Tíminn - 12.07.1919, Page 4
232
T I M ^N N
Heildsala.
Smásala.
Söðlasmíðabúðin Laugavegi 18 B. Sími 646.
Stærsl og fjölbreyttast úrval af reiðtýgjum, aktýgjum, og öllu tilheyrandi
s.s. allskonar ólum, beislum, töskum o. fl. Klyftöskurnar orðlögðu. Af
járnvörum: Beislisstangir, úr járni og nýsilfri, munnjárn, taumalásar,
ístöð og allskonar hringjur, einnig svipur, keyri, hestajárn, o. m. fl. —
Ennfremur stærri og smærri tjöld úr ágætu efni, vagna-yfirbreiðslur, fisk-
ábreiður og hestateppi. Fyrir söðlasmiði: Hnakk- og söðulvirki, plyds,
dýnustrigi, hringjur, beislissiangir, istöð, taumalásar, keyri, leður, skinn o.fl.
iérstaklega er mælt ined spadalinöKkiim
enskum or- úlenskum.
Stöðug viðskifti í öllum sýslum landsins. Pantanir afgreiddar fljótt og
nákvæmlega. Bj'rjunarviðskifti verða undantekningarlítið stöðug viðskifti.
Söðlasmíðabúðin Laugavegi 18 B. Sími 646.
Heildsala. E. Kristjánsson. Smásala.
aflýsing fyrir kaupstaði.
Yið tökum að okkur að gera mælingar á vatni, áætla
og byggja rafstöðvar fyrir kaupstaði, hvort heiclur með
vatns- eða mótor-afli.
Sé ekki um vatnsafl að ræða, mælum við með
Diesel-mótorum, sem eru olíusparastir allra olíuvéla.
Skrifið eftir tilboðum og upplýsingum, sem veitast
öllum ókeypis.
Hf. Haímagíisíél. Iliti & Ljós
Sími 176 B. Vonarstræti 8. Pósthólf 383.
^iinueli tll tafoliar.
Minnihluta nefndarálit fossa-
nefndar, sem Tíminn leyfði sér
að prenta upp, hefir farið sigurför
um landið. Hvaðanæfa af landinu
heyrast raddir sem andmæla vatns-
ráninu. En hvergi eru þær raddir
háværari en úr Dalasýslu og Ár-
nessýslu. Kjósendur Bjarna frá
Vogi og Einars Arnórssonar virð-
ast einráðnir i því að láta ekki
sannfærast af þeim vuísindalegu
uppgötvunum«, sem þingfulltrúar
þessara héraða hafa gert um eign-
arrétt á vatnsorku.
Málstaður meiri hlutans í valns-
ránsniálinu er nú bersýnilega von-
laus, því að þeir fáu þingmenn,
sem kynnu að hafa stutt meiri
hlutamennina af flokksfylgi eða
persónulegum ástæðum, fara alls
ekki að gera það nú, þar sem
þjóðin snýst svo ótvírætt gegn
meiri hlutanum.
Pað er ofboð skiljanlegt að
meiri hlutinn og hans fámenna
stuðningssveit sé gröm við minni
hlutann, og það blað, sem borið
hefir kenningu hans út um landið,
með svo greinilegum árangri.
Það er sagt mannlegt að reiðast
og þá líklega að hefna sín. Og
hefndartónn er í ísafold, fyrsta
tölublaðinu, sem kaupmenn gefa
út, í grein um fossamálið, þar
sem tilgangurinn er auðsær: Að
sverta Svein í Firði fyrir að leyfa
að birta minni hluta álitið, og ala
á tortrygni gegn Tímanum. Dylgj-
að um að blaðið sé í tjóðurbandi
erlendu fossafélaganna, af því hann
mótmælir vatnsránskenningunni.
Hvorugt þetta atriði kemur eig-
inlega við fossamálin eins og flestir
munu sjá. En úr því ísafold byrj-
ar taflið með þessum leik á skák-
borðinu, þá er ekkert til fyrirstöðu
að gera sömu skil dylgjum og á-
legri, af þvi að einstöku sýslur
hafa svo lítið um vegamál að
fjalla.
Að vísu er það sannfæring mín,
að með þessu verði að eins sett
ný bót á gamalt fat. En maður er
nœstum hættur, að þora að vœnta
noklcurs fullkomnara i löggjafar-
málum þjóðarinnar.
Helstu niðurstöður mínar eru
þessar:
1. Landsjóður hætti að meslu
akvegabyggingum, eftir ákvörð-
un um gildandi vegalaga, þegar
vegirnir eru fullgerðir, sem nú
eru ákveðnir; þó sé smáum
vegaköflum bætt við, til að
jafna þann misrétt, er einstöku
héruð urðu fyrir, vegna lag-
anna.
2. Breyting á vegalögunum skal
fara í þá átt:
a. Að landsjóður leggi að eins
fram fé að hálfu, móti bér-
uðum og hreppum, til bygg-
inga akfærum vegum eftir
sveitum; og láni héruðum
fé til vegalagninga, með
góðum kjörum.
lygum vatnsránsmanna eins og
röksemdum þeirra og »vísindaleg-
um uppgötvunum«. Pví að alt er
á sömu bókina lært á bænum
þeim. Verður ádeila þessi kruiin
til mergjar í næsta blaði.
