Tíminn - 04.10.1919, Síða 4

Tíminn - 04.10.1919, Síða 4
316 TIMIN N Einn helsti liðurinn á stefnskrá stjórnarinnar var að minka útgjöld ríkisins. Nú hefir líka verið tekið óspart til starfa í þá átt. Nú hefir verið gefin út skipun um að hætta smíðum á öllum herskipum, sem væri verið að byggja og, sem ekki væru því nær fullsmíðuð. Skyldu sldpasmiðjurnar byggja kaupskip í stað þeirra. Alls hefir verið hætt smíðum á 50 herskipum, sem byrjað hafði verið á. En ekki mun þetta verða fram- kvæmt þegjandi og hljóðalaust. Flotinn er eins og kunnugt er augasteinn þjóðarinnar, og undir honum hefir hún átt líf sitt, öld- um saman. Sum blöðin telja því þessa ráðstöfun stórhættulega og benda á að Ameríka, Japan og Frakkland séu nú að auka flota sinn i stórum stýl. En einkennilegast er það, að það er eins og enginn þori að ganga i berhögg við Lloyd George sjálfan. Sum helstu andstæðingablöð stjórn- arinnar segja að hann hafi verið önnum kafinn á friðarfundinum i vetur og vor, og í rauninni hafi Bonar Law og íhaldsmenn stjórn- að landinu. Og það er víst, að við næstu kosningar, sem búist er við að fari fram bráðlega, munu ihalds- meun bíða stórkostlegan ósigur. Verkamenn hatnast nú og halda stöðuga pólitiska fundi um alt landið. Þykjast þeir visjsir um að vinna 200—300 ný þingsæti við næstu kosningar og tala jafnvel um að þeir muni innanskamms mynda ráðuneyti, enda virðist það eðlilegt að þeir ættu að hafa nægi- legt atkvæðamagn til þess, í þessu mikla iðnaðarlandi. Hvað sem því líður, þá er það víst að höfðingjastjórnin, sem verið hefir á Englandi frá upphafi, er nú að fullu og öllu dauðadæmd. Stríð- ið mikla hefir rofið allar gamlar venjur. Nú eru komnir nýir tímar og nýjar stefnur. Alþýðan finnur mált sinn og ætlar að berjast til valda. H. Hallgrímsson alþingi. Á lokafundi á laugardaginn var úthlutuðu þingmenn bitlingunum eins og vant er og kusu menu í ýmsar nefndir. í verðlaunanefnd gjafasjóðs Jóns Sigurðssonar voru kosnir: Hannes Þorsteinsson skjalavörður, Jón J. Aðils dósent og Jón þorkelsson þjóðskjalavörður. Yfirskoðunarmenn landsreikn- inganna voru kosnir: Matthías Ólafsson, Kristinn Daníelsson og Jörundur Brynjólfsson. Endurskoðandi landsbankans var kosinn Pétur Jónsson frá Gaut- löndum. í ráðgjafarnefndina voru endur- kosnir: Jóhannes Jóhannesson, Bjarni Jónsson og Einar Arnórsson. í bankaráð íslands banka var kosinn Guðmundur landlæknir Björnson. — Má geta þess í þessu sambandi, út af ummælum »Vísis« um þessi »verðlaun« til landlæknis, og um kröfur þær sem »Tíminn« hefir gert um, að bankaráðsféð yrði gefið til einhverra þarfinda — að þeir menn, sem næstir standa Tím- anum í þinginu, gerðu tilraun til þess að koma slíku í framkvæmd og mun »Vísi« það kunnugt, en það tókst ekki. Má »Vísir« eiga það víst, að þá er Tímans-menn verða nógu margir á þingi, mun sá siður verða tekinn upp, að láta féð renna til þarfinda. — Engum mun detta það í hug, að með þessu sé verið að verðlauna landlækni fyrir aðgerðir hans í vetur. Hitt mun fleirum í hug koma, að þá sé nær, að hann fari úr embætti því, sem hann hefir sýnt sig ó- færan að rækja á þá lund, sem alþjóðarheill krefst, sem hann og hefir sjálfur lýst yfir, að hann geti ekki lengur rækt. — Þingið hefir afgreitt 67 lög: 1. Lög um framlenging vörutolls. 