Tíminn - 30.05.1918, Síða 2
126
TlMIN N
jiarðagaaðferS
stjirnaranðstœiinga.
Ritari fjárhagsnefndar Nd. al-
þingis hr. G. Sv. hefir sent ritstjóra
Tímans eftirfarandi athugasemd úl
af grein í síðasta tbl. með sömu
yfirskrift og þessi. Er hún á þessa
leið:
Til ritstjóra »Tímans«.
Samkvæmt prentfrelsislögunum
krefst eg þess, að þér takið í fyrsta
eða annað blað »Tímans«, er út
kemur hér eftir, eftirtararidi at-
hugasemd:
Þér segið í blaði yðar siðasta
laugardag (25. þ. m.) að fjárhags-
nefnd Nd., eða eg sem ritári henn-
ar, hafi gefið »villandi skýrslu« um
eitt atriði í sögu Tjörnesnámunnar,
og þér gefið í skyn að það sé gert
»vísvitandi«.
Út af þessu verð eg að taka fram:
1. Nefndin bygði skýrslu sína
yfirleitt á engu öðru en því,
sem fyrir lá skriflegt — skil-
ríkjum frá atvinnumáladeild
stjórnarráðsins og vegamála-
stjóra. Þetta ber skýrslan líka
með sér, énda nefndin öll á
einu máli um hana og ekki
eitt einasta atriði hennar ve-
fengt í þinginu, jafnvel ekki af
stjórninni.
2. Þessi klausa í skýrslunni, sem
þér gerið þann veg að umtals-
efni — um að S. J. ráðherra
haíi ferðast norður og undir-
búið kolanámið, að því er sjá
mætti á greiðsluávísun til hans
— er sett í skýrsluna að eins
sem einn liður í sögu máls-
ins, en alls ekki vegna ávís-
uriarinnar eða þeirrar upp-
hæðar, er þar um ræðir
(hennar var heldur ekki minst
með einu orði í framsögu
málsins).
Úr öllunF plöggum, sem
nefndin hafði til vfirlits, var
»nóterað niður« dag'setning og
innihald, ef máli þólti skifta,
svo var og um skjal það, sem
áðurgreind ummæli skýrslunn-
ar voru bygð á, en það lá í
skjölum Tjörnesnámu í at-
vinnumáladeild stjórnarráðs-
ins. Innihald þess var — skrif-
að á gulan pappír, með blýant
og með hendi fjármálaráðherra
B. Kr., — að til Sig. J. ráð-
herra skyldu greiðast úr lands-
sjóði 500 kr. til norðurferðar,
eða fyrir að fara norður, til
þess að líta eftir vegum og
undirbúa námurekstur á
Tjörnesi.
Eg hefi nú í morgun farið enn
eina ferð upp í atvinnumáladeild
stjr., til þess að bera saman plögg-
in á ný. En [viti menn — þetta
umrædda skjal, sem sýndi, að
nefndin fór að eins eftir því, sem
skrifað stóð, fyrirfanst nú ekki í
plöggum málsins, það er eða var
í dag með öllu horfið þaðan!
Hvað hefir orðið af þvi? Hver
hefir tekið það eða skotið því
undan? —
í ávísanabók fjármáladeildar hefi
eg séð í dag, að þessi greiðsla er
bókfærð til »Sig. Jónssonar ráð-
herra vegna Tjörnesnámunnar
(rekstrarkostnaður)«. Er það rangt?
Ef svo er, þá er það a. m. k.
ekki nefndarinnar sök.
Fjárhagsnefndin hefir þannig,
eins og allir hafa víst getað séð,
ekki farið með neinn »róg« um
ráðherrann, né hins vegar með
einu orði gefið í skyn (eða henni
komið til hugar), að hann hafi
(óleyfilega) »dregið sér fé úr lands-
sjóði«, sem þér eruð að tala um.
1 grein þeirri í »Morgunbiaðinu«,
sem þér vitnið í, á eg engan hlut
og mér vitanlega enginn úr nefnd-
inni.
Reykjavík 27. maí 1918.
Gisli Sveinsson
ritari fjárhagsn. Nd. alþingis.
Ritstjóri Tímans birtir þessa at-
hugasemd með ánægju því að eng-
um dylst að með henni gefst hr.
