Tíminn - 19.07.1919, Síða 4
240
TÍMINN
Heildsala. Smásala.
Söðlasmíöabúöin Laugavegi 18 B. Sími 646.
Stærst og fjölbreyttast úrval af reiðtýgjum, aktýgjum, og öllu tilheyrandi
s.s. allskonar ólum, beislum, töskum o. fl. Klyftöskurnar orðlögðu. Af
járnvörum: Beislisstangir, úr járni og nýsilfri, munnjárn, taumalásar,
ístöð og allskonar hringjur, einnig svipur, keyri, hestajárn, o. m. fl. —
Ennfremur stærri og smærri tjöld úr ágætu efni, vagna-yfirbreiðslur, fisk-
ábreiður og hestateppi. Fyrir söðlasmiði: Hnakk- og söðulvirki, plyds,
dýnustrigi, hringjur, beislisstangir, ístöð.taumalásar, keyri,leður,skinno.fl.
Sérstaklega er mælt meö spaöalinökkum
enskum og íslenskum.
Stöðug viðskifti í öllum sýslum landsins. Pantanir afgreiddar fljótt og
nákvæmlega. Byrjunarviðskifti verða undantekningarlítið stöðug viðskifti.
Söðlasmíðabúðin Laugavegi 18 B. Sími 646.
Heildsala. E. Kristjánsson. Smásala.
venjast, jafnvel í hans eigin vöru-
birgjum.
Sannleikurinn er sá, að aðsókn-
in námskeiðsins í vetur, sýndi alt
annað en það, sem andstæðingarn-
ir vilja vera láta. Það var seint
auglýst. Ótrúlegir erfiðleikar bæði
að ferðast innanlands og þá ekki
síst að koma sér fyrir í Reykjavík.
Svo kom innflúensan til bæjarins,
mánuðinn áður en námsskeiðið
tók til starfa, og hættu allmargir
við að koma vegna þeirra sönnu
og ýktu frásagna, sem bárust út
um alt land af ástandinu hér i
bænum. Bæði af þessu og fleiri
sólarmerkjum má ráða það, að
eigi muni skorta aðsókn að skóla
Sambandsins, enda nú gerðar ráð-
stafanir til að hafa fullkomið hús-
rúm og mörg önnur aðstöðu hag-
ræði, síst lakari en í hinum eldri
skólum hér á landi.
Af hverju skyldi nú stafa mis-
munurinn á tillögum Collins og
ísl. kaupmannablaða? Annar legg-
ur til að samvinnumenn afli sér
staðgóðrar sérþekkingar, að þeir
meti hana í orði og verki. Hinn
aðilinn vill ekkert nema kaup-
mannauppeldi. Gátan mun auð-
ráðin. Collin er að leita sannleik-
ans og alþjóðaframfara. Áðurnefnd
blöð eru að reyna að fela sann-
leikann í von um að vernda með
því hagsmuni milliliðanna.
Annars er ofsinn í andstöðu
kauþmanna gegn hverri nýrri hlið
samvinnustarfsemi ljósasti vottur-
inn um það hve mikið þeir ótlast
þá byrjun. Nú eru þeir orðnir svo
vanir smásölu kaupfélaganna, að
mótstaðan gegn henni er að mestu
hætt. En heildsalan er ný og hún
á ekki enn upp á pallborðið. Sam-
bandið og alt sem því við kemur
myndu milliliðirnir fegnir sjá mold-
að. Þeir vita að Verslunarskólinri
hefir aldrei verið til neins góðs
fyrir Samvinnufélögin. Meðan fé-
lögin hafa langtum lakari aðstöðu
með undirbúning starfsmanna en
kaupmenn, dregur það afl og mátt
úr félögunum í samkepninni. Deil-
an um þetta mál snýst því ein-
göngu um það, hvort þjóðfélagið
eigi að sýna samvinnustefnunni
hlutdrægi — eingöngu til að hjálpa
milliliðastéttinni eða láta þau njóta
jafnréttis.
En kaupmenn ^nega vara sig á
einu. Ef þeir ætla að reyna í al-
vöru að draga úr samvinnumentun
í Jandinu, mega þeir vera hand-
vissir um að samvinnumenn hafa
bæði- mátt og manndóm að borga
fyrir sig í gjaldgengri mynt.
