Alþýðublaðið - 21.09.1939, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 21.09.1939, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 21. SEPT. 1839 ALÞYÐUBLAÐIÐ Svanírnir. K *£££' vjí?í''!v - ?í. Nú var sólin komin ofan að hafsbrúninni. Hjarta Lísu skalf, þá fóru svanirnir að lækka flugið. Sólin var nú horfin til hálfs ofan í sjóinn. Þá fyrst kom hún auga á lítinn klett í haf- inu. Hann virtist ekki stærri en svo, að rostungur gæti leegið á honum. uimii'iuimmi—'.. LfflB».. a.jj.iw .#.«11.1«.—iMimn— — ,wiju.MiwgiigMWa— UMRÆÐUEFNI Blndindis- málavikan. ÍmMTUDAGINN 5. októ- ber n. k. hefst hér í bæ bindindismálavika, sem Þing- stúka Reykjavíkur hefir beitt sér fyrir að koma af stað. Þátt- toku hafa lofað þessi félög og sambönd, auk Góðtemplara- reglunnar: Kennarasamband íslands, Samband Ungmenna- félaganna, Skátar, íþróttasam- band íslands, Samband bind- indisfélaga í skólum, Slysa- varnafélag íslands, Bandalag kvenna í Reykjavík — og verkalýðsfélögin fjögur: Dags- brún, Iðja, Framsókn og Sjó- mannafélag Reykavíkur. Einn- ig má segja, að kirkjan sé einn þátttakandinn, því að biskupinn yfir íslandi verður einn þeirra manna, sem fyrsta kvöldið flytja stutt ávörp, en auk þess er óskað eftir, að prestar Reykjavíkur helgi ræður sínar þessu málefni að einhverju eða öllu leyti sunnudag bindindis- málavikurnar, sem er 8. októ- ber. Fyrsta kvöldið flytja stutt á- vörp: Fjármálaráðherra, bisk- up, fræðslumálastjóri og þjóð- kunnur maður úr læknastétt, dr. Helgi Tómasson, sem einnig er skátahöfðingi á íslandi, en áfengismálaráðunautur, Friðrik A. Brekkan opnar vikuna. Full- komin vikuskrá verður auglýst seinna. Þessum ávörpum fyrsta kvöldið verður útvarpað. Nefnd sú, er undirbúning annast, hefir leitað til hinna beztu söngkrafta bæjarins, kór- anna, einsöngvara, leikara og hljómlistarmanna, og hafa þessir kraftar heitið liðveizlu sinni hin ýmsu kvöld vikunnar. En félög þau og sambönd, sem verða þátttákénöur,' leggja til ræðumennina. Þarna verður því eitt hið mesta nauðsynja- mál þóðarinnar rætt frá ýms- um hliðum kvöld eftir kvöld, en auk þess góð skemmtun inn á milli. Hér er um heill og vel- ferð einstaklings og þjóðar að ræða, og eins og sakir standa nú, þarf ekki að efa, að almenn- ingur sinnir þessu hið bezta. Fyrir hönd nefndarinnar. Pétur Sigurðsson. DRENGJAFÖT. Klæðið drengi»n smekkleguna fötuna frá Sparta, Laugavegi lt. Sími 3094. Útbreiðið Alþýðublaðið! Fjöldinn er skáld. Skaðlegar sögur og skemmtilegar sög- ur. Hamstrarar og kafbátur- inn. Er rétt að ætla pela- barni jafnmikið af kaffi og fullorðinni manneskju? — Rúgmjöl í slátrið, en engan sykur til niðursuðu. Bréf um brennivín, drykkjuskap, sprúttsala og templara og svar frá kunnum bann- manni. Skoðanafrelsi einn dag og eitt orð um vin minn kommúnistann. —o— ATHUGANIR HANNESAR Á HORNINU. —o— FJÖLDINN er skáld, meira skáld en nokkur einstaklingur. Sögurnar, sem hann hefir búið til undanfarna daga um hamstrara í bænum, eru margar, og skemmti- legar eru sögurnar um litla kaf- bátinn, sem kom hingað í fyrra- dag. hað gerir ekkert til um sög- urnar um kafbátinn, en sögurnar um hamstrara eru stórkost- lega skaðlegar. Ég hefi heyrt sögur um það, að allir með- limir rikisstjórnarinnar hafi flutt ógrynni af nauðsynjum heim til sín, áður en skömmtunin var tekin upp og eitt blað, Vísir, hefir ymprað á þessu og talað um „menn í hæstu stöðum“, sem hafi gert þetta. — En sögur þessar eru á- reiðanlega tilhæfulausar með öllu. ÞETTA ERU hættulegar sögur, og ég tel sjálfsagt, að