Alþýðublaðið - 21.09.1939, Side 3

Alþýðublaðið - 21.09.1939, Side 3
ALÞYÐUBLADtD Degar Dýzkaland íér í striðið. tT ÉR fer á eftir grein, sem einn af blaðamönnum norska Alþýðuflokksins ritaði 7. þessa mánaðar. Hann var þá nýkominn frá Þýzkalandi. í greininni lýsir hann því, sem fyrir augun bar dagana, sem Þjóðverjar voru að leggja ót í stríðið. Mannfjöldinn úti fyrir ríkiskanzlarahöllinni við Wilhelmsstrasse í Berlín, þar sem Hitler býr, einn síðasta daginn áðúr en stríðið hófst. FIMMTUDAGUR 21. SÉPT. 1939 «------,----------------—♦ ALÞÝÐUBLAÐIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON. í fjarveru hans: STEFÁN PÉTURSSQN. AF©REI®SLA: ALÞÝÐUHÚSINU (Inagangur frá Hverfisgötu). SÍMAR: 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 4902: Ritstjéri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 4905: Alþýðuprentsmiðjan. 4906: Afgreiðsla. 5021 Stefán Pétursson (heima). ALÞÝSUPRENTSMIÐJAN ♦------------------------* Fekið í flest skjól. ÞEIM, sem fylgzt hafa með fréttaburði og skrifum kommúnistablaðsins hér heima síðan Hitler íog Stalin gerðu með sér vináttusamning sinn austur í Moskva og steyptu Evrópu út í blóðbað og hörm- ungar stríðsins, mun seint úr minni hða, með hve aumkv- unarverðum loddaraleik það hefir, fram á síðustu stundu, reynt að ljúga sig út úr stað- reyndunum eða leyna þýðingu þeirra fyrir lesendum sínum. „Gleðiefni fyrir alla, sem friði og frelsi unna,“ kallaði Þjóðviljinn það, þegar fyrstu fréttirnar bárust af hinum fyr- irhugaða vináttusamningi Hitl- ers og Stalins! Og skýringin, sem hann gaf lesendum sínum á þessari frétt var sú, að hér væri aðeins um herbragð eða blekkingu að ræða af hálfu Stalins. Hann ætlaði bara að knýja England og Frakkland til að gera „traust varnarbanda- lag“ við Sovét-Rússland gegn yfirgangi Hitler-Þýzkalands! Raunverulega dytti honum ekki í hug að gera neinn samn- ing við Hitler. En daginn eftir var samning- urinn undirritaður af Molotov og Ribbentrop austur í Moskva í hátíðlegri viðurvist Stalins. Þá snéri Þjóðviljinn við blaðinu og sagði, að Stalin hefði samið við Hitler til þess að bjarga heimsfriðinum! Hitler hefði orðið að beygja sig fyrir „friðarstefnu Sovétríkjanna, sem hefðu rekið aftur allar á- rásir fasistaríkjanna"! En samningurinn hafði ekki fyrr fengið formlega staðfest- ingu í Berlín og Moskva, en morðtólin voru komin í gang og árás Þýzkalands á Pólland hafin með öllum þeim hroða- legu hermdarverkum, sem nú- tímastríði eru samfara. Þannig var Moskvasamningurinn í framkvæmd. Nú'var úr vöndu að ráða fyr- ir Þjóðviljann. Einhverju varð að ljúga til þess að þvo æru Stalins. Þá uppgötvaði blaðið allt í einu, að samningurinn hefði verið gerður til þess „að bjarga Kína.“ Og Halldór Kilj- an Laxness minnti um leið á það 1 grein, sem hann skrifaði í Þjóðviljann, að Kínverjar væru 400 milljónir, svo sem til að sýna, hve göfugt verk hér hefði verið unnið og hve lítil- fjörlegt það væri, að vera að fást um það, þótt 200 milljónir Pólvérja, Þjóðverja, Englend- inga og Frakka hefðu í staðinn verið ofurseldar ógnum . stríðs- ins! En það leið ekki á löngu þar til einnig var fokið í þetta skjól. Eftir örfáa daga var Stal- in búinn að semja frið við Japani austur í Asíu og fórna 400 milljóna þjóðinni í Kína. Og nú kom loksins í ljós, hvað það var, sem Stalin ætlaði „að | bjarga.