Tíminn - 01.12.1917, Síða 3

Tíminn - 01.12.1917, Síða 3
T) MINN 155 og veita ríflegan styrk til strand- ferða, svo að flutningsgjöldin kring- um land verði lægri, fremur en senda vörurnar kostnaðarlaust á allar hafnir, og munu að sjálfsögðu verða gerðar tillögur um það til þingsins. Þegar þessir menn hafa gert til- lögur sinar til stjórnarinnar, má búast við því að fyrirkomulagi landsverzlunarinnar verði breytt i það horf, sem bezt er fyrir alt landið í heild sinni, og líklega verður farið að framkvæma þetta laust eftir áramót. Ákveðnari um- bótatillögur er ástæðulaust að gera fyr en málið er rannsakað til fulls af þeim mönnum, sem eiga að hafa framkvæmdirnar á hendi. Þessari breytingu landsverzlun- arinnar mun fagnað af öllum al- menningi. Lengi hefir hennar verið þörf, en nú er nauðsyn. Vel stjórn- nð landsverzlun er bezta bjargráða- stofnun á þessum erfiðu tímum. Hér mun öll alþýða manna vera einhuga án flokkaskiftingar. Þeir sem ekki geta verið samþykkir slíkum umbótum, geta ekki haft almenningsheill fyrir augum. Vatnsajl nokkurra jossa. í nýútkomnu hefti af Tímariti Verkfræðingafélagsins er erindi eftir Guðm. Hlíðdal rafurmagns- fræðing um vatnsafl nokkurra fossa á íslandi. í upphafi máls síns getur höf- undur þess að mjög sé örðugt að gera sér grein fyrir hve mikið vatnsafl landsins sé. Farvegi ánna megi að vísu mæla, þótl það hafi ekki verið gert enn sem komið er, nema þá búta úr einstöku ám. En um vatnsmegn ánna eða rensli viti menn enn þá minna. Orsakirnar þær að landið er víða lítt kannað, einkum hálendið, að ekki er unt með neinni nákvæmni að ákveða úrkomusvæði eða vatnssvið hverr- ar ár útaf fyrir sig; vatnaskil óglögg og valnsrenslið víða neðanjarðar. Flestar stóránna komi undan jökl- um og þar sem jöklar þekja há- lendið sé að mestu ókleift, að á- kveða skiftingu árrensiis. Jökul- fjöllin mörg eldfjöll og jarðhitinn undir þeim mismunandi á ýmsum tímum. Menn tekið eftir því sem fyrirboða eldgosa að snjórinn eða jökullinn hefir bráðnað örar en ella. Við þetta bætist að um árs- útkomuna á íslandi viti menn harla lítið. Mælingar sem gerðar hafa verið á fimm stöðum með ströndum fram telja hana minsta 875 m/m, en mesta 1320 m/m, en víða á landinu er úrkoman miklu meiri, einkum sunnan í hálendis- brúninni og með hliðsjón á gerðum mælingum telst höfundi ársúrkom- an þar muni vera 3000—4000 m/m. Til samanburðar er þess getið að ársúrkoman á vesturströnd Noregs er viðast 1000—2000 m/m en á vesturströnd Skotland 2500 upp í 4000 m/m. Vantar því undirstöð- una til þess að unt sé að reikna út meðalvatnsmegn ánna hér á landi eftir regnfleti og ársúrkomu. Beinasta leiðin til þess að ákveða rensli ánna sé því að mæla vatns- megnið með til þess gerðum áhöld- um og athuga síðan breytingar þessjjá ákveðnum stað í farveginum. Hingað til hafi fáar slíkar mæling- ar verið gerðar, og þær fáu sem gerðar hafa verið hafi tapað gildi sínu við það að framhaldandi at- huganir vanti. Segir höf síðan frá helztu atrið- um úr mælingum á nokkrum helztu fossum, sem hann gerði 1907—’08 og er það fróðleg skýrla, og því er hennar getið hér, að almenningi mun hugþekt að vita nokkur deili á þessum hlutum. Um fyrsta