Tíminn - 09.04.1919, Blaðsíða 4

Tíminn - 09.04.1919, Blaðsíða 4
96 TIMINN Framkvæmdarstjórastaða. Framkvæmdarstjórastaðan við Sláturfélag Austur- Húnvetninga á Blönduósi er laus frá 10. júní næstk. Umsóknir með launakröfum sendist til stjórnar nefnds félags á Blönduósi, sem gefur allar upplýsingar starfinu viðvíkjandi. Umsóknarfrestur til 4. júní næstk. leiðendur eða að koma upp verk- smiðjum og að flytja heila skips- farma. — Með auknu fóðri breytist bú- peningsræktin. Sultarfóður og fellir hverfa úr sögunni. Horfellislög og forðagæslulög eru óþörf, enda hafa nágrannar vorir eigi gripið til þeirra úrræða. En með meiri fóð- ureyðslu kemur fram krafan um cieiri afurðir af búpeningnum. Hver og einn viil fá sinn tilkostn- að sem best endurgoldinn. í þessu efni hafa nágrannar vorir gert mikið. Aðalþættirnir i þeirn umbótum eru þessir: Búfjársýningar hafa mikið stutt að umbótum á búpeningi. Það eru rúm 100 ár síðan byrjað var á þeim í Danmörku. En almennar urðu þær fyrst eftir miðja 19. öld. — í sambandi við sýningarnar standa svo kgnbœtar búpenings. Þar eru úrvals-skepnnr verðlaun- aðar og þeim er veitt eftirtekt. Sérstök kynbótafélög styðja og að þessum umbótum, með því að hafa úrvalsdýr til undaneldis o. fl. Þá hafa hin svonefndu eftirlitsfélög (Kontrolforeninger) gert mikið gagn. Fyrsta félagið var stofnað í Dan- mörku 1895. Nú eru þessi félög nm 500. Tilgangur þessara félaga er aðatlega sá að komast að raun um, hvaða búfjáreinstaklingar borgi fóðrið best, og hver fóðrun sé arð- vænlegust. Sökum þessa þarf að halda skýrslur um fóðureyðslu og afurðir. Þessi eftirlitsfélög eru aðal- lega fyrir nautpening. Nokkur reynsla er fengin fyrir þeim hér á landi. Félög þessi gætu eins átt við aðrar tegundir búfjár. Þá er miRið gert að rannsóknum fóðurefna er- lendis og nákvæmar fóðurtilraunir búpenings framkvæmdar. Aliar þessar umbætur styðja svo ríkin með ráði og dáð. Á yfir- standandi ári er áætlað, að Danir verji 5,5 miljónum króna til styrkt- ar búnaði. Norðmenn veittu 5 milj. króna til búnaðarframfara síðast- liðið ár — og auk þess 27 milj. kr., til þess að létta starf bænda vegna dýrtíðar. — Mikið af því fé gekk til að greiðtf fyrir flutningum á áburði, fóðurefnum o. fl., svo og til að sjá fyrir nægu fræi og útsæði. Þess þarf eigi að geta, að al- staðar eru margir sérfræðingar i hinum ýmsu greinum búnaðarins. Eru þeir jafnframt ráðunautar bænda á ýmsum sviðum. Búnað- arfélögin hafa sérstaka sambands- stjórn. Sjá þau aðallega um alla þessa framfaraviðleitni, sem svo er studd af ríkissjóði. — Árangurinn af öllu þessu starfi er svo sá, að sultarfóður og fellir kemur vart fyrir. Löggæsla i þeim efnum er þvi óþörf. — En aðalspurningarn- ar eru þessar: Hvernig er hægt að afla fóðurs, svo að sem ódýrast verði? og hvernig er arðvænlegast að nota fóðrið? Mönnum er ljóst, að hér er um þjóðarnauðsyn að rœða, þar sem ekkert má til spara, svo að vel fari. (Nl.) — Milli Berlínar og Warn^munde er haldið uppi daglegum farþega- flutningi í Iofti. „Hvíta“ eða hvað? Hver skyldi nú bjóða best, sagði ísa gamla og lest í spegilinn. Hún var með spánýja hárfléttu og tennur af nýju«tu gerð og í fínum, fínum kjól. Hún leit í kringum sig. »Ein- tómir kaupmenn*. Hún lokaði aug- unum og dreymdi undarlega drauma. E ntómir finir menn, ístrur og gull 1 Viltu eignast enn þá finns fléttur, s gði einn ístrubelgurinn. Já sagði í <a, Viltu eignast enn þá fínni tenn ur, sagði annar ístrubelgurinn. Ja, sagði ísa. Viltu eignast enn þá fínni kjól. sagði 3. (strubelgurinn. Ja. sagði tsa og hoppaði svo hátt að allir í-trubelgirnir iðuðu í skinninu. í<a, ísa, sögðu allir ístrubelgirmr og breiddu út faðminn, ea gullið flóði um alt gólfið og nóttin hvolfdi sér yfir alla b ðlana. ísa, ísa I Eintóm stórmenm I Malið var ekki rannsakað. (,,Frón.“) Útsvörin í Reykjavík. Niðurjöfnunarskráin í Reykjavik er nýlega komin út og var vitan- lega á allra vörum fyrstu daganna. Jafnað niður fast að einni miljón króna. Gjaldendur 4709. »Hvað fáum við í staðinn?