Alþýðublaðið - 22.12.1939, Page 1
Mnnið
Mæðra
styrksnefndina
RITSTJÖRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR 22. DES. 1939.
299. TÖLUBLAÐ.
Eekinn nr Frið
arfélaginu
STJÓRN og fulltrúa-
ráð Friðarfélagsins,
íslandsdeildárinnar í Mel-
lanfolkligt samarbete, á-
kvað á síðasta fundi sínum
að víkja Einari Olgeirssyni
úr félaginu fyrir það að
hafa í blaði sínu, Þjóðvilj-
anum, t'ekið afstöðu með á-
rás ítússlands á Finnland.
Taldi félagsstjórnin og
fulltrúaráðið slíkan mann
ekki liæfan til þess að vera
meðlimur í félagi, sem
berst fyrir friði og sam-
vinnu meðal þjóðanna.
Innbrot í úrsmíða-
vlnnnstofn í nótt.
T NÓTT var framið innbrot
í úrsmíðavinnustofu Jó-
hanns Búasonar á Baldursgötu
8.
Hafði verið brotin stór
gluggarúða og farið þar inn á
vinnustofuna.
Var stolið 7 armbandsúrum,
einum tóbaksdósum, gylltu háls
meni og einum manséttuhnöpp-
um.
Hafa Finnar lokkað Rússa
í gildru á Norður-Finnlandi ?
----«--
Undanhald Finna par hefii* skyndilega snáfzt upp
í sékn off Rdssar eru uú á éskipuliigðum flétfa.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun.
UNDANHALD FINNA á Norður-Finnlandi, þar sem
Rússum hefir miðað töluvert áfram undanfarna daga,
hefir nú skyndilega snúizt upp í sókn, og hafa Rússar sam-
kvæmt símskeytum hlutlausra fréttaritara orðið að hörfa
undan í skyndi, og eru nú á óskipulegum flótta.
Virðist svo sem Finnar hafi með undanhaldi sínu síð-
ustu dagana verið að lokka Rússa í gildru, og látið af ásettu
ráði framvarðasveitir þeirra sækja svo langt fram, að hægt
yrði að króa þær af með óvæntri gagnsókn.
Hríðarveður er á vígstöðvunum í Norður-Finnlandi og frostið
sums staðar komið upp í 32 stig.
Bardagarnir á Kyrjálanesi
héldu áfram í hörkufrosti og
snjó í gær, án þess að Rússum
yrði nokkuð ágengt með áhlaup-
um sínum. Fyrir norðan Lad-
ogavatn var einnig barizt og
segjast Finnar þar hafa her-
tekið 9 stóra skriðdreka, 2 fall-
byssur og mörg önnur hergögn.
Margar loftárásir voru gerðar
á finnskar borgir í gær og er
talið, að um 150 rússneskar
flugvélar hafi tekið þátt í þeim.
Stærstu loftárásirnar voru
gerðar á Helsingfors. Komu
Memmúnistaflokkarinn
pnrkaðnr ít á Sejrðisfirii.
— ♦
Flokksfélagið farið sem heild úr flokknum.
SÓSÍALISTAFÉLAG SEYÐ-
ISFJARÐAR hefir sagt sig
úr Sameiningarflokki alþýðu
— sósíalistaflokknum, sem
heild. Var þetta samþykkt á
fundi í félaginu með öllum at-
kvæðum fundarmanna gegn 2.
Meðal þeirra, sem samþykktu
tillöguna og liverfa um leið úr
flokknum, eru Steinn Stefáns-
son, sem var formaður komm-
únistadeildarinnar áður, og
Sveinbjörn Hjálmarsson bæjar-
fulltrúi.
I rökstuðningi félagsins fyr-
ir úrsögninni segir m. a.:
,,Þeir stjórnendur Sósíalista-
flokksins, sem hafa valið þá leið
að fórna samhug og einingu ís-
lenzku alþýðunnar á altari
þeirrar trúar, að þeim bæri að
fyigja, hvernig sem á stæði, á-
kveðnum erlendum málstað,
eru í augum félagsins óhæfir til
að veita íslenzkum alþýðuflokki
forustu."
Þannig heldur upplausnin á-
fram í kommúnistaflokknum.