Farðn ofan.
Pað var ómaklega mælt um
Reppforðum: Descende e cathedra,
scurra! — þ. e. farðu ofan úr ræðu-
stólnum, fífl. En það á nú við um
aðra.
Bjarni frá Vogi lætur nú hæst
um það, að menn séu að svíkja
föðurlandið, að hafa af því, að
meta hag þess minna en sinn eig-
inn. En hver er ferill þessa manns?
Hann skal ekki rakinn allur, en
hinn pólitiski ferill hans hefir verið
sá óslitinn, að nota landssjóðinn
eins og mjólkurkú, fyrir sig og
skjólstæðinga sína, að sjúga blóð
út úr föðurlandinu til þess að nær-
ast á, að vera landsómagi árið út
og árið inn.
Það er glögt gestsaugað. Einn
af Pingeyingunum, sem hér var á
ferð um mánaðarmótin, reiknaði
það út hvernig Bjarni setti sjálfan
sig á landssjóðinn síðastliðið ár.
Reikningurinn varð svona:
Dósentslaun.........kr. 2800,00
Dýrtíðaruppbót... — 1000,00
Faustþýðingin . , . — 1200,00
Pingfararkaup ... — 1220,80
Sambandsnefndin . — 1000,00
Bankaráð íslands
banka..................— 9000,00
Lögjafnaðarnefnd. . — 3600,00
Fossanefnd ...... — 5000,00
Samtals kr. 24820,80
Petta er vel dregið að búi, en
kunnugir segja það um Bjarna,
að honum finnist hann alt af
»eiga inni hjá landssjóði«, og al-
33al«lvin Einarsson
aktýgj asmiðnr.
Laugaveg 67. Reykjavík. Sími:648 A.
Hér með vottum vér öllum þeim,
er sendu okkur hluttekningu við frá-
fall vors ástkæra eiginmanns og
föður, síra Péturs Þorsteinssonar,
okkar hjartans þakklæti.
Kona og börn hins látna.
kunn er formúlan hans: »Hvað á
nú að gera fyrir mig?«
Þessi maður, sem er almesta
snýkjudýrið á landssjóðnum, al-
mesti eyðslumaðurinn á landsfé
fyrir sjálfan sig og aðra — þessi
maður dirfist að núa öðrum því
um nasir, að þeir séu að fara illa
með hag föðurlandsins.
Descende e cathedra scurra. —
Fréttir.
Áthugasemd frá Páli Jónssyni,
við grein Sveins Björnssonar kem-
ur í blaðinu innan skamms.
,.Síðasta ráðið“. Góðar sögur
ný-útkomnar með því nafni eftir
Jack London. það er ósvikinn
náttúrukraftur í þeim — og frá-
gangur og þýðing í góðu lagi.
AY! Hafið þér gerst kaupandi
að Eimreiðinni?
Ritstjóri:
Tryggvi Pórimllsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Gntenberg
ið við byltingu þá, er stríðið hefir
haft í för með sér.
»Landschaft« er félag landeig-
enda, undir umsjón og eftirliti
landsstjórnarinnar, er hefir heim-
ild til útgáfu veðvaxtabréfa, trygðra
með veði í landeignum félags-
manna. Félögin í Wúrtemberg lána
einnig gegn húseignum í bæjum,
en öll önnur félög að eins gegn
landeignum. Upphaflega voru félög-
in stofnuð eftir valdboði, síðari fé-
lögin öll af frjálsum samtökum.
Svæði því, er félaginu er ætlað
að ná yfir, er skift í hæfilega
mörg héruð. Schlesiu t. d. skift í
9 héruð, og hverju héraði í 2 eða
fleiri deildir. Hvert hérað er í raun
og veru sjálfstætt félag, en öll til
samans mynda samband, með aðal-
aðsetri í Breslau, þar sem félögin
hafa sambandsbanka. Sljórn fé-
lagsins er skipuð framkvæmdar-
ráði, sem að eins er undirgefið
aðalfundi og fastanefnd, sem fer
með vald aðalfundar að jafnaði,
því aðalfundir eru að eins haldnir
, þegar sérstakt stórvægilegt tilefni
er til. Undir framkvæmdarráði eru
héraðsráð, er koma saman tvisvar
á ári, og fastanefndir héraða, er
fara með vald héraðsráða milli
funda þess. Lægstu stjórnarvöld
eru deildarfundir. Framkvæmdar-
ráð er skipað forseta, 3 meðstjórn-
endum og 2 ráðunautum. Forseta
útnefnir konungur, meðal 3ja
manna er félagsmenn mæla með.