2. — — bráðabirgða-innflutn- ingsgjald af síldartunnum og efni í þær. 3. Lög um rikisborgarrétt. 4. — — breytingu á tolllögum. 5. — — stækkun verslunar- lóðarinnar á Nesi í Norðfirði. 6. Lög um einkasölu á hrossum. 7. — — skrásetning skipa. 8. — — aðflutningsgjald af salti. 9. Lög um löggilding verslunar- staðar við Syðstabæ í Hrísey. 10. Lög um breytingu á lögum um útflutningsgjald affiski, lýsio.fl. 11. Lög um löggilding verslunar- staðar við Gunnlaugsvík. 12. Lög um lakmörk verslunar- lóðarinnar á Sauðárkróki. 13. Lög urn breyting á póstlögum. 14. — — hæstarétt. 15. — — viðauka við lög um húsaleigu í Reykjavík. 16. Lög um breytingu á lögum um sjúkrasamlög. 17. Lög um sölu á þjóðjörðinni Ögri og Sellóni. 18. Lög um brúargerðir. 19. — — greiðslu af ríkisfé til konungs og konungsættar. 20. Lög um löggilding verslunar- staðar á Mýramel. 21. Lög um breyting á lögum um stofnun landsbanka. .22. Lög um breyling á lögum um stofnun brunabótafélags Islands. 23. Lög um bæjarstjórn á Seyðis- firði. 24. Lög um breytingu á lögum um tilhögun á löggæslu við fiski- veiðar. 25. Lög. um breytingu á lögum um fasteignamat. 26. Lög um samþykt á landsreikn- ingnum 1916 og 1917. 27. Fjáraukalög fyrir árin 1916 og 1917. 28. Lög um mat á saltkjöti til út- flutnings. 29. Fjáraukalög fyrir árin 1918 og 1919. 30. Lög um löggiltar reglugerðir sýslunefnda um eyðing refa o. fl. 31. Lög um viðauka við Símalög. 32. — — breyting á sveitar- stjórnarlögum. 33. Lög um landamerki. 34. — — heimild fyrir lands- stjórnina til að leyfa íslands- banka að auka seðlaupphæð þá er bankinn má gefa út. 35. Lög utn ákvörðun verslunar- lóðarinnar i Hafnarfirði. 36. Lög um forkaupsrétt á jörðum. 37. — — breyting laga um laun háskólakennara. 38. Lög um skoðun á síld. 39. — — breyting á lögum um friðun fugía og eggja. 40. Lög um breyting á lögum um húsaskatt. 41. Lög um breytingu laga um vitagjald. 42. Lög um samþyktir um akfæra sýslu- og hreppavegi. 43. Lög um sérstakt læknishérað í Hólshreppi í Norður-ísa- Qarðarsýslu. 44. Lög um gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekt og brjóstsykri. 45. Lög um heimild til löggilding- ar á fulltrúum bæjarfógeta. 46. Lög um landhelgisvörn. 47. — — samþyktir um stofn- um eftirlits- og fóðurbirgða- félaga. 48. Lög um breyting á hafnarlög- um fyrir Vestmanneyjar. 49. Lög um hafnargerð i Ölafsvík. 50. — — eignarrétt og afnota- rétt fasteigna. 51. Lög um þingfararkaup alþing- ismanna. 52. Lög um breyling á yfirsetu- kvennalögum. 53. Lög um skipun barnakennara og laun þeirra. 54. Lög um laun embættismanna. 55. — — stofnun Jífeyrissjóðs fyrir embættismenn og um skyldu þeirra til að kaupa sér geymdan lífeyri. 