Tíminn - 08.03.1919, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.03.1919, Blaðsíða 2
62 TlMINN stórfyrirtæki til að leggja út i að lítt rannsökuðu máli, eða án þess að þjóðinni nieð þingmannavaldi sínu gefist tækifæri að láta í Ijósi vilja sinn lil framkvæmdanna. Hin afar mikla útbreiðsla bilanna, þessi fáu ár síðan farið var að flytja þá hingað til landsins, sannar best hve mikil þörf er hér á góðum flulningstækjum. Það sýnir að ís- lendingar skilja það hve mikils virði það er, að geta komist fljótt áleiðis, og horfa alls ekki í að borga fyrir slíkar ferðir. Eftir siríðið mun auk þess straumur útlendra og innlendra sumargesta auka að mun þörfina á hröðum og þægilegum samgöngu- tækjum. Þetta bendir því mjög í þá átt- ina, að járnbrautir muni geta borið sig hér á landi, þar sem mest er flutningsþörfin. Bilar eru dýrir og koma hér aðallega að notum til fólksfiutn- inga. Þeir flytja svo fáa farþega að laun bílstjórans koma tilfinnan- lega niður á hverjum þeirra. Peir fara illa með vegina, og auka því stórlega kostnað við við- hald þeirra. Alt þetta verður þvi að taka til greina ef á að bera þá saman við önnur samgöngutæki. Enn þá sem komið er hafa flulningabílar ekki verð notaðir neitt að ráði utan Reykjavíkur. Peir eru mjög þungir, og þurfa því vel harða vegi. Upp á móti brekkum t. d. er viðspyrnan á hjólunum svo mikil, þegar bíllinn fullfermdur er yfir tvær smál. að þyngd, að megnið af akbrautunum hér mun ekki þola þá heldur spor- ast á skömmum tíma. Flutningstæki sem likleg voru til þungavöruflutninga hér á landi, eru hinir svokölluðu Rennards- vagnar, semfranskmaðurinn Renard fann upp fyrir nokkrum árum. Það er heil lest af vögnum með einni sameiginlegri aflvél, sem er í fremsta vagninum. Sá vagn hefir því ekkert a/inað að bera en motor og bílstjórann, sem stýrir allri lest- inni. Með liðás sem gengur frá afl- vélinni aftur eftir öllum vögnun- um, er krafturinn leiddur á hjól- ása alira vagnanna. Með tannhjóla útbúnaði einum hreyfast því allir vagnarnir, eins og þeir væru sjálf- stæðir vagnar hver með sinni hreyfivéJ. Kostirnir við þetta eru þeir: í fyrsta lagi að vagnarnir eru miklu léttari en ef þeir hefðu vél hver, í öðru lagi getur sami bil- stjóri þar stjórnað mörgum vögn- um, og í þriöja lagi, sem ef til vill er það þýðingarmesta fyrir okkur að vegirnir fara svo miklu betur af umferð þessara vagna heldur en vanalegra bila. Vagnar þessir eru auk þess þannig útbúnir að þeir fara nákvæmlega í hjólför fyrsta vagnsins og geta'þvi farið i mjög/krappar bugður. Einn 100 hestafla vagn af þessari gerð hefir flutt 15 smál. upp brattan og krók- óttan veg 1500 metra hæð, þar sem hallinn var sumstaðar 1:7. Til samanburðar má geta þess að 50 hestafla flutningabílar sem hér eru, flytja ekki yfir 2 smál. upp svipaðan halla, og þurfa þó tals- vert vandaði vegi. En að vísu fara þeir talsvert harðara en Renards- vagnarnir. Síðustu árin hafa vagnar þessir náð mikillí útbreiðslu og líka svo vel, að það er álit ýmsra, að þeir muni geta útrýmt eða komið í stað járnbrauta, þar sem lítið er flutningsmagn. Hin sporlausu æki hafa tekið stórum framförum þessi siðustu árin, og hefir striðið þar ýlt mjög undir aliskonar tilraunir og upp- fyndingar. Ekki ósennilegt, að i