Tíminn - 07.02.1920, Síða 1
TMINN
um sextíu blöð á ári
koslar liu krónur ár-
gangurinn.
AFGREIDSLA
i Regkjavik Laugaveg
17, sími 286, út um
land i Laufási, sími 91.
IV. ár.
Reykjavík, 7. febiúar 1920.
5. blað.
Nýung í uppsldismálum.
Á síðari árum hafa fræðimenn
í ýmsum löndum Norðurálfunnar
og Bandaríkjanna gert, með nýjum
aðferðum, margar uppgötvanir í
uppeldisfræði, sem nú eru farnar
að hafa áhrif á skólamála-fram-
kvæmdir þeirra þjóða, sem leggja
nokkra verulega rækt við þá hluti.
Er svo að sjá, sem samkepni sú
hin mikla, sem hafin er og heldur
áfram meðal iðnaðar- og kaup-
sýsluþjóða heimsins, ýti mjög undir
að nota þessa þekkingu, af því
auðvelt er að gera hana arðgæfa
á margan hátt.
Nýung þessi er í því fólgin, að
mæla með margskonar nákvæm-
um rannsóknum, um líkamsmátt og
andlega hæfileika barna, unglinga
og jafnvel fullorðinna manna. Á
þessum rannsóknum er siðan bygð
kensla, kensluaðferðir, og í sumum
kringumstæðum, atvinnuval og æíi-
starf þeirra, sem rannsóknir þess-
ar ná til.
Einn af frægustu brautryðjend-
um á þessum vegi var franskur
sálarfræðingur A. Binet. Hefirnokk-
uð verið ritað um hann á íslensku.
Aðferðir hans við að mæla vits-
muni, venjumjmdun, minni, eflir-
tekt o. s. frv. hafa verið gerðar
enn fullkomnari, og fara nú sigri
hrósandi um allan heim.
Á t’ýskalandi urðu þessar mæl-
ingar fyrst vinsælar í hernum, t. d.
til að finna hvaða menn væru
heppilegir fluginenn og bifreiðar-
stjórar. Tveir nafnkendir fræði-
menn, Moede og Piorcowski beitt-
ust fyrir rannsóknum þessum, og
tókst svo vel, að herstjórnin við-
urkendi fullkomlega gildi tiiraun-
anna.
Til að geta orðið góður flug-
maður þarf marga samstilta eigin-
leika. Fyrstu tilraunirnar leiddu í
Ijós hverjir voru óhæfir, og hversu
hæfileikum hvers einstaks manns
var háttað. Reynsla og áfram-
haldandi tilraunir gerðu unt að
flokka keppendurna nokkurn veg-
inn eftir gildi þeirra.
Þegar herstjórnin hafði viður-
kent gildi þessara rannsókna komu
yfirmenn barnaskólanna í Berlín,
og fleiri þýskum borgum, og not-
uðu svipaðar mælingaraðferðir við
flokkun barnanna, og kensluna.
Ágallaruir við venjulega skóla
eru í því fólgnir, að gert er ráð
fyrir, að allir nemendur í sama
bekk, hafi svo sviþaðar andlegar
þarfir, að þeim hæfi samskonar
kensla. Petta er vitanlega rangt.
Ennþá fjarstæðara er að öllum
mönnum á sama aldri hæfi sams
konar fatasnið.
Rannsóknir Binets og eftirmanna
hans leitast við að gera skólunum
unt að sníða hinn andlega stakk
eftir vexti, meðan stendur á upp-
eldinu. Og það leiðir af sjálfu
sér, að þetta er að eins fyrsta
stigið. Hið næsta og mesta er það,
að hjálpa hinni uppvaxandi kyn-
slóð til að velja sér lífsstöðu í
samræmi við gáfur og Iíkams-
þrótt.
í Berlin hafa rannsóknir þessar
m. a. leitt til þess, að stofnað er
til sérstakrar kenslu fyrir afburða
gáfuð börn, þar sem hæfileikar
þeirra fá fyllilega að njóta sín.