J. J.
Syknrleysið. Framh. gtemar um
það kemur i næsta blaði.
b. Landsjóður leggi einn alla
þjóðvegi milli héraða, og
akfæra vegi yfir heiðar,
milli bygða.
c. Landsjóður byggi allar brýr
á aifaravegum (þjóðvegum)
og akfærum sýsluvegum.
3. Að almannafé sé eigi veitt til
ófullkomnari vega, en þeirra,
sem eru hækkaðir malarvegir
eða steinlagðir.
4. Að þjóðvegir milli héraða séu
lagðir þar, sem hentast þætti
síðar að byggja járnbrautir.
Vegastæðin séu fyrirfram könn-
uð, með hliðsjón af því.
5. Landsjóði beri viðhaldskyida
á öllum brúm, þjóðvegum og
akvegum á heiðum uppi. —
Sýslusjóðir kosti viðhald á
akvekum landsjóðs í héruðun-
um, og ásamt hreppunum við-
hald þeirra akvega, er hvoru-
tveggju leggja, að hálfu við
landsjóð. Vegamálastjóra sé
falin stjórn á viðhaldi vega.
6. Lög og ákvarðanir um tekjur
sýslusjóða og gjaldskyldu til
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem
fiægastur er íslenskra tónskálda,
dvelst nú hér í bænum. Ætla þeir
að stofna til samsöngs í félagi
hann og Páll ísólfsson og eru að
æfa söngfólkið.
Skurðgraí'an marguintalaða er nú
komin frá Vesturheimi og verður
væntanlega unnið með henni eystra
í sumar, við áveituskurðina.
þeirra, séu endurskoðuð og
ákveðið:
a. Að tekjarnar megi auka
einkum með hækkun á
gjaldi af ábúðarhundruð-
uni.
b. Að tekið sé hundraðsgjald
af jarðeignum, eftir virð-
ingarverði þeirra að nýju
mati, og hámark þess á-
kveðið. — Jarðagjöld þessi
greiðast til hlutaðeigandi
sýslusjóða.
Þessum tillögum vísa eg til al-
þingiskjósenda í heild sinni, til
athugunar og undirbúnings vega-
málunum í framtíðinni, þegar nú-
verandi löggjafarfulltrúar eru búnir
að stöðva sterkustu ófriðaröldurnar
á þjóðmálasviðinu.
Baldursheimi 19. mars 1919.
Pórólfur Sigurðsson.
Ual»lvin Einarsson
aktýgj asmiður.
Laugaveg 67. Reykjavík. Sími: 648 A.
Kaupakona.
Ung og rösk stúlka óskar eftir
kaupavinnu á góðum sveitabæ
ekki mjög íjarri Reykjavík, að
eins fyrir ágústmánuð. — Báðar
ferðir fríar. — Tilboð um vistina
sendist afgr. Tímans fyrir 25. júlí.
Vatnsránið
og 2, þm. Árnesinga.
Þingmálafundagerðir drífa nú að
hvaðanæfa. Skal hér að eins getið
einnar tillögu, sem samþykt var
með öllum greiddum alkvæðum á
þingmálafundi við Ölfusárbrú 29.
júní, að viðstöddum og upp úr
ræðu Einars Arnórssonar:
»Með því að réttur einstakra
manna til eignar á fossum og vatns-
afli hér á landi er fullkomlega við-
urkendur bæði af réttarmeðvitund
almennings og einnig af löggjöf
vorri og landsstjórn, skorar fund-
urinn á þingmenn Árnesinga, að
beita sér fyrir því, að vatnsráns-
kenningunni svonefndu verði
hrundið á alþingi, korni hún þar
annars fram«.
Hér er glögt og skipulega til
orða tekið, og gefst nú kjósendum
í Árnessýslu fljótlega á að líta,
hversu þingmenn framfylgja þess-
um yfirlýsta kjósendavilja og munu
þeir sérstaklega gefa því auga,
hversu 2. þingmaður þeirra, Einar
prófessor Arnórsson, greiðir at-
kvæði í málinu.
Fréttir.
Tíðin. Brá til norðanáttar og
þurks í gær. Hefir mjög lítið sprottið
undanfarið hér syðra vegna kulda,
en á Austur- og Norðurlandi hafa
verið óvenjumiklir hitar. Sláltur
er byrjaður alment hér um slóðir.
l’eninganiál landbúnaðarins. í
næsta blaði byrjar að koina út
næsta fróðleg og merkileg grein
um það efni, eftir Böðvar Bjarkan
bankagjaldkera á Akureyri. Verð-
ur hún því næst sérprentuð.
Prestar. Síra Vjgfús Pórðarson
á Hjaltastað hefir, fengið veiting
fyrir Eydölum, og síra Tryggvi
Kvaran fyrir Mælifelli. — Um
Landeyjaþing sækir síra Sigurður
Jóhannesson á Tjörn á Vatnsnesi.
AV! Hafið þér gerst kaupandi
að Eimreiðinni?
Ritstjóri:
Trygrgrvi Þórhallason
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Gutenberg,