menn þoli þær ekki. Sögumenn á að taka fyrir og láta þá standa við sögur sínar opinberlega. Það á að rekja slóðina og finna upptökin. Yfir- leitt á að setja strangari lög um ærumeiðingar en hér eru enn sem komið er. SÖGURNAR um kafbátinn eru hins vegar „grín“. Ein var á þá leið, að kafbáurinn hefði tekið kol í einu þýzka skipinu, sem hér liggur. Kafbátar brenna ekki kol- um og hafa áreiðanlega ekki rúm fyrir eitt einasta kolablað. Önnur var um það, að hann hefði skipað upp í Hvalfirði vélbyssum handa þessum fáu Þjóðverjum, sem hér eru, sem ættu siðan að gera upp- reisn og steypa stjórninni. Þriðja var á þá leið, að báturinn hefði tekið mat uppi á Kjalarnesi, KAFFIKARLAR og kaffikerl- ingar eru að hugsa um að gera uppreisn gegn matvælaskömmtun- arnefndinni. Þeim finnst það ekki ná nokkurri átt að ætla pelabarni jafn mikínn kaffiskammt og full- orðnum manni, að maður ekki tali um manneskju, sem lifir svo að segja eingöngu á kaffi. Mér finnst töluvert til í þessu. Það er alveg' fráleitt að ætla börnum eins stór- an skammt og fullorðnum. Mér skilst, að skömmtunarskrifstof- DAGSINS. unni sé þetta líka ljóst, en að það sé svo mikil fyrirhöfn að breyta reglunum — að það sé næstum ó- gerningur, að hennar áliti. Þetta ætti þó ekki að vera mjög erfitt. Og þessu þarf að breyta, sem allra fyrst. Börn innan 12 ára þurfa alls ekki fullan kaffiskammt. NÚ ERU MARGIR að taka slátur, og býst ég við, að það séu góð matarkaup um þessar mundir, að minnsta kosti reynist mér það. Margir hafa hringt til mín og spurt mig, hvernig þeir eigi að fara að því að fá rúgmjöl í slátrið. Það er búið að skýra áður frá því, að þeir, sem taka slátur, eiga að fá viðurkenningu fyrir því að þeir hafi keypt það hjá þeim, sem selur það. Með þá viðurkenningu á svo viðkomandi að fara í verzl- anir og fær hann þá 2 kg. af rúg- mjöli í hvert slátur. Þetta er auka- skammtur. Aukaskammt af sykri er hins vegar ekki hægt að fá, þó að menn ætli að sjóða niður rabar- bara eða ber, enda munu nú flestir hafa lokið því. ANNARS VIL ÉG taka það enn einu sinni fram, að mér er illa við að menn séu að hringja til mín um ýmislegt, sem þeir vilja koma á framfæri. Hins vegar er ég þakk- látur fyrir bréflegar athugasemd- ir og tek þær allar til athugunar. Bezt er auðvitað, að bréfin séu vel skrifuð, en það er þó ekkert að- alatriði. Ég tek þau og leiðrétti og breyti, ef þörf gerist. Engar upp- hringingari VEGFARANDI skrifar mér um stúkurnar o. fl. eftirfarandi bréf: „Þá er nú farið að herja á sprútt- salana. Þeir eru sektaðir og settir inn, og á meðan þeir sitja í náðum á „Garðinum“ selja aðrir fyrir þá og svo byrja þeir aftur, þegar þeir sleppa, og svona gengur það koll af kolli. Og blöðin skrifa. Templ- arar og áfengisvarnanefndir berj- ast hinni góðu baráttu, en ekkert stoðar við að útrýma ofdrykkj- unni, sem stöðugt færist í aukana. En hvar er veilan? Á meðan bann- ið var hér, var bruggað og smygl- að, og svo fór, að almenningsálitið varð oftast hliðholt lögbrjótun- um, svo að þeir áttu hægt með að stunda iðju sína óáreittir. Og drykkjuskapur jókst. Svo var bannið afnumið og „Svarti dauði“ flæddi yfir landið og flæðir enn.