Tíminn - 12.05.1917, Side 4
36
Tí MINN
í fjarveru minni eru menn beðnir að snúa sér til
hr. kaupmanns Sigurjóns Péturssonar
með alt er viðkemur sölu á Tuxham-mótorum eða vara-
stykkjum í þá.
Sömuleiðis gefur hr. mótorsmiður Ólalur
Jóusson, Aðalstræti 6, upplýsingar um Tux-
ham-mótorinn.
Reykjavík 5. maí 1917.
Þorkell Þ. Clementz.
lega vitlausa lygasögu og leggur í
munn okkar G. M., þar sem því
er haldið fram, að bert sé fyrir
hvern einstakan bónda á íslandi
að sigla með vörur sinar til Spán-
ar, Ameríku o. s. frv. Greinar okk-
ar um verzlunarmálið, ekki sízt
þeir kaflar, sem G. G. vitnar í, gefa
nokkurn veginn ljósa hugmynd um
skoðanir okkar á þessu máli, og
eins hitt, að G. G. er sjálfum ljóst,
að hann fer hér með vísvitandi
ósannindi — í von um að geta
blekt einhverja fáráðlinga. Svo
koma hreystyrðin um samvinnu-
menn: skriffinnar, froðgúlar, Bakka-
bræður, höfuðlausir kálfar, ormar,
höggin hæns. Það, að gera hann
hlægilegan fyrir fáfræði og þjösna-
skap, kallar hann niðingsskap og
ódrengskap, verri en bráðafár. Um
slíka frammistöðu verður ekkert
réttara sagt en það, sem eitt af
helztu skáldunum okkar á að hafa
kastað fram, er hann hafði lesið
ritsmíð G. G.:
y>Maðurinn kann ekki að skrifa /«
Væntanlega fer lesaranum að
skiljast hver aðstaða G. G. er orð-
in. Hann hefir hlaupið á sig, talað
þar sem hygginn maður hefði þag-
að, tekið að sér málstað, sem var
óverjandi, flúið frá þvi sem þurfti
aðj svara, ef grein hans átti að
bæta málstað hans, og að síðustu
sýnt mentun sína og innræti með
því, að fylla marga dálka í ísa-
fold með orðbragði svipuðu því,
sem einstaka sinnum heyrist til
illa gefinna og illa siðaðra götu-
drengja í Skuggahverfinu.
Af einhverjum ástæðum, sem
mér eru ekki ljósar, vill G. G. gera
mig að spámanni. Þessi vegsauki
mun, því miður fyrir okkur báða,
vera ærið óverðskuldaður. En til
að gera G. G. nokkra úrlausn, vil
eg heimfæra upp á hann og gera
að minni spá orð Þórðar Sturlu-
sonar, er hann mælti við Sighvat
bróður sinn, þá er ofsi þeirra
Grundarmanna var mestur og þeir
fóru ráns/erðir um landið: »Enginn
er eg spámaður, en þó mun eg
þér verða spámaður. Svo mikill
sem þú ert nú og trúir á mátt þinn
— — — þá munu fáir vetur líða,
áður það mun mælt, að þar sé
mest eftir sig orðið«.
bau orð rættust á Örlygsstöðum.
Jónas Jónsson.
N auðsynj a-eftirlitið
í landinu er nú orðið all-um-
fangsmikið, alt af fjölgar því sem
skortir, og haldi óáraninni áfram
mun draga að því, hér eins og
annarsstaðar, að óráðlegt þyki að
hafa ekki eftirlit með hverjum bita
og sopa sem landið hefir yflr að
ráða, ef svo mætti að orði kveða.
En þá þarf að fullkomna eftirlits-
kerfið, sérstaklega virðist vanta
allsherjarnefnd er sett sé yfir nefnd-
ir í kaupstöðum, sýslu- og sveit-
arstjórnir svo heildaryfirlit fáist um
ástandið og samræmi eigi sér stað
um sparnaðaraðgerðirnar. Mætti
slík ráðstöfun eigi dragast lengur
en til næsta þings.
Ritfregn.
Kr. Nyrop: Frakk-
land. Guðm. Guð-
mundsson pýddi.
Brynjólfur Björns-
son gaf út. Verð 1,50.
