Tíminn - 12.05.1917, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.05.1917, Blaðsíða 1
TÍMINN kemur út einu sinni i viku og kostar 4 kr. til áramóta. TÍMINN AFGREIÐSLA á Laugaveg 4 (Bóka- búðinni). Par er tekið á móti áskrifendum. I. ár. Reykjavík, 12. maí 1917. 9. blað. Um lanðbútiaðinn. Fjárskorturinn. t*að er nú orðin allgömul stað- hæfing, að peningarnir séu afl þeirra hluta sem gera skal, og hafi hún nokkurntíma verið hæpin, þá verður hún naumast talin það lengur. Að minsta kosti er það ekki of- sögum sagt, að margt er ógert látið, sem hægt væri að gera með pen- ingum. Peningarnir eru að verða þarf- asti þjónninn — líka hér á landi. Það getur ekki heitið, að langt sé siðan að peningar tóku til starfa hér heima svo að verulegu næmi, og eiga þó aðal-framfarirnar sem orðnar eru rót sína til þeirra að rekja. Einkum hefir þeim verið beitt. fyrir sig um verzlunina og sjávar- útveginn. Enda heíir þetta hvort- tveggja tekið stórvægilegum stakka- skiftum á skömmum tima. Aftur á móti hefir sáralitlu fé verið veitt inn í landbúnaðinn, •enda sér þess nú stað, landbúnað- urinn hefir dregist aftur úr, haml- ar ekki uppá móti framförum sjávarútvegarins. En af því leiðir baggamun sem kosla verður kapps um að jafna og það sem fyrst. Atvinnuvegirnir verða að þrosk- ast í samræmi. Sé þess ekki gætt, verða þeir hver öðrum til byrði. En þetta hefir verið látið undir höfuð leggjast, og verður þá næst að skella þeirri skuld á þá fjár- málamenn sem mestu hafa getað ráðið um það, hvernig fjármagnið skiftist milli atvinnuveganna. Víst er um það, að sjórinn um- hverfis landið er auðsæll, og vel «r það farið hve landsmenn sjálfir eru komnir á legg með að nota sér þá auðsuppsprettu. En hitt er engu síður áreiðan- legt, að landið sjálft er engu ólík- legra til þess að tryggja það fé sem í landbúnaðinn er lagt, en sjórinn féð sem sjávarútvegurinn hlýtur. Síðan bankarnir urðu tveir og fjármagnið jókst í landinu, hefir verið litið svo á að íslandsbanki ætti sérstaklega að sjá sjávarútveg- inum fyrir fé, en Landsbankinn landbúnaði. Hefir íslandsbanka óneitanlega tekist betur að ynna sitt hlutverk af hendi. Og á þetta ekki sízt rót sina í fyrirkomulagi lánskjaranna. Það er eins og bankarnir þori ekki að veita lán til landbúnaðar nema með afarkostum. Veðdeildarlánin aldrei þótt hent ug, en sízt munu þau fara batn- andi, þykja 4. flokks veðdeildar- kjörin hreinasta neyðarbrauð, hafa þau þvert ofaní það sem til var ætlast, orðið að stýflu í áveitufar- vegi peninganna á kirkingslegan landbúnaðargróður þessa lands. Ókjör skilyrðin sem fullnægja þarf, og illa lánað út á veðið. Finst mönnum þó að jarðeignir í sveit- um, sem að engu liggja undir ágangi, sé svo tryggt veð, að lán- stofnanir mættu vel gera sér það að góðu, lánstofnanir sem fyrst og fremst er ætlað að stuðla að fram- þróun sveitanna til móts við sjó og kaupstaði. Það sem mun eiga að bæta upp veðdeildirnar eru sjálfskuldar- ábyrgðarlánin. Eru það upphaflega lán til árs í senn, en sú hefð kom- in á um þau, að nægilegt þykir að endurgjalda tíunda hluta þeirra árlega auk vaxta. Verður ekki séð að þessi láns- kjör séu sniðin eftir þörfum land- búnððarins. Mun betur eiga þau við sjávarútveginn, og hefir hann líka getað notað sér lánin með góðum árangri. þetta liggur í því, að búskapar- gróðinn er seintekinn, en útvegs- gróðinn uppgripagróði. Væri mikil bót að þeirri breyt- ingu, þótt ekki væri meira, að sjálfskuldarábygðarlán fengjust til 10 ára, en í stað 10% afborgunar öll árin auk vaxta, yrðu vextirnir einir goldnir fyrstu fimm árin, en 20% afborgun árlega siðari fimm árin. Lánið með þessum hætti að fullu greitt á jafn-skömmum tíma. Ætti þetta að vera útlátalítil breyting og sjálfsögð þegar hvort- tveggja ynnist, að peningarnir kæmu með þessum hætti lántak- anda að meira gagni, en lánstofn- unin hinsvegar langtum öruggari um að fá sitt aftur að fullu goldið. Fyrstu árin veitast frumbýlingum erfiðust hvort heldur þeir byrja með lánsfé eða lílil efni. Seinlegt að auka bústofninn og þurfa jafn- framt að farga viðkomunni. En björninn unninn þegar hringrás er komin á hæfilega framleiðslu. Pessvegna kæmi sér betur að geta ált kost á lánsfé sem væri af- borganalaust í fimm ár, og jafnvel ekki nema hægðarleikur að borga það að fullu á fimm árum úr því Eg er sizt bankafróður og ætla mér ekki þá dul að gerast leiðsögu- maður í þeim efnum. En af því að eg hefi sjálfur reynt sjálfskuld- arábyrgðarlán lil búskapar þá er mér það