Fylgja því námsstyrkir og önnur
hlunnindi, sem tryggja efnismönn-
unum opna leið til sérmentunar
og starfa, eftir því sem hæfileikar
benda til. Ekki er heldur gleymt
þeim, sem minstar hafa gá'furnar.
Pau fá sérstaka kenslu, algerlega
sniðna eftir þeirra þörfum. Binet
■tókst með þannig lagaðri kenslu,
að skerpa svo eftirtekt torgáfaðra
barna, að þau báru víð próf á
þeim sviðum, all-mjög af fullorðn-
um meðalgreindum mönnum, sem
óæfðir voru um slíka hluti.
í því nær öllum mentalöndum
er nú verið að koma á fót rann-
sóknarslofum af þessu tægi, í sam-
bandi við háskóla og kennaraskóla.
Framsýnir menn sjá, að samkepn-
in verður afar-mikil .á komandi
árum. Og þegar alt kemur til alls
standa þær þjóðir best að vígi,
sem eiga tiltölulega flesta hrausta
og skynsama borgara, »þar sem
er valinn maður í hverju rúmi«.
Framkvæmdir á þessu sviði eru í
raun réttri Imdnám inn á við í
hverju þjóðfélagi. Margt bendir til,
að fyr en varir standi »mene tekel«
ritað yfir höfði þeirra þjóða, sem
fara gálauslega með orku manns-
ins, bæði Iíkamleg og andlega, hvort
heldur sem meir má saka ófull-
komið uppeldi, eða óholl og veikl-
andi lífskjör.
farildi
Nálega í hvert einasta sinn og
almennar alþingiskosningar fara
fram, verður einhver kosning kærð.
Hefir það oft verið næsta mikið
álitamál hversu dæma beri um þær
kærur. En þingið sjálft á að fella
úrskurðinn, lögum samkvæmt.
Munu þeir vera fáir sem telja munu
að þeir úrskurðir hafi æ verið
samræmilegir og réttlátir.
Að þessu sinni mun óhætt að
fullyrða, að um tvær kosningar,
og ef til vill fleiri, verði mjög deilt
hvort taka beri gildar eða ógildar.
Gefur það tilefni til þess að taka
það íil yfirvegunar hvort dóms-
valdið um það muni vera vel kom-
ið hjá þinginu.
Hefir verið fróðlegt að leggja
eyrun við, þá er menn hafa verið
að ræða um hvort þessi eða hin
vafasöm kosning yrði tekin gild.
Pað hafa sem sé ólrúlega margir
endað umræðurnar með þessum
eða svipuðum orðum: »Pað er alt
undir því komið hverjir verða í
meiri hluta í þinginu«.
Vitanlega meina menn þetta ekki
fyllilega eins illa og í getur legið
og liggur í rauninni, en það ber
Jjósastan vottinn um það, hvaða
hugmynd almenningur gerir sér, af
reynslunni, um rétldæmi þingsins
í þessum efnum. Og það eitt, að
alþjóð hafi það á tilfinningunni,
að ekki sé nægileg trygging fyrir
því að réttlátur úrskurður sé æ
gefinn, er mjög varhugavert og
hefir spillandi áhrif á réltarmeð-
vitund þjóðarinnar.
Önnur hlið þessa máls er og
mjög þungvæg. Pað mun vera al-
viðurkend regla, að dómari dæmi
ekki í máli sem snertir hann sjálf-
an að verulega miklu leyti. Og
það er öllum augljóst hversu þetta
er sjálfsagt. En þar eð þingið á
að dærna um. gildi kosninga, er
þessi alviðurkenda regla gersam-
lega brotin. Undantekningarlaust
snertir það flokkshagsmuni hvers
einasta þingmanns, úrskurðar mál
um gildi kosningar flokksmanns
hans eða andstæðings. Pað geta
meir að segja hugsast þau tilfelli,
að næsta mikið sé í húfi í þessu
efni.