“ Það var hvorki heims- friðurinn né Kínverjar, heldur bara þær 7 milljónir Ukraine- manna og Hvítu-Rússa, sem hafa lifað innan landamæra Póllands og ekki hingað til orðið þeirrar hamingju aðnjót- andi að komast í kynni við rúss- nesku leynilögregluna, G.P.U. Þetta hafði Alþýðublaðið að vísu sagt fyrir nokkuð löngu síðan. En vitanlega var það þá bara ,,Skjaldborgarlygi“ eins og allt, sem í því stendur. Þjóðviljinn, sem stendur í einkaskeytasambandi við Moskva, vissi betur. „Sovétrík- in hyggja ekki á landvinninga,“ sagði hann, „og munu ekki hyggja á þá. Það er eins fjarri þeim, eins og það væri ósam- rýmanlegt hugsunarhætti ís- lenzkra verkamanna. Ástæðan er einföld: í Sovétríkjunum er verkalýðsstéttin ráðandi, og hún hefir enga hagsmuni af því að leggja önnur lönd undir sig. Þvert á móti. Hún styður frelsisbaráttu kúgaðra þjóða eins og bezt hefir sýnt sig á Spáni og í Kína. Og þess vegna mun æsingamönnunum við Al- þýðublaðið ekki verða að von sinni um það, að Sovétríkin ráðizt [inn á Pólland.; Einnig þessi von Skjaldborgarinnar mun bregðast.“ Þannig fórust Þjóðviljanum orð þ. 13. september síðastlið- inn. Og Þórbergur Þórðarson var svo viss um sannleiksgildi þeirra, að hann hét því sam- dægurs 1 viðtali úti í bæ, að hengja sig, ef Sovétríkin gerðu árás á Pólland. En aðeins fjór- um dögum seinna réðist rauði herinn inn í landið að austan, að baki Pólverjum, sem áttu í vök að verjast vestur í landi fyrir hersveitum Hitlers. Þór- bergur er þó sagður vera enn á lífi. En það væri nú sannarlega engin furða, þótt lesendur kommúnistablaðsins væru, eftir svo átakanlega afhjúpun þess, farnir að finna þörf til að hugsa sjálfir um það, sem fram er að fara fyrir augum þeirra. Enda leynir það sér ekki á Þjóðvilj- anum þessa síðustu daga, að honum er það fullkomlega ljóst, að þeir séu nú loksins búnir að fá nóg af lygunum og blekking- unum, sem bornar hafa verið á borð fyrir þá til þess að breiða yfir hin ægilegu svik Sovét- Rússlands við friðinn, lýðræðið og verkalýðshreyfinguna í heiminum. „Innan Sósíalista- flokksins,“ stynur blaðið nú upp eftir hina smánarlegu árás rauða hersins á Pólland, „gætir ýmissa sjónarmiða, og hver flokksmaiður er að sjálfsögðu sjálfráður að því, hvaða skoðun hann myndar sér í þessu efni“! Öðruvísi mér áður brá. Fyrir tveimur árum gerðu kommún- ístar það að skilyrði fyrir sam- einingu verkalýðshreyfingar- innar hér á landi í einn flokk, að tekin væri „skilyrðislaus af- staða með Sovét-Rússlandi sem landi sósíalismans.“ En nú koma þessir herrar og segja í auðmjúkum tón, að „hver flokksmaður sé a,ð sjálfsögðu sjálfráður að því, hvaða skoðun hann myndar sér í þessu efni“! Þegar erindrekar Moskva eru svo langt leiddir, þá er vissu- lega fokið í flest skjól fyrir þeim, enda er þess að væntá, að hlutverki þeirra sé nú brátt lokið hér á landi eins og annars staðar utan Sovét-Rússlands. Fyrir því hefir nú Stalin séð. ¥ SÍÐASTLIÐINNI viku var •*• sérstök sýning höfð í Staat- liche Museum í Berlín,. en það er hið mikla þýzka vopnaminja- safn og stendur við Unter den Linden. Skammt þaðan er gröf „óþekkta hermannsins“. Þessi viðhafnarsýning var íaldin í tilefni af aldarfjórð- ungsafmæli orustunnar við Tannenberg. Öllum hátíðahöld- um af þessu tilefni, þar á með- al Tannenberghátíðinni sjálfri, hafði verið aflýSt á síðasta augnabliki, en í þess stað vakti sessi sýning ákaflega mikla at- hygli. Það var stöðugur straum- ur af fólki út og inn um dyrnar að þessari óhugnanlegu sýn- ingu. Fólk á öllum aldri og af aáðum kynjum stóð í þögulum fylkingum fyrir framan allan vopnafjöldann frá hinni miklu Tannenbergorustu. Þarna stóðu herforingjar í skrúða og undir- foringjar, S.A. og S.S. fólk, sem heilsuðu stórskotabyssunum úti í garðinum með nazista- kveðju, þarna voru ungar kon- ur og gamlar gráhærðar konur — allir virtust jafn herteknir af minningum, sem þessi morð- tól framkölluðu frá hildarleikn- um fyrir 25 árum. Þetta var aðeins örfáum tim- um áður en hildarleikurinn átti að hefjast á ný, en á þessari stundu voru það aðeins fáir út- valdir, sem vissu, hvað fram . undan var, Hvorki áhorfend- urnir hérna inni