Alþýðublaðið - 14.09.1939, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUl 14. SEPT. 1939
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI:
F. R. VALDEMARSSON.
í fjarveru hans:
STEFÁN PÉTURSSON.
AFGREIÐSíLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR:
4900: Afgreiðsla, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (innl. fréttir).
4902: Ritstjóri.
4903: V. S. Vilhjálms (heima).
4905: Alþýðuprentsmiðjan.
4806: Afgreiðsla.
5021 Stefán Pétursson (heima).
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
Natvælaskönmtuii
SKÖMMTUN MATVÆLA um
land allt hefst á mánudag-
inn kemur. Skömmtunarseðlium
verður útbýtt á laugardaginn og
sunnudaginn, og jafnframt eiga
menn að gefa skýrslur um mat-
vælabirgðir sínar, sem sérstak-
lega eru til teknar á skýrslu-
eyðublöðunum-
Undanfarna þrjá daga hafa
S'kýrslueyðublöð þessi verið borin
út um bæinn, og eiga þau að
skapa grundvöllinn fyrir skömmt-
unarseðlunum. Ríður ákaflega
mikið á því, að fólk fylli út
þessi skýrslueyöublöð samvizku-
samlega, dragi ekkert undan af
matvælabirgðum sinum, hversu
litlar sem þær eru, og bæti ekki
við, þegar heimilisfeður telja fólk
sitt fram. Ef það kemst upp,
sem hægur vandi er að bera sam-
an, eiga viðkomandi á hættu að
eæta háum sektum, og ríkisvaldið
mun beita lögum og reglugerðum
til hins ítrasta í þeim tilgangi.
Ef allir taka þegnsamlega á
möti þessari matvælaskömmtun,
svo og öðrum ráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnaT, er litil hætta á,
að nokkur maður þurfi að líða
skort.
Skammturinn, sem ætlaður er
hverjum manni, er alls ekki lftill,
og það mun vera mjög óvenju-
legt, að skammtur matvara, þar
sem skömmtun er tekin upp á
annað borð, sé svo mikill eins
og sá, sem byrjað er á hér.
Telja jafnvel ýmsir, að skammt-
urinn sé óþarflega hár.
Eins og getið var hér í blaðinu
í gær, verða sfcömmtunarseðl-
arnir afhentir fólki um leið og
það útfyllir skýrslur þær, sem
bornar hafa verið á hvert heimili,
á laugardag og sunnudag. Fer
afhending seðlanna og móttaka
skýrslanna fram í öllum bama-
skólum borgarinnar, samkvæmt
nókvæmari auglýsingu um það,
hvar fólk í hverju hverfi á að
mæta. Er þess fastlega vænzt, að
allir mæti til að skila skýrslum
og taka við skömmtunarseðlum
á þessum döigum, og að hver
maður finni skyldu sína í þvi að
gera starfsmönnum þeim, sem af-
henda og taka á rnóti, starfið
sem allra léttast. Hér er um mjög
umfangsmikið starf að ræða. Það
má gera ráð fyrir, að afgreiða
verði um 8 þúsundir manna á
þessurn tveimur dögum, og vel
getur það fcomið fyrir, að mikil
þröng verði, jafnvel þó að stað-
irnir séu fjórir, sem fólk á ag
sækja til. En þess er vænzt, að
fólk sýni svo mikla lipurð, sem
frekast er kostur, og bíði rólegt
meðan verið er að afgreiða, þar
til að því kemur. Vonandi verður
og allt gert, sem unnt er, til að
láta afgreiðsluna fara sem skipu-
iegast frarn af hólfu nefndar
þeirrar, sem bæjarráð hefir skip-
að.
Þó að matvælaskömmtun sé
upp tekin er alveg sjálfsagt fyrir
fólk að spara eins og mögulegt
«r allar erlendar vörutegundir, og
loks nú ættum við að taka
höndum saman um að fara með
t. d. kaffi sem lúxusvöru, enda
er það dýr lúxusvara og jafnvel
'skömm fyrir okkur íslendinga,
hve mikið við drekkum af því.