Því skal hér haldið fram, að það
sé beinlínis rangt af þjóðfélaginu
að leiða þingmenn í þá freistni sem
þessu valdi er samfara.
Munu mörgum í hug koma hin
frægu orð Jóns meistara Vídalíns.
»Pegar dæma á milli bróður og
bróður . . . . og vináttan kitlar
þá hönd sem á sverðinu heldur;
mun þá eigi andskolinn setja brill-
ur upp á réttarins nasir, svo hann
ekki fái rammað þann höggstað,
sem hann ætti«.
Það að gildi kosningar bíður
úrskurðar þingsings hefir ennfrem-
ur það í för með sér, að ef kosn-
ing er gerð ógild þá verður þing-
sæti autt um hríð og getur dreg-
ist alllengi að úr verði bætt,
Nú er sú breyting á orðin síðan
síðast var úrskurðað um gildi
kosninga, að æðsti dómstóll lands-
ins á sæti í landinu. Virðist því
ekkert vera því lengur til fyrir-
stöðu, að þingið sé leyst af þess-
um vanda og úr þessari freistingu
og svo búið um þetla dómsmál
sem önnur. Væri og líklegt að
þingið héldi ekki fast í þetta vald.
fóSttrtilrátin «eB vothey.
Eftir Halldór Vilhjálmsson skólastj.
Volhej'sverkun fer vaxandi með
ári hverju og fer vonandi að verða
almenn innan skamms, minsta
kosti hér sunnan og vestan lands,
en þá fer líka að verða nauðsjm-
legt að vita,. hversu mikið megi
gefa skepnunum af vothejd og
hvernig þær þrifast af því.
Þessu verður ekki fyllilega svar-
að, nerna með endurteknum fleiri
ára tilraunum á búfé okkar, og
þyrfti vafalaust að haga tilraun-
unum á ýmsa vegu, til þess að
finná hin réttu hlutföll á milli
þurheys, votheys, beitar og kraft-
fóðurs.
Pað skal því skýrt tekið fram,
að hér verða ekki birtar neinar
úrslitatölur, heldur að eins nokkr-
ar bendingar, sem við þykjumst
geta gefið eftir tilraunum okkar
tvo undanfarna vetur.
Veturinn 1918, 15. mars, völd-
um við 20 ær, sem jafnastar að
aldri, þyngd og holdafari og skift-
um þeim í I flokka, 5 í hverjum.
Áður en tilraunin bjrrjaði höfðu
ærnar fengið sæmilegt fóður og
var það tómt þurhey — en nú
var fóðrið aukið í eina töðuein-
ing og bætt og farið að gefa vot-
hejr ásamt þurheyinu. Purheyið
var valið grænt stararhey, en vot-
heyið háartaða. Votheysúthey var
því miður ekki til. Ennfremur var
ákveðið að ærnar skjddu standa
inni allan tilraunatímann og þær
vegnar vikulega, en fóður var ná-
kvæmlega vegið á hverjum degi.
Fóðurmagn og fóðurlegund var
sem hér segir:
Meðan á tilrauninni stóð, var
tvívegis rannsakað vatnsmagn í
þurheyinu og votheyinu. Reyndist
vatnsmagnið að vera 17.5% í þur-
heyinu og 72.13% I votheyinu að
meðaltali. Eftir því hafa þá 3.3
kg af háartöðu eða 924 gr. af há-
Mánaðardagar 1. fl. 2. n. 3. fl. 4. fl.
Mars 15 517 519 507 501
— 22 532 520 505 502
— 29 530 523 512 508
Apríl 5 535 517 511 501
— 12 532 519 509 501
— 19 551 535 516 506
— 26 546 537 524 516
Meðalflokksþ. .. 534.7 524.3 512 505
Meðalærþungi . 106.9 104.9 102.4 101.0
— í byrjun 103.4 103.8 101.4 100.2
Ærin þyngst... 3.5 1.1 1.0 0.8
arþurefni, fullkomlega jafnast á
við 1.3 kg stararúthey með 1072
gr. þurefni, að næringargildi.
