Tíminn - 04.06.1919, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.06.1919, Blaðsíða 2
194 TÍMIN N Timarit ísl. samvinnufélaga. i Fyrsta heftið 1919 algerlega helgað minningu Jakobs L1 íilf<1 áuarsouar, frumkvöðuls sam- vinnunnar á íslancli. Lögð tii grundvallar stórmerkileg sjálfæfisaga hans. Grein þessi er mesta og besta heim- ild sem til er um upptök Kaupfélaga á íslandi. Verð 2 kr. séu keypt 50 eintök eða fleiri, kr. 2,25 fyrir alt að 50 eintökum. í lausasöiu kostar árgangur- inn 3 krónur. — Heftin eru 4 á ári. Afgreiðsla Skólavörðustíg- 25. Sírni 749. legra en nú að þingið þori hvort- tveggja: að skera hispurslaust niður eyðslu- kröfur þjóðrembinganna, að horfast i aug.u við nógu háar upphœðir um að styðja atvinnuveg- ina, og auka framleiðslu og fram- kvœmdir. Og því samfara: að hika ekki við að afla ríkinu þess fjár sem til þess þarf, með réttum aðferðum. Ráðningaskrifstofa. Hefir oft verið við ramman reyp að draga um ráðning verkafólks í vor og sumarvinnu, en nú keyrir um þverbak. Eru þeir nú fjöl- margir sem standa uppi í mestu vandræðum. Lað er fyrir sig að kaupið er hærra en nokkru sinni áður. Hitt er lakast að fólkið er nálega ófáanlegt til þess að ráða sig hvað sem í boði er. Kemur þetta langharðast niður á bændum og smáframleiðendum við sjávarsíðuna. Stóru útgerðarfé- lögin geta sér að kostnaðarlausu flutt vinnufólkið langa leið til vinnustaðarins. Það kostar bæði vinnuveitendur og verkafólk stórfé, mikil óþægindi og tímatöf, það algerða skipulags- leysi sem er í þessu efni. Enginn staður er til þar sem framboðið mætist á báða bóga. Enginn hefir ljósa hugmynd um hvað kaupið verður. Afleiðingin er sú að verið er að bíða fram á síðustu stundu, hvorugir vita að öðrum, báðum til óhags. Þessu mætti mikið kippa i lag með stofnun ráðningaskrifstofu, sem væri undir opinberu eftirliti. Hefir það mál oft verið rætt áður, en aldrei orðið annað en umtal. Nú virðist það óumflýjanlegt. Lægi beinast við að Búnaðarfé- lag íslands sæi um slika ráðning- arstofu af bálfu landbænda og Fiskifélagið af bálfu sjávarbænda og ætti þó alt að geta verið undir einum hatti. Jafnframt því að ráðningarstof- an yrði stofnuð væri sjálfsagt að jafna aðstöðumuninn með því að útvega verkafólki, sem þyrfti að ferðast fanga leið til vinnunnar, lægra far með landssjóðsskipunum, vor og haust. Væri það annað aðalverk ráðningastofunnar að koma því í kring. Kostnaðurinn við slíka stofnun gæti verið hverfandi lítill, fyrst í stað a. m. k., á móts við hið mikla gagn sem hún gæti gert. Flngið. Rolf Zimsen flugmaður hélt fyrirlestur um flug síðastlið- inn laugardag. Rakti sögu flugsins og sýndi skuggamyudir. Annan fyrirlestur heldur bann um fram- farir í flugi í ófriðnum. Hversu lengi. Hversu lengi mun dýrtíðin standa? Svo spyrja menn hópum saman. Peir eru að verða margir sem svara því á þá lund að hún muni alls ekki hætta. Við ófriðinn hafi verðgildi peninganna raskast svo mjög sem menn vita. Það muni ekki sækja aftur í gamla farið, heldur halda áfram í hinu nýja. Dýrtíðin orðin hið eðlilega ástand. Langstærsti liðurinn um að halda verði svo háu er verkakaup- ið. Ætti verðið að lækka þyrfti til þess fyrst og fremst það að verkakaup lækkaði að miklum mun. Það kostaði stórkostlega baráttu við vinnulýðinn um öll lönd. Stefna tímans virðist öll önn- ur en sú að sú leið verði farin. Skiftir og minstu máli hvert gildi krónan hefir. Miklu brotaminna að halda við þetta ástand sem er. En þá er um að gera að viður- kenna að ástandið er gerbreytt og haga sér eftir því. Af því Jeiðir það fyrst og fremst að afturhaldssemin um framkvæmd- ir einstaklinga og hins opinbera á engan rétt á sér. Það þýðir ekki að vera að bíða eftir því að þetta eða þetta lækki í verði, því að í aðaldráttum lækkar ekkert í verði. Nú er um að gera að koma sér fyrir undir hinum nýju kringum- stæðum og framkvæma. Öll bið er; til einskis nýt, hún er ekki til annars en stórtjóns. Af þessu Ieiðir það í annan stað, að það verður að leggja megináhersluna á að fá hlutfalls- lega nógu hátt verð fyrir afurðir landsins. Þvi að hin leiðin verður ófær, að fá útlendu vörurnar ódýr- ari svo nokkru nemi. Af þessu Ieiðir að ekki þýðir að bíða með það að ákveða laun fastra starfsmanna landsins. Það er ofureinfalt mál, að reikna út verðfall krónunnar og hækka laun- in eftir því. Stúlkur þær er tóku burtfararpróf í kvennaskólanum vorid 1919. Aðal- eink. Ásthildur G. Kolbeins........ 