Tíminn - 03.04.1920, Qupperneq 2

Tíminn - 03.04.1920, Qupperneq 2
TÍMINN 56 55 rf-srmffiirÉ amerísku eru heimskunnir sem besíu og fullkomnustu grammófónar er hugvitsmennirnir hafa getað búið til. Pantið einn slíkan grammófón hjá kaupfélagi yðar eða kaupmanni með nokkrum plötum og þér mnnið undrast hve mikill ánægjuauki það verður fyrir heimili yðar, þeg- ar þetta snildar áhald lætur þar til sín heyra. Ltan úi" lieimi. RúsRland. XIII. Lögreglan var langsterkasta stoð hinnar rússnesku stjórnar, hún var eins og skjaldborg um einveldið. Hún var í þrem deildum. Almenna lögreglanannaðist venju- leg lögreglustörf, að halda uppi reglu og gæta laganna. Herlögreglan hafði það á hendi að bæla niður uppreistir. Pólitiska lögreglan, leynilögreglu- mennirnir, átti að komast fyrir um og Ijósta upp samsærum gegn keis- aranum. Yfirmenn lögreglunnar höfðu geysimikið og lítt takmarkað vald, hver i sínu héraði. Allir sem um Rússland ferðuð- ust, bæði innlendir menn og er- lendir, urðu að hafa vegabréf. í því var nákvæm lýsing af ferða- manninum sjálfum og sagt frá trú haus, erindi og stöðu. Var þetta gert til þess að gera lögreglunni hægra um vik að hafa hendur í hári þeirra manna sem væru and- stæðingar stjórnarinnar og væru á ferð þeirra erinda. Nálega allir umsjónarmenn og dyraverðir húsa voru í þjónustu lögreglunnar. Þeii áttu að gefa gætur að húsinu og gera lögreglunni þegar aðvart, bæri einhvern grunsamlegan gest að garði. Pólitíska lögreglan var kunn um heim alian, undir nafninu »þriðja deild«. Árið 1880 var það opinber- lega tilkynt að hún væri lögð nið- ur. En hún starfaði áfram engu að síður, í leyni, og var jafnvel aukin. Þriðja deild var algerlega óháð hinni almennu lögreglu og jafnvel öílum embættismönnum. Vald hennar var jafnvel ekki tak- markað að lögum. Fjárframlög til hennar komu úr sérstökum leyni- legum sjóðum, til þess að hún hefði fullkomlega frjálsar hendur. Keisaranum einum átti hún reikn- ingsskap að lúka. Leynilögreglumennirnir og bylt- ingamennirnir háðu einvígi upp á líf og dauða. Voru engin grið gef- in, enda ekki um þau beðið. Leyni- lögreglumennirnir voru geysilega slyngir og hugaðir og komust jafn- vel i flokk byltingamannanná. Þeir létust þá vera byltingamenn og hatursmenn keisarans. Það kom jafnvel oft fyrir að hvatamennirn- ir að byltingatilraunum, þeir sem lögðu ráðin á um það að fram- kvæma tilræðin, voru njósnarar, sem gerðu þetta til þess, að fram- selja »félaga« sina til stjórnarinnar. Ný húslestrabók. Frá heimi fagnaðarer-. indisins. Helgidagaræð- ur frá 1. sd. i advenlu til 2. páskad. eftir Ás- mund Guðmundsson. Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Reykja- vik 1919. I. Prentlistin var fundin nokkru fyrir upphaf siðaskiftanna, en það urðu siðaskiftamennirnir sem gerðu hið prentaða mál að stórveldi i heiminum. Katólskir menn höfðu látið sér það nægja nálega ein- göngu að menta prestana. Bóka- útgáfa siðaskiftamanna var stýluð tll allrar alþýðu. Er hér komið að einum meginmuninum á hoðunar- aðferð katólskra og mótmælenda. Katólsku prestarnir reyna að fullnægja trúarþörf fólksjns með fögrum helgisiðum.með söng,mynd- um og líkneskjum. Þeir leitast við því fyrst og fremst að ná tökum á tilfinningum manna. Biblían er þar aftur bók prestanna og guð- fræðin er ekki við alþýðuhæfi. Mótinælendur töluðu aftur á móti fyrst og fremst til skynsemi manna. Prédikunarstarfið varð að- alstarf prestsins í stað helgisiða- XIV. Skömmu fyrir aldamótin síðustu hefst nýtt tímabil í sögu Rússlands, því að þá hefst þar iðnaðaröldin, með svipuðu sniði og áður var hafin