Höf. bókarinnar er kennari i
frönskum fræðum við Hafnarhá-
skóla. Bókin sjálf er Iærð og stund-
um andrík, skálarræða fyrir Frakk-
landi; úr hverri línu andar aðdá-
un á landinu, þjóðinni, sögu Frakka,
bókmentum, listum og þjóðlífi. Höf.
leggur aðaláherzlu á tvo þætti i
eðli frönsku þjóðarinnar: drengskap
og listasmekk. Riddaramenska hafi
verið annað eðli Frakka, frá því
fyrst fóru sögur af. Þess vegna hafi
þjóðin haft svo geisimikil áhrif á
siðmenningu heimsins, verið braut-
ryðjandi frelsis og framfara öld
eftir öld. Hinn þátturinn — lista-
gáfan hefir engu síður verið þýð-
ingarmikil fyrir heimsmenninguna.
Listaandinn gegnsýrir þjóðina.
Hann gerir málið hljómfagurt, en
þó skarpt og nákvæmt. Hann kem-
ur fram í listaverkunum, iðnaðin-
um, samræminu í skipulagi og
byggingarstíl borganna, í rithætti
manna, klæðaburði, matargerð, og
umgengnisvenjum. í stuttu máli. í
öllu lifi þjóðarinnar. Þýðingin er
prýðileg. Kennir þar margra ágætra
nýyrða, t. d. sigildur, um snildar-
verk, sem lifa öld eftir öld. Ný-
yrðið um gotneska byggingastílinn
samt ekki nógu fallegt. Óvíst hvort
ástæða er til að amast við útlenda
orðinu. Frágangur allur á bókinni
mjög góður. J. J.
fulltrúi i jffnteriku.
Björn Sigurðsson bankastjóri
hefir svo sem kunnugt er, verið
fulltrúi landsins í Lundúnum nú um
stund. Allir munu sammála um
það, að hann hafi leyst starf sitt
vel af hendi og starf hans í Lund-
únum borið góðan árangur. Hann
hefir liðkað til um skipagöngur
hingað, fengið undanþágur bæði
um vörur frá Englandi til íslands
o. m. fl. En innkaup mun hann
engin hafa gert fyrir landið, og
ekki heldur til þess ætlast. Hann
hefir verið fulltrúi stjórnarinnar,
en ekki verzlunarfulltrúi.
Nú eru Bandaríkin það land,
annáð en England, sem við verð-
um helzt að hafa skifti við, eins
og nú háttar til með siglingar.
Norðurlönd eru okkur að mestu
lokuð. Nú hefir það síðustu mán-
uðina verið mjög almenn ósk í
landinu, að stjórnin hefði fulltrúa
í Ameríku, sem gegndi þar sömu
störfum og B. Sigurðsson í Lund-
únum. Talað er að stjórnin hafi i
bili samið við O. Johnson heild-
sala um að gegna einhverjum slík-
um störfum fram til þings. Hann
mun hafa farið förina í eigin er-
indum, því að þeir félagar eru að
kaupa þar skip, í öðru lagi fyrir
Eimskipafélagið, enda er hann í
stjórn þess, og í þriðja lagi virðist
hann eiga að gera þar eilthvað
fyrir landið.
Sökum þess að umboð O. J.
mun vera bráðabirgðarráðstöfun,
þar sem talið er að hann komi
heim aftur með Lagarfossi, fyrstu
ferðina; verður það ekki gert að
umtalsefni hér.
En óhætt mun að fullyrða, að
það mælist mjög illa fyrir ef þing-
ið veldi í þessa stöðu mann, sem
œtti mikilla eiginhagsmuna að gœta
vestan hafs. En eins og skiljanlegt
er spara þeir mennirnir sizt að
ota sér fram. Fulltrúi íslands í
Ameríku þarf að vera vel mentað-
ur og álitlegur maður, fær um að
koma fram fyrir iandsins hönd.
En hann verður að vera hafinn
yfir allan grun um að nota stöð-
una sér eða öðrum einstaklingum
til liagsmuna.
