Tíminn - 08.03.1919, Blaðsíða 4
64
TÍMINN
Leikfimiskennara
til að kenna drengjum leikfimi vantar að barnaskóla
Reykjavíkur 1. október næstkomandi.
Umsóknir ásamt launakröfu komi til skólanefndar
fyrir lok aprílmánaðar.
færasta raanninn sem til er, í eins
þýðingarmikla stöðu og skógræktar-
stjórastaðan er.
Það er skaði, að skógræktar-
stjórinn skuli elcki sjá þetta, og
hafa þá sómatilfmningu, sem þarf,
til þess að láta staríið af hendi
til sér betri manns.
Það er skaði, að þingið skuli
ekki sjá þetta og sjá um; að hann
fari frá stöðu sinni, og hún kom-
ist í hendur hins rétta manns.
Eg vil biðja skógræktarstjórann
að athuga þetta. Biðja hann blátt
áfram, að athuga hve mikinn skaða
hann gerir landi og þjóð með því,
að vera i fyrirrúmi fyrir öðrutn
betri manni. Og sjái hann ekki,
að það er sómi hans, að faja frá,
og hleypa að þessum manni, þá
verður þingið i sumar að sjá það
og framkvæma.
Timarnir krefjast þess, að fær-
ustu mönnunum sé beitt í hvívetna.
Skógræktar-málunuin hefir ekkert
miðað uin tíma, en nú fara nýir
tímar í hönd, þeim verður að fara
að miða áfram, en til þess þarf
fyrst og fremst hinn rétta matrn,
til að sjá um framkvæmd þeirra.
— Þetta verður skógræktarstjórinn
að skilja, hann hefir sjalfsagt stadid
eins vel i stöða sinni og hann he/ir
getað, en annar gelur gert þad
betur — miklu betur, — Fgrir þvi
á skógrœktarstjnrinn, ef h«nn vill
framför og gengi skógrœktarmála
þessa lands, að láta þau sem fyrst
komast i hendur fcerasta mannsins.
x + x
Afturhaldsseggir
eftir
Camille Flammarion.
(Frh.). ----
Og var ekki dýrsegulmagninu
hafnað um líkt leyti af vísinda-
mannafélaginu franska og lækna-
deildinni í Paris? Menn fóru fyrst
að gefa því gaum, þegar Jules
Cloquet skar krabbamein úr brjósti
á konu, án þess að hún kendi
nokkurs sársauka, er hann hafði
»mesineriserað« hana.
Eg hitti í Turin árið 1873 einn
blálátækan niðja Joufljoy, sem
fann upp eimskipið árið 1776.
Eins og kunnugt er, hafði þessi
snjalli hugvitsmaður eytt öllu fé
sínu og vina sinna, til þess að
sýna mönnúm og sanna að það
væri vinnandi vegur að nota gufu-
aflið í þjónustu farmenskunnar.
Fyrsti eimbáturinn hafði farið eina
ferð uppeftir Doubsfljóti hjá Baume-
les-Dames, 1776. Annar eimbátur
fór 1783 upp eftir Saone-á til
Lyon og alla leið til Barbeyjar.
Jouffroy vildi reyna að stofna fé-
lag til þess að hagnýta sér þessa
uppfindingu. En það strandaði á
þvi að hann þurfti fyrst að fá
einkaleyfi. Hann sótti um það, en
stjórnin kvaddi vísindamannafélag-
ið, til þess að segja áiit sitt nm
uppgötvun þessa. Það lét uppi álit
sitt, en það varð fyrir áeggjan
Periers alt annað en gott. Auk þess
varð vesalings JoufTroy alstaðar
hafður að háði og spolti, sökum
þess að hann vildi reyna að »sætta
vatnið og eldinn«. Pað var því
lengt nafn hans, hann var upp-
nefndur og kallaður »Jouffroy-la-
Pompe«. Pessi mæðusami upp-
findingarmaður misti svo kjarkinn
og fór af landi burt á meðan stóð
á stjórnarbyltingunni. Annars gekk
Fulton ekki mikið betur í Eng-
landi en Jouffroy halði gengið i
Frakklandi. Og það var ekki fyr
en 1808 að honum tókst að sigr-
ast á öllum örðugleikunum og
fara hina fyrstu för sína í gufubát
á Hudsonsá í ættlandi sínu, sem
kinokaði sér lengi við að viður-
kenna gildi uppgötvunar hans og
meta hana að verðleikum.
