Tíminn - 04.06.1919, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.06.1919, Blaðsíða 3
TÍMINN 195 Kvennaskólinn í Reykjavik. Stúlkur þær, er ætla að sækja um innlöku í Kvennaskólann næsta vetur, sendi forstöðukonu skólans sem fyrst skriflegar um- sóknir sínar. Umsókn frá nýjum námsmeyjum fylgi bóluvottorð ásamt kunn- áttuvottorði frá kennara eða fræðslunefnd. Einnig skal tekið fram í hvern bekk umsækjandi æskir inntöku. ]VIeög-jöf með heimavistastúlkum er 80 kr. á mánuði, og skulu stúlkur þær, er hafa í hyggju að sækja um heimavist gera það hið fyrsta. Ráðning í lxeima,visfii* og liúisstjómarcleilcl skólans sé þeim fastmælum bundin, að ekkert ónýti hana, nema veik- indi umsækjanda. Slrólaáriö byrjar 1. olct. n. k. og séu allax* námsmeyjar þá mættar. lnntökupróf fyrir nýjar námsmeyjar fer fram 2.—4. okt. Inntöliaslcilyröi eru hin sömu og undanfarin ár. Umsóbnarfrestur til l-“». úgúst. Htisstjömaröeilcl skólans byrjar einnig 1. okt. Náms- skeiðin verða tvö eins og að undanförnu; hið fyrra frá 1. okl. til 1. mars, en hið síðara frá 1. mars til 1. júlí n.*á. IMfeögjöfin með hússtjórnarnámsmeyjum er 75 kr. á mánuði. Sfiöla- og eldsxieytisgjald verður sama og síðast- liðinn vetur: Skólagjaldið er 50 kr. fýrir bekkjarnámsmeyjar og 30 kr. fyrir hússtjórnarnámsmeyjar; eldsneytisgjald er 3 kr. á mánuði fyrir hverja stúlku. Reykjavík 28. maí 1919 Ingibjörg' 11. Bjarnason. Kvennaskólinn. Kvennaskólanum var sagt upp 15. þ. m. Síðastliðið haust var skólinn settur með 85 nemendum. 3 hættu að inntökuprófinu loknu. 70 skiftust í bekkina og' 12 fóru í hússtjórnardeild skólans. Kenslan í bekkjunum byrjaði 7. okt. og fór öll kenslan fram eins og venja er til, þrátt fyrir ýmsa dýrtiðarerfið- leika — þangað til »spánska sýkín« lagði skólann undir sig. Full mánaðar töf varð á allri kenslu, sökum veikinda og komst þó bæði skólinn og skólaheimilið tiltölulega létt frá veikindunum, miðað við mörg heimili önnur hér í bænum. Nokkra daga — þegar veikin var hér í algleymingi, voru 29 rúm- liggjandi af 33, sem heimili áttu í skólanum; en allar komust þó aftur til heilsu og engin féll í valinn. Sumar námsmeyjar voru þó lengi að ná sér eftir veikindin, og ein- staka urðu jafnvel að hætta nám- inu þess vegna. Það væri því síst að undra þótt erfitt hefði orðið að fylgja áætlun — það er, komast jafnlangt í hin- um ýmsu námsgreinum og vana- lega — þegar engar verulegar tafir koma fyrir á skólaárinu; en furð- anlega sóttist þó róðurinn bæði í munnlegu og verklegu námi — og vorprófið, sem nú er nýafstaðið, gekk yfirleitt vel. Alls gengu 65 námsmeyjar undir þróf — þar af 15 í 4. bekk, og luku þær flestar burtfararprófi frá skólanum. Nöfn þessara stúlkna, ásamt aðaleinkunn — eru prentuð á öðr- um stað í blaðinu, og stjörnu- merkið við sum nöfnin þýðir, að þær stúlkur tóku ekki þátt í öllum námsgreinum, Aðaleinkunn hinum langbestu kennurum þessa lands og ber margt til þess. Hann hefir t. d. eitthvert kynjalag á því að komast ævinlega að því, hvar lærisveinar hans eru veikir á svell- inu, og veita þeim þá rækilegustu