Þar sem þetta hlýtur að verða
þingmál í sumar, færi vel á að
kjósendur léti uppi álit sitt á þing-
málafundum i vor. Málið er mikils-
vert fyrir alla þjóðina. í þessa
stöðu þarf alls ekki verzlunarfróð-
an mann fremur en verkast vill.
Það þarf blátt áfram sæmdarmann,
mann, sem vinnur verk sitt á ó-
hlutdrægan hátt, eins og B. Sig-
son í Lundúnum.
Rejnsla í vil bannlögunum.
Menn segja stundum, að almenn-
ingsálitið sé að snúast móti bann-
lögunum. Þjóðin sé að verða leið
á þeim. Ef greidd væru atkvæði
um þau, mundi allur þorri þjóðar-
innar verða á móti þeim.
Ekki finst öllum þetta. Mér koma
í hug tveir menn, sem hafa mikil
afskifti af almenningsmálum í höf-
uðstaðnum. Voru báðir á móti
bannlögunum þegar þau gengu i
gildi, en eru þeim nú fylgjandi.
Annar fullyrðir, að bannið hafi
stórkostlega bætt fjárhagsástæður
fátæklinganna. Sveitarþyngslin hafi
minkað. Fjölmargir heimilisfeður
sem áður eyddu aurum,- saman-
dregnum með súrum sveita, í vín-
föng, og komust svo á sveitina,
þegar harðnaði í ári, eru nú orðn-
ir sjálfbjarga menn. Ávinningurinn
ekki einungis fyrir bæjarsjóð, eða
önnur sveitarfélög, sem kynnu að
hafa þurft að sjá fyrir þessu fólki.
Sigurinn þýðingarmestur fyrir kon-
ur og börn þessara manna, sem
áður liðu mest, bæði fyrir drykkju-
skap mannsins, sífeldan skort og
harðræði; en þó einkum við að
verða mannaþurfi. — Hinn maður-
inn hefir veitt eftirtekt þeim mikla
mun sem nú er, þegar sjómenn
eru mikið í landi, eða var fyrrum.
Þá var það altitt, að fjölmargir
sjómenn væru dauðadrukknir þeg-
ar þeir réðu sig, gerðu mikilsverð-
an samning meðan þeir voru viti
sínu Qær. Þetta var ömurlegt. En
síðan bannlögin gengu í gildi sést
varla drukkinn sjómaður, hvorki
þegar verið er að skrá á skipin
eða um lokin. Þetta eru staðreynd-
ir, sem ekki verður neitað.
Agnar.
»Alúðarþakbirnar«.
»Síðan grein mín kom út i ísa-
fold hafa 3 kaupfélagsstjórar flutt
mér alúðarþakkir fyrir hana«,
segir Garðar. Hér vildi eg gjarnan
eiga »vöruskifti« við stórkaup-
manninn. Vil að hann segi opin-
berlega frá því hverjir þessir þrír
kaupfélagsstjórar eru. Eg gæti aftur
á móti sagt honum hvaða kaup-
menn hafa þakkað mér fyrir grein-
ina sem mest fjallaði um stórkaup-
mennina.
Eg geri mér nú reyndar litla von
um að úr þessu geti orðið, ekki
af því einu, að eg tortryggi hr. G.
G. um að hann segi þetta satt,
heldur öllu fremur af hinu, að
jafnvel Garðar sjálfur hlýtur að sjá
það í hendi sér hvílíkt háð og spé
yrði gert að kaupfélagsstjórum sem
þetta hefði hent, og þýddi líklega
ekkert þótt að eg byði tvo á móti
einum í vöruskiftunum.
Tíðin fer batnandi, sólskin mest-
an hluta vikunnar og hlýnaði í
veðri eftir því sem á hana leið.
Seðlaútgáfnréttnrinn aukinn —
nú eru brauðseðlar að koma í
gagnið hér í Reykjavík. Manninum
ætluð þrjú pund af rúgbrauði og
pund af hveitibrauði á viku.
Umsækjendnr um sýslumanns-
embættið í Árnessýslu eru níu.
Tryggvi Gnnnarsson bankastjóri
liggur þungt haldinn.
Ritstjóri:
Gnðbrandnr Mngnússon.
Hótel ísland 27.
Sími 367.
Prentsmiöjan Gutenberg.