Tíminn - 13.07.1918, Síða 3

Tíminn - 13.07.1918, Síða 3
T í M I N N 159 svo plægja áburðinn niður fyrir ykkur. Á stuttum tima getum við marg- faldað ræktaða landið fyrir ykkur, unnið alt að því, sléttað tún og engi. Slegið og rakað, flutt jarðar- gróðann heim í hlöðu, þaðan i peningshúsin. Við getum mjólkað ær og kýr, flutt mjólkina heiin í stofu til ykkar, soðið hana, hún brennur ekki einusinni við, og þá má valdbjóða fráfærur, því þá haf- ið þið ekkert annað að gera en hirða ærnar«. Já, fossarnir okkar þeir geta nú margt. Útiverkin, erfiðisverkin, þau ganga alveg eins og í sögu. Við sitjum bara með pípuna okkar i munninum og þrýstum á hnappinn. »Já, en heyrðu góði foss. Ert þú þá góður til smávika inni hjá okkur?« »Já, eg held það nú. Þú ert ný- búinn að eignast óþektaranga, sí grenjandi á nóttinni. Konan þín þarf ekkert annað en snúa snerl- inum. Strax kviknar á rauðum náttlampa, og dálítill rafofn hitar á mjólkurpelanum ef lítið er á móð- urpelanum. Dugi þetta ekki, getur dálítill rafmótor ruggað anganum og snúið mislitri hringlu við nefið á honum. Valdimar Paulsen kem- ur með telegrafóninn sinn, og eg skal snúa og syngja fyrir angann vögguljóðin, með móðurrómi. Á morgnana vekur þig rafklukk- an, hvenær sem þú vilt. Þá er baðvatnið til heitt og kalt eftir þörfum. Loftið hlýtt og hreint. Smá rafvélar sjá fyrir því, og ljós- ið, — ljósadýrðin í öllum regnbog- ans litum ef þú vilt — ávalt við hendina. Skamindegi þekkist ekki lengur. Það er eilíft sutnar«. — Við sitjum hjá fossinum og hlýð- um hugfangnir á hans framtíðar- mál. Við gleymum okkur við sælar vonir og bjartar framtíðarhugsjón- ir. Það drynur líka niðri í fossin- um. Rómhrifnin hverfur og nú þylur hann ömurlega sorgarsöngva. Því alt í einu kemur fram úr fossinum ógna roka er öskrar: »Eg er seldur, eg er glataður mínu góða landi«. Og við, sem elskum foss- inn svo mjög, fyllumst ógn og kviða fyrir framtíðinni, að hafa af heimsku og óframsýni glatað sólar- sýninni. En eftir litla hvild brýst ólömuð orkan á ný fram úr fossinuin, og nú kallar hann í skýrum rómi: »Takið mig, frelsið mig og lofið mér að vinna fyrir land mitt og þjóð«. Já, tökum fossana aftur, sem seldir hafa verið útlendum og inn- lendum bröskurum fyrir smánar- verð. Núverandi handhafar fossanna græða stórfé á þeim árlega, þó þeir hafi engin afnot af þeim önn- ur en þau að eiga þá og ef til vill útiloka þá frá samkepni við aðra fossa, sem þeir eru viðriðnir. Jarðeignir allar í landinu stiga stórkostlega í verði og það gera vitanlega fossarnir lika, sem teljast þó einskonar fasteign, þó fljótandi sé, því menn eru nú að fá óljósan grun um hvers virði þeir eru. Vonandi verður þess ekki langt að biða að íslenzka þjóðin sér sér fært, að taka hentugustu fossana í sína þjónustu, og þá mun verð þeirra margfaldast við það sem nú er. Það er áreiðanlegt að kolaforði heimsins er mjög takmarkaður. Fyrir stríðið var svo talið að hann mundi endast í 6—7 aldir enn þá með sömu notkun. Hvað er það? Og nú er eldur uppi á heimsbú- inu og kolin minka óðum. Olían er líka mjög svo takmörkuð og eyðist líka óðum, en þetta eru eins og stendur aðalorkulindir heimsins. Að stríðinu loknu munu bernað- arþjóðirnar fara að spara við sig þessar orkuleifar sínar, og til þess að ná sér niðri á hlulleysingjun- um, sem marga einmitt vantar kol og olíu, munu þær selja þeim kol og olíu með ránverði. Gamla kola- verðið fyrir