Tíminn - 15.12.1917, Qupperneq 4

Tíminn - 15.12.1917, Qupperneq 4
164 TI M IN N Líísábyrgdaríélagid Danmark §kuldlausar oígnir yfir 35 miljónir kr. Tryg gingarnpphæö yfir ÍOO milj. kr. Pessi 25 niiljóna eign er sameiginleg eign þeirra, sem liftrygðir eru í félaginu. Alíslenzk læknisskoðnn sem fyr, og polica frá skoðunardegi hér. Félagið hefir keypt fyrir yfir 50 þúsnnd krónnr foankaraxtabréf í Landsbanka íslands. ■gSSf Félagið hefir lánað bæjarsjóði Reykjayíknr 150 þiisnnd krónnr. Iflar Bonus. Lág iðgjöld. Umboðsmaður: þorvaíéur c5?álsson, lœRnir. Bankastræti 10. Ritstjóra »Tímans« er kunnungt um að lífsábyrgðarfélagið Danmark tekur og hefir tekið islenzka læknisskoðun full-gilda og heimilað umboðsmanni sinum hér að afhenda skírteini þegar að læknisskoðun afslaðinni. Forfeður okkar tala til okkar í henni. Hún segir okkur frá reynslu þeirra og áliti þeirra um það hvort betur gæfist, þegar um mikið við- fangsefni er að ræða: ofstopi og yfirgangur, eða stilling og forsjá. ívarr beinlausi var ófær til hern- aðar. Bræður hans voru hinir mestu bardagamenn. Það var ívarr sem fram kom hefndinni, af þvi að hann fór að með stilling og forsjá. Nú eigum við íslendingar um tvo kosti að velja, um að vinna sigur í baráttunni, að fá fullkom- inn siglingafána. Við getum hafið æsingar og heimtað skilnað þegar, og látið oklcur engu skifta hinar erfiðu kringumstæður sem fyrir hendi eru — og fetum við þá í spor hinna ofstopafullu Ragnars- sona. Við getum á hinn bóginn hugsað málið með gætni og still- ing látið fyrirætlanir okkar fara leynt, og gert urn leið allar ráð- stafanir til þess að vilji okkar hljóti að ná fram að ganga — og þá lilýðum við röddu forfeðranna og förum að dæmi ívars. Hitfregn. Ljóð eftir Schiller. Það mun vera í fyrsta sinni að slík bók er gefin út á íslandi. Tólf íslenzk skáld leggja saman i bókina og þýða öll sama skáldið, sem er stórskáldið þýzka Schiller. Flestar þýðingarnar eru áður prentaðar, en eru dreifðar um mörg rit, en nokkrar eru áður óprentaðar. Steingrímur á langflestar þýðing- arnar. Dr. Alexander Jóhannesson hefir safnað þýðingunum og séð um útgáfuna og á skilið að verða vin- sæll af því verki hjá íslenzkum ljóðvinum. Því að hér er vafalaust farin rétt leið til þess, að gera út- lenda skáldjöfra kunna hér á Iandi. Væri betur að hér rynnu aðrir á vaðið á eftir um samskonar þýð- ingasafn erlendra ljóða. Frágangur bókarinnar er snotur. Bókaverzlun Guðm. Gamalíelsson- ar gefur út. Freijjukettir og Fregjufár. Útkoma kvers þessa er merkur og góður viðburður. Því að með henni er opinberlega rætt um eitt þjóðarbölið, sem of mjög hefir legið í þagnargildi og gerð tilraun til þess að bæta það. Samræðissjúkdómar — og höf. nefnir þá Freyjufár og á það orð skilið að festast í málinu — eru þjóðarböl alstaðar í heiminutn Lengi naut ísland fjarstöðu sinnar og ófullkominna samgangna í því efni, að lítið var um þessa leiðu gesti. Fyrir 20 árum voru það ekki nema 16 slíkir sjúklingar sem leituðu læknis, en árið 1914 skráðu læknar samtals 343 sjúklinga af þessu tagi. Þessar tölur tala skýr- ar en nokkur orð, um hina miklu nauðsyn að verjast þessu þjóðar- böli. Þess vegna er það merkur við- burður að um þetta er skrifað opinberlega af lækni. Og höf. hefir áreiðanlega rétt fyrir sér er hann segir að aukin þekking sé ein bezla vörnin. Kver þetta ætti að komast í sem flestra hendur, því það talar um málið í fylslu alvöru og bend- ir skýrt á háskann sein yfir vofir. Útkoma kvers þessa minnir og á aðra ríka þörf, sem sé þá að í öllum skólum sé nemendum veitt fræðsla í þessum efnum. Hefir próf. Guðm. Hannesson gert nokkuð að því í stýrimannaskólanum, en slík fræðsla á að vera undantekningar- laust við alla skóla, og sniðin eítir þroska nemendanna. Það er við- kvæmt mál að tala um þessa hluti, og það er vandaverk að gera það vel, en það er hin mesta nauðsyn, því að þekking er eina bezta vörnin. Steingrímur læknir hefir unnið þjóðþrifa verk með því að semja bókina og gera það á þá lund sem