rústum þess finnist eitthvert það flutningstæki, sem er sérlega hentugt okkar erfiðu skilyrð- um. Þegar fossaflið verður tekið til notkunar hér, mun rafmagnið óefað að miklu leyti verða-aflið í olckar samgöngutækjnm, hvort heldurþað verða sporbrautir, eða aðallega vagnar, sem fara brautarlaust. Um ílugferðir hefir verið svo rækilega ritað fyrir stutlu i blað- inu, að vonandi hafa menn komisí það á loft, sem þörf er á i bráðina, Að minsta kosti sýnist það liggja opið fyiir, að gera tilraun með eina flugvél, og það helst sem allra fyrst. Enda engir sjáanlegir örðug- leikar á þeirri framkvæmd, hvort heldur væri landið sjálft, eða ein- stakir menn, sem réðust til þess. jtýleníur f*jóðverja og Tyrkja. i. Eitt af mestu vandamálunum, sem friðarfundurinn í Versölum verður að ráða fram úr er það, hvað á að verða um nýlendur Þjóðverja og Tyrkja, hverir eigi að stjórna þeim og hvernig eigi að stjórna þeim. Eru þær nýlend- ur nú, sem allar á valdi Banda- manna. - Gerir enginn ráð fyrir, að þær verði aftur fengnar i hendur fyrri eigendum. Virðist það vera efst á baugi, að nýlenduruar verði undir stjórn og vernd alþjóða-bandalagsins, sem aflur teli einstökum rikjum bandalagsins að fara með stjórnina. Séu þau nokkurskonar^ gæsluríki nýlendanna. Aðal-atriðin í þessu gæsluríkja- skipulagi eru þessi: Stjórn nýlendanna á að miðast við það, að verða ibúunum til heilla* en ekki að rekast sem arðsamt fyrirtæki fyrir gæslurikið. Það fer eítir landfræðilegum,. efnalegum og hernaðar-ástæðum hvert rikí gert er að gæsluríki einstakra nýlenda. Sljórnin fer eftir menningar- áslandi nýlendunnar. Þær, sem best eru mentar fá fullkomna eða tak- markaða sjálfsstjórn, eða fá að ráða þvi að mikíu leyti, hvert gæslu- rikið verður. Alþjóðasambandið veitir gæslu- ríkjum þeirra nýlenda, sem 'síst ern mentar, miklu meira vald. Gæslurikinu er skylt að hafa fullkomlega opnar allar hafnir ný- lendunnar, enda hafi allar þjóðii jafnan aðgang að verslun við ný- lenduna. ^ Það má svifta gæsluríkið um- boðinu, að hafa gæsluna á hendi„ ef stjórnin befir farið illa úr hendi, og þegar ibúar nýlendunnar eru færir um, að sljórna sér sjálfir. Gæsluríkið á að leggja skýrsla um það fyrir alþjóða-bandalagið, fyrir ákveðið timabil i senn, á hvern hátt það hefir rekið gæsluna. Eru þessi aöal-atriðin, en ekki annað en bolialeggingar enn. Fer vel á pappírnum, en vitanlega er- alt undir því komið hver fram- kvæmdin verður. II. Þá er þess að gela hvað libleg- ast er að verða muni um hinar einstöku nýlendur. Viðlendastar og mestar eru ný- lendur Þjóðverja í Afríku. Eru það tjögur landflæmi, tvö við Gíhea- fióa, Togoland og Kamerun, þá hin þýska Suðvestur-Afríka og þýska Austur-Afríka. íbúatala samtals í þessum lönd- um um 12 miljónir, þar af um 23 þúsund hvítir menn. Var það Stjórnarskpn ðSnskn. (Frh.). ---- Jafnskjótt og Zahle baðst lansn- ar frá embætti, tók konungur að ráðgast við foiingja sfjórnmála- flokkanna, en sagði þó jafnframt, að hann vildi ekki taka við ráðu- neyti, sem ekki styddist við meiri hluta Fólksþingsins. Hægri menn höfðu, eins og þeir eru vanir, lagt til, að stofnað yrði ópólitiskt fram- kvæmdaráðuneyti til bráðabirgða, en síðan skyldu kosningar fara fram á komandi sumri. Konungur vildi ekki ganga