“ „TEMPLARAR stóðu ráðþrota. En þá reis upp önnur hreyfing. Það voru fcindindisfélög skólanna, og þeim varð vel ágengt á sínu sviði. Hvers vegna eru þessir ungu menn að stofna sín eigin fé- lög, en ganga ekki í stúkurnar til styrktar þeim og sjálfum sér? Get- ur það ekki verið af þvi, að í bindindisfélög skólanna safnist að- allega hugsandi fólk, en stúkurn- ar eru reknar með hinu mesta miðaldafyrirkomulagi, sem hugs- azt getur af félagsskap á 20. öld- inni? Þeir eru ekki félagar, heldur „bræður“ og „systur“. Eða öll embættin: „kapelán“, ,,dróttseti“, „æðsti templar“ og margt fleira álíka, sem á víst að vera til and- legrar uppbyggingar fyrir „syst- kinin“. Fyrst þegar gengið er inn á fund þarf að hvísla inngangs- orði að dyraverðinum eins og í glæpafélagi. Svo þegar inn er komið blasa við hinir virðulegu embættismenn stúkunnar með stóra, skrautlega útsaumaða kraga, og minna helzt á klafabundnar kýr í fjósi eða dráttarjálka með' aktygjum. Svo þarf að heilsa þeim samkv. ritualinu 'með réttum orð- um og í réttri röð. Svo eru sungn- ir sálmar og ýmis ámátleg ljóð, og' þá fyrst er hægt að fara að snúa sér að fundarstörfum.“ „HALDA NÚ TEMPLARAR, að svona skrípalæti séu öflugasta vopnið í baráttunni við 'Bakkus, eða eru templarar um allan heim svo sofandi, að þeir hafi ekki rænu á að breyta félagsskap sínum eft- ir kröfum tímans? En á meðan slíkt fyrirkomulag ríkir í stúkun- um, þurfa templarar ekki að vænta þess, að þeir geti unnið bug á sjúk- legum tilhneigingum drykkju- manna. Ofdrykkjumaður er sjúk- lingur. Sá sjúkdómur læknast ekki við að ganga í stúku, heldur af- leiðingar hans. Enda eru fyrrver- andi ofdrykkjumenn, sem í stúk- ur ganga, hverjum manni fana- tiskari, og þar sem þeir komast oft hátt í valdastiga stúkunnar, gera þeir góðu málefni svo mikla bölv- un sem nokkur maður getur gert með ofstæki sínu. En sjálfir hafa þeir aðeins gagn af því — þar til þeir falla.“ sæu. L&. æaia ís? u ÉG BAÐ hinn kunna Good- Templar, Jón Árnason prentara, að svara þessu bréfi, og hann gerði það á eftirfarandi hátt: „Mér hefir verið sýndur miðinn frá Vegfar- anda. Er það skrítinn samsetning- ur. Hann virðist vera í vandræð- um með sig. Langar til þess að senda hnútur og hefir á hornum sér. Fullyrðir, eins og andbanning- ar gerðu, að meira hafi verið drukkið á meðan bannið var en áður. Allir vita, að það eru ósann- indi. Hann segir, að þá hafi verið smyglað og bruggað, en nefnir ekkert í þá átt, að það eigi sér stað nú. En enn er bruggað og enn er smyglað og miklu léttara að gera það nú en meðan bannið var. Hann hælir bindindisfélögum skólanna á kostnað I. O. G. T.“ .. 1 „HANN HELDUR ÞVÍ FRAM, að þeir í skólunum hefðu átt að fara í stúkurnar til þess, skilst mér, að hjálpa þeim, en þeir geti það ekki vegna þess að í stúkunum séu svo miklar miðaldakreddur, sem hugsandi menn geti ekkert átt við. Það er auðséð að maðurinn hefir enga þekkingu né reynslu í þessum efnum. Það eru siðir og siðareglur stúknanna, sem hafa gert það að verkum, að þær haía lifað lengst og bezt allra félaga hér Frh. á 4. síðu. QBABflMSg NORDHOFF «g JAMES NORMAN HALL: Upprelsnln á Bounty. fS. Karl ísfeld íslenzkaði. mennina í bátnum. Þetta voru allt gamlir vinir okkar og kunningjar. Oft sá ég, aS Peggy var róið umhverfis skipið. Faðir hennar var oftast með henni, eða bræður hennar. Hún horfði löngunaraugum á skipið. Faðir hennar var svo hygg- inn, að hann leyfði henni aldrei að koma fast að skipinu. Hún hefði áreiðanlega reynt að kalla til manns síns, ef hún hefði álitið, að hann heyrði til hennar, og það hefði aðeins orðið þeim báðum verra. Ég minntist ekki á þetta við Ste- wart. Ég vildi ekki ýfa upp sár hans að óþörfu. Morgun nokkurn, þegar ég var að horfa út um kvistgatið, hrópaði Muspratt: — Gættu að! Ég hafði aðeins tíma til þess að koma kvistinum aftur í gatið, því að bátsmaðurinn kom ofan stigann og Edwards með