Og svona hefir flestuin hugvits-
inönnum og brautryðjendum verið
tekið. Þá mætti og minna á Filippe
Lebon, sem fann upp gasljósið
árið 1797. Hann dó, eða að þvi
er sumir segja, var myrtur á
krýningardag keisarans, áður en
uppgötvun hans hafði hlotið viður-
kenningu á ættlandi hans. Ein af
hinum öflugustu mótbárum var:
að það var ekki hugsanlegt að
það gæti logað á þeim lampa, sem
enginn kveykur átti að vera i.
Gasljósið var fyrst notað í Birm-
ingham; það var árið 1805. I
Lundúnum var farið að nota það
1813, en ekki fyr en 1818 i París.
Og þegar byrjað var að leggja
járnbrautirnar, stóðu verkfræðing-
arnir á því fastar en fótunum, að
járnbrautarlestirnar mundu aldrei
fá hreyfst úr stað, því að hjólin á
sjálfri eimreiðinni, mundu snúast i
sifellu á sama stað á teinunum.
Og einn þingmaðurinn, Arágo að
nafni, reyndi að kæla ákafa þeirra
manna, sem mikla trú höfðu á
þessari uppfindingu með þvi að
skírskota til aldeyfu efnisins, nún-
ings málmanna og mótstöðuafls
loltsins. »Hraðinn« — sagði hann
— »getur að vísu orðið mjög inik-
ill, en þó hvergi nærri eins mikill
og menn hafa vonað. Vér megum
ekki láta orðagjálfrið villa oss.
Þvi hefir verið haldið fram að
vöruflutningar rnundu ganga að
mun greiðara, ef farið væri að
nota járnbrautir. Árið 1836 nam
flutningskostnaður verslunarvar-
anna um Frakkland 2,803,000 fr.
En ef allar hinar fyrirhuguðu
járnbrautir væru nú komnar og
allar vörur væru flutlar á þeim,
mundu þessir 2,803,000 frankar
koinast giður i 1,052.000. Eða með
öðrum orðum landið mundi missa
hér umbil þriðjunginn af þessari
upphæð, sem það græðir árlega á
vöruflutningunum. Nei, það mun
affarasælast að hafa enga tröllatrú
á imyndunarafli manna, því hætlir
oft við að hlaupa í gönur. Tveir
járnbrautarteinar eru sannarlega
ekki líklegir til þess að breyta
mjög útlili Gascognes-heiða, —«
og svo framvegis i sama anda. í
hvert skifti, sem nýjar hugmyndir
koma fram á sjónarsviðið, getur
jafnvel hinum mestu mönnum
skjöplast.
Og heyrum nú hvað Thiers seg-
ir: »Eg skal að vísu kannast við
það, að járnbrautir geta komið
að nokkrum notum fyrir ferða-
menn, ef þær eru hafðar mjög
stuttar og látnar enda í stórborg-
um t. d. eins og París. Langar
jámbrautir ættu ekki að eiga sér
stað«. Og jafnaðarmaðurinn frægi,
Jóseph Proudhon kvað það bæði
heimskulegt og hlálegt að gera ráð
fyrir því að járnbrautir gætu orðið
til þess að flýla fyrir skoðunum
að ryðja sér til rúms.
Og þegar bin konungl. Iækna-
stjórn i Bæjaralandi var beðin að
segja álit sitt í járnbrautarmálinu,
gaf hún út þá ýfirlýsingu að hún
áliti járnbrautir mundu verða yfir-
leitt skaðlegar heilsu manna. Peir
sem ferðuðust með þeim mundu
fá heilahristing, en hinir, sem
horfðu á mundu fá svima. Lækn-
arnir réðu því til þess, að láta
reisa plankagirðingu beggja megin
með fram allri járnbrautinni og
hafa hana jafn háa vögnunum.