ljóst, að umrædd breyting á þeim væri til stór-bóta. Hitt er aðalatriðið, að forsprökk- um fjármálanna skiljist það, að það er ekki einungs markaður fyrir fé peningabúðanna í sveitinni, heldur tryggur og góður markaður. Og meir en það. Landinu og þjóðinni er það ómetanlegur hagnaður að aðalatvinnuvegirnir þroskist í sam- ræmi, en þeir eru aftur undirstaða undir árferði minni atvinnugrein- anna. En landbúnaðurinn réttir því að eins við, að þarfasti þjónn- inn, peningarnir, verði teknir í þjónustu hans. Engnum kemur til hugar að ekki verði fundið hentugt lána- fyrirkomulag. Hingað til hefir skort á að að því væri leitað. En þá er að þora að leggja fé í landbúnaðinn. Að lánstofnanirnar þori það, og að fólkið þori það. Hvorutveggja hugsa til fellishætt- unnar. Hún er líka aðalhættan. En fellishættan er bein afleiðing af því að menn þora ekki að leggja fé í landbúnaðinn. Þora ekki að kosta svo miklu til, að menn geti verið öruggir. Vilja heldur »lotterí- ið«. En það er mótsögn í því að landbúnaðurinn sé eða eigi að vera »lotterí« í landi þar sem 80 ær ala önn fyrir tólf barna heimili og koma þeim öllum til manns. Þó mun óttinn hjá fólkinu um að leggja fé í landbúnaðinn að miklu leyti sprottinn upp úr láns- kjörum landsmanna eins og þau hafa verið og erfiðleikunum við að fá fjárlán. Aðal atriðin eru því að um þessa hluti njóti að manna með glöggum skilningi á gæðum og þörfum þessa lands, manna sem láta sér ant um jafnvægi atvinnuveganna. Það er fyrsta skilyrðið. Síðan þarf að út- vega meira fé, ekki með því að taka það af sjávarútveginum — við eigum að jafna uppá við, en ekki niður á við, — og er sízt að efa að það fáist ef réttilega er um alla hnúta búið. Það getur ekki verið íslenzka jarðarverðmætinu að kenna að sala veðdeidarbréfanna hefir eigi lánast betur, jafn óbundið og það er. Enda liefir það sýnt sig um eitt skeið. Bjartsýnin um íslénzkan land- búnað gerir ötula og framsýna fjármálastjórn að höfuðskilyrði, eigi hún ekki að verða sér til vanza. Skipaferðir. F á 1 k i n n fór á- leiðis til Danmerkur á sunnudag- inn, tók póst og allmarga farþega (um 20), meðal þeirra var for sætisráðherrann með stjórnarfrum- vörpin á konungsfund. B i s p lagði af stað frá Nevv York þ. 7. þ. m. Ceres á heimleið með kol, lienn- ar von á hverri stundu. í s 1 a n d komið til Halifax. lannskaðar - Mannbætur. Eftirtektarvert nýmæli. Það er ekki að sjá að við ís- lendingar séum skaðsárir. Og hvaða skaðar geta þó verið sárari en mannskaðar. Og hverjir skað- ar eru jafn óútreiknanlegt tjón og mannskaðarnir. Árið 1912 flutti Guðm. Björns- son landlæknir fyrirlestur um Mannskaða á íslandi undanfarin 30 ár (1881—1910). Hann kemst að þeirri niðurstöðu að manndauði af slysförum sé um það bil þrefalt tídari hér en i öðrum löndum. Og þó eru til margar mannhættur sem við höfum ekkert af að segja, svo sem námuslys, járnbrautarslys og slys í stórvinnustofum, þar sem margskonar vélar eru í gangi. Hér fara menn í sjóinn. Á þessum 30 árum drukknuðu hér við land 2096 manns, en af öðrum slysum fórust 441 maður. Druknanirnar nema meira en % allra slysa eða 83%. Og einkum virðast druknanir fiskimanna gífurlegar. Af hverjum þúsund fiskimönnum í Noregi ferst á þessum árum að jafnaði 1 mað- ur, en hér við land drukna árlega 12 af hverju þúsundi fiskimanna. Þiiskipin hafa þó verið mannskæð- ust, á þeim fórust 15 af þúsundi árlega 1904—’IO, árin sem skýrsÞ ur eru til um druknanirnar þar. Druknanir íslenzkra fiskimanna tólf sinnum tíðari en Norðmanna, það er alveg ógurlegtl Sjá allir hvílik blóðtaka þetta er þjóðinni. Enda kemst landlæknirinn að þeirri niðurstöðu að hér séu um þjóðartjón að ræða »sem iðulega er á borð við það sem aðrar þjóð- ir líða í mannskæðum styrjöldum. Enda segir hann: »1906 druknuðu af okkur 123 karlmenn (l,5%o af þjóðinni); ef enska þjóðin hefði það ár orðið fyrir öðru eins tjóni, þá hefði hún átt að missa 65.490 karlmenn. í Búastríðinu 1899—1902 féllu ekki nema 5.774 manns af Englendingum. . . í franska stríð- inu 1870—71 var manntjón Þjóð- verja öllu minna að tiltöiu en mannskaðar á sjó hér á íslandi árið 1906. Og en meira var tjónið hér, miðað við fólkstjölda árið 1897 (l,6°/oo) og 1887 (l,7°/oo)«. Á þessu tilfinnanlega manntjóni verður að ráða tvenna bót. Það verður að gera alt sem hægt er til þess að draga úr mannhætt- unni við fiskveiðarnar, eins og landlæknirinn stakk upp á, þvi að orsakirnar liggja ekki í sjónum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.