Tíminn - 14.09.1917, Page 1
TÍMINN
kemur út einu sinni í
viku og kostar 4 kr. frá
upphaíi til áramóta.
hto___________________
AFGREIÐSLÁ
Bókbandið á Laugav. 18
(Björn Björnsson). Par
tekið móti áskrifendum.
I. ár.
Bankamáiid.
Framsögurœða
lOinsirs Ái'iiasouar S. þm.
Eyf. við 3. uinr, banUamáls.
ins í Neðri deild.
Landsbankinn hefir nú starfað í
þvínær þriðjung aldar. Hann var
stofnaður af miklum vanefnum
bæði hvað fjárhag og þekkingu
snerti; og af því mun það hafa
stafað, að inn í fyrirkomulagið
komust þegar í byrjun ýms óheppi-
leg ákvæði, svo sem það, að hafa
seðlana óinnleysanlega.
Bankinn var einmitt stofnaður á
mesta harðindakafla 19 aldar. Fá-
tæktin krepti að á öllum sviðum,
líka i Landsbankanum. Bankastjór-
inn hafði staríið að nokkru leyti í
hjáverkum, og hafði sárlítil laun.
Afgreiðslan var ekki opin nema
suma daga vikunnar, og var það
til mikilla óþæginda fyrir viðskifta-
menn bankans, einkum þá er langt
áttu til að sækja.
Þessi litli og fátæki banki, varð
að spara á allar hliðar. Þá var
gæzlustjórafyrirkomulagið sett á
stofn út úr neyð. Bankinn var þá
ekki stærri en sumir sparisjóðir
eru nú; og þinginu mun hafa fund-
ist gæzlustjórafyrirkomulagið ódýrt
úrræði, og um leið hagfelt til að
skapa þinginu einskonar íhlutunar-
rétt um meðferð bankaQárins.
Eptir liðlega 20 ár var bankastjór-
unum fjölgað. Þeir urðu 2. Gæzlu-
stjórunum var haldið fyrir því. —
Göllum þessa fyrirkomulags hefir
rækilega verið lýst i umræðum
um þetta mál í Ed. Skipulag
það er bankinn hefir átt við að
búa síðan 1909, heíir í einu orði
sagt verið kyrstöðufyrirkomulag.
Tveir bankastjórar og 2 gæzlustjór-
ar jafnir að völdum og tign. —
Bankastjórnin varð með þessum
hætti eins og sköpuð til að vera
skift í 2 jafna liluta, og ef útkijá
skyldi deilumál, þá réði aldurinn
baggamuninn.
Ekkert félag, stórt eða litið, skip-
ar stjórn sína svo. Og naumast
þykir mér líklegt að nokkur nefnd
i heiminum sé skipuð með þessum
hætti. Landsbankinn rær þar senni-
lega einn á bát.
Gæzlustjóraembættin hafa með
hverju ári orðið þýðingarminni,
eftir því sem starf bankans óx og
viðskiftin urðu fjölbreyttari. Þeir
vinna ekki nema slutta stund í
bankanum á dag og verða að hafa
það starf í hjáverkum. Geta þeir
því tæplega orðið svo kunnugir
bankarekstrinum sem þörf er á,
þar sem þeir hafa úrslitaatkvæði
um stærstu mál bankans með banka-
stjórunum. Enn hefir kosning
Reykjavík, 14. september 1917.
gæzlusljóranna þann annmarka,
að þar sem þeir eru þingvaldir,
skipar tilviljunarmeirhluti þings-
ins í embætlin. Hlýtur þá stundum
að fara svo, að flokksverðleikar
ráði meiru um hverjir verða fyrir.
kjöri, heldur en þekking á banka-
rekstri og atvinnumálum. Með þess-
um hætti læðast flokkadeilurnar úr
þinginu inn í bankann, og mun
það naumast hafa heillaríkar af-
leiðingar.
Þess vegna eru það mikil fram-
för að losna við gæzlustjóraskipu-
lagið.
Sú ástæða, að bankinn vegna
fátæktar geli ekki haft fullnægjandi
stjórn, er nú horfm úr sögunni.