í vesturlöndum álfunnar. Að sú öld hófst svo miklu seinna á Rússlandi, var ekki vegna þess að skortur væri á hráefnunum í land- inu, því að þar eru mikil náttúru- auðæfi: kol, járn og steinolía, og ekki vegna þess að skortur væri á vinnukrafti, þvi að þar er ná- lega ótæmandi fjöldi ódýrra verka- manna — heldur vegna hins, að fjármagn skorti til framkvæmdanna, enda hafði stjórnin fyrir, ótta sak- ir, dregið úr því að stofnað yrði til slíkra stórræða. Árið 1891 varð Sergius J. Witte fjármálaráðherra Alexanders III. Mætti kalla hann Colbert Rúss- lands, því að hann er frumkvöð- ull hinnar nýju iðnaðaraldar á Rússlandi. Hann var slyngur fé- sýslumaður, þrautkunnugur fjár- málamensku iðnaðarlandanna og búinn ágætum hæfileikum um að koma skipulagi á iðnaðarfyrirtæk- in. Aðalstefna hans var sú að fá erlenda auðmenn til að leggja fé í fyrirtæki á Rússlandi; benti hann þeim á hin miklu náttúruauðæfi landsins og hinn óumræðilega mikla og ódýra vinnukraft. Til þess að gera iðnrekendum það enn glæsi- legra að hefjast handa pantaði stjórnin sjálf gríðarlega mikið af iðnaðarvörum frá nýstofnuðum verksmiðjum, vörurnar voru flult- ar á járnbrautum rikisins fyrir lágt flutningsgjald, og verndartoll- ar voru lögleiddir til þess að hindra samkeppni frá útlöndum. Fjármál- um Rússa kom Witte í heilbrigt horf. Stórfeldar breytingar hlutust af þessari stefnu. Verksmiðjurnar spruttu upp á hverju strái. Um aldamót voru þær orðnar yfir 38 þúsund og verksmiðjumenn og námamenn voru orðnir um tvær og hálf miljón. Járn og stálfram- leiðslan varð innan skamms meiri á Rússlandi en í Frakklandi, Aust- urriki og Belgíu. Kolaframleiðslan þrefaldaðist á árunum frá 1870 til 1900. Járnbrautir ríkisins urðu æ fleiri og lengri. Árið 1860 voru þær ekki orðnar þúsund mílur á lengd, en árið 1895 voru þær orðn- ar yfir 40 þúsund mílur. Þar var á meðal Síberíujárnbrautin, um endilanga Síberíu, sem er lengsta járnbraut í heimi. Hún var lögð að mestu fyrir franskt lánsfé. Opn- aðist þá markaður fyrir rússnesk- ar iðnaðarvörur um endilanga Si- beríu, og fjölda manns gafst tæki- færi til þess að nema þar ágætt þjónstunnar. Og þeir gripu ekki einungis til hins talaða orðs. Húslestrabækur og prédikanasöfn rounu vera nálega jafnmiklu fleiri meðal mótmælenda en katólskra og helgra manna myndirnar eru færri. Er hér ein skýringin fólgin á því að i löndum mótmælenda kunna sem allir að lesa. Og eins á hinu, að katólskan vinnur svo litt á í löndum mótmælenda og öfugt. Al- múgafólki á Spáni og ítaliu fynd- ist það fá steina fyrir brauð að sitja í lúterskri kirkju, hlýða á all- þungskylda ræðu og fábreytta helgi- siði. Fyrir mótmælendur er hitt jafn- nauðsynlegt, að láta fólkinu æ í té hið lifandi orð, eftir því sem við á, eftir þvi sem þroski fólks- ins er, og jafnframt að sjá því fyrir hæfllegum lestri. Vanræki þeir það er hnignun trúarlifsins óum- flýjanleg, því að með því vanræk- ir kirkjan það starf sem er henni þýðingarmest samkvæmt eðli henn- ar. Bæði samkvæmt eðli íslensku þjóðarinnar, og eftir þvi sem ráða má af undangenginni sögu, ríður hér hvað mest á -því að sjá fólk- inu fyrir hæfilegum lestri. Sigurður Nordal prófessor hefir pýlega á það bent að íslenska al- þýðumentunin muni vera nálega land. Þjóðverjar lögðu aftur á móti fram mest af fjármagninu til aukningar iðnaðarins. Iðnrekstur Þjóðverja i Rússlandi var svo mik- ill fyrir stríðið að Rússiand var jafnvel kallað »fjármálanýlenda Þýskalands«. Á árunum 1904 til 1914 óx innflutningur frá Þýska- landi til Rússlands úr 12^/s og upp i 200 milljónir dollara. Afleiðingar