stríðið, og ináske olíu- verðið líka, heyrum við aldrei framar nema margfaldað. Hvað eigum við þá til bragðs að taka? Eigum við að treysta á sauðataðið eða livað? Nei til er fleira. Svo sem: Vindur, mór, foss- ar og sól. Og af þessu verða það vafalaust fossarnir, sem okkur duga bezt i framtiðinni. Vindurinn er dutlungafullur, og mómýrin tæm- ist. Sólin, blessuð sólin, hallar of mikið undir flatt hér hjá okkur og hylur sig í skýjunum, en fossinn, hann er altaf sá sami tryggi vinur. Fossarnir, hvítu kolin, verða því áreiðanlega framtíð, hin mikla framtið þessa lands. Og það því frekar, sem óðum verður meiri og meiri þörf fyrir vatnsorkuna, en hentugir, aflmiklir og aðgengilegir fossar eru alls ekki algengir. Slíkir fossar eru því hreinustu dýrgripir jafn vel hér á hala veraldar, eins og nú er ástatt. Núna er stóriðnaður allur, fram- farir og framkvæmdir mestar í kringum kolanámur og olíulindir. Eftir nokkrar aldir verður menn- ingarmiðjan flutt suður á Sahara í sólina og — norður að heimskauta- baug, íslandi, að fossunum. Það er tómahljóð í skúfl'unni. Væri ekki reynandi að tolla svo- lilið þessa fossakaupmenn. Láta þá borga ögn til sveitar og ein- hverja vitund í landssjóð. Leggja ætti á hestaflið í fossinum, og fari afgjaldið hækkandi árlega fyrir ó- notaða fossa. Það herðir á fossa- eigendum að fara að nota þá. Fossinn stendur sem veð fyrir skilvísri greiðslu, afgjaidsins. Sé afgjaldið ekki greitt skilvíslega á gjalddaga, fellur fossinn til lands- sjóðs samstundis. Halldór Vilhjálmsson. Þingfréttir hafa lílið birst í Tímanum undanfarið og verður það bælt upp með yfirliti yfir þing- störfin þegar þvi er slitið. Búist við að það verði í næstu viku. Styrjöldin. ---- Júni. Þá litið er á ástand ófriðarþjóð- anna í heild sinni, gelur ekki hjá því farið, að Rússland verði talið vera komið lengst, það er komið í mestar og bersýnilegastar ógöngur — og það er búið að semja frið — í orði kveðnu. Fréttir berast mjög slitrótt út úr landinu, og fá menn helzt vitneskju um ásigkomulag lands og þjóðar frá ferðamönnum er sleppa út úr landinu. Simfréttir eru mjög ó- áreiðanlegar. Stjórn er þar öll á ringulreið. Skríll borganna gengur víða enn um eins og grenjandi ljón rænandi og brennandi. Óbúandi er á neðslu gólfum húsanna, þvi þar geta menn átt von á að íllþýði brjótist inn á mann, meiði fólk og taki það sem férnætt er. En svo mikið er um varnir af hendi siðaðra manna, að skríllinn hættir sér siður langt upp í húsin af ótta fyrir að sleppa ekki út að róstum loknum. Þar sem skríllinn hefir komist algerlega til valda, ganga bófar um í stað lögreglu, og eru þá eitt í senn lögregla og dómarar. Skjóta þeir þá er að þeirra dómi hafa brotið lögin, en halda hlífiskildi yfir lagsmönnum sínum er lifa á eignum efnamanna. Flutningar um landið eru mjög á ringulreið, svo fólk sveltir víða í borgunum. Jafnvel Þjóðverjar geta engu tauti á komið þó friður sé, að nafninu til. Er friður var saminn milli Mið- veldanna og rússnesku þjóðanna, þótti flesturn líklegt, að nú væri sulti Miðvelda lokið. Ógrynni af matvöru frá víðlendum síekrum Rússlands, myndi nú streyma inn yfir Miðveldin. En þetta fór á annan veg. Ef Þjóðverjar vilja fá mat þaðan að austan, verða þeir að hal’a fyrir því að rækta jörðina og framleiða matinn sjálfir. En á því hafa þeir léleg tök. Sárgramir yfir óförum lands síns og yfirgangi Þjóðverja, brenna bændur heldur matvöru