Gróði bankans er nú farinn að
skifta hundruðum þúsunda á ári,
og gæti þó sennilega meiri verið
með bættu fyrirkomulagi.
Kostnaðurinn við hina fyrirhug-
uðu breytingu 4000* kr. á ári er
mjög lítilfjörlegur ef um verulega
umbót er að ræða. — Vil eg leyfa
mér að víkja að því helzta í því
efni.
Gæzlustjórarnir hverfa úr sög-
unni. Hættan við pólitfska íhlutun
um dagleg störf bankans minkar.
í stað gæzlustjórana kemur þriðji
bankastjórinn. Einn af þeim verð-
ur jafnan lögfræðingur, og sparast
bankanum við það all dýr lög-
fræðisleg aðstoð, sem annars þyrfti
að kaupa, og það eins þó gæzlu-
stjórar væru.
Þegar bankastjórar eru orðnir 3
ræður afl atkvæða, og er þá horf-
ið jafntefli það sem nú er í stjórn
bankans. AÍlhr ákvarðanir verða
greiðari, og um leið nokkur trygg-
ing fenginn fyrir því, að bankinn
geti komið atvinnuvegum landsins
að góðu gagni. Myndi það marg-
borga landinu þann litla kostnað,
sem fjölgun bankastjóranna heíir
í för með sér.
Ekki verður heldur komist hjá
að líta á, að þjóðin verður að gera
miklu meiri kröfur til Landscflank-
ans heldur en gerðar hafa verið
hingað til. Nú meðan stríðið stendur
og öll þau vandræði sem af því
leiða, verða bankarnir báðir að
vera bjargvættir landsins. Því styrk-
ari öruggari og framsýnni sem
stjórnir þeirra eru, því meiri lijálp
veita þeir landsstjórninni og þar
með þjóðinni allri. Einmitt þessi
ástæða hefir fremur en nokkuð
annað orðið til að afla þessu máli
fylgis. Menn hafa viljað að á þess-
um hættutímum væri meiri festa í
stjórn Landsbankans heldur en
unt er að búast við, ef mikinn
meirihluta af sljórn bankans skipa
settir menn.
Þegar friður er kominn á í heim-
inum kalla að aðrar umbætur. Úti-
bú Landsbankans eru enn ekki
nema tvö. Þau hafa bæði gert
mikið gagn. Sökum þeirra og úti-
búa íslandsbanka hafa orðið stór-
miklar framfarir í framleiðslu og
verzlun þar sem þau hafa náð til.
Þar er því ekki nema eðlilegt að
íleiri héruð vilji verða þessar
hlunninda aðnjólandi. Þess vegna
fjölgar með hverju ári kröfunum
um útibú frá Landsbankanum.
Fyrir þessu þingi hafa legið tvær
slíkar beiðnir, og það er vitanlegt
að varla er til það kjördæmi á
landinu, sem ekki óskar eftir um-
bótum og framkvæmdum í þessu
efni.
En þessi umbót er að miklu
Ieyti komin undir því að Lands-
bankinn hafi kröftuga og viljagóða
stjórn; öll úrræðin livíla á banka-
stjórninni. Að vísu skal það játað,
að það verður ekki sannað fyrir-
fram, að fleiri útibú verði stofnuð
þó að gæzlustjórar hverfi, og
bankastjórar verði þrir.
En það eru miklar líkur fyrir
því að heilbrigðara fyrirkomulag
á stjórn bankans muni leiða af
sér meiri og betri framkvæmdir.
Úrræðin fjölga, kyrstaðan minkar,
og þekking á högum almennings
vex. Og á einu sviði myndi fjölg-
un bankastjóra beinlínis geta greitt
fyrir fjölgun útibúa.
Á undanförnum árum hafa banka-
stjórar Landsbankans lítið gert að
því að heimsækja útibúin, þótt
þau séu ekki nema tvö. Og ástæð-
an hefir vafalaust verið sú, að þeir
hafa ekki átt heimangengt frá að-
albankanum. Hinsvegar mun einn
af bankastjórum íslandsbanka
heimsækja öll útibúin, sem sá
banki hefir stofnað, að minsta
kosti einu sinni á ári. Þetta er
góð regla, og verður væntanlega
tekin upp í Landsbankanum, þeg-
ar stjórn hans er orðin jafn starf-
hæf og stjórn íslandsbanka.