fossinn, Dettifoss með nágrannafossum, skal tekin upp orðrétt skýrsla höf., svo menn fái sem ljósasta hugmynd um mæling- arnar, en um aðra fossa verður að eins getið niðurstöðuatriða: Jöbulsá á Fjöllnm. »Vatnsmegnið í Jökulsá á Fjöll- um mældi eg 31. október 1907 á ferjustaðnum hjá Grímsstöðum Breiddin var 72 m., þverflötur vatns 80 m2 og vatnshraðinn að meðal- tali 1,38 m/sek. Hann var mældur með flotholti (»Svömmer«). Sam- kværnt þessu var þá vatnsmegn ár- innar 80X1,38=110 m3/sek. Kunn- ugir menn sögðu ána þá um það bil hið minsta, sem hún gæti orðið. Hæðin á Dettifoss mældist 58 m. Hér um bil 1 km. fyrir ofan Detti- foss, er 10 m. hár íoss í ánni, er eg hef nefnt Selfoss1) en ca. 2 km. fyrir neðan Dettifoss er Hafra- gilsfoss, um 24 m. hár. Hallinn í ánni milli Dettifoss og Selfoss og aftur frá Dettifossi niður að Hafra- gilsfossi, er um 30 m. Öll fallhæð árinnar á þessu 3 km. svæði, er þá um 122 m., og ætti að mega fá þar með hinu mælda vatnsmegni 1000 X 122 X 110 —----= 179000 75 hestöfl óbundin, eða um 135000 hestöfl.á túrbínásana, ségengiðútfrá að notagildi vatnsvélanna sé 75°/o- Ofan við Selfoss er hallinn á farveginum lítill og fyrir neðan Hafragilsfoss er hann nær hallalaus á kafla; mun því ekki hægt að gera ráð fyrir, að það borgi sig, að nota í einu lagi meira af ánni, en með stíflu ofan við Selfoss má þó ef til vill auka fallhæðina lítið eitt. f*ess skal getið að þegar mæl- ingarnar voru gerðar var vetur að byrja og veður mjög óhagstæð. (Frh.) Jóhann Fr. Iíristjánsson leið- beinandi í húsagerð er seztur að Reykjavík á Laugavegi 27. Geta menn snúið sér beint til hans þangað um allar upplýsingar. 1) Hann er næstur Hólsseli. Áður mun hann hafa verið nefndur Willand- foss. Steriing hlekkist á. Mánudagsmorguninn 26. þ. mán. um kl. 10 lenti strandferðaskipið Sterling á svonefndu Instalands- skeri skamt norður af Sauðár- króki. Var þetta á innsiglingu, í myrkri logndrífu. Fréttin um þetta barst hingað ekki fyr en um kvöld- íð, sakir símslitanna, en svo stóð á að flóabáturinn Ingólfur var staddur í Borgarnesi þegar fregnin barst þangað og brá hann þegar við án þess að hafa affermt og flutti skeyti hingað suður um strandið. Var Geir þegar fenginn til hjálpar og lagði hann af stað kl. 2 á þriðjudagsnótt og með honum E. Nielsen framkvæmdarstjóri Eim- skipafélagsins. Klukkustundu eftir kom hingað maður frá Útskála- hamri í Kjós, — lengra náði skeyt- ið eigi sakir simslitanna — með skeyti urn það að Sterling væri laus af skerinu og mundi lítt eða ekkert skemdur. Á þriðjudag náð- ust með mikilli yfirlegu skeyti hingað á stöðina frá Borðeyri og var notast við »jarðarsamband« þar sem slitið var. í þessum skeyt- um var sagt frá miklum leka sem kominn væri að skipinu, dælurnar ættu fult í fangi að halda við og var hert á um að hjálp kæmi sem allra fyrst. Daginn eftir bárust fregnir um stórhríð fyrir Norður- landi, ekkert samband hefði orðið haft við Sterling, liann væri enn ofansjávar, en Geir kæmist ekki fyrir Horn sakir ofviðris og lægi á Flateyri. Á fimtudag fengu menn þá fregn að nú væru dælurnar bilaðar og ætti að reyna að halda skipinu á íloti með því að hrúga í það tómum tunnum. í gær komu skeyti