56. Lög um ekkjutrj'gging embætt- ismanna. 57. Lög um breytingu á lögum um lögreglusamþyktir fyrir kaup- staðina. 58. Lög um skrásetning skipa. 59. — — breytiugar á siglinga- lögum. 60. Frumvarp til sljórnarskrár kon- ungsríkisins íslands. 61. Lög um hækkun á vörutolli. 62. — — breyting á lögum nr. 1, 2. jan. 1917 [Hækkun ráð- herralauna]. 63. Lög um húsagerð ríkisins. 64. — — breyting laga um auka- tekjur landssjóðs. 65. Lög um aðflutningsgjald af kolum. 66. Lög um breytingar á lögum um * bæjarstjórn á Siglufirði. 67. Fjáraukalög fyrir árin 1920 og 1921. Þingmenn eru' nú allir farnir heim í kosninga-hríðina. Fóru all- margir með »SkiIdi« i Borgarnes á mánudaginn og þaðan landveg. »Lagarfoss« fór með austan-þing- menn á þriðjudag og »Suðurland« fór í morguu með vestan og norðan- þingmenn. Eg: inulirritaðuB* hefi tapað 6 vetra gömlum hesti úr heima- högum, klárgengum, gráum að lit, mark: sýlt og gagnfj. hægra, stand- fj. fr. vinstra. Fjaðrirnar munu vera grannar. Hestur þessi hefir ekki sést síð- an 23. júlí s. 1. Þeir, sem kynnu að verða varir við hest þennan eru vinsamlegast beðnir að koma honum að Meiri- Tungu í Holtum í Rangárvalla- sýslu gegn ómakslaunum. Meiri-Tungu 21. sept. 1919. Guðm. Kr. Símonarson. Lyfsalanum í Vestmannaeyjum, sendir Tím- inn þá kveðju, út af botnlausu skammagreininni í Morgunblaðinu i fyrradag, að eins og hann er búinn að gera alla menn dauð- leiða á sér í Vestmannaeyjum, með sjálfsdýrkun sinni og yfirlæti, eins er Tíminn orðinn dauðleiður á því, sem lyfsalinn segir opinberlega, og finst blátt áfram ekki taka því, að taka tillit til hans. Lyfsalinn gerii* stéttarbræðrum sínum hinn inesta óleik með því, að bregðast svo fólskulega við tillögunni um einkasölu á lyfjum. Væru allir lyfsalar eins og hann, kæmist einkasalan á innan fimm ára. Væru allir lyfsalar eins og hann, yrði vínsalan tekin af lyfsölum á næsta ári. Væru allir pennar Morg- unblaðsins eins og penninn hans, væru allir, bókstaflega allir, hættir að lesa blaðið á mánuði, nema lyfsalinn í Vestmannaeyjum. Tíminn eyðir ekki rúmi sinu í það, að rökræða mál við mann, sem ekkert hefir annað til brunns að bera um þjóðmál, en það, að langa til að mega tala með. Einu sinni kom út Ijóðabók og það var eitt merkilegt við hana, það var engin prentvilla í henni. Það er merkilegt. En lyfsalinn hlýtur að skilja það, að menn lesa ekki bækur, sem ekkert annað er við en það, að engin er prentvillan* né greinar, sem ekkert er við annað en það, að höfundinn langar til að mega tala með. Fróttir. Tíðin. Hryssingsstormar nú flesta daga og hráslaga kuldi. Hellisheiði orðin ófær býlum vegna snjóa. Embættispróll i læknisfræði hafa nýlega lokið bér við háskólann, Árni Vilbjálmsson og Snorri Hall- dórsson, báðir með 1. einkunn. Páll Ísólf880n orgelsnillingur hélt tvo kirkjuhljómleika nýléga við hinn sama ágæta orðstýr og áður. Ritstjóri: Tryggvi Þórhallsson Laufási. Sími 91. Prentsmiöjan Gutenberg

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.