Slfkt eftirlit er alveg bráðnauð-
synlegt. Og það er beinlínis ástæða
til að ætla, að bankastjórn Lands-
bankans hafi verið ófús á að
stofna íleiri útibú af því hún liafi
ekki haft aðstöðu til nægilegs eftir-
lits með þeim. En með fjölgun
bankastjóra liyrfi þessi ástæða úr
sögunni. Þá gætu bankastjórarnir
brugðið sér í eftirlitsferðir til skift-
is, og það þótt útibúin væru fleiri
en tvö eða þrjú. Ættu þær ferðir
að hafa töluverða þýðingu til þess
að auka kynni bankastjórnarinnar
á kjörum og atvinnuvegum þjóð-
arinnar.
Þá er hliðin út á við.
Samband Landsbankans við er-
lendar lánstofnanir hefir að því
er virðist ekki verið svo fullkomið
sem skyldi; og töluverð óánægja
er í landinu út af sölu veðdeildar-
bréfanna.
27. blað.
Það verður að vera hlutverk
Landsbankans að veita fjármagni
inn í landið. En til þess þarf einn
af bankastjórunum að geta farið
til útlanda við og við, án þess að
daglegum störfum bankans sé kom-
ið í óefni fyrir það. Virðist svo
sem slík ferðalög muni auðveldari
ef bankastjórar verða þrír í stað
tveggja.
Að síðustu er ein kvöð, sem
óhjákvæmilega verður að leggja á
Landsbankann. Það er aðstaða
landsstjórnarinnar út á við. Eins
og öllum er kunnugt er landið nú,
vegna ýmiskonar dýrtíðarráðstaf-
ana komið í töluverðar skuldir,
bæði við bankana hér og erlenda
banka. Og ef stríðið ekki hættir
áður en langt líður, má búast við
að þær skuldir fari vaxandi. Mun
þá fara svo að landssljórnin þarf
á komandi árum að standa í erf-
iðum fjárreiðum úr á við. Hingað
til mun stjórnin hafa annast þessi
fjármál sjálf. En til lengdar hlýtur
það að verða miklum erfiðleikum
bundið, einkum ef stjórnarskifti
verða tíð eins og verið hefir á
undanförnum árum. Getur þá svo
farið að nauðsynlega festu vanti
út á við. En ef Landsbankanum
væri stjórnað af helztu stjórnmála-
mönnum þjóðarínnar, eins og verða
mun í framtíðinni, ef þjóðin legg-
ur nægilega áherslu á úrlausn
þessa máls, þá ætti sá af banka-
stjórunum, sem sérstaklega annast
erlendu viðskiftin, að vera sjálf-
sagður ráðunautur landsstjórnar-
innar, að því er kemur til lands-
lána erlendis. Mætti þá búast við,
að sá bankasljóri yrði stundum
að bregða sér til útlanda í erind-
um landsstjórnarinnar. Verður sú
nauðsyn ein af mörgum til að
styðja að framgangi þessa máls,
eins og það kemur frá Ed.
Eins og nefndarálitið sýnir, hefir
nefndin athugað breytingartillögur
þær sem fram eru komnar á þing-
skjali 674, og er hún öll sammála
um að leggja á móti þeim. En þar
sem eg býst við að hv. flutnings-
maður þeirra taki til máls og skýri
þær, mun eg ekki að svo komnu
taka þær til athugunar.
Landskjörið. Hlutkesti var varp-
að um það á fundi í sameinuðu
þingi á miðvikudaginn, hverjir
ganga skyldu úr við næstu reglu-
legar kosningar, og komu upp
hlutir 1., 4. og 6. landskjörinna
þingmanna, eða hlutir þeirra
Hannesar Hafsteins, Guðjóns Guð-
laugssonar og Guðmundar Björns-
sonar.