fræðslu í þeir atriðum, sem þeim er hættast við að leggja minni rækt við en skyldi. Annar kennarahæfileiki G. M. er sá, hvað hann getur verið mildur við þekkingarskort lærisveinanna. þegar við vorum að skoða sjúkl- ing, og ókunnugir menn voru við- staddir og heyrðu til okkar og við höfðum lýst sjúkdómseinkennun- um, gerði G. M. ef til vill öðru- hvoru smávægilegar athugasemdir við lýsingar okkar. Við héldum því að okkur hefði reitt fremur vel af. En þegar hann var svo orðinn einn með okkur, varð stundum nokkuð annað uppi á teningnum. Hann hafði þá geymt öll ósköpin af axarsköflum og vitleysum, sem við höfðum gert. Hann sagði auð- vitað ekki að hann hefði þyrmt okkur í áheyrn ókunnugra, en við fundum það. Þessi nærgætni G. M. er samanlagðar vetrar og prófeink- unnir. Síðastliðin 3 ár hefir 1. bekkur skólans legið niðri — en mikil þörf er á honum, svo að ekki þurfi að vísa burt frá skólanum efnilegum stúlkum, sem að eins hafa fengið lítinn undirbúning. Einnig hefir orðið að leggja niður, bæði kenslu í hjúkrun sjúkra á heimilum, leikfimiskenslu og söngkenslu — og er það illa farið, að svo þarfar námsgreinar leggjast niður. Handavinnukenslan er á við líka mikil og verið hefir undanfarin ár. / 4. bekk eru kendar 7 stundir á viku: 4 stundir léreftasaumur og 3 st. hvítur útsaumur. I 3. bekk eru kendar 9 stundir á viku: 4 st. léreftasaumur, 2. st. hvítur útsaumur og 3 st. baldýring. í 2. bekk eru kendar 13 stundir á viku: 4 st. léreftasaumur, 3 st. hvítur útsaumur og 6. st. fata- saumur. Tala hlutanna er námsmeyjar hafa saumað í vetur er þessi laus- lega tekin saman: / léreftasaum: 66 skyrtur, 66 náttkjólar og 39 mismunandi aðra hluti. í hvítum útsaum: 30 ljósdúka, en að eins lokið við suma, 31 / borðrenning (Löber) lokið við 17 þeirra, enn fremur 12 vasaklúta og 15 aðra stærri og smærri hluti. Baldýring er að eins kend í 3. bekk; stúlkurnar baldýruðu 15 upphlutsborða, í 4 slifsi, 4 töskur, 1 myndaramma og 1 bréfaveski. Utanyfirfatasaiimur er kendur í 2. bekk; þar saumuðu stúlkurnar 19 kjóla, 21 treyju, 3 drengja fatn- aði og 1 peysuföt. Þessi lauslega upptalning af handavinnu stúlknanna síðastlið- inn vetur — sem varð mun ódrýgri en venjulega — ætti að nægja til þess, að sýna þeim, sem ekki vita það áður, að námsmeyjar í kvenna- skólanum hljóta að nota tímann vel — þar eð þeim verður svo mikið að verki í handavinnu — þrátt fyrir það, að þær stunda engu minna bóklegt nám en í þeim skólum — þar sem engin handavinna er kend. Hins vegar verður það að teljast nauðsj-nlegt, að hver stúlka, sem komin er til vits og ára læri nokkra handavinnu — ef þær eiga að verða færar um það sem kallað er »að þjóna sér eða öðrum«. Eg efast því ekki um — að öll- um sé það Ijóst, jafnt konum og körlum — að kvennaskólinn í Reykjavík, sem árlega er sóttur — af dætrum landsins úr öllum áttum — þurfi og verðslculdi að fá svo mikið rekstursfé á næsta fjár- hagstímabili, að hann geti fram- vegis, eins og hingað til, notið góðra kennara á öllum sviðum — svo að viðleitni skólans í því, að þroska nemendur sína, efla getu þeirra