áður en
hann fór frá Akureyri héldu Ak-
ureyringar honum og konu hans
veglegt samsæti.
Hlnar vlnsælu hraðferðlr
Steindórs
til Akureyrar um Akranes erus
Frá Reykjavík; Alla mánudaga miivik«daga
föstudaga og sunnudaga.
Frá Akureyri: Alla mánudaga, fimtudaga
Jaugardaga og sunnudaga.
Afgreiðsla okkar á Aknreyrl er á bif»
reiðastoð Oddeyrar,
M.s. Fagranes annast sjóleiðlna.
Nýjar upphitaðar bifreiðar með útvarpL
Allar okkar hraðfeiðir eru um Akranes.
gteindér„