Menn verða að muna það, að þó
að allar vonir séu um, að enginn
verulegur skortur verði á nauð-
'feynjum í landinu, þá er það al-
veg víst, að vörur fara mjög
hækkandi, og að næstu pöntun
onkar á nauðsynjum, eftir svo
sem hálfan mánuð, verðum við
að borga hærra verði en síðustu
pöntun. Þess vegna er það hyggi-
legt að auka neyzlu innlendra
vara. Kaupið saltfiskspakka,
kaupið kartöflur, kaupið síld,
kaupið slátur, eins mikið af öllu
þessu og þið mögulega getið.
Drekkið minna af kaffi, kaupið
meiri mjólk.
Strangt eftirlit hefir verið sett
Um alla kolaverzlun, en kola-
skömmtun er afar erfið. Til þess
að geta komið henni á, verður
nefndin að vita um hitaþörf
hvers húss í bænum, fjölda eld-
stæða o. s. frv. Þess er vænzt,
að húseigendur fari að útbúa
skýrslur um þetta, þvi að ó-
hjákvæmilegt er, áð taka upp
skömmtun á þessari nauösynja-
vöm, sem áreiðanlega verður
einna erfiðast að fá til landsins.
Skömmtunarseðlarnir munu ekki
ná til kolanna, {>ó að þau séu
nefnd á skýrslunum, en þag
verður áreiðanlega innan fárra
daga að gripa til kolaskömmtun-
ar.
Barátta okkar íslendinga viö
það að koma útflutningsvörum
okkar á erlenda markaði og fá
■aftur nauðsynjar handa þjóðinni
— hún er okkar strið. Enginn
íslendingur er kallaður á vigvelli,
engum íslendingi er att út í mann-
víg og eyðileggingu. Þess er að-
eins krafizt, að hver og einn geri
,'allt, sem í hans valdi stendur til
þess, að starf ríkisstjómarinnai
verði sem léttast á þessum erfið-
leika tímum. Það er líka von
manna, að enginn skerist úr
leik, og þess verður að krefjast,
að hver sá maður, sem ekki sýnir
fullkominn þegnskap á þessum
tímum, verði afhentur almenn-
ingsáLitinu til meðferðar og að
að hann sæti auk Jæss þeirri
fyllstu refsingu, sem lög og regl-
gerðir ákveða, hver sem hann er
og hvar sem hann stendur í
mannfélagsstiganum.
Metorðagfarni vinsalinn, sem
varð utanrf kisráðherra Hitlers
Kornrffktii á Sðms-
stððnm í sinar.
FRÁ kornræktinni á Sáms-
stöðum í sumar og ann-
arri starfsemi tilraunastöðvar-
innar þar hefir Klemens Krist-
jánsson nýlega gefið eftirfar-
andi upplýsingar:
Kornuppskera byrjaði 13. ág-
úst. Var það sexraða bygg, sem
byrjað var á, og var uppskeru
þess lokið síðast 1 ágúst. Var
það prýðilega þroskað og virð-
ist ætla að gefa ágæta upp-
skeru. — Grasfræ var byrjað
að slá 4. ágúst og lokið við það
síðast í ágúst. — Hafrar eru nú
að verða þroskaðir, og er byrjað
á uppskeru. — Kartöflur voru
fyrst teknar upp úr tilrauna-
reitum 10. ágúst. Af 7 tegund-
um, sem þá voru teknar upp.
gaf mesta uppskeru norsk teg-
und, Dukker, um 238 tunnur af
hektara, en mesta sterkju
hafði Gullauga, 12,8 af hund-
raði. Hinar tegundirnar höfðu
sterkju, er nam 10—11 af hund-
raði. Næst var tekið upp úr til-
raunareitum 22. ágúst, og hafði
Frh. á 4. slðu.
Joachim von Ribbentrop, sem skrif-
aði undir samninginn við Stalin.