iðnaðaraldarinnar urðu hinar sömu á Rússlandi og i öðrum löndum. Velmegandi mið- flokkur skapaðist og fjölmenn verkamannastétt. Báðir þeir flokk- ar voru andstæðir einvaldsstjórn- inni vegna harðstjórnar hennar og spillingar og vegna þess að hún hlúði fyrst og fremst að hinum# ríku landeigendum. Þúsundum saman streymdu bændurnir til borganna til þess að fá atvinnu við hinar nýreistu verksmiðjur. Verkalýðurinn stofnaði til félags- skapar, til þess að geta gert verk- fall og öðlast viðunaniegri kjör. Það var áður óheyrt í Rússlandi. Stjórnin sá það þegar, að þessi fé- lagsskapur myndi von bráðar verða pólitískur og bannaði verkamönn- um að stofna félög. Verkföllin voru rofin með hervaldi, þar eð þau væru uppreist gegn stjórninni. En bæði í miðflokknum og verka- manna var ágætur jarðvegur fyrir kenningar byltingamanna. Þar eð þeir bjuggu þúsundum saman í hinum stóru borgum, var það mun liægara að stofna til félags- skapar með þeim, að deila út flug- ritum, að koma á mótmælafund- um, heldur en meðal bændanna, sem dreifðir voru yfir stórt svæði. í verksmiðjunum hittust verka- mennirnir daglega þúsundum sam- an og gátu rökrætt innbyrðis um kjör sin. Verksmiðjurnar urðu heimkynni byltingafélaganna. Hingað til hafði það verið svo að það var fámennur hópur hug- sjónamanna, sem barðist gegn stjórninni. Og það var vonlaus barátta þar eð hún var háð meðal einstök í sinni röð, vegna þess að íslenska þjóðin hafi verið bók- hneigð þjóð um flestar aðrar þjóð- ir fram. Til þess að halda í þessa gersemi sé það rík skylda að sjá almenningi fyrir hollum lestri, með þvi að gefa út góðar og ódýrar bækur. Eins og þetta er öldungis rétt um almenna mentun, eins á það við nauðsjmina á góðum trú- málabókum til viðhalds trúarlífinu og siðferðislífinu í landinu. Það er eftirtektarvert að líta yf- ir sögu undanfarinna alda í því skyni að sjá það hvað þjóðin hef- ir lesið, hverskonar bækur það eru sem mest hefir verið gefið út af. Fram á miðja siðastliðna öld eru það alveg yfirgnæfandi bækur guðrækilegs efnis, sem út eru gefn- ar og lesnar á íslandi. Eru marg- ar þeirra endurprentaðar ótrúlega oft. Er ómögulegt annað en að kannast við það að fram á síðustu tíma hefir lúterska kirkjan á ís- landi rækt sæmilega þá skyldu sína að láta fólkið hafa nög að lesa, þótt um hitt verði ekki deilt að sumt af þeirri »lesningu« hefði mátt vera betra. Guðrækilegu bækurnar, þótt oft séu þunnar sumar hverjar, eiga mjög mikinn þátt í því að við- halda menningu, lestrarfýsn, tungu og þjóðerni á undanförnum öldum, alómentaðra bænda, sem trúðu á keisarann eins og Guð. Nú var svo komið, að væri bylt- ing hafin, þá var stuðningur vís og það voldugur stuðningur af hálfu iðnaðarlýðsins. Þótt einkennilegt kunni að virð- ast, þá er það svo i raun og veru, að það er á tímum hinnar járn- hörðu stjórnar Alexanders III., sein sú aðstaða skapast, sem veldur byltingunum á Rússlandi árið 1905 og 1917. jjannmáliS erlenðis. Tíminn hefir því miður ekki getað flutt eins rækilegar fréttir og æskilegt hefði verið, um hina vold- ugu erlendu bannhreyfingu, sem æ fær meiri byr úndir báða vængi. Mun reynt að gera það betur hér eftir. Að þessu sinni skal stuttlega vikið að fáeinum einstökum atrið- um á því sviði. Það land Norðurálfunnar sem þyngst heíir lagst gegn öllum tak- mörkunum vínnautnar og þá sér- staklega gegn banni, hefir verið Frakkland. Enda eiga Frakkar ærið mikilla hagsmuna að gæta í þvi efni, þar eð vínyrkja er einn af meiri háttar atvinnuvegum lands- búa. Hafa Frakkar oftar en einu sinni reynt að sporna við slíkúm ráðstöfunum annara þjóða. Eins