Tíminn - 27.04.1918, Blaðsíða 4

Tíminn - 27.04.1918, Blaðsíða 4
92 T í M I N N harðan vetur gerir og það jafnvel núna í þessum vormánuði, komi ekki góð tíð hér eftir. — Alment er illa »sett á« og verður, meðan einstaklingarnir »J)reifa« ekki á muninum á að setja vel eða illa á, meðan »strákalukkan« getur freistað mönnum til að setja illa á, meðan ekki eru settar tryggar ráð- stafanir gegn henni. En eru nokkur ráð til þess, án þess að beita þvingun, eða tak- marka um of eignarrétt og frelsi bænda? — Það vil eg að þingið taki meðal annars til ihugunar. Og eg leyfi mér að benda á leið, hugsanlega og framkvæmanlega, sem eg minnist ekki að áður hafi verið rætt um. Hún er sú, að landsjóður eða önnur stofnun, sem til þess þækti hentari, borgaði bœndum fgrir að fyrna. Þótt það hafi verið marg sýnt, að bændum væri betra að setja vel á en illa, þá er það eigi að síður enn sem komið er, kenning sem í reyndinni fer fyrir ofan garð og neðan hjá all-flestum. Á meðan eg sé nágranna minn koma fram fénaði sínum sæmilega — kanske ár eftir ár — á mun minni forða en eg mínum, á meðan eg sé »strákalukku« hans og dirfsku færa honum meiri tekjur en mín varfærni færir mér — verður mér á að líta til hans öfundarauga og mér liggur við að freistast til að taka upp hans ásetningsreglur, enda þótt eg sjái og finni, að yfir hon- um vofir sífeldlega hætta, að hann þarf altaf að vera »lieyhræddur«, að sverð hangir í hári yfir höfði hans, sem eg játa, að eg er að miklu leyti laus við, fyrir að eiga heyjatrygginguna. En þannig mun fjöldanum af bændum vera farið. Það sýnir, hvað sára-litið hefir áunnist undanfarin ár með öllum ritgerðunum, ræðunum og fyrir- lestrunum um þetta nauðsynjamál. — En bændur sjá, auk þessa dæmis, sem eg tilfærði, að fyrn- ingarnar eru arðlausar meðan ekki þarf að taka til þeirra og þó ver en arðlausar, því að þær ganga úr sér, unz þær eyðileggjast við geymsl- una. — Bóndi sem fyrnir, leggur þannig ómótmælanlega fyrir höfuð- stól rentulausan og sem þar að auki gengur úr sér að miklum mun hvert ár sem hann er geymd- ur. Það er því varla von á, að al- ment geti bændur þetta og því minni von til að þeir geri það. Þó eru fyrningarnar eini sjóðurinn, sem hægt er að trygga landbúnað- inn með komi harður vetur, köld vor eða grasleysis sumur. Pess vegna þarf og á að borga bœndum fgrir að fyrna, borga þeim rentu- tapið af höfuðstólnum og rýrnun- ina, sem höfuðstóllinn verður fyrir. — Þá skyldum vér sjá, hvort heyjabændunum fjölgaði ekki, en hinum fækkandi sem settu illa á; hvort það þækti ekki notaleg og um leið ánægjuleg tekjugrein, að fá útborgaða peningaupphæð á hverju vori sem nokkurskonar verðlaun fyrir góða og tryggilega ásetning og auðvitað um leið vel undan- genginn fénað, sem að sjálfsögðu yrði að vera eitt skilyrðið fyrir að fá bórgunina. En um þetta þyrftu að dæma 2 dómkvaddir og óvil- hallir menn í hverri sveit, sem skoðuðu hey og fénað bœði haust og vor. Ef þingið tæki þetta til rækilegr- ar íhugunar og gæfi út nákvæm 'og glögg lög á þessum eða líkum grundvelli, en »strikaði yfir« forða- gæzlulögin frá 1913, þá teldi eg að það hefði ekki komið saman til ónýtis. 