AÐ er einkenniiegt til þess
að vita, að hinn raunvem-
legí höfundur andkommúnistiska
sáttmálans, Ribbentrop utanríkis-
málaráðherra Þjóðverja, er ný-
kominn frá Moskva, þar sem
hann var að skrifa undir vináttu-
samning þeirra Hitlers og Stal-
ins- Meðan hann dvaldi
í Moskva, bjó hann í húsi
því, sem sendisveit Austurríkis
bjó í fyrrum, og þar blakti
Rakakrossfáninn við hún.
Joachim von Ribbentrop er ekki
meira en 46 ára að aldri. Faðir
hans var ofursti, og hinn núver-
andi utanríkismálaráðherra er
fæddur í Wessel við Rin. Að
loknu stúdentsprófi í Metz stund-
aði hann um skeið tungumála-
hám í Sviss, Frakklandi og Eng-
landi. Nokkrum árum fyrir
heimsstyrjöldina gerðist hann
kaupsýsiumaður í Kanada.
í ágústmánuði 1914 snéri hann
heim aftur til Þýzkalands og
varð liðsforingi í tólftu herdeild
húsara. Efrir stríðið hafnaði Rib-
bentrop sem aðstoðarmaður hjá
trúnaðannanni hermálaráðuneyt ■
isins þýzka í Tyrklandi, von
Seéckt ofursta. Eins og kunnugt
er stofnaði ofursti þessi ríkis-
vamarliðið og var öflugur and-
stæðingur Hitlers.
Ribbentrop sagði skilið við her-
þjónustuna árið 1920, þegar hann
var orðinn ofursti, og gerðist
kaupmaður í Berlín. Hann eign-
aðist tvö verzlunarfyrirtæki, og
verzlaði annað þeirra einungis
með vln. Auk þess gerðist hann
ymboðsmaður kampavínskaup-
manna.
Áríð 1923 kvæntist þessi vín-
kaupmaður dóttur hins fræga
kampavinsframleiðanda, Otto
Henkels. Þrem árum seinna lét
hann frænku sína, sem hét von
Ribbentrop, ættleiða sig. Ástæð-
an var sú, að hann vildi gjarnan
fá titilinn von fyrir framan nafn-
ið sitt, svo að hann gæti komizt
í hin glæsilegu samkvæmi aðals-
ins. Þetta tókst.
Árið 1930 vænkaðist mjög
hagur hans. Þá fékk hann að
kynnast Hitler í sölum aðals-
mannanna. „Foringinn“ hafði
nefnilega þá fundið leiðina inn í
sali stórgróðamannanna og eig-
enda þungaiðnaðarins. Hann var
mjög tíður gestur bæði í klúbbi
stórframleiðendanna í DUsseldorf
iog i Hansaklúbbnum í Hamborg.
Joachim von Ribbentrop átti
sinn öfluga þátt í því, að Hitler
var gerður að kanzlara árið 1933.
Það var nefnilega hann, sem kom
því til leiðar, að Hitler og von
Papen hittust í húsi Kölnar-
bankamannsins baron von
Schroeders. Á þeim fundi skipu-
lögðu þessir tveir herramenn
samsærið gegn þáverandi kanzl-
ara, von Schleicher hershöfðingja.
Þessi sami von Papen hefir
oft síðan unnið ýmis erfið verk
fyrir ,1foringfann,‘. Síðasta afrek
hans var undirbúningur vináttu-
ýsamningsins í Moskva.
Eftir samsærið í Köln fékk von
Ribbentrop stöðu meðal nánustu
trúnaðarmanna Hitlers. 1 apríl-
mánuði 1934 er hawn sérfræðing-
ur stjórnarinuar í afvopnunar-
málum. Ári seinna er hann send-
ur til Englands og aflaði sér þá
þekkingar á ensku yfirstéttinni
og afstöðu hennar til nazismans,
en hún lét hann á sér skilja, að
frá Englandi þyrfti nazisminn
ekkert að óttast. Ehska stjórnin
myndi ekki grípa til vopna fyrr
ten á elleftu stundu. En nú virjy
ast þó Þjóðverjar hafa spennt
bogann of hátt.