í Zeughaus eða fólkið uti á götunni hafði nokkra hugmynd um, hvað í vændum væri. Þetta fólk var þó alltaf milli vonar og ótta — en slítandi kvíði einkenndi þó öll andlitin. Á kaffihúsunum ræddu menn í hálfum hljóðum um, það litla, sem blöðin og út- varpið höfðu skýrt frá, og fyrir utan ríkiskanzlarahöllina í Wil- helmsstrasse stóð þolinmóður mannfjöldi og beið svo klukku- stundum skipti meðan „foringj- ar“ af öllum stigum komu og fóru í sífellu í luxusbílum sín- um. Götulífið breyttist í einni svipan, flestir einkabílar hurfu, og maður sá varla annað en bíla herforingjanna. Norskur bíll vakti mikla athygli, ekki sízt vegna þess, að flestir út- lendingar voru farnir frá Ber- lín, hvað þá bílar þeirra. * Við höfðum komið frá Ham- borg og vorum á heimleið um Berlín. Það var sannarlega ekki hægur vandi að komast leiðar sinnar, meðal annars vegna þess, að það var varla mögulegt að fá nokkurn ben- zíndropa til kaups. Á flestum benzíntönkum hékk spjald með áletruninni „Nur fiir Wehr- macht“’ (aðeins fyrir herinn), og öðrum þýddi því ekki að biðja um benzín. 1 Kiel feng- um við ekki einn einasta dropa, og heldur ekki í sjálfri Ham- borg, en á einstaka stöðvum fyrir utan borgina fékk maður 5 og í hæsta lagi 10 lítra. Það var þó nóg til þess, að við kom- umst á milli benzíntankanna. Á einum stað vorum við svo heppnir að hitta velviljaða sál, sem einhvern tíma hafði komið til Stavanger, og hún lét okkur fá heila 25 lítra. Þar með var okkur bjargað, en drottinn má vita, hvernig farið hefði, ef við hefðum ekki hitt þenna aðdá- anda Stavanger. Norska sendi- sveitin í Berlín útvegaði okkur benzín þar. Á öllú Norðúr-Þýzkalandi unnu menn éins og þeir ættu lífið að leysa að uppskerustörf- um. Sums staðar var unnið að nóttu til, og þar þresktu menn kornið við Ijós undlr berum himni. Það var eftirtektarvert, hve margar konur tóku þátt í þessum störfum og hvað fáir karlmenn. Óteljandi flutninga- bílar, geysistórir með dieselvél- um, með marga smávagna í eft- irdragi óku með flughraða eftir v.egunum, og hermenn voru á verði alls staðar, sem stöðvuðu menn og athuguðu plögg þeirra. Maður fór ekki í neinar graf- götur með það, að maður var í landi, sem var að undirbúa sig undir ófrið. Og svo að segja all- ir vissu, að ófriðurinn var í nánd. Úti í sveitunum var fólkið annaðhvort þögult eða ákaf- lega hrifið af Hitler. „Haldið þér, að ófriður sé í nánd?“ Þannig spurðum við mann nokkum við benzíntank. „Já, ef foringinn vill,“ var svarið. „En hvað segið þið eiginlega hérna um þýzk-rússneska samninginn?" „Hann er áreið- anlega góður fyrir Þýzkaland, ef hann væri það ekki, þá hefði Hitler ekki látið undirskrifa hann.“ * Á sunnudagskvöldið var fyr- irskipunin um matvæla- skömmtun gefin með tilkynn- ingum í blöðum og útvarpi, og. átti hún að koma til fram- kvæmda strax næsta morgun. Matvælaskömmtunin náði til margra vörutegunda, en engum var vel ljóst, til hvaða vöruteg- unda hún næði og hvaða vöru- tegundir væri frjálst að kaupa. Afleiðingin var fullkomin ring- ulreið. Ýmsar verzlanir tóku það til bragðs að loka. En það var tafarlaust bannað. Flestar verzlanir tóku þá upp á því að hafa dyrnar lokaðar, en af- greiðslufólkið á sínum stað við búðarborðin og urðu svo þeir, sem fyrir utan stóðu, að sýna kort sín, áður en þeir fengu að fara inn. Að þessu hefði oft verið hægt að brosa, ef mönnum hefði ver- ið hlátur 1 hug. Það var rifizt í gegnum lokaðar búðardyrnar, hvort frjáls sala væri á þessari eða hinni vörutegundinni, hvort leyfa mætti að sélja axla- bönd eða klossa, og fyrir utan gerði fólkið ýmist að grátbæna eða krefjast þess að fá þær vör- ur, sem það vanhagaði um. Á standið var eins fyrir utan búð- arholurnar í fátækrahverfun- um eins og fyrir utan