og kunnugt er var því óspart á lofti haldið hér á landi, þá er bann- lögin voru til umræðu, að mikill ótti mætti okkur standa af Frökk- um og öðrum vínyrkjulöndum fyr- ir vikið. En bannhreyfingin hefir þó náð að grafa um sig á Frakklandi eigi að síður en annarstaðar, og er nú er svo komið að einn af styrkustu stjórnmálaflokkunum á Frakklandi, sócíalistarnir, hafa tekið bannmálið á stefnuskrá sína. Er það einhver auk þess sem þær að sjálfsögðu hafa viðhaldið trúarlífinu. Og þegar tillit er tekið til strjál- bygðarinnar á íslandi, hinna erfiðu ferðalaga, prestafæðarinnar í hlut- falli við víðáttu lands, hinna lítt aðlaðandi kirkna og hinnar ófull- komnu guðsþjónustu, þá kemst maður ekki hjá því að draga þá ályktun, einnig með tilliti til hinna tiltölulega auðugu og sumpart á- gætu guðfræðilegu bókmenta og lestrarfýsnar fólksins: að kristin- dómsboðunin hafi hér meir en i nokk- uru öðru landi verið rekin með prentuðu máli. í spegli sögunnar lærum við að þekkja sjálfa okkur og nemum hvað beri að gera. Þjóðin íslenska hefir að visu breyst nokkuð og kjör hennar sömuleiðis. Töluverður hluti þjóð- arinnar býr nú í bæjum og þorp- um. Til þess hluta fólksins er hæg- ar að ná með hinu talaða orði og sá hluti fólksins les minna. Engu að siður er óhætt að kveða upp þann dóm að pað er einhver há- leitasta skylda hinnar íslensku kirkju og allra kristindómsvina i landinu að sjá fólkinu fyrir nógum andleg- um bókmentum. Af því að íslenska kirkjan er lútersk, hvílir þessi skylda á henni, en alveg sérstak- lega af því að hún er islensk. k öldinni sem leið var yfrið mik- augljósasti votturinn um framgang málsins, að svo langt er komið í sjálfu vínlandinu Frakklandi Það er ekki einungis í Norður- álfunni og í Vesturheimi sem bann- málinu vex fylgi. Á nýlega höldnu fjármálaþingi á Indlandi, þar sem fulltiúar voru frá öllu landinu, kom áfengismálið til meferðar. Virðist svo sem al ur þingheiinur hafi verið sammála um, að afleið- ingar áfengisnautnarinnar væru svo alvarlegar fyrir afkomu landsins, að eina ráðið væri að feta i fót- spor Bandarikjanna i Norður- Ameríku. Var því skotið til sljóin- arinnar að koma sem fyrst á full- komnu banni á tilbúningi, sölu og innflutningi áfengra drykkja. Hér er á öðrum slað í blaðinu vikið að afstöðu ameriskra lækna til áfengismálsins og læknaheim- ildarinnar. Er það einhver Ijósasti volturinn um andann sem ríkir þar í landi í þessu tilliti. Annað má nefna, sem og styður það sama og er sagt frá því í viku útgát’u »Times« frá 27. febr. Er það það, að sendiherrar erlendra ríkja í Washington, höfuðborg Banda- ríkjanna, hafa komið sér saman um, að afsala sér þeim rétti, sem þeir hafa til að flytja inn vín. — Láta þeir það opinberlega í ljósi, að þetta geri þeir til þess, að vera lausir við óþægindi af hálfu þeirra vina sinna, sem ujóta vildu góðs af þessum sérréttindum. Væri ekki ósennilegt, að þetta fordæmi hinna háu herra og fulltrúa hjá slór- veldiru vestan hafs, gæti haft góð áhrif annarsstaðar. Seinast í júlímánuði næstkom- andi verðúr hástúkuþing Good- Templarreglunnar háð í Kaup- mannahöfn og verður um leið fundur hins volduga banninanna- félags Bandaríkjanna, sem nú hefir spent greipar um heim allan. Er það ákveðið, að kjörnir fulltrúar eigi að flytja skýrslur og fyrir- lestra um reynsluna í bannlönd- unum. Er Bryan valinn fulltrúi frá Bandaríkjunum, Malti Heleníus Sáppala frá Finnlandi, en Einar Hjöileifsson Kvaran af íslendinga hálfu. Ætti þess að vísu ekki að þurfa, en engu að síður er það svo, að þá er vér íslendingar heyrum um hina voldugu baráttu annara þjóