Tíminn - 17.05.1919, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.05.1919, Blaðsíða 4
132 TIMINN ÍSLAND elsta besta birgasta timburverslun er 55 r- oi Kola- u selur góðar vörur — verð hvergi lægra. Mikill afsláttur af stórsölu. »KanselIi«-yflrT6Id í skriftastól. Finsen sá, sem finnur hið kúg- aða, keltneska blóð streyma í æð- um sér, hefir fengið einkennilega ‘atvinnu fyrir málgagn sitt. Bogi Brynjólfsson rakti þar í fyrra »sögu hugsunar sinnar« í Ólafs- vallamálunum. Og nú hefir Guðm. Eggerz »skriftað« þar. Játað flökt sitt og fjarveru, fyrirbænir »á hærri stöðum« viðvíkjandi Páli, ósvífni sína gagnvart stjórnarráðinu, sem fiestum mun þykja ærin til að losa um tengsli hans við Árnesinga o. s. frv. En G. E. gleymir fund- inum á Eyrarbakka, þar sem átti að fá Iýst yfir trausli á sýslu- manni og »fullmegtugum«, en allir ruddust þá út, og var slitið fundi. G. E. hröklaðist suður, en »íull- megtugur« kvað hafa týnst í Fló- anum. Væntanlega leita þeir Jó- hann V. og afdankaði hreppstjór- inn. Stendur þeim næst, vegna undirskriftanna sælu. A. Ritstjóri: Tryggvi tórhallsson Prentsmiðjan Gntenberg nema nokkrar vikur. Og í raun- inni var alt ógert enn. Ekki búið að gera nema uppkast að vatna- lögum. Eftir var megin vinnan við þau, skýringar sem þurftu að fylgja, svo og sérleyfislögin, sem raunar voru aðal atriðið í starfi nefndarinnar. Gremja meirihlutans kom fram með mörgu móti. Bjarni var símálugur-, á gildaskálum og . annarsstaðar um Svein í Firði. Fór hann því fram, þar til aðvarandi raddir utan af landi bentu honum á, að hans eigið álit myndi í meiri hættu en Sveins. Nefndin hafði keypt nokkuð af fræðibókum, starf- inu viðvíkjandi, og hafði minni- hlutinn ekki aðgang að þvi, eftir klofninginn, nema að því leyti sem nokkuð af bókunum voru i fórutif Sveins og G. E. þegar upp úr slitnaði. Pó var sú verst ókurteis- in af hálfu meirihlutans, er hann tók í óleyfi ritgerð S. Ó., um orku- vötu á íslandi. Sú ritgerð var i prentun i hinu sameiginlega nefnd- aráli, þegar klofningurinn gerðist. En er hún var fullprentuð, tilkynti formaður Sveini, að meirihlutinn vildi að eins hafa part af ritgerð- inni, en ekki hana alla. Sveinn sagði að annaðhvort skyldi þar standa alt eða ekkert af því sem hann hafði sagt, og þverbannaði meirihlutanum að hagnýta part af ritgerðinni. Samt fór meirihlutinn sínu fram, og sýndi með því, að hann virðir lítils eignarrétt á fleiru en vatni. Meiri hlutinn sendi álit sitt, það sem komið er, út með Botníu, um leið og stjórnarfrum- vörpin fóru. Var það mál sumra manna að Sveinn hefði getað látið stöðva skipið með fógeta úrskurði, er það lá ferðbúið, til að ná ráns- feng meirihlutans úr póstinum, en hann hlífðist við þvi, til að halda friði. En óvíst er að þeim skiftum sé að fullu lokið enn. Meiri hlutinn sem byrjaði með því, að sýna hirduleysi um vinnu- brögðin, meðan nefndin starfaði öll, beitti þannig o/sa og yfirgangi við minni hlutann, eftir klofning- inn, en hélt sjálf áfram upptekn- um hætti, með að draga málið á langinn, svo sem kunnugt er orðið. Að líkindum skilar meiri hlutinn nefndaráliti, þegar komið er fram á þingtíma. Ef hann ætlast til, að þingið í sumar samþykki plögg þeirra, þá er tilgangurinn auðsýnn, að hertaka þingið óvörum og ó- viðbúið. En jafnvel þó að málið nái ekki fram að ganga, heldur að kosið verði um það í haust, þá hefir þjóðin ekki verk þeirra handa milli nema um háanna- tímann, siðari hluta suraars og haustið. Eina hugsanlega skýringin viðvíkjandi framkomu meiri hlut- ans er það, að hann treysti ekki málstað sínum, til að standast ró- lega athugun þingmanna og kjós- enda. Fremur treyst á þann dóm, sem ekki er bygður á rannsókn eða ihugun. Sveini Ólafssyni tókst að fá Héðinn Valdimarsson, sem aðstoð- armann minni hlutans. Unnu þeir nú ósleitilega, þann stutta tima, sem eftir var, þar til stjórnarfrum- vörpin fóru. Störfuðu þeir báðir Sveinn og G. E. að vatnalögunum og skýringum við þau. En Sveinn gerði líka sérleyfislög með athuga- semdum, og svaraði spurningum alþingis eins og skýrt var frá í síðasta blaði. Pað, að Sveinn Ólafsson klauf nefndina, hefir bjargað málinu í tvöföldum skilningi. Fyrst með því, að Jjúka verkinu svo snemma, að umræður geta orðið um málið nú í vor, ályktanir tekuar á þingmála- fundum og kjósendur búið sig undir sinn endanlega dóm — við kosn- ingarnar í haust. Birting nefndar- álitsins kippir þannig fótum undan laumuspili meiri hlutans. í annan stað hefir Sveinn Ólafsson með sérleyfislögum sinum og svari til stjórnarinnar, lagt þann grundvöll í málinu, sem allir heilbrigðir og óspiltir menn í landinu geta bygt á aðgerðir í fossamálinu á kom- andi árum. Þar er í stuttu máli markaðar höfuðlinur í fossapólitík þjóðar- innar, þannig, að tekið er tillit til alls: þjóðernis, móðurmálsins, æskilegra framfara, samræmilegs sjálfstæðis landsins, atvinnuveg- anna og þjóðlegrar menningar. — Sjaldan mun einn maður hafa, hér á landi, bjargað sæmd og ör- yggi þjóðarinnat í svo vandasömu máli eins og Sveinn Ólafsson hefir nú gert í fossamálinu. Og það er einkennilegt, að hann hefir varið langsamlega minstum tíma til verksins. Hann einn er nú hættur. Og hann hefði áreiðanlega lokið verkinu enn þá fyr, ef að honum hefði í upphaíi verið fengið betra föruneyti.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.