Loks rann upp hin stóra stund
fyrir von Ribbentrop í fyrra, 4.
febrúar, þegar von Neurath var
sparkað á hinn eftirminnilegasta
hátt og vinkaupmaðurinn tók við
embættinu í utanríkismálaráðu-
neytinu.
Maður skyldi ekki trúa því að
óreyndu, að þetta sé kommún-
istahræða nazistanna og höfund-
ur andkommúnistiska sáttmálans-
Þessi sami maður var lífið og
sálin í þátttöku Þjóðverja í
Spánarstyrjöldinni, stríðinu, sem
nazistamir sögðu, að háð væri
eingöngu gegn rússneska konim-
únismanum. Núna er Joachim
von Ribbentrop nýkominn frá
Moskva. Það virðist dálítið
kyndugt.
Hinn þýzki utanríkismálaráð-
herra er enn frenrur fullur af
heimskulegu hatri á Bretum og
Frökkum. Það er einkennandi
fyrir hann, að hann gortar af
því að vera afkomandi von Rib-
bentrops hershöfðingja, sem var
samtímamaður Bliichers hers-
höfðingja og góður vinur hans.
Eftir orustuna við Waterloo árið
1815 fór hann með prússneska
Joachim von Ribbentrop.
herinn til Parísar og heimtaði
100 milljónir gullfranka í skaða-
bætur og krafði inn féð án nokk-
urrar niiskunnar. Ein hótun hans
vgr sú, að ef féð væri ekki greitt,
færi hann með borgarstjórann í
París til Þýzkalands og honum
yrði haldið sem gísl í hinu
hræðilega fangahúsi Graudenz.
Það er ef til vill afrek á borð
við þetta, sem hinn fyrrverandi
ofursta dreymir um að fram-
kvæma.
Raftækjaeinkasalan og
ra f lagningasveinarnir.
♦---
I
BLÖÐUNUM í vor og sum-
ar var getið um, að eitt fyrsta
afrek samsteypustjórnarinnar væri
að leggja niður raftækjaeinkasöl-
una.
Er sagt fullum fetum, að það
hafi verið krafa Sjálfstæðisnmnna
fyrir hönd stórkaupmannanna, að
þetta yrði gert, ef samvinna ætti
að eiga sér stað um stjóim af
þeirra hálfu, Sjálfstæðismann-
anna.
Þegar Jakob Möller fór utan
í vor, var ólafur Thors staðgeng-
ill hans, og var hann ekki seinn
á sér að segja fólkinu upp stöð-
tunni í einkasölunni. Einnig kvað
kennslumálaráðuneytið hafa,
svona til gamans, sagt upp öllu
fólkinu við útvarpið.
En því var Jónasi sleppt?
Harla lítilþægir eru þeir, stór-
kaupmennirnir, sem láta sér
nægja þetta. Þeim verður ekkert
gagn að þessari ráðstöfun, þvi að
sala raftækjanna verður eftir-
leiðis í höndum tveggja eða
þriggja manna. Þegar frá líður
verður sú einokun verri en sú
opinbera og verðið hærra. Ef rík-
ið á að fá jafnmikið í sinn hlut
og áður, hlýtur verðið aö hækka,
því að tollurinn verður að hækka
um það, sem því nemur.
En raftækjasölumálið hefir
aðra hlið, sem er meira virði.
Hún snýr að raflagningasveinun-
um.
Eins og menn muna, hefir ver-
ið háð barátta nokkur á milli
raflagningasveina og meistara
um nemendatökur. Var um hríÖ
búið að unga út svo mörgum
sveinum, að tíl stórra vandræða
horfði, og vinnuleysi mikið meðal
sveinanna. Eiríkur Hjartarson
skrifaði um þetta mál og heimt-
aði aukna nemendatöku. Svaraði
ég honum þá lítils háttar, og er
þetta iKtr engan árangur, var
reynt að fá þingið til þess að
breyta iðnlöggjöfinni útungunar-
mönnum nemenda í hag, en mis-
tókst þó að nokkru.
Og nú kemur ný tilraun til
þess að kúga raflagningasveina.