Þinpgnnnin komm-
finistíi iendir sam-
nn í
Mjög neyðarlegt atvik kom
fyrir á alþingi í gær við
umræður um lögreglufrum-
varp Hermanns Jónassonar.
Þeim tveimur þingmönnum
kommúnista, ísleifi Högnasyni
og Einari Olgeirssyni, sem eftir
eru síðan Héðinn sagði sig úr
flokki þeirra, lenti saman út af
því.
ísleifur sagði í ræðu, sem
hann hélt um frumvarpið, að
lögreglan ætti samkvæmt því
að vera takmörkuð og auk þess
væri tryggt með lögum, að
henni yrði ekki beitt í vinnu-
deilum, svo að „alþýðan hefði
ekkert að óttast“, eins og hann
komst að orði. Hér væri aðeins
verið að stofna nýja bitlinga.
En að ræðu ísleifs lokinni
reis upp Einar Olgeirsson og
virtist vera mikið niðri fyrir. —
Sagði hann, að það væri alger
misskilningur, að alþýðan hefði
ekkert að óttast af lögreglu-
frumvarpinu og lét í ljós mikla
vandlætingu yfir allri túlkun
flokksbróður síns á því.
Skemmtu þingmenn sér hið
bezta við þessi óvenjulegu orða-
skipti, nema Héðinn. Hann sat
dreyrrauður undir umræðun-
um, en þagði þó, og vissi ber-
sýnilega ekki, hvorum fyrrver-
andi flokksbróðurnum hann
átti heldur að fylgja.
sprengikúlur niður í 3 sjúkra-
hús borgarinnar og urðu þau öll
fyrir miklum skemmdum. Loft-
árásirnar voru einnig gerðar á
Tammerfors, Ábo og Hangö og
er talið, að um 30 manns hafi
samtals beðið bana af völdum
þeirra í gær.
Afmællsðagar Stalins.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
í rússneskum blöðum er lítið
um styrjaldarfréttir í dag og
eru blöðin full af lofgreinum
um Stalin. Honum er hælt fyrir
vizku, hæfileika og mannelsku.
Hann var í dag — á sextugsaf-
mælinu — sæmdur Leninorð-
unni, sem er mesta heiðurs-
merki Rússa, en sá, er síðastur
fékk það á undan Stalin, var
von Ribbentrop utanríkismála-
ráðherra Þýzkalands.
Mýr landvarnamálaráð-
herra í Neregi.
KHÖFN í morgun. FÚ.
Vegna veikinda landvarnar-
ráðherra Noregs, Monsen. verð-
ur nýr landvarnarráðherra
skipaður þar í landi í hans stað,
en ekki er þess getið, hver eigi
að taka við þessu embætti.
Stjórn sænsku loftvarnanna
leggur til, að úthlutað verði ó-
keypis gasgrímum til 1,2 millj-
óna manna í þeim héruðum Sví-
þjóðar, þar sem þörf verður að
teljast á.
10000 sænskir
sjáliboðaliðar ð
Frá fréttaritara Alþýðubl.
KHÖFN í morgun.
QMMKVÆMT fregn frá
^ Helsingfors berjast nú
þegar 10 000 sænskir sjálf-
boðaliðar með Finnum á
móti Rússum. Hafa þ'eir
myndað sérstaka sænska
herdeild og er henni
stjórnað af sænskum liðs-
foringjum, sem gengið
hafa úr þjónustu sænska
liersins til þess að fara til
Finnlands,
Þá hafa Finnar og sam-
kvæmt sömu fregn nýlega
fengið 37 flugvélar frá
Svíþjóð, allar mannaðar
Svíum.
Hitfer fiskar Staiin
langra Iffdaga.
OSLO í gærkveldi. FÚ.
TTITI.fr ríkiskanzlari Þýzka
lands sendi Stalin heilla-
óskaskeyti í tilefni af 60 ára af-
mæli hans í gær, og er þess ekki
getið, að nokkur annar þjóð-
höfðingi hafi gert það.
í skeyti þessu árnar Hitler
Stalin langra lífdaga og far-
sælla fyrir hann persónulega og
vinaþjóðina í Rússlandi.