5. apríl 1918. Corax. Oj)ið bréf til Sig. Sigurðssonar ráðunauts. Góði vin! — Nýlega barst mér Búnaðarritið það sem út er komið af þessu ári og í því er ritgerð eftir þig um hrossaræktina, ritgerð sem sýnir þinn alkunna áhuga á starfi þínu í þarfir landbúnaðarins. En sumt í þessari grein er ekki rétt og vil eg í allri vinsemd benda þér á eitthvað af því. En það er ekki nóg að þú fáir að ^ita það, þeir sem lesa greina verða líka að fá að vita það og þess vegna vel eg þessa leiðina með línur þessar. í ritgerð þinni stendur að Hrossa- ræktarfélag HvamnAshrepps hafi vegna alvarlegrar misklíðar við utanfélagsmann eða menn, orðið að selja og gelda kynbótahest sinn til stórskaða fyrir félagsmenn. En af því eg býst nú viff að með um- mælum þessum sé átt við mig, þá vil eg taka þetta fram: Félag þetta hefir aldrei verið qema nafnið, enginn almennur áhugi fyrir því, enda engin þörf fyrir það. Tilhneiging einstakra manna um að fá klakið út sem flestum folöldum á hér ekki við. Hér ættu menn ekki að eiga nema nauðsynleg brúkunarhross, fara vel mcð þau, en kaupa að hross til uppyngingar úr sveitum þar sem hrossaræktarskilyrðin eru betri en hér, og þar ætti að hlynna sem bezt að þessum félagsskap. Flestir bændur hér kðmasl af með 3—4 brúkunarhross, og sum- ir tvö. Er það þvi auðsætt að menn þyrftu ekki að kaupa að fola nema 5,--8. hvert ár og borg- ar þá hesturinn sem fargað er hálft andvirðið. Væri að þessu hagur mikill í stað þess að drag- ast með hryssu ásamt 3—4 tripp- uin oft miður fóðruðum. Hér er svo þröngt í högum og heyskapur svo takmarkaður að hrossastóð er hér eyðilegging, það svíður upp alla haga vetur og sumar og meir að segja tún og engjar vor og haust. Meðan þessu fer fram kemst búskapur hér aldrei í viðunanlegt horf. Hér á að hafa sem mest af ám og kúm, af því er fljótteknastur og vissastur gróð- inn, enda mest menningarsnið á því að sníða búskapinn alstaðar sem bezt eftir staðhátlum. Þessi stefna i búskap er líka mjög að ryðja sér hér til rúins. Vil eg í því sambandi vitna i ummæli eins allra merkasta bóndans hér, Ólafs Jónssonar á Sólheimum, hann segist álíta »að hvergi í Mýrdal borgi sig að ala upp hross nema ef vera skyldi á Hvoli og í Pél- ursey«. Til þess að koma þessari réttmætu skoðun í framkvæmd ættir þú að styðja okkur Mýrdæli með ráðum og dáð. Þegar hér verða að eins 2—4 hross á bæ aðkeypt og vel alin, en þriðjungi eða helmingi fleiri ær en nú gerist, þá er búskapur okkar kominn í gott lag og mun- um við þá lifa sældarlífi, þótt við séum að eins smábændur. Nánari atvik að þessu geldingar- máli eru þau, að félagið selti upp girðing á svo vanhugsuðum stað, að þar hefir engin skepna haldist við fyrir skjólleysi og hagleysi. Hefir hesturinn því brotist þaðan út og gengið laus. Þú telur að hann hafi verið notaður í fjögur ár, og mun það vera rétt. Árið sem hann kom var hann magur, þá var honum slept í hross hér á mýrunum og gerði liann þá engan usla. En svo var tekið að aia hann og næsta vor lá við að hann gerði úl af við hesl frá Árna bónda í Görðum. Þriðja árið mun hann hafa séð fyrir folaldi frá Reynis- hólum og síðastliðið vor braust Nokkrar augnabliksmyndir frá Danmörku og Noregi eftir Bjarna Ásgeirsson. Eg hefi lofað Tímanum nokkr- um línum, um ferð mína og veru í Danmörku og Noregi síðastliðinn vetur og sumar. Sem við er að búast, er fátt markvert af þessu að segja. Þótt þeim, er í fyrsta skifti