Tíminn - 26.10.1918, Qupperneq 2

Tíminn - 26.10.1918, Qupperneq 2
218 T I M I N N hafa starfsmennina færri, en eiga þá alla. Fjárskorturinn er undirstaða nú- verandi hnignunarástands Búnað- arfélagsins. Það ástand ber einmitt upp á þann tíma þegar nauðsynin er mest á .því að félagið sé eins og það á að vera, þegar mest fer að kreppa að landbúnaðinum og mest er þöríin að vera á verði. Engar umbætur geta orðið án stórkostlega aukins styrks og valds félagsins. Samhuga verða því allir þeir að vera, sem unna landbúnaðinum ís- lenzka og sjá hver hætta er á ferðum, verði hann undir í sam- kepninni, að heimta aukinn styrk til Búnaðarfélagsins. Og í trausti þess að hann fáist skal hér vikið að því í stórum dráttum hvernig Búnaðarfélag ís- lands á að vera. (Frh.) „Spánska vdkin.“ Fréltir hafa verið að koma um »spönsku veikina« í alt sumar og hafa menn gert heldur litið úr. Talið hana litlu hættulegri en »in- flúelsu«. En eftir siðustu fréttum magnast sóttin nú svo, að mesta alvara er á ferðum. Skólum hefir öllum verið lokað t. d. í Dan- mörku og mjög víða í Norðurálf- unni eru allir mannfundir bann- aðir. Manndauði er orðinn stór- kostlegur af veikinni í Noregi og Svíþjóð, eftir því sem farþegar segja sem komu síðast með Botníu. Og fregnir eru á sveimi um það að á vigvöllunum sé veikin að verða skæðari en byssurnar. Síð- ustu fregnir segja ennfremur að i Ameriku sé ástandið að verða hið sama. Sagl er að margir skipsmenn á »Gullfossi« og »Lagarfossi« hafi veikst. — Veikin snýst oft upp í lungnabólgu og segja læknar að 90% deyi af þeim sem lungnabólg- an kemur í. Þyrfti ekki alt að vera satt og væri þó sjálfsagt að beita hinum allra ströngustu varúðarreglum um að verja veikinni að komast hingað. Virðist það vera hægt verk. Skipaferðirnar eru svo strjálar. Og nógu- er löggjöfin ströng í þessu efni, vilji læknarnir beita henni. Er að vísu vandi um þetta að tala af leikmanni. En sé læknunum gefið valdið^og nægilegt fé til fram- kvæmdanna — virðist það ekki eiga að koma fyrir að mistök verði. Og þjóðina hafa læknarnir með sér óskifta að verjast voðanum með hinum allra strögustu með- ölum. SýniDfl Ríkarðs JóDSsonar. (Nl) Um skuröhagleik Rikarðs má nefna íorkunnar fagran pappírs- hnif, sem einhver hjón höfðu gefið Ijóslækininum í Rvik til minning- ar um að hann hafði bjargað lífi barns þeirra. Á skafti hnífsins er lagmynd. Sér þar inn í herbergi, vagga stendur á miðju gólfi, í henni hvílir barn. Tvennar dyr sjást á herberginu. í öðrum dyr- unum stendur dauðinn, beinagrind með hvassa sigð. Út úr hinum dyrunum kemur mannshönd sem heldur á Röntgenslampa. Frá lampanum leggur geislastaf yfir vögguna og í andlit óvini lífsins, sem bersýnilega er að hörfa undan ofurmagni ljóssins. Venjulegir tréskerar hefðu í Rík- arðs sporum gerl fallegan hníf i s«ma stíl og ótal aðrir hnífar hafa verið gerðir suður í löndum, en enga nýja frumlega liugsun greypt í gripinn. Slíkur tréskurður er list- iðnciður. En fjölmargir af útskorn- um gripum Ríkarðs eru listaverk, af þvi að saman fer frumleg hugs- un og fagur búningur. Afburðir R. J. í tréskurði hafa leitt suma menn afvega í dómum um list hans, t. d. Hjörvarð