gert er. Bókaverzlun Guðin. Gam- alíelssonar gefur út. Fréttir. Tíðin hefir verið afleit síðustu vikuna, frost að vísu ekki í harð- asta lagi, en snjókoma mikil og stormar. Haglítið mun nú víða um land, þótt ekki séu alveg fullkom- in jarðbönn. Síminn hefir altaf við og við verið í ólagi vegna illviðr- anna. Skip hafa og orðið fyrir miklum töfum, svo að menn hafa oft orðið hræddir um þau, en lítið hefir úr orðið annað en tafir. Látinn er 10. þ. m. Árni kaup- maður Eiríksson hér í bænum. Yar hann í fremri röð borgara i Reykjavík og hinn vinsælasti mað- ur. Stundaði kaupskap sjálfur síð- ustu árin með miklutn dugnaði. Vinsælastur var hann sem leikari, og var þar i fremstu röð í mörg ár. Sömuleiðis stóð hann framar- lega í flokki bindindismanna hér í bæ og var mjog starfandi í góðteinplarareglunni. Söngfélagið 17. júní er eitthvert vinsælasta félagið i Reykjavík og á það skilið að vera það. Hefir það nú náð hærri aldri en mörg önnur söngfélög og mun óhætt að segja að það hafi nú náð meiri fullkomnun í samsöng en áður hefir verið náð á þessu landi. — Eru þessi ummæli bygð á fyrsta samsöng félagsins á þessum vetri sem haldinn var síðaslliðið fimtu- dagskvöld. Fór það saman að fé- lagið tókst á hendur erflðari við- fangsefni en áður og leysti þau betur af hendi en áður. Er skylt að því sé á lofti lialdið sem svo vel er af hendí leyst og miðar tíl betra uppeldis i sönglistinni og ættu þau áhrif að ná út fyrir höf- uðstaðinn. Tíminn hættif sér ekki út á þá braut að gagnrýna meðferðina á einsíökum Iögum, en heildarmynd- in var sú sem að framan greinir og þótt kuldi og þrengsli væru mikil í húsinu og önnur óþægindi, Pakkarávarp, Öllum þeim mörgu, sem með gjöfum hafa reynt að bæta okkur tjón það, sem við urðum fyrir, við brunann á Hvanneyri 30. okt. síðastliðinn, færum við hjartans þakklæti. Sérstaklega er okkur ljúft og skylt, að volta húsbændum okkar — Halldóri Vilhjálmsssyni skólastjóra og konu hans — alúð- arfylstu þakkir fyrir þær stórkost- legu gjafir, sem þau hafa veitt okkur. Sömuleiðis hafa nemendur Bændaskólans á Hvanneyri sýnt mikið örlæti með gjöfum sínum. Við þökkum þeiin öllum, hvort sem þeir eru fjær eða nær, sem þannig hafa sýnt okkur velvild og leitast við að taka á sínar herðar okkar byrðar. Samúð sú sem við urðum þannig fyrir frá fjölda manna hefir góð og bætandi áhrif á okkur. Og þótt við getum ekki með öðru, en þessum ót'ullkomnu línum sýnt þakklæti okkar, þá vonum við það og vitum, að góð- verk ykkar verða ykkur endur- goldin fyr eða siðar. Verkafólkið á Hvannegri. þá gleymdust þau öll við liinn hressandi söng þeirra félaga. Því miður eiga þessi ummæli ekki við um félagið að öllu leiti nema fyrra kvöldið sem það söng. Bisp. Fregnir eru um að Bisp hafi skemst eitthvað á Englandi og muni tefjast um tíma. Maður liorflnn. Miðvikudags- kvöldið 5. þ. m. livarf Pétur Sig- urðsson skipstjóri á vélskipinu Hans frá Styltkishólmi. Skipið ligg— ur hér á höfninni og eru líkur taldar til að maðurinn hafi hrapað fram af hafnaruppfyllingunni i myrkrinu um kvöldið. »ísland« kom frá Ameríku 8. þ. m. og »Gullfoss« 9. þ. m. Hvorugt skipið flutti póst, en farþegar voru nokkrir á Gullfossi. Aukaþing. Forsætisráðherra fékk heimild konungs til þess að kalla saman aukaþing á árinu 1918, þegar stjórninni þykir nauðsyn tll. Lán. Forsætisráðherra tók í ut- anförinni lán fyrir landssjóðs hönd, sem hér segir: Til vörukaupa 71/* milj. kr. hjá dönskum og íslenzk- um bönkum. Lán þelta er til 2 ára, ársvextir eru 2% og lánið út- borgast með 98°/o. Annað lán var tekið hjá Handelsbanken í Kbh. til lengri tíma, að upphæð 2 milj. en er trygt með veði í skipum landssjóðs. Auk þessa eru eldri lán landsins í Danmörku 2V2 milj. og er sú skuld við ríkissjóð. Þá hefir Iandið fengið að láni 3 milj. af andvirði botnvörpunganna, sem seldir voru til Frakklands. — Lán landssjóðs eru því nú samtals 15 miljónir króna. Ritstjóri: Tryg-g’vi I'órhallsson Laufási. Sírai 91. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.