Tíminn - 27.10.1917, Blaðsíða 5

Tíminn - 27.10.1917, Blaðsíða 5
T í M I N N 133 senn: manna sterkastur og mjúkastur. Hann var fríður maður og hinn höfðinglegasti ásýndum. Hann var gleðimaður mikill. Hann hafði farið víða og brotist í lleiru en samlandar hans, en hafði stálminni, kunni því frá mörgu að segja og hafði ávalt á hraðbergi skemtilegar og fróðlegar sögur. Hann kunni manna bezt að stilla skap sitt, enda þurfti liann löngum á stilling að halda á æíi sinni. Mætti um hann segja það sem Haraldur konungur harðráði sagði um Halldór Snorra- son: »að hann hafði verið með honum allra manna svá, að sízt brygði við váveiflega liluti, hvort sem að höndum bar mannháska eða fagn- aðartíðindi; þá var hann hvorki að glaðari né óglaðari; eigi neytti hann matar, eður drakk, eður svaf, meira né minna en vandi hans var til, hvort sem hann mætti blíðu eða striðu«. Á kaupstjóraárunum bjó Tryggvi í Kaupmannahöfn á vetrum. Var heimili hans þar miðstöð fyrir íslendinga í borginni og var þar jafnan gleði mikil og fjölmenni. Sóttu landar mjög á fund Tryggva, um ráð og fjárstyrk, enda var ekki komið að tóinum kofunum, því að Tryggvi var hinn örlátasti um að styrkja unga námsmenn. Þótti honum á siðan gott lil þess að hugsa, að hafa getað stutt marga þá menn sem nú eru nýtastir taldir með þjóðinni, en aðrir voru þeir er lítt launuðu honum hjálp og stuðning. Er það á fárra vitorði í hve afarstórum stil Tryggvi rétti öðrum hjálparhönd um æfina. Ekkert var Tryggva ver við en letina. Þá var hann beiskyrtur, er hann mintist letingja og þeirra manna sem svikust um við vinnu sina, enda voru ekki aðrir menn til er andstæðari voru skapi hans. Sæi hann hið gagnstæða stóð ekki á lofi og launum. Svo var t. d. i sumar sem leið, að menn fluttu kol heim á heimili Tryggva. Hann horfði á vinnubrögð þeirra um stund og fanst til um hvað þeir unnu vel. Því næst borgaði hann þeim fyrir vinnu þeirra og gaf þeim svo krónu hvorum að auki: »fyrir ánægjuna að horfa á ykkur vinna«. Tryggvi hafði miklar mætur á Ungmennafélögunum og vildi hjálpa þeim í starfi þeirra. Hann valdi þeim virðulega en viturlega gjöf. Hann gaf þeim ekki fé, heldur verkefni. Árið 1911 gaf hann Þrastaskóg í Grímsnesi við Sogið og hefir ekki annar maður gefið þeim félögum fegurri gjöf. Tryggvi fylgdist vel með þeirri stefnu sem flutt hefir verið í þessu blaði. Honum var það ljóst að hér var á Iofti haldið því merki sem hann sjálfur hóf hátt á fyrri árum sínum. Og hann vissi hitt líka, að hér er verið að vinna á sama hátt og hann vann afla æfi sína: fyrir heildina, án þess að láta eiginhagsmuni sitja í fyrir- rúmi. Hann óskaði þess oft að hann væri tvítugur en ekki áttræður. Starfsþráin var svo mikil. Hann lét það skýrt í ljós, að ef hann hefði verið á unga aldri þá hefði hann fylt þann flokkinn sem stendur að Tímanum. Sæindir voru Tryggva Gunnarssyni margar sýndar um dagana. Vinsældir hans voru miklar, enda kom það fram í samsætum þeim er liónum hafa verið haldin. Heiðursmerki hafa honum hlotnast fleiri en flestum, en þau verða ekki talin hér. Tryggva varð ekki barna auðið með konu sinni. Fósturdóttir þeirra var Valgerður Jónsdóttir er giftist Þórhalli biskupi Bjarnarsyni. Tryggvi andaðist þrem stundarfjórðungum eftir miðnætti, aðlara- nótt sunnudags 21. október og hafði þá nýlega