Framkvæmdarráðið gefur út veð-
vaxtabréf, endurskoðar virðingar-
gerðir og kemur fram fyrir félags-
ins hönd útávið, en veitir ekki
lán; það gera héraðsstjórnir. í hér-
aðsráði er framkvæmdarstjóri hér-
aðs, deildarstjórar, venjulega tveir
úr hverri deild, og einu ráðunaut-
ur, er verður að vera löglærður.
Fastanefndir, er fara með vald
héraðsráðs, eru skipaðar fram-
kvæmdarstjóra, ráðunaut og 2
kosnum deildarstjórum. Aðalfund
sitja ekki allir meðlimir félagsins,
heldur að eins framkvæmdarráð,
héraðsframkvæmdarstjórar og ráðu-
nautar og 2—4 kosnir fulltrúar frá
hverju héraði. Einstakir meðlimir
hafa að eins aðgang að deildar-
fundum. Peir hafa því lítil áhrif á
stjórn félagsins, en eiga heimtin u
á að fá eignir sínar virtar hvenær
sem er og fá lán, er nemur ákveðn-
um hluta virðingarverðs. Aftur á
móti eru þeir skyldir að gera stjórn
viðvart ef nágrannar þeirra van-
hirða eignir sínar, sem eru veð-
settar félaginu, eða brjóta skyldur
sínar að einhverju leyti. — Sam-
bandsbanlci Schlesiu-félagsins er í
Breslau, stofnaður 1848, rekinn af
3 bankastjórum undir yfirstjórn
framkvæmdarráðs félagsins. Bank-
inn var stofnaður með samlagsfé
úr héraðssjóðum, alls að upphæð
4 miljónir marka, til þess að vera
einskonar milliliður milli félagsins
og almennings. Hann kaupir og
selur veðvaxtabréf, tekur við innlög-
um, veitir stutt lán gegn bandveði
í veðvaxtabréfum, veitir bændum
bráðabirgða lán gegn tryggingu í
landbúnaðarafurðum og rekur ýms
venjuleg bankaviðskifti.
Pegar lánað er út á landeign,
er veð hennar miðað við skatt-
virðingu, (árstekjur af eigninni,
eins og þær eru virtar til skatts,
margfaldað með 25). En ef eig-
andi telur land sitt meira virði, fer
fram sér stökvirðing, gerð af starfs-
mönnum félagsins. Hámark láns
er 2/s virðingarverðs. Lánið er veitt
í veðvaxtabréfum, sem gefin eru
út af tveim tegundum. Litr. A.
fyrir hálfu verðgildi eignarinnar,
en ef lántakandi vill hærra lán,
fær hann aðra tegund bréfa fyrir
^6 hluta verðs eignarinnar; þau
bréf eru kölluð Litr. C, og eru veð-
trygð á eftir A bréfunum. Þar af
leiðandi seljast C bréfin með meiri
afföllum en A, þó að vextir séu
jafnir, venjulega 3—4%. Gefa má
út 5°/o bréf, en hefir ekki þurft á
síðustu 50 árum. — Lántakandi
ræður vaxtahæð bréfsins, en verð-
ur að borga jafn háa vexti af láni
sinu-; því hærri vextir, því minni
afföll af bréfunum. Árgjald af láni
er vextir lánsupphæðarinnar, að
viðbættu minst ca. 2/s°/o til afborg-
unar og kostnaðar. Félagið veitir
einnig utanfélagsmönnum lán með
slikum kjörum; til þess eru notuð
sérstök veðvaxtabréf, auðkend Litr.
D.# — Veðvaxtabréf Litr. B voru
áður til, fram að 1850 gefin út af
sérstöku lánfélagi í Schlesíu, en
eru nú horfin.