að þessu. Hefir hann nú sem fyr sýnt, að hann vill styðja þingræöið og fylgja grundvallar-reglum þess út í ystu æsar. Meira hefir ekki hingað frést, en úr því sem komið er, virðist þingrof vera eina lansnin. Senni- lega verður þó ekki Landsþingið rofið, því það er ýmsum annmörk- um bundið, heldur Fólksþingið. Ef Zable skyldi vinna sigur við nýjar kosningar til Fólksþingsins, þá verður Landsþingið auðvitað að beygja sig undir vilja stjórnar- innar. Þetta stjórnarskiftamál verður því í rauninni ekki afgert fyr en eftir að kosningar hafa farið fram. Hér er því um að ræða í svipinn, hvort Zahle eða vinstri-menn eiga að rjúfa þingið og efna til nýrra kosninga. Þetta skiftir ekki miklu, en þó er ávalt talið betra, að láta andstæðinga sína rjúfa þing, en að gera það sjálfur. Miklu auð- veldara fyrir þann flokkinn, sein ekki situr að völdum, að beita hörðum árásum og gagnrýna gerðir andstæðinganna. Það má því telja víst, að J. C. Christensen, foringi vinstri-manna, muni ekki óneyddur vilja taka við völdum nú sem stendur, en auð- vitað getur farið svo, að hann geti ekki komist hjá því. Og það er víst, að hann ætlar sér að sleypa sfjórninni innan skamms, þó það ef til vill verði ekki í vetur. BÞað er að mörgu leyti lærdóms- ríkt að athuga afstöðu Christen- sens gagnvart stjórninni. Meðan Danir ótluðust sem mest að lenda i ófriðnum, sluddi hann stjórnina, og tók sjálfur sæti í heuni um skeið, sem »eftirlitsráðherra«. En eftir því, sem hættan utan að frá minkaði og óánægjan með stjórn- ina fór vaxandi í landinu, fór hanu að gerast ákveðnari andstæðingur hennar. — Á síðustu tlmum hefir hann nokkrum sinnum reitl hnef- ann til höggs, án þcss þó að slá, honum mun ekki bafa þótt jarð- vegurinn nægilega undirbúinn. — Loksins kom höggið og nú mun verða barist. Flokkaskifting er þannig háttað i Danmörku, að enginn einn llokk- ur getur fengið algerðan meiri hluta í Fólksþinginu. Þeir flokkar, sem völdin vilja hafa, verða því að ganga í bandalag við kosningarnar. Það má telja vist, að jafnaðarmenn og radíkali-flokkurinn muni styðja hvor annan, en samt eru þeir eng- an veginn vissir um, að ná sigri. Og et hægri- og vinstri-menn ganga í bandalag, sem líkur eru til, þá eiga stjórnar-flokkarnir ósigur vísan. Það er auðvelt verk að finna marga höggstaði á sljórn, sem setið hefir að völdum i sex ár, og það á þessum vandatimum* 1 siðasta, blaði voru nefnd nokkur af helstu atriðunum, sem stjórnin er ákærð fyrir, en auk þess er margt annað, sem henni cr fundið til foráttn. Ekki sfst samband hennar viö jafnaðarmenn. Bændurnir og mest- ur hluti borgarastéttanna hafa ver- ið ákveðnir andstæðingar þessa bandalags, enda er það mjög d- eðlilegt, og víst er það, að sumir af foringjum radikala flokksins hafa verið næsta óánægðir með það. Má hér meðal annars tilnefua Brandcs fjármálaráðherra, sem i ýmsu á sammerkt við hægrimenn, og vissulega er ekkert íjær skapi eu jafnaðarmenska og byltingar á þjóðfélaginu. Stjórn Zahleráðuneytisins hefir verið sterk, en allmikils einveldis- blær hefir verið á henni. Hún hefir ekki að eins reynt að ganga fram- hjá þjóðinni, heldur einnig fram hjá þinginu. Algengt ráð stjórnar- innar til þess, að koma málum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.