Þeir hafa fengið landsréttindi,
svo að þeir geta tekið að sér
verk. Sjálfstæðismenn í lands-
stjórnlnni hafa komið meisturum
til hjálpar með aðstpð Framsókn-
armanna og ákveðið (án þing-
heimildar) að leggja niður raf-
tækjaeinkasöluna. Afleiðingin af
því er sú, að tveir eða þrír ineist-
árar fá í hendur einokun á öll-
um verkum, sem boðin verða út
eftirleiðis, því að þeír hafa eink*-
fumboð í útlöndum og geta þvi
boðið lægra en raflagningasvein-
ar, sem verða að skipta við heild-
sala, á meðan meistararnir eru að
ná full'um tökum og gera þá at-
vinnulausa. Svo hrúga þeir inn
nemendum I ofanálag og vinna
með þeim og reka þá svo út,
þegar þeir eru fullnuma.
Á þennan hátt hafa meistar-
arnir náð tvöfaidri afstöðu, og
þó að heildsali hafi eitthvað á
boðstóium, getur hann ekki selt
þáð neinum, nema þessum tveim
til þrem mönnum, sem taka hjá
þéim það, sem þeir hafa ekki
sjálfir. Þetta stendur stutta stund,
á meðan verið er að þvinga raf-
lagningasveina út úr handverk-
inu, og svo verður unnið með
nemendum eingöngu, og þá verð-
ur almenningur, sem á að njóta
vinnunnar, gersamlega berskjald-
aður fyrir því, hvernig hann
verður meðhöndlaður, bæði hvað
verðlag snertir, vinnugæði og af-
köst.
Afleiðingin af þessu tiltæki
verður að lokum óheyriiegt verð,
verri einokun en í nokkurri ann-
ari mynd og eyðilegging heillar
stéttar, rafiagningasveinanna. En
meðan einkasalan starfar, verður
ekki unnt að beita þessum að-
ferðum, því að sveinarnir hafa
jafnan aðgang að henni og meist-
ararnir vegna þess, að þeir liafa
landsréttindin.
Hvað hafa raflagningasveinar
tii saka unnið með því að ríkis-
stjórnin ræðst svo óþyrmilega á
starf þeirra og réttindi? Hér virð-
ist stefnan vera sú, að fórna
fjöldanum fyrir hagsmuni tveggja
eða þriggja manna.
Það virðist vera mál til komið,
að Sjálfstæðismenn gefi ákveðn-
ari skilgreiningu á því, hvað það
er, sem þeir eiga við með ein-
staklingsframtaksskrafi sín«,
iivort átt er við einokunarstreitu
eins eða tveggja manna eða
framtak heillar stéttar, eins og
hér um ræðir.
Jón Árnason, prentari.
Hertogahjénin atWindsor
kninin tll London.
LONDON í gærmorgun F.O.
Hertoginn af Windsor, Játvarð-
ur fyrrv. Bretakonungur VIL, og
frú hans, komu til London ígær.
Þau hafa verið fjarverandi nærri
þrjú ár.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Saltflsknr
til neyzlu innanlands.
Eftir fyrirmælum atvinnumálaráðherra höfum vér
tekið að oss að sjá svo um, að jafnan fáist góður saltfiskur
til innanlandsneyzlu með lægsta útflutningsverði.
Fiskurinn fæst pakkaður í:
50 kg. pakka nr. 1
50 kg. pakka nr. 2
50 kg. pakka nr. 3
25 kg. pakka nr. 1
25 kg. pakka nr. 2
25 kg. pakka nr. 3
og kostar
og kostar
og kostar
og kostar
og kostar
og kostar
kr. 25,00
kr. 22,50
kr. 20,00
kr. 12,75
kr. 11,50
kr. 10,25
Fiskurinn verður seldur og afgreiddur til kaupmanna
og kaupfélaga frá
H.f. Kveldúlfur, Reykjavík.
Verzlun Einars Þorgilssonar, Hafnarfirði.
SðlQsamband ísl. fisbframleiðenda.
y-it* ■Þ'.'tiHwVí.- ii*/-*- **
■