(Frh.)
Ur skeytum.
— Fyrstu ræðunni, setn Wilson
hélt eftir heimkoinu sína til Aine-
ríku, var tekið forkunnar vel. —
Hann sagði, að Ameríka væri
»von heimsins«. Ef hún léti ekki þá
von rætast, þá væri ómögulegt að
sjá fyrir afleiðingarnar. »En þó
að friðarsamningar þeir, sem vér
nú skrifum undir, verði eios góð-
ir og hugsanlegt er að þeir geti
orðið bestir, eins og nú er ástatt,
þá göngum vér þess ekki duldir,
að það verður ekkert annað en
skrifáð »pappírsblað«, sem vér
skiljum eftir á borðinu sögufræga
{ Versailles«.
— Alt á huldu í Pýskalandi,
óeirðir miklar víða um ríkið og
eins og áhrifa austan frá Rússlandi
gæti þar meir og meir.
Bækur og i'itíöii"1
kaupa menu 1
Bókaverzlun
Sigfusar Eymundssonar
— Störfum friðarráðsstefnunnar
miðar nú drjúguin áfram, búist
við að undirnefndirnar muni bráð-
lega leggja skýrslur sínar fyrir
fulltrúaráð stórveldanna fimm, en
það geft aftur almennum fundi
friðarráðstefnunnar skýrslu um
miðjan þennan mánuð.
— Gibson, læknir sá sem við
þriðja mann fann inflúensu-sótt-
kveikjuna, sýktist við tilraunirnar
og dó úr influensu.
— Nefnd sú á friðarráðstefnunni
sem fjallar um kröfur Dana til
Suður-Jótlands, hefir fallist á, að
þjóðaratkvæðagreiðslan í Norður-
Slésvik fari fram í einu lagi, en í
Miðslésvík í hverju héraði út af
fyrir sig,-
— Samgöngumála-ráðuneytið
breska tekur til yfirvegunar, hvort
ekki sé rétt, að láta gera járnbraut-
argöng milli Englands og írlands.
— 1 ráði, að breska stjórnin
kaupi alla ullarframleiðslu Bret-
lands þetta ár, með frjálsu mark-
aðsverði.
— Pjóðþingið danska samþykti
rikislántökuna, en landsþingið feldi.
Þetta er orsök stjórnarskiftanna.
En eftir að hafa átt fund með
flokksforingjum, lýsti konungur því
yfir, að hann tæki ekki við neinu
ráðuneyti, sera ekki styddist við
meiri hluta Þjóðþingsins.
— Bieskur ráðberra hefir sagt
í ræðu, að með því, að draga að
semja frið, ættu bandamenn það
á hættu, að hafa enga til að semja
við, svo væru Þjóðverjar aðþrengdir
af hungri.
— Times segir Frakka krefjast
þess til frekari tryggingar gegn á-
rásum Þjóðverja, að vestri bakki
Rinar verði óháður Þýskalandi og
hlutlaus í ófriði.
— Talað er um að fara að nota
rafmagn í stórum stíl til reksturs
járnbrauta á Englandi.
— Wilson forseti er lagður af
stað til Norðurálfunnar aflur. —
Sagði í ræðu í New-York áður en
hann fór, að jafnvel þótt þjóða-
bandalagið væri ekki annað en
umræðúfélag. þá mundi það verða
stjórnmálabrögðunum að bana, —
þau þyldu ekki opinberar um-
ræður.
— Lloyd Georges svaraði nefnd
sjómanna því, að fyrsta krafan
sem gerð yrði til Þjóðverja væri
sú, að þeir bættu fullum bótum
alt kaupskipatjónið, og fullar skaða-
bætur ættingjum þeirra, sem mist
hefðu lífið vegna kafbátahernað-
arins.
— Breskir flugmenn beitast fyrir
flugferðum eftir endilangri Afrfku,
um 5300 mílna veg.
Ritstjóri:
Tvy&kvi Þórknllason
Laufási. Simi 91.
Prentsmiöjan Gutenberg.