6.30 Elinborg Brynjólfsdótlir..... 5.75 *Guðmunda Ó. Guðmundsd... 6.23 Guðrún Guðnadóttir........... 5.38 Jóhanna Jónsdóttir .......... 5.18 *Kristrún Bjarnadóttir ........ 5.69 Margrét Arnljótsson.......... 5.67 Margrét Sölvadóttir ......... 5.32 Margrét Valdemarsdóttir...... 5.73 *Ólöf Sigurðardóttir .......... 5.84 Sigurlaug Guðnadóttir........ 5.32 *Sesselja Féldsted ............ 5.86 Þóra Árnadóttir.............. 6.93 *Þóra Steingrímsdóttir ........ 5.67 Þorbjörg Guðjónsdóttir....... 5.71 Þorbjörg Sigmundsd. íetTJreM. 5.59 Hin síðast talda hætti í skólan- anum 1. apríl — fór að stunda atvinnu er henni bauðst þá. Dignum laude virum, Musa vetat mori.1) Horatius. Prófessor Guðm. Magnússon hefir nú 30. mai gegnt kenslustörfum fullan aldarfjórðung. Þegar hann var í skóla, fór mikið orð af honum fyrir gáfur, enda fékk hann hinar bestu eink- unir við hvert próf. Það varð auð- vitað til þess, að menn gerðu sér alment hinar glæsilegustu vonir um hann. Því er nú einu sinni þann veg farið, um almenning, að minsta kosti hér á landi, að hann álitur, að þeir menn, sem hafa reynst góðir námsmenn, hljóti endilega að vera gæddir flestum þeim hæfileikum og kostum, er menn mega prýða. En sannleikur- inn er sá, að allur þorri manna er, eins og gefur að skilja, tak- 1) Gyðjan neitar mætum manni að deyja. markaður; það má því heita, að það sé nokkurn veginn algild regla, að mestu námsmennirnir reynist liðléttingar á öðrum svið- um. En það er engin regla án undantekningar, og G. M. er ein slík undantekning. Vér íslendingar erum að líkindum það á eftir öðr- um þjóðum, að oss hættir þjóða mest til þess, að hefja afburða námsmennina til skýjanna, og gáum ekki að því, að þeir menn, sem er sýnt um að tileinka sér það, sem aðrir hafa hugsað, eru ef til vill að eins andleg jarðstirni, sem lýsa einungis með þeirri birtu, sem hinir, sem sjálflýsandi eru, hafa á þá varpað. Það voru því allmiklar Iíkur til þess, að almenningur gæti orðið fyrir vonbrigðum, er G. M. tók við kennarastarfinu, og það þvi fremur, sem hann tók við þvi af Schierbeck, sem var, eins og kunn- ugt er, í miklu áliti. En þeir sem þektu hann, vissu það fyrir, að hann myndi leysa það vandaverk vel af hendi, því að mannkostir hans voru ekki síðri gáfunum. Hann er raaður fríður sýnum, kurteis og býður af sé góðan þokka. En það er sitt- hvað að koma prúðmannlega fram á strætum og gatnamótum, eða gegna lýjandi störfum ár eftir ár. En G. M. hefir ekki fremur brugð- ist vonum manna sem hversdags- maður, en læknir og kennari. Álit hans hefir aldrei strandað á von- brigðaskerinu, það hefir orðið vel reiðfara í höfn aldarfjórðungsins. Og það mun ekki ofmælt þótt sagt sé, að álit hans hafi farið sívax- andi, þrátt fyrir það, að almenn- ingur og vinir hans höfðu gert sér þegar fyrirfram hinar glæsileg- ustu vonir um hann. | Hann gerðist þá þegar lrennari í handlækningafræði bæði almennri og sérstakri; sömuleiðis kendi hann sjúkdómafræði og lífeðlis- fræði. Og allar þessar kenslugrein- ar hefir hann kent mestallan tím- ann. Þetta er þó, eins og læknar vita, yfirgripsmiklar kenslugreinar, og er alstaðar fyrir löngu erlendis skift á milli eins margra prófessora og þær eru margar. G. M. hefir kent allar þessar fræðigreinar frábæravel og ræki- lega, enda er þekking hans ágæt í þeim öllum. Þó er hitt mest um vert, að allir lærisveinar hans hafa lesið og lesa allar þær fræðigrein- ar, sem hann kennir með undar- legum sameiginlegum áhuga. Það er gáta sem er ekki auðráðin, hvernig honum heíir tekist að vekja áhuga hjá öllum lærisveinum sín- um, sem hafa verið eins og geíur að skilju, margir hverjir gagnólíkir. Þegar læknanemendurnir komu fyrst í læknaskólann úr latínuskól- anum, fanst þeim sem þeir kæmu inn í alveg nýjan heim. Þar ríkti sem sé alt annar andi en þeir höfðu átt að venjast. G. M. var þeim ekki að eins sem kennari, heldur alveg eins sem nærgætinn samverkamaður, eða öllu heldur sem umhyggjusamur góður vinur. Honum var vissulega ekki nóg að að gera að eins skyldu sína, held- ur reyndi hann æfinlega til þess, að hafa sí og æ vekjandi áhrif á lærisveina sina. Það má óhætt telja G. M. með }. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.