i Mbl. Hann áleit Ríkarð skemra kominn í teiknun og niyndamótun en í tréskurði. En það er hin mesta fjarstæða og inunu nokkrir íburðarmiklir skartgripir útskornir, hafa leitt hann á glapstigu. Því að sannleikurinn er sá, að langoftast tekst Ríkarði afburðar vel, bæði að teikna og móta manns- andlit. Fyrst og fremt eru mynd- irnar með afbrigðum líkar ytra út- liti frummyndanna. Þó er það ekki hæsta sligið, heldur hitt, hve vel Ríkarður nær hinum innra manni, svipbrigðum, lundarlaginu, sálinni. Eitt sinn hafði Ríkarður teiknað andlitsmynd af gömlum bragða karli. En er liann sá sjálfan sig á pappírsblaðinu mælti hann: »Ekki hefði eg leyft yður að gera af mér mynd, ef eg hefði vitað, að þér gætuð farið innan í inann og dregið syndina út«. Flestum sýndist hið sama um þá mynd. Og þó var hún nákvæm og eðlileg. Af myndum þeim sem á sýning- unni voru þóttu mér sérstaklega góðar, brjóstmyndin af Magnúsi landshöfðingja, vangamynd af G. B. landlækni og Stefáni oddhaga. En erfitt er þó þar úr að velja, og undan að draga, því að Rík- arði mistekst hér um bil aldrei glíman við mannsandlitin og mun hann á því sviði ávinna sér mikla frægð og varanlega. En honum mistekst stundum umgjörð stíkra liiagjar óíriðar])jóðaDDa. II. Clemenceau í'orsætígráðherra Frakklands. Clemenceau er fæddur árið 1841. Hann lagði stund á læknisfræði og fékk skjótt orð á sig fyrir dugnað og hygni i þeirri grein. Hann tók snemma að fást við stjórnmál og 1871 var hann kosinn á Þjóðþingið, er semja skyldi frið við Þjóðverja og koma skipulagi á stjórn Frakk- lands. Hann greiddi þá atkvæði á móti friðarsamningunum og vildi berjast eins lengi og unt væri, held- ur en að ganga að friðarsamning- um Bismarcks. Síðan hefir Clemenceau ætíð haldið því fram að EIsass-Lothr- ingen ætti og hlyti að lokum, að sameinast franska ríkinu. í þvi efni hefir hann aldrei verið í nein- um vafa. Þegar uppreisn »Kommúnista« í París liófst 1871, reyndi hann að miðlá málum milli þeirra og stjórn- arinnar í Versailles, en er það mis- tókst, lagði hann niður þingmensku og tók ekki þátt í pólitík fyr en 1876 er hann var aftur kosinn á þing. Hann var altaf í þeim flokki Vinstrimanna er lengst gengu í kröfum og ákveðnast fylgdu lýð- veldisstjórninni. Á þessum árum var skilnaður ríkis og kirkju helsti liðurinn á stefnuskrá frjálslynda flokksins í Frakklandi og yar Clemenceau þar harðastur i kröfum. Hann sá að kaþólska kirkjan var aðalstoð þess flokks er koma vildi á kon- ungsstjórn á Frakklandi og því bar nauður til, að brjóta vald klerkasléttarinnar á bak aftur, ef lýðveldið ætti ekki að glatast. Á þessum timum var róstursamt í franska þinginu, og feldi Clemen- cau hvert ráðaneytið á fætur öðru. Fékk hann af því auknefnið ráð- herrabani. Sjálfur vildi hann ekki taka við völdum fyr en hann hefði öruggan meirihluta í neðri deild þingsins. Clemenceau bjóst við því, að fyr eða síðar myndi hefjast ófriður milli Frakka og Þjóðverja, og vann hann af alefli að því, að gera her- inn sem traustastan. Hinsvegar barðist hann gegn þvi, að herfor- ingjar fengusl við stjórmál. — »Herinn á að hlýða stjórn lýð- veldisins, en ekki að stjórna