Dauðinn nýtur lífsins.
Þá nýbieytni hefir Leikfélagið
tek'i'ð upp í sambandi við sýningu
á leikriti þessu að á undan sýn-
ingunni leikúr stór hljómsveit
gndir stjórn Urbantsohitsch for-
Ieiik eftir hann, sem sarninn er
sérstaklega fyrir sýningu leiks-
ins.
Þýzkar loftárásir á Mi-
skip Breta i Murs]ónin>
Sprengikélum varpað á skfpin og
skotið af vélbyssum á sjémennina
Strætisvagnarnir
hætta akstri á
Ikvöld kl. 8.
aðfangadags-
Þ
LONDON 1 morgun. FÚ.
ÝZKAR flguvélar hafa
sökkt br’ezka togaranum
„River Anon“. Á togaranum
voru allmargir danskir sjó-
menn, sem hafði verið bjargað
eftir að þeirra eigin skip hafði
farizt á tundurdufli. Hinum
dönsku sjómönnum og 10
manna áhöfn brezka togarans
var bjargað og eru sjómenn
Kallio Finnlandsforseti við liðskönnun í Helsingfors. Við hlið
hans Hugo Österman, einn af æðstu foringjum finnska hersins.
Finnskt stórskotalið á Kyrjálanesi.
þessir allir komnir á land í
brezkri höfn.
Togaraskipstjóri að nafni
Treacher hefir lýst árásum
Þjóðverja á fiskiskip Breta. Er
hann skipstjóri á einum togar-
anum, sem varð fyrir slíkri á-
rás.
Tvær þýzkar árásarflugvélar
réðust á togara hans kl. 11 síð-
Frh. á 4. síðu.
Fínnlandssðfnnnlii eins
dæml I sðgu Islendlnga
- —.— <>—.-
Rauða krossi STinnlands veréur
I dag send kvart milljén marka
. ♦-------
Söfnunin er nú 60 þúsund kr.
AÐ mun vera algerlega
einsdæmi í sögunni, að
Islendingar hafi sýnt samúð
sína eins áþreifanlega í verki
og nú í sambandi við Finn-
landssöfnunina.
Ritari íslandsdeildar Nor-
ræna félagsins, Guðlaugur
Rósinkranz, sagði við Alþýðu-
blaðið í morgun:
„Við sém hófum þessa söfn-
un, stöndum alveg undrandi.
Okkur datt ekki í hug að þjóð-
in myndi taka svona vel undir
málaleitun okkar. Mér berst
daglega mikill fjöldi bréfa,
póstávísana . og símskeyta. Svo
að segja í hverri einustu sveit
á landinu ganga sjálfboðaliðar,
sem taka það algerlega upp hjá
sjálfum sér, bæ frá bæ og safna
fé. í fjölda mörgum sveitum
hefir hvert mannsbarn gefið
sinn skerf. Menn, sem aldrei
taka þátt í samskotum, álíta
þau „humbug“ og eru taldir að-
sjálir, koma jafnvel sjálfir með
fé orðalaust. Það er auðfundið
að menn líta á það sem skyldu
sína að leggja fram fé. Það er
áreiðanlegt, að íslenzku þjóð-
inni finnst að með því að
styrkja Finna í baráttu þeirra
gegn hinum rússnesku land-
ræningjum, þá taki hún sjálf
þátt í landvörnunum með hin-
um glæsilegu hetjum finnsku
þjóðarinnar á vígvöllunum.
Glæsilegastar hafa undir-
tektirnar verið á Dalvík og í
nágrenni. Þaðan komu á 3. þús-
und krónur. Þá koma Borðeyri
og nágrenni og Sauðárkrókur
og nágrenni. Annars koma síð-
ar skýrslur um allar gjafirnar.
Söfnunin er nú komin upp í
60 þúsund krónur og í dag vona
ég að við getum sent Rauða
krossi Finna Va milljón finnskra
marka í ávísun.“
— Hvað telur þú að söfnunin
geti orðið mikil?
„Það er alltaf erfitt að spá.
En það er alveg víst að hún
kemst upp í um 70 þúsundir
króna, og það er meira en 60
aurar á hvert mannsbarn í land-
Frh. á 4. slð«.