fylt 82. aldursárið. Fyrirhyggja um störf og stöður. i. Eftir að verulega tók að lifna yfir bjargræðisvegunum hér á landi hefir & meir og meir kveðið að örðugleikunum um alt hjúahald. Vinnukonuvandræði húsmóðurinn- ar í kaupstaðnum og fólkseklan í sveitinni eru algengasta umkvört- unarefnið. En fleiri en þeir, sem hér voru nefndir hafa orðið fyrir barðinu á þeirri ringulreið, sem framfarirnar óneitanlega hafa orsakað í þessu efni. Hvers konar iðnrekendur, kaupmenn, útgerðarmenn og verk- stjórar barma sér yfir þessu, flestir sem eitthvað þurfa að láta vinna harma sér, og jafnvel stærsti vinnu- veitandinn, sjálft þjóðfélagið, hefði oft og einatt líka fullkomna ástæðu til að kvarta í þessu efni. Enda er þetta ofur eðlilegt. Ný störf og ný tækifæri verða til árlega, og víðast hvar er mest óunnið, altaf kostur fyrir fólkið að breyta til, reyna þetta ef eigi gezt að liinn. Og með þessum hætti lendir alt í hringli, fæstir ná þeirri leikni og þeim þroska við störfin, sem æfingin ein veitir, ogþessvegna verða fæstir nema miðlungsmenn til nokkurs starfs. Ofan á þetta bætist virðingar- leysið fyrir vinnunni. Fæstir gera sér þess grein, hversu meir er um það vert að vera ágætur gegninga- maður en lélegur læknir, fyrlr- myndar vinnukona en auðmanns- frú sem ekkikann til nokkurraverka. Þá skortir mjög á um það, að kröfurnar séu heilbrigðar sem gerð- ar eru til verkamannsins í liverri grein, skortir á að þær séu nógu háar. Mannamuninum ekki gefinn nógu mikill gaumur. Og freistingin að horfa um of í aurana, þegar mannamunurinn á í hlut, hefir gert sitt tií að draga úr yfirburð- unum þar sem þeirra varð vart. íslenzkum uppeldismálum er skamt á veg komið, og er slikt ekkert tiltökumál. Nývöknuð þjóð getur ekki verið búin að koma þeirri árinni vel fyrir borð. Og of lítils mega prófm sín til þess að þau séu bæði látin vera eini þrösk- uldurinn í trúnaðarstöðuna og ör- yggistrygging um það, að trúnað- urinn sé fullsæmilega leystur af hendi. Allar þjóðir hljóta að keppa að því að eiga valinn mann í hverju rúmi, en þó er eins og smáþjóð- unum sé það einkum nauðsynlegt. Og því meiri sem fólksfæðin er, því meiri umhyggju þarf til þess, að þetta náist. II. Ófriðurinn mikli heflr hleypt miklum vexti í íslenzkar siglingar. Við erum að verða bjargálnatnenn um farmensku í annað sinn. Eim- skipafélagi íslands er það að þakka, að hér fer ekki alt í handaskolum, úr þvi þetta bar svona bráðan að. Á þremur árum verðum við nú siglingaþjóð. Skipin eru íslenzk, skipshafnirnar íslenzkar að mestu leyti, þarf ekki nema lierzlumun- inn til þess að því marki verði náð. Víst er um það, að eins og þjóð- inni er vegur að því að eignast skipin og geta sjálf annast flutn- ingana milti landa, þá er henni eigi síður vegur að hinu, að eign- ast vel mannaða sjómannastétt. Sjómenskunni hefir hnignað með vélbátum, meir kveðið að fiski- mönnum en sjómönnum í seinni tíð. En nú fer alt þannig að, að sjómannastéttin ætti að geta unnið sig upp. Útgerðarstjóri Eimskipafélags ís- lands hefir látið það á sér skilja á prenti, að þröng væri í búi um íslenzka skipstjóra og stýrimenn á verzlunarskip er stærri væru en 300 smálestir. Jafnframt þessu lét útgerðarstjórinn prenta skilyrði þau er lögin ákveða að fullnægja þurfi lil þess að geta tekist á hendur þessar stöður, og eru