luxus- verzlanirnar á Kurfursten- damm. Villt hræðsla hafði grip- ið um sig meðal Gyðinganna í Berlín. * Sú saga hafði komizt á kreik, að ef stríð brytizt út, ætti að útrýma öllum Gyðingum í Þýzkalandi, og sendisveitar- skrifstofur lýðræðislandanna voru svo að segja umkrlngdar af Gyðingum, sem grátbændu um hjálp. Einstöku Gyðingum tókst að fá dvalarleyfi í öðru landi. Að minnsta kosti fengu nokkrir Gyðingar leyfi til að fara til Englands. En svo allt í einu kom tilkynningin um það, að farþegalestir væru stöðvað- ar og landamærunum lokað. Á Stettiner-Banhof stóðu mörg hundruð Gyðingar með vega- bréf og farseðla reiðubúnir til að flýja til annarra landa, sem þeir toldu að veita myndu sér meira öryggi. Þá kemur til- kynningin um stöðvun lest- anna. Það er ekki hægt að lýsa þeirri örvæntingu, sem greip fólkið. Svo var hræðslan ægi- leg, að ekki var annað sjáan- legt en að verið væri að leiða fólkið á höggstokkinn. Við tók- um með okkur í bílinn unga Gyðingakonu, sem við hittum á götunni í Berlín. Hún hafði vegabréf sitt áritað og ætlaði til Englands. Farseðla hafði hún keypt. Hún sagði, að mað- ur sinn hefði dáið í fanga- búðum, og að hún stæði alein uppi með 6 ára gamla dóttur. Okkur tókst að sleppa með hana gegnum þýzka landa- mæravörðinn, en danski landa- mæravörðurinn vísaði henni á bug. Eftir mikið stímabrak tókst okkur þó að bjarga henni. Hún slapp yfir landamærin á síðasta augnabliki. Þetta var á- reiðanlega ekki eini Gyðingur- inn í Berlín, sem hefði kosið að sleppa úr landinu í norskum bíl. Við vorum oft og mörgum sinnum stöðvaðir af Gyðingum, sem báðu okkur um að flytja sig yfir landamærin. Margir af þeim höfðu engin vegabréf, og þeir komu með hinar undarleg- ustu uppástungur. Auðvitað gátum við ekki hjálpað neinum af þeim. Tveimur dögum seinna hittum við tvo unga Gyðinga í Kaupmannahöfn. Þeir höfðu upp á von og óvon synt frá Þýzkalandi út í Eystrasalt og þeim hafði verið bjargað af danskri fiskiskútu. Nú ætluðu þeir að gerast sjálfboðaliðar í her bandamanna. * Um ástandið meðal annarra Berlínarbúa er aðeins hægt að segja það, að vonleysi og næst- um því uppgjöf einkenndi svip þeirra. í úthverfum Berlínar- borgar mættum við óteljandi hópum manna, sem kallaðir höfðu verið til vopna. Allir þrömmuðu þeir af stað til næstu járnbrautarstöðvar með litla tösku í hendinni. Þeir gengu fjórir í röð. Enginn þeirra söng. Enginn þeirra mælti eitt einasta orð. Allir voru þeir þögulir eins og gröf- in. Við hlið þeirra gengu konur þeirra, unnustur eða mæður, Þær voru líka þögular. Við mættum einnig hópum í her- klæðum með stálhjálma og byssur, en það voru engin blóm í byssuhlaupunum, enginn á- kafi, engin gleði. Einstaka sinn- um heyrðist hrópað frá áhorf- endunum á gangstéttunum „Heil Hitler", án þess að her- mennirnir svöruðu. 1 austur- hluta Berlínarborgar voru öll torg og allar götur fullar af mönnum, sem kallaðir höfðu verið til vopna. Þarna kvöddu þeir ástvini sína. Þarna var enn þá meira vonleysi, ennþá meiri sorg í svip fólksins. Þeir, sem höfðu útvarpstæki, settu þau í opna gluggana, og undir þeim safnaðist fólkið saman í hópa til að hlusta á síðustu fyrirskipanirnar frá „i|oringjunum“ f— '„Það er bannað að hlusta á erlendar útvarpsstöðvar! Brot gegn þessu varðar allt að dauðarefs- ingu.“ Þannig hljóðaði ein fyr- irskipanin. Við spyrjum, hvort þessu muni verða hlýtt, og við fáum þetta svar: „Auðvitað fer maður nú fyrst að hlusta á er- lendar útvarpsstöðvar. Okkur er vel ljóst, að við erum dulin þýðingarmiklum atriðum. Við vitum, að við erum leynd sann- leikanum.“ Þetta sagði verka- maður við okkur í Berlín, en áður en hann mælti þessi orð, leit hann vel í kringum sig.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.