og viljaþrek — beri sem mestan árangur — og stuðli þannig að því, að íslenskar konur skipi svo sæti sín í þjóðfélagi voru, að þær verði landi og þjóð að liði og sjálfum sér til sóma. Reykjavík 30. maí 1919. lngibjörg H. Bjarnason. átti rót sina að rekja til hans miklu mannþekkingar. Hann er jafn glöggur á menn og sjúkdóma. Hann finnur það einhvern veginn á sér, að hverju hann þarf að spyrja, hvort sem um vanþekkingu eða sjúkdóm er að ræða. Hann er fljótur að ákveða sjúkdóma; þó gerir hann aldrei nein stökk í þeim efnum, því hann er frábærilega varfærinn, lætur sig aldrei slamp- ast á einhverja niðurstöðu, heldur leggur alt niður fyrir sér vel og skipulega, áður en hann dregur nokkra ályktun af athugunum sín- um. En af því að honum er orð- ið svo eiginlegt að þræða hinn mjóa veg rökréttrar hugsunar, er hann oft ærið fljótur að komast að fastri niðurstöðu. Þessi hæfileiki hans gerir honum oft furðu auð- velt að koma ljósutn skilningi inn hjá lærisveinum sínum, og tengja margt, sem sýnist fjarskylt, í eitt og sama kerfi, draga það saman í eina órjúfanlega heild. G. M. er tvímælalaust einn hinna fjölfróðustu manna þessa lands, enda er hann óviðjafnanlega stál- minnugur. Hann er ekki að eins hálærður læknir, heldur og prýði- lega heima í fiestum algengum fræðigreinum, er »fræðimaður á sögu og ljóð«. Oss, sem þekkjum G. M. furðar í raun og veru ekki á því, að hann hefir meðal annars lagt mikla stund á náttúrufræði, því að hann er náttúrunnar barn; hann elskar náttúruna og lifir hennar lifi. Það má heita, að hann endurfæðist með hverju vori, I*ví »þegar vorið er komið og grund- irnar gróa«, er sem nýtt lif færist um hann allan. Og þessi endur- lífgandi máttur eða áhrif náttúr- unnar gera G. M. að þessurn si- unga og sístarfandi fraéðimanni sem hann er. Hann drekkur i sig lífsafl sólskinsins á hverju sumri og kemur svo í skólann á haust- in með nýja krafta og áhuga. F*að er mjög líklegt, að hann myndi aldrei hafa enst til þess að kenna í öll þessi ár með sama áhuga og áhrifum, ásamt öðrum störfum, ef náttúran hefði ekki gert hann svona næman fyrir áhrifum sinum. Og maður talar ekki lengi við G. M. án þess að fræðast um eitt- hvað. Hann er altaf að fræða mann, ef hann tekur mann tali, eða réttara sagt, ef menn taka hann tali. Því hann otar aldrei fram fróðleik sinum að óþörfu. Hann er fámáll að eðlisfari, og meira að segja mjög fámáll, og oft svo, að kalla mætti hann hinn þögla. Það er og áreiðanlegt, að ýmsir læknar öfunda hann af því, hvað hann sleppur hjá mörgum óþægilegum spnrningum, af því að hann er svo þögull. Rað virðist ekki rangt til getið, að eitthvað svipað vaki fyrir honum og Ágústus gamla Rómakeisara, sem sagt er að hafi oft raulað visustef þetta fyrir munni sér: Est et fideli tuta silentio merces.') Eins og kunnugt er, hefir G. M. verið einn hinn afkastamesti skurð- læknir þessa lands. Og traust bæði lærðra manna og ólærðra á honum er alkunnugt. Hann hefir verið mikilsmetinn og virtur af sjúkling- 1) Trúrri þögn eru verðlaun vis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.