lýð- veldinu«, sagði hann eitt sinn í þinginu. Urðu þessi orð að eink- unarorðum frjálslynda flokksins, i baráltunni við hermannavaldið, á árunum í kringum aldamótin, þegar Dreyfusmálið var efst á baugi. Um 1880 hótust hinir miklu ný- lenduvinningar Frakka í Asíu og Afríku. Jules Ferry var aðalmaður þeirrar stefnu. Clemenceau reis öndverður gegn honum og bar honuin á brýn, að hann eyddi fé og her Frakklands í að vinna gagnslausar nýlendur, en gælti ekki heimastöðvanna. »Meðan Ferry notar her vorn« sagði hann, »til þess að berjast við Blámenn og Indverja, hervæðist óvinurinn við Rín. Honum eiguin við fyrst og fremst að verjast, því að hann ætlar að eyðileggja oss«. Ferry mynda, svo sem slöplarnir undir brjóstmyndum Tryggva og Matthí- asar, sem eru of þunglainalegir, brjóst og lierðar Iílettafjallaskálds- ins, sern varla er nógu mikið út- fært á brjóstmyndinni, og umgjörð vangamyndar sama manns, sem betur hefði verið einfaldari. Mælti íleira segja um smámistök á svið- um sem liggja að landamærum sjálfrar myndhöggvaralistarinnar, svo sem sumar landslagsteikningar hans, enda gerir hann vitanlega enga kröfu til að teljast málari. Og þó eru góð tilþrif f sumurn þeirn mynduin, t. d. teikningum frá Vestmannaeyjuin. Ein meinloka hetir komist i grein. dr. A. J. um sýninguna. Telur hann ómögulegt að sami svipurinn geti verið í einu bæði illur og hýr (Illhýra). En hvernig verður svipur inanns, illmennis, sem vill vera hýr? Var ekki yíirbragð Guðmund- ar á Glæsivöllum og kappa hans eitthvað skylt illhýru? Þvílík fyrir- brigði, ein og samsett jafnvel marg- samsett svipbrigði, koma greinilega fram á mörgum andlitsmyndum Ríkarðar, þeim sem á sýningunui voru. Og þar nær hann hámark- inu í list sinni. Jafn fráleitar voru þær skoðanir að Rikarður hefði tekið sér G. Thorsteinsson til fyrir- myndar. En hörmulegt er að landið skuli ekki koma sér upp vísi til lista— safns. Seinna meir mun þjóðin sakna þess, að öll hin fyrstu lista- verk, máluð og mótuð hér á landi, skuli vera einstakra manna eign„ Og falin sjónum alþjóðar. J. J. »Njörður«, botnvörpungurinn var skotinn í kaf 18. þ. m. Var á leið til Englands með isfisk. Menn komust allir af. svaraði: »Sjóndeildarhringur Cle- menceaus nær ekki nema að Rín og Miðjarðarhafi. Hann vill gera Frakkland að stórveldi i Norður- álfu, en eg vil gera það að heims- veldi«. Clemenceau fékk velt Ferry úr ráðlierrasæti, en Frakkar héldu áfram að auka heimsveldi sitt í öðrum heimsálfum. Árið 1889 kom Panamamálið al- ræmda tii sögunnar, og var þá Clémenceau ákærður fyrir að hafa þegið mútur. Þótt ekkert sannaðist á hann, glataði hann trausti hjá þjóðinni og náði ekki þingkosn- ingu. Liðu svo nokkur ár að Clemenceau var utanþings og hafði engin eða lítil áhrif á frönsk stjórn- mál, en á meðan framkvæmdu aðrir menn mörg af þeim málum, er hann hafði barist fyrir. Undir aldamótin tóku áhrif Cle- menceaus aftur að aukast. Dreyf- usmálið var nú aðal deilumál á Frakklandi. Nokkrir menn heimt- uðu að það væri tekið fyrir að nýju til rannsóknar. En þeir voru fáir og máttu sín lítils. Þá tók Clemenceau að sér málstað Dreyf-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.