kemur út í iðustraum hins erlenda menningarlifs, úr íslenzkum heimahögum, finnist hann verða fyrir stórviðburðum með degi hverj- um, þá er það í sjálfu sér ekki nema daglegt brauð þar og þykir því ekki í frásögur færandi. Eg ætla samt að senda nokkrar laus- legar lýsingar á því sem fyrír augu og eyru bar, í þeirri von að eitt- hvað að því kunni að verða nýtt fyrir einhverjum sem les. Um neina heildarlýsing af landi eða fólki getur skiljanlega ekki verið að ræða, heldur að eins ófullkomnar augnabliksmyndir. Frá Danmörku. Borgir og land. Eg hefi oft orðið þess var hér heima, að menn blanda mjög sam- an Kaupmannahöfn og Danmörku í heild sinni, eins og Kaupmanna- höfn væri landið alt. Það voru jafnvel sumir sem spurðu mig hvort eg ætlaði að fara að kynna mér búskap í Kaupmannahöfn, og á passanum mínum var Kaupmanna- höfn látin gilda fyrir Danmörku. Þetta mun að nokkru stafa af því að flestir íslendingar sem til Dan- merkur koma nema staðar í Kaup- mannahöfn og sjá litið annað af land- inu. Kaupmannáhafnar-»mórall«, Kaupmanriahafnarskoðanir bæði í sambandsmálum og öðru, einkenni og lifnaðarhættir Hafnarbúa, — alt þetta er álitið heildareinkenni og skoðanir Dana yfirleitt. Víst er um það að Kaupmannahöfn er stór og hefir mikil áhrif á alt rikið, og margt af því bezta sem Daniu eiga « hefir aðsetur sitt þar. En þó nær engri átt að eigna Dönum í heild sinni allar þær skoðanir og öll þau einkenni sem þar vaða mest uppi. Jótar segja að sá maður hafi ekki kornið til Danmerkur sem ekki hefir komið til Jótlands. Það álít eg nær sanni, a. m. k. fanst mér eg ekki vera kominn til Danmerk- ur, fyr en eg var kominn út úr borginni. Það er ekki svo að skiija að ekki sé margt merkilegt að sjá og margt til að dáðst að í Höfn. Þar eru samankomnar flestar lielztu byggingar landsins og merkustu söfn. Þar eins og víða hefir sá siður ríkt að demba qllu mark- verðu á einn og sama stað. En það dregur úr áhrifum þess. Það er eins og að það hverfi að nokkru hvað í skuggann af öðru. Að minsta kosti fanst mér eg njóla þess miklu belur að skoða t. d. forngripasafnið í Kolding á Jótlandi (Koldinghús) og eins St. Knuds kirkju í Odense og dómkirkjuna í Ilróarskeldu, en hus og söfn í sjálfri Höfn. Á þeim stöðum var hvað út af fyrir sig, svo annað truflaði ekki. Auk þess finst mér viðkunnanlegra, að sem flestir stað- ir fái að hafa nokkuð til síns ágætis, en ekki sé öllu kasað í eitt; það er eins og að eta smjör við smjöri. Og eitt datt mér altaf í hug er eg kom í stóran kaupstað eða borg. Það var vísan sem Stephan G. Stephansson kvað einu sinni um íslenzku sveitabæina: Og hundarnir gelta þar allir eins að niér, þá ríð eg í hlað. Það var þetta sama sérkennislausa týskusnið á öllu, eins og að hver tegund sem fyrir augun bar væri búin til sitt í hverri verksmiðjunni, og fólkið líka. Mér fanst það svip- að því að horfa niður í stóran kæfupolt, þar sem alt bullar og sýður í einni kássu. Þar sem hver vöðvi, hver fituögn og síðast hver trefja missir sitt einkenni og alt verður að lokum að sameiginlegu lítt-meltanlegu mauki; — litur bragð og einkenni alt liið sama; Þetta er auðvitað misjafnt enn þó, eftir því live sterkar trefjarnar hafa verið, hve djúpt þær hafa koinist

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.