honum. Þessari heimsókn höfð- um við lengi búizt við. Klefinn hafði ekki verið þveginn lengi. Ég vil ekki segja meira um ástandið í klefanum en það, að fjórtán hlekkjaðir fangar höfðu orðið að gera allar sínar nauð- þurftir þarna inni í viku. Edwards nam staðar í stiganum. — Bátsmaður! Hvaða óþefur er þetta? Herra Parkins skipaði svo fyrir, að hér yrði ekki þvegið oftar en einu sinni í viku. — Látið þvo klefann þegar í stað og segið mér til, þegar það er búið. — Já, skipstjóri. Edwards hikaði ekki lengur, heldur fór burtu sem fljótast. Okkur til mikillar gleði komu nú hásetar með margar fötur af saltvatni og við þvoðum allt hátt og lágt. Þegar við höfðum þvegið klefann, þvoðum við hver öðrum. Þegar við vorum orðnir hreinir aftur, vorum við í ágætu skapi. Þegar þvott- inum var lokið, fór bátsmaðurinn. Að stundarkorni liðnu kom hann aftur og var þá Hamilton læknir í fylgd með honum. Læknirinn leit snöggvast á mig vingjarnlega. Að öðru leyti lét hann ekki á sér sjá, að hann hefði séð mig áður. Hann gekk á milli okkar og leit á okkur. — Það verður að búa um þetta, maður minn, sagði hann og benti á stórt kýli á hnénu á Muspratt. — Látið flytja hann í spítalaklefann, herra Jackson. — Já, læknir. Menn báru jafnmikla virðingu fyrir Hamilton og skipstjór- anum. En hann sá enga ástæðu til þess að tala við okkur með aðstoð milligöngumanns. — Hafa fleiri kýli eða sáraveiki? spurði hann. — Ef svo er, þá segið strax til, og ég skal láta flytja ykkur í sjúkra- klefann. Munið, að það er skylda mín að sjá um heilbrigði ykkar, ekki síður en hinna, sem hér eru um borð. — Má ég segja fáein orð? spurði Stewart. — Gerið svo vel. — Gætum við ekki stöku sinnum fengið nýjan mat, meðan skipið liggur hér við? Við eigum kunningja meðal hinna inn- fæddu, sem myndu með ánægju senda okkur nýjan mat. — Og með því væri hægt að spara skipsbirgðirnar, læknir, sagði Coleman. Hamilton læknir horfði á okkur einn af öðrum, — En þið fáið nýjan mat, sagði hann., —- Nei, læknir, því miður, sagði Coleman. — Herra Par- kins skipaði svo fyrir ... — Ég skil, sagði læknirinn. — Ég skal rannsaka málið. Ef til vill er hægt að kippa því í lag, Við þökkuðum honum, og hann fór upp á þiljur. Það var bersýnilegt, að meðferð sú, sem Parkins lét okkur sæta, var án vitundar skipstjórans og skipslæknisins. Ed- wards kærði sig ekki um að skipta sér af grimmd liðsfor- ingjans, en Hamilton kom oft að vitja um okkur. Eftir þetta var sæmilega þrifalegt í klefa okkar, og við fengum sams konar mat og skipverjarnir á Pandora. XVII. í LEIT AÐ BOUNTY. Morgun nokkurn í byrjun maí voru fóthlekkirnir leystir af okkur Stewart, og við vorum leiddir í sjúkraklefann á lág- þiljunum. Hamilton læknir beið eftir okkur í ganginum. Hann sagði ekkert, en benti okkur að koma inn. Við gerðum svo, án þess að vita, hvað um væri að vera, og dyrunum var lokað. Tehani og Peggy voru þar með báðar dætur okkar. Tehani kom til mín, vafði mig örmum og hvíslaði lágt í eyra mér, svo að enginn heyrði: — Byam, ég hefi engan tíma til að gráta. Ég verð að flýta mér. Atuanai er hér með 300 Tantiramenn, beztu hermenn sína. Þeir hafa komið eftir ströndinni 5—10 í einu. í marga daga hefi ég reynt að hitta þig. En ég hefi ekkert tækifæri fengið fyrr en núna. Þeir vilja ráðast á skipið að nætur- lagi. í myrkrinu geta fallbyssurnar lítið meim gert okkur. En við erum hrædd um, að hermennirnir drepi þig, áður en við náum þér. Þess vegna hefir árásin ekki verið hafin ennþá.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.