en selja hana i hendur Þjóðverjum. Og lið fá Þjóðverjar ekkert frá vinnulýðn- um, er lifir nú mestmegnis á því að eyða eigum annara. Lj'ðurinn hefir loksins fengið hið langþráða frelsi. Snýst hugsanagangurinn á þá leið, að fyrst frelsið er fengið geti þeir ekki annað en notað það og lifað í vellystingum. Hér á dögunum hélt núverandi stórhöfðingi Rússaveldis Lenin ræðu mikla þess efnis, að hann þakkaði fylgismönnum sínum fyrir góða og dygga þjónustu, því nú væru þeir búnir að gereyðileggja svo stórueldið Rússland að það risi aldrei upp. Munu þetta orð að sönnu. Að líkindum talar Lenin hér hjartans- mál sitt. Ófriðurinn er verk stór- veldanna. Er þau liðast í sundur eins og Rússland og alt herafl þeirra druknar í innlendum róst- um þá, fellur ófriðurinn niður. Óútmálanlegar eru hörmungar þær er gerræðismenn Rússlands hafa bakað þjóð sinni, og ósköpin öll af dýrslegri grimd hafa þeir framið. Gegnum alt athæfi þeirra er hægt að festa auga á ákveðinni stéfnu. Særður liðsmaður »rauðra« á Finnlandi sagði eitt sinn við lækni sinn: »Þið þarna efna- og menta- menn kunnið mikið meira en við, og standið því betur að vígi í bar- áttu lífsins, þess vegna verðum við að útrýma ykkur«. Þetta er stefna, hversu agaleg sem hún er. Þetta er vofan sem stjórnleysingar eða gerræðismenn Rússlands hafa vakið upp i ófriðn- um. Fyrst ekki er hægt að gera skrílinn efnaðan og mentaðan verða heldri sléttirnar að víkja, því allir eiga að vera jafnir, þegar allir eru jafnir er öllum ófrið lokið. Sennilega eru þær getsakir rang- ar, að Þjóðverjar eigi nokkra verulega hluldeild í innri sundur- liðun og niðurlæging Rússlands. Minsta kosti er það vist, að hafi þeir haft hönd í bagga, iðrast þeir þess sárlega nú. »Rauðir« Rúss- lands hafa vitanlega reynt af fremsta megni, að hafa áhrif á þýzkan vinnulýð, unnið að því að þýzkir verkamenn legðu niður vinnu alla, svo hersljórninni yrði nauðugur sá koslur að liætta ófriði. Ennþá vita menn litið um þess- ar tilraunir Rússanna, þvi fréttir frá Þýzkalandi eru altaf mjög heft- ar. En geta má þess nærri, að ó- mjúklega liefir verið farið með þá legáta Rússa, er liafa hafl þau erindi með höndum. Vart er hægt að hugsa sér meiri mismun á stjórnarfari tveggja landa en tiú er á Rússlandi og í Þýzka- landi. Eftir því sem hörmungar og vandræði hafa aukist á Þýzka- landi, eftir því hefir stjórnin öll komist meira og meira i hendur yfirherstjórnarinnar. Menn ætla oft að í Þýzkalandi ráði keisarinn öllu, og hann einn haldi fram ó- friði. En því fer fjarri. Vald og lýðhylli keisarans er af kunnugum talin mjög rénað. Það er herkon- ungurinn Hindenburg með fylgi- tisk sinn LiidendorfT sem öllu stjórnar. Stjórna þeir ekki einu Þýzkalandi — Miðveldin öll lúla þeim. Af fréttum sem kvisast hafa írá Þýzkalandi geta menn sér þess til, að herstjórnin hafi átt full í fangi með að koma hinni slórfeldu árás á laggirnar sem geisar í algleym- ing á svæðinu miíli Reims og Soissons. Að þeir liáu herrar hafi með því einu móti getað komið henni á, að þeir fullvissuðu alla þá um það, er dirfðust að bera fram mótbárur, að þessi árás væri lokahríðin — og það væri svo vegna þess, að nú bæru þeir algjörðan sigur úr býtum. Aldrei hefir háð verið mikils- vægari og stórfeldari orusta en þessi. Aldrei hafa meiri heraflar barist. Er Rússland datt úr tölu stórveldanna og samdi frið, gátu

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.