Flokksþungi og þgngdarauki.
Flokknr Flokks- fóður alls kg Ærfóðrið >‘E
1. fl. Purhey. . . . 6.6 1.3
2. fl. •/* í>. -J- •/> V. 3.3+8.3 0.66+1.66
3. fl. •/< Þ. + +V. 1.65+12.5 0.33+2.5
4. fl. Vothey.... 16.6 3.3
Eftir þessari töflu að dæma,
virðast þurheysærnar bera af vot-
heysánum og þyngdaraukinn verði
því minni, sem ærnar fái meira af
votheyinu. En þetta verður að
skýra nánar. Áður en tilraunin
byrjaði, fengu ærnar bæði minna
og lakara fóður. Með aukinni og
bættri gjöf drekka þurheysærnar
mikið, 2.5—3 lítra á dag ærin,
kviðast vel og þyngjast. Að vísu
átu votheysærnar upp, en þær
smökkuðu ekki vatn allan til-
raunatímann. Alvolheysflokkurinn
fær í sjálfu votheyinu nægilegt
vatn eða svipað vatnsmagn og
þurheysærnar. Hinar nokkruminna.
En það sem hér gerir óefað að-
almismuninn er eftirfarandi atvik.
Sumarið 1917 var óþurkakafli
mikill framan af slætti og létti
ekki fyr en fulla viku af ágúst.
Þá kom þurkurinn sem hélst fram
á haust. En nokkrum dögum áð-
ur en skifti, var nokkur hluti
túnsins slegið og háin látin í vot-
heystóltina. Pá kom þurkurinn,
ekkert átt við hána í tóttinni fyr
en nærri fjórum vikum síðar um
haustið. Pá var komin þunn for-
arskán ofan á hána (5 — 8 cm),
en undir henni var háin græn, en
súr. Hafði ekki hitnað nóg, því
háin var mjög blaut og lagið of
þunt, ca. 2 metra ósígið.
Um mánaðarmótin mars og apríl
voru vothejrsærnar farnar að þyngj-
ast jafnt og vel (hinar standa í
stað), en þá vikli svo til, að búið
var að gefa votheysstæðuna ofan
undir gólf, og kotnið ofan í súru
hána, sem fyr er um getið. Fengu
þá tvær ær úr 4. flokki skitu og
3 ær 3. flokki, en 2. flokkur var
hraustur að sjá. En á löflunni má
greinilega sjá, að þær hafa líka
veikst. Pær léttast engu minua en
hinar, þó ekki sæist á þeim.
Engin ærin varð þó mjög veik.
Pær átu allar og alveg upp, sama
votlieysskamt og áður. Að eins var
skift um vothey. Tekið á öðrum
stað, þar sem það var óskemt.
Priðja flokks ánuin batnaði öll-
um eftir fáa daga. En 4. fl. ærnar
voru lengur að ná sér, en voru þó
allar albata eftir tæpan hálfan mán-
uð og höfðu þá þyngst um 5 pd.
flokkurinn.
Petta þótti okkur rætast fram
úr vonum, að ánum skjddi batna,
þó þær fengi alla tíð sama skamt
af votheyi.
Síðustu vikuna var smáskift
um vothey og þurhey, svo 26.
apríí fá allar ærnar þurhey. Vild-
um við þá fara að beita ánum,
svo tilrauninni var hætt. Síðustu
vikuna þyngdust votheysærnar
mest þegar þurheyið kom. Meiri
kviðfylla. Pyngdust þær 10 pund.
Hinir minna og þurheysærnar jafn-
vel léttust um 5 pd. En um reglu-
legan þyngdarsamanburð er ekki
hægt að ræða, þar sem bæði vant-
ar undirbúningsskeið og eftirskeið.
Pó má geta þess, að ærnar 5 í 3.
og 4. flokki, sem ekki veiktust,
þyngdust jafnmikið og þurheys-
ærnar.