skilyrðin m. a. þau, að enginn háseti getur orðið stýriinaður á verzlunarskipi án þess að hafa verið 12 mánuði í förum sem fullgildur háseti á verzlunarskipi, en skipstjóri verður enginn án þess að hafa verið 12 mánuði stýrimaður á skipi í utan- landssiglingum. Úr því þessu er svona farið, þá þarf að leggja mikla áherzlu á það, að sem flestum skipstjórum og stýrimönnum gefist nú kostur á að geta fullnægt skilyrðunum sem lögin ákveða, sém allra flestir sjó- menn sem próf hafa frá sjómanna- skóla þurfa nú að nota tækifærið og gjörast óbreyttir hásetar ef þeir eiga ófullnægt skilyrðunum frá rótum, en annars að sitja um tæki- færið sem hverjum um sig hentar og neyta til þess aðslöðu útgerðar- stjóra Eimskipafélagsins. — Þegar hér er komið grein þessari, fékk ritstjórinn vitneskju um það, að útgerðarstjórinn í samráði við Eimskipafélagsstjórnina hefir haft nokkra fyrirhyggju um þetta mál, og nú eru fjórir menn með prófi frá sjómannaskóla hásetar á ís- lenzku millilandaskipunum. Við skipasöluna miklu verða all- margir skipstjórar og slýrimenn atvinnulausir. Mörgum þessara manna mun það mjög hugleikið, að geta átt kost á því að komast á millilandaskipin, vegna skilyrðanna, og má þá eflaust eiga von á því að útgerðarstjóri E. í. greiði sem bezt götu þeirra manna, bæði til þess að úr megi velja þegar ráðnir eru yfirmenn millilandaskipanna og til þess að hleypa að sínu leyti áþekkum vexti í þennan þroska íslenzkrar sjómannastéttar, eins og vöxturinn varð í skipaeigninni. Virðist nokkurt tækifæri til þessa, meðan erlendir menn fylla sum skiprúmin. t Sigurðtir 6uðmunðsson, óðalsbóndi að Selalæk. Sigurður er fæddur 13. ágúst 1861 á Keldum á Rangárvöllum. Faðir hans var Guðmundur óðals- bóndi Brynjólfsson á Keldum, er fæddur var árið 1794, byrjaði bú- slcap 1819 og bjó í nær 64 ár. Var hann þríkvæntur og átti 24 börn, en 13 voru alsystkin Sig- urðar, börn síðustu konunnar. Eru þeir kunnastir af bræðrum Sigurðar: Jón á Ægissíðu, Skúli á Keldum og Vigfús frá Engey. Guðmundur var gildur bóndi, hygginn og góður búmaður. Bryn- jólfur Stefánsson faðir Guðmundar, óðalsbóndi í Kirkjubæ, var og merkismaður og gildur bóndi og hefir farið saman í þeirri ætt bú- menska góð og fræðaiðkanir og var Brynjólfur einkar ættfróður. Þuríður móðir Sigurðar var og merk kona. Hún bjó 13 ár ekkja á Keldum, svo samtals bjuggu þau hjón 77 ár. Þuríður var dóttir Jóns Sigurðssonar bónda í Skarðshlíð og Stórólfshvoli er var húsa- og skipasmiður og listasmiður á tré og járn. Er Sigurður langt fram í ættir kominn af góðum og gildum bændum í Rangárvallasýslu og má rekja þær ættir saman við allar helztu fornættir. Ólst Sigurður upp á Keldum hjá foreldrum sfnum og fór þaðan eigi fyr en hann kvæntist konu sinni Ingigerði Gunnarsdóttur frá Eystri- Kirkjubæ á Rangárvöllum og reistu þau hjón bú árið 1885 í Vetleifs- holti i Holtahreppi. Þar bjuggu þau eitt ár. Þaðan fluttu þau að Helli og bjuggu þar yfir 20 ár. Á Helli vann Sigurður sér þann orð- stí að vera =talinn einn af mestu fyrirmyndarbændum þessa lands. Vann hann þar miklar jarðabætur og bæinn flutti hann og reisti upp frá grunni ásamt öllum útihúsum, og þóttu útihúsin einkum bera af öðrum þar um slóðir þá. Frá Helli fluttist Sigurður að Selalæk árið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.