um að Geir væri kominn á vettvang og hefði lagt af stað með Sterling til Akureyrar, og er hon- um þá vonandi borgið. Vörur voru talsverðar í skipinu til Sauðárkróks og á Húnaflóa- hafnirnar. Eitthvað af þeim mun hafa skemst en miklu samt bjarg- að á land á Sauðárkróki. Heyrst hefir að Geir muni koina vörum þessum áleiðis, enda mundi ekki af veita ef ísinn legðist að landi sem Geir sá við Horn. Vísir ep sannleikurinn. Hér verða engar hugleiðingar um það fluttar, hvaða hlutfall er milli »Vísis« annars vegar og sann- leikans hins vegar. Hér verða dreg- in fram nokkur dæmi um afstöð- una og þurfa þau engra skýringa við. Öll snúast dæmin um leiguskip landsstjórnarinnar. »Francis Hyde«. Öllum er kunnugt um að leiga skips þessa hefir i þetta sinn orðið frámunalega dýr landsverzluninni, en Vísir tekur þó nokkuð mikið upp í sig. Hér fara dæmin á eftir: Vísir segir, með gleiðu letri, að landsstjórnin greiði leigu fyrir þann tíma, sem skipið var í aðgerð f Bandaríkjunum. Sannleikurinn er sá, að landsstjórnin greiðir ekki leigu fyr- ir þennan tíma. Vísir segir að flutningsgjaldið á hverri steinolíutunnu, frá Banda- ríkjunum til íslands, hafi orðið 80 kr. Sannleikurinn er sá, að flutn- ingsgjaldið fer ekki yfir 60 kr. Vísir segir að skipið fari með 700 steinolíutunnur frá Reykjavík til ísafjarðar. Sannleikurinn er sá, að skip- ið fer með 1300 tunnur þangað, um 120 smálestir af kolum, auk annarar vöru. Vísir segir að skipið verði a. m. k. 15 daga á leiðinni, enda verði að hlaða það grjóti, er það komi aftur til Reykjavíkur. Sannleikurinn er sá, að skip- ið mun ekki verða á leiðinni nema liðugan sólarhring og svo sem tvo sólarhringa, að afferma, en frá fsa- firði fer skipið vestur um haf. Vísir segir að flutningsgjald til ísafjarðar á hverja sleinoliutunnu muni verða 30—40 kr. Sannleikurinn er sá, að flutn- ingsgjaldið mun ekki fara fram úr 8 kr. á tunnu, eða með öðrmn orðum að flutningsgjaldið verður sama og á strandferðaskipunum. Vísir heíir sagt að leiga skips- ins hafi hækkað úr 2500 kr. á dag _upp í 3000 kr., eftir að það kom frá Ameríku. Sannleikurinn er sá, að leiga skipsins hefir lækkað úr því sem áður var. — Óneitanlega virðist svo sem Vísir og sannleikurinn séu and- stæður, sem bágt eiga með að fara saman. Rví að ummæli blaðsins um »Francis Hyde« eru ekki neitt sérstakt fyrirbrigði. fyrirburðir og forspá. Fyrir stórtíðindum verða oft ein- kennilegir fyrirburðir. Margir fyrir- burðir harla merkilegir hafa orðið í Reykjavík síðustu dagana. Þessir eru merkastir: Jón Þorláksson verkfræðingur er orðinn aðstoðarmaður við rit- stjórn Lögréttu og á nú fyrst um sinn að skrifa að staðaldri í blað- ið um landsmál og verkleg mál. Lögrétta sem síðasta árið hefir verið lilutlaust allragagn um lands- mál, kastar ellibelgnum og marg- Iætinu og virðist nú vera að taka sólarhæðina, til þess að ákveða nýja stefnu, undir forystu J. Þ. Jón Þorláksson byrjar mikla grein í Lögréttu um landsverzlun- ina. Byrjar hún á sögulegu yfir- liti og er hálfsögð sagan er einn segir frá. Lögréíta hleður loíi á hr. Olgeir Friðgeirsson fyrir afbragðs forstöðu fyrir landsverzluninni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.