Ókunnugir áttu mjög erfitt með
að greina flokkana sundur, svo
voru þeir jafnir að holdafari og
útliti, en þeir, sem þektu, viríust
votheysærnar hafa mýkri hold, en
vera kviðminni en þurhejrs-ærnar.
Pá gerðum við aðra tilraun í
fyrra vetur 1919. Stóð hún yfir
frá 30. jan. til 11. apríl. Tilrauna-
ærnar voru 15, skift í þrjá flokka:
1. fl. þurhey, 2. fl. hálft af hvoru
og 3. fl. tómt vothey. Pnrheys-
flokkurinn fékk 5 kg á dag eða 1
kg ærin af ágætu, grænu starheyi,
slegnu fyrir túnaslált, votheysærn-
ar fengu líka starhey, 3.3 kg., en
það var síðslægja, slegið síðast um
haustið niður í »Kistu«. Hafði þar
ekki verið slegið áður um langan
tíma og var því nokkur sina í
heyinu, þó ekki eins mikil og
vænta mátti. Purheysærnar fengu
því að heygæðum miklu betra hey.
Meðan á tilrauninni stóð voru
tekin 4 sýnishorn af votheyi og 2 af
þurhejd og vatnsmagn rannsakað.
Kom það þá í Ijós, að vatn var
meira í votheyinu en búist var við
eða rétt 80% að meðaltali, en í
þurheyinu reyndist vatnsmagnið að
vera 13%. Flokkaruir hafa því
vafalaust fengið allmjög mismun-
andi fóðurmagn og fóðurgæði eða
1. fl. hefir fengið 870 gr. þurefni
2. - (435+330) 765 - —
3. - 660 - —
Hálfflokkurinn hefir því fengið
12% eða % minna fóður og lak-
ara en þurheysflokkurinn og vot-
heysflokkurinn, 24% eða % minna
þurfóður og lalsvert lakara en þur-
heysflokkurinn. Petta votheysfóður
hetir því samsvarað hér um bil
0.75 kg af úthejd að magni til, og
er það of lítið viðhaldsfóður handa
fullorðni á og það með lambi.
Enda léttust þær mikið, sbr. eftir-
fylgjandi löflu.
Flokksþungi og þungamismunur.
Mánaðardagar 1. fl. 2. fl. 3. 11.
Jan. 30 513 510 512
Febr. 7 502 506 507
— 14 507 507 497
— 21 513 507 495
— 28 512 510 498
Mars 7 513 515 496
— 14 513 520 492
— 21 522 520 492
- 28 520 519 491
April 4 520 515 491
— 11 522 516 494
Meðalfl.þ. allan tím. . 514.3 513.2 496.8
Meðalærþ. — — 102.9 102.6 99.4
— í bjrrjun... 102.6 102.0 102.4
Meðalþungamismun.. 0.3 0.6 -t- 3.0
Hér sýnist hálflokkurinn standa
sig prýðilega móli þurheysflokkn-
um, sem fær þó bæði meira og
betra fóður að uppruna til. Hann
er meira að segja þyngri alla
vigtardagana (14. mars er hann
jafnvel 10 pundum þyngri), nema
21. febr., þá er 1. fl. 3 pundum
þjmgri — þangað til seinna breyti-
skeiðið byrjar, 28. mars, þá létt-
ast ærnar um 4 pund 4. apríl.
Áttum vér frekar von á því að
þær mundu þyngjast þegar þær
fengu þurheyið, og sama má segja
um eftirskeiðið frá 4,—11. apríl,
þegar allar ærnar fá sama fóður,
1 kg af þurheyi. Pær þyngjast að
eins um eitt pund.
Pað er að vísu ekki von, að
lambfullar ær, þyngist á þess-
um tíma með að eins 1 kg af
úlheyi. En að þær léttast þarna
alt í einu, verður að kenna því
helst, að þær hafi saknað vothegs-
ius, þegar það var tekið frá þeim,
þó þær fengju grænt og ilinandi
þurhey í staðinn. (Frh.)