« Fyrsta flokks orgei •* píanó fyrirliggjandi. Verksmiðjuverð að viðbættum flutningskostnaði. Fyrirspurnum svarað um hæl. HljóifæraMs Reykjavíkur. Símnefni: Hljóðfærahús. Sími 656. Svo spnrði einn af gáfuðustu mönn- um þessa bæjar. Stærstu fyrirtæki bæjarins bera sig vel: Vatnsleiðslan, og höfnin á að bera sig og gerir það vafalaust. Hvað fáum við fyrir þessa einu miljón króna? Við sitjum í rayrkri. Að undanteknum fáum götum í miðbænum, eru flestar götur bæj- arins illfærar allan ársins hring af for, eða ryjki, eða manndrápshálku. Þægindin sem bærinn veitir ern sáralítil. Sérstakur skattur er lagður á til ösku og salernahreinsunar. Bærinn getur hvergi holað niður sjúklingum sinum. Bæjarstjórn lifir á snöpum um húsnæði til fundahalda. Það mætti telja í það óendan- lega það sem hér er vanrækt. Og svo er lögð ein miljón á bæjarbúa. Það myndu fáir kvarta, ef þeir gætu bent á það greinilega hvað við fáum í staðinn. Ritstjóri: Tryggvi þórhallssoB Laufási. Simi 91. Prentsmiðjan Gutenberfi togum frjálslynda flokksins í Trans- waal og einn hinn harðasti and- stæðingur Krugers forseta. Hann sá glögt að afturhaldssemi og kyr- stöðupólitik Krúgers var hættuleg fyrir landið og hann beitti sér fyrir andlegum og verklegum fram- förum á öllum sviðum. Botha barðist af alefli gegn stríð- inu við England. Hann hafði frá blautu barnsbeini fengist við hern- að og vissi vel að Búar hlytu að verða undir að leikslokum og hann þekti pólitík Norðurálfu svo vel, að hann vissi að þeir áttu hvergi hjálpar að vænta. Botha bar lægra hlut og ófriður- inn hófst. Þá sneri hann við blað- inu og barðist alira manna best, og varð brátt gerður að yfirhers- höfðingja Búa og var hinn eini foringi þeirra er sýndi verulega berkænsku, eftir kenningum nú- timans, enda fóru Bretar marga hrakförina fyrir honum. Eftir ófriðinn skipaði þjóðin sér um hann sem foringja, og þegar Transwaal fékk sjálfstjórn 1907 varð hann hinn fyrsti forsætisráð- herra þess og var það þangað til Bandariki Suður-Afríku (Union of South Africa) voru stofnuð 1910. Þá varð hann hinn fyrsli forsætis- ráðherra hins cýja rikis og situr hann við völd enn þann dag í dag. Hefir hann setið lengur að völdum, en nokkur annar núver- andi forsætisráðherra í heiminum. Botha hefir jafnan unnið að því, að eyða hatri Búa til Englendinga og efla gott samkomulag milli þjóðanna. Hinsvegar befir hann reynt að tryggja Búum yfirráðin í allri Suður-Afríkur, með því að láta þá eignast jarðirnar. »Sá sem á jörðina mun ráða ríkinu« sagði hann eitt sinn og eftir þeirri setn- ingu hefir hann unnir. Botha hefir þó átt við mikla erfiðleika að stríða. Sárin frá alda- mótastríðinu eru ekki gróin enn, og mikill hluti af Búum hatar Englendinga. Þykir þeim Botha alt of vinveittur Bretanum, og hafa því barist ákaft gegn stjórn hans. Hinsvegar er fjölgi að Jafnaðar- mönnum 1 Suður-Afríku, einkum í námuhéruðunum við Johannesborg. Eru þeir sumpart enskir, en ann- ars ægir þar saman öllum þjóðum. Meðal annars er þar margt af Austurlandamönnum, sem háu verkalaunin í gullnámunum hafa lokkað þangað. Þessir verkamenn hafa fátt annað sameiginlegt, en að berjast á móti Botha og stjórn- arstefnu hans, sem vitanlaga var ekki vinveitt verkamönnum. Stjórn hans Jiefir verið sterk höfðingja- stjórn, þjóðleg, og þó vinveitt Englendingum, ákveðin hagsmuna- pólitík. Þegar ófriðurinn mikli hófst lýsti Botha því yfir, að hann og stjórn Suður-Afriku myndi veita Englandi allan styrk, er hægt væri. Fór hann sjálfur i striðið og vann ný- lendur Þjóðverja í snðvestur Afriku í stuttri herferð, sem öllum her- fræðingum ber saman um að hafi verið meistaraleg, bæði hvað undir- búning og stjórn snertir. Er hann víst hinn eini af hershöfðingjum Breta, sem ætíð hefir hlotið lof og aldrei verið skammaður fyrir her- stjórn sína. Á öðrum sviðum hefir Botha einnig reynt, að vinna Eng- lendingum alt það gagn er hann mátti, — jafnan hefir hann gætt þess, að halda fast fram rétti Suð- ur-Afríku og nú er hann fulltrúi þess ríkis á friðarfundinum. Svona er nú málinu komið, Botha sem var skæðasti óvinur Englands í Búastríðinu, er nú orð- inn einn af máttarstólpum breska rikisins og undirforingjar hans, sitja nú í hinum hæstu embættum viðsvegar í hinu breska ríki. Góður vottur um stjórnkænsku Englendinga. Botha er maður mikilúðlegur sýnum spakur að viti, skapstór og ráðríkur. Sannur böfðingi, fædd- ur til þess að hafa mannaforráð og veit það vel sjálfur. (Frh.) H. Hallgrimsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.