G. Sv. alveg upp við að hrekja
meginatriði málsins og verður ekki
á betra kosið.
Út af athugasemdinni þarf ekki
að taka annað fram en þetta:
1. Hr. G. Sv. reynir elcki að
hrekja það að hann sagði rangt
til um dagsetninguna á hinni
margumtöluðu greiðsluávísun til
atvinnumálaráðherrans, að sú dag-
setning sem hann nefndi átti ein-
mitt við hitt, hvenær atvinnumála-
ráðherrann borgaði inn nákvæm-
lega sömu upphæðina. Hr. G. Sv.
nefnir þetla ekki af því að þetta
er óhrekjanlegt.
2. Hr. G. Sv. reynir heldur ekki
að hrekja það að af þessari röngu
dagsetning leiðir það, að það er
öllum ljóst, að hann hefir hlotið
að sjá það að atvinnumálaráðh.
borgaði aftur inn nákvæmlega sömu
upphæðina og hann tók við. Eðli-
lega reynir hann ekki heldur að
hrekja þetta, af því að það er ó-
hrekjanlegt.
3. Hr. G. Sv. reynir heldnr ekki
að hrekja það, að af þessu leiðir
beinlínis að skýrsla hans rar
villandi. Hann sagði að vísu ekki
ósatt — nema um dagsetninguna
— en hann þagði visvitandi um það
merka atriði að atvinnumálaráðh.
innborgaði nákvæmlega sömu upp-
hæðina og hann tók út. Og hvað
sem um hr. G. Sv. verður sagt, þá
hefir enginn borið honum á brýn
að hann sé svo vitgrannur að hann
geti ekki skilið, að mjög náið sam-
band muni vera milli þess að sami
maðurinn tekur út og borgar inn
nákvæmlega sömu upphæðina með
20 daga millibili. Þessi frásögn
um útborgnnina en þögn nm
innborgunina getur ekki skilist
öðruvísi en svo að lir. G. Sv.
vilji gefa það í skyn að atvinnu-
málaráðherrann hafi notað þessar
500 kr. í sínar þaríir. Og úr því
hr. Gr. Sv. hefir vitað að svo var
ekki, þá er þetta í hæsta máta
villandi. Greinin í Morgunblaðinu
sýnir það og svart á hvítu að sam-
herji hr. G. Sv. sem hana hefir
skrifað, hefir ekki verið í miklum
vafa um hvernig átti að skilja orð
skýrslunnar.
4. Hr. G. Sv. fárast mjög yfir
því að týnt muni vera skjal það þar
sem talað er um greiðsluávísunina
og getið nánar um í hvaða tilgangi
hafi verið ávisað. Ritstj. Tímans
getur ef til vill gefið upplýsingar
um það, ef mikið lægi við að finna
það, því að vegamálasljóri sýndi
honurn það á vegamálaskrifstof-
unni á laugardaginn var, um leið
og ritstjórinn fékk tækifæri til þess
að komast raun um hina einkenni-
legu dagsetning fjárhagsnefndarrit-
arans. Annars ætti. nefndarritarinn
ekki að þurfa að leita upplýsinga
hjá ritsjóra Tímans um það hvar
nú liggi skjölin um Tjörnesnám-
unna, hann hefir svo margt talað
um vegamálastjórann í þessu sam-
bandi og ælti þyí að vita að hjá
honum liggja skjöl málsins, en ekki
í atvinnumáladeild stjórnaráðsins.
En þó að hr. G. Sv. finni nú þetta
skjal þar, þá græðir hann ekkert á
því, því að hann fær þar enga
leiðrétting. Því hefir sem sé aldrei
verið neitað að atvinnumálaráð-
herrann fékk þessa peninga útborg-
aða. Hitt hefir hr. G. Sv. ekki vilj-
að kannast við, þó hann hljóti að
vita það, að atvinnumálaráðherr-
ann borgaði hvern eyri aftur.
Með yfirlýsingunni hefir hr. G.
Sv. viðurkent að liann hefir gefið
villandi opinbera skýrslu, sem rit-
ari r þingtiefnd. Merkur maður
sagði við ritsjóra Timans: I flesl-
um löndum, öðrum en íslandi, hcfði
G. Sv. orðið að leggja niður embœtti
og þingmensku, þegar hann er opin-
í berlega slaðinn að sliku /ramferði«.
Njdegt dæmi frá Englandi sýnir
ljóslega hve liart er tekið á slíku
þar.
Jjrezkn saœilBgsrnir.
Þeir hafa ekki verið birtir enn,
að svo miklu leyti sem þeir verða
birtir, enda er tíminn stuttur síð-
an þeir komu. Stjórnarráðið hefir
leyft að birta þau atriði sem hér
fara á eítir:
Stjórnir bandamanna lofa að
greiða fyrir innflutningi til íslands
á nauðsynjavöru.
Skuldbinda sig ennfremur til
þess að selja íslenzku stjórninni
ákveðna tölu smálesta af kornvör-
um, .steinolíu og benzíni fyrir á-
kveðið verð.
Ennfremur skuldbinda banda-
menn sig til að selja íslenzku
stjórninni ákveðna smálestalölu af
kolum í Englandi.
Ennfremur er gefir loforð um að
fá salt í Ítalíu með nánari skil-
yrðum.
íslenzka stjórnin skuldbindur sig
lil að láta bjóða fulltrúum stjórna
bandamanna á íslandi þær ís-
lenzkar afurðir sem ekki eru ætl-
aðar til notkunar i landinu sjálfu:
fisk, þar með ialin síld, lýsi,
þorskahrogn, íiskmjöl, sauðakjöt,
ull og gærur alt eftir nánari regl-
um.
Stjórnir bandamanna búast við
að þær óski ekki að nota sér
kauprétt sinn á íslenzkri síld, en
samþykkja með nánari skilyrðum
útflutning á alt að 50000 tn. af
sild til Sviþjóðar.
Ennfremur samþykkja þær með
nánari skilj'rðum útflutning á alt
að 1000 hestum til Danmerkur.
Verð á afurðum verður vænt-
anlega kunnugt áður en langt um
líður.
Bersýnilegt virðist að af samn-
ingunum leiðir að setja verður
nýjar reglugerðir um útfiutning og
skipa nefnd til þess að segja fyrir
um hann.
Annað mjög stórt atriði virðist
og hafa áunnist með samningun-
um, sem sé það, að hinar dýru
tafir skipa ættu að vera úr sög-
unni. Og eins hitt að trygt sé að
allar nauðsynjavörur fáist.
Síra frilrik frilriksson
50 ára.
Afmælis hans var getið stuttlega
í síðasta blaði, en skal nú gert nokk-
uð nánar, því að maklegleikum var
honum sýndur hinn mesti heiður.
Söngsveit K. F. U. M. heimsótti
hann fyrst um morguninn og söng
nokkur lög, þar á meðal lag sem.
sr. Fr. Fr. hefir sjálfur samið.
Á hádegi kom borgarstjóri Reykja-
víkur og nokkrir bæjarfulltrúar og
afhentu honum 10 þús. kr. gjöf
frá bænum og fylgdi skrautritað
ávarp undirritað af ölluin bæjar-
fulltrúum svohljóðandi:
»Bæjarstjórn Reykjavíkur noLar
kærkomið tækifæri á fimtíu ára
afmæli j'ðar til að votta yður
þakklæli fyrir hið þarfa og bless-
unarríka starf, sem þér um langt
skeið hafið leyst af hendi fyrir
æskulýð bæjarfélagsins.
Sem sýnilegan vott þessa þakk-
lætis leyfir bæjarstjórnin sér að
senda yður 10,000 króna gjöf til
ráðstöfunar fyrir starfsemi félags
yðar, K. F. U. M. hér í bænum,
á þann hátt, sem yður þykir bezt
henta, og óskar jafnframt yður og
starfsemi félagsins góðs gengis á
komandi árum«.
Svo rak hver gjöfin aðra. Stjórn
K. F. U. M. afhenti honum 2000
kr. gjöf í gulli — í sjóvetlingum. —
Stjórn K. F. U. K. færði honum
að gjöf hempu og prestakraga.
Præp. hon. Þorvaldur Jónsson frá
ísafirði færði honum 1000 kr. gjöf
til félagsins. Margar aðrar gjafir
bárust honum frá hinum ótal
mörgu vinum hans og yrði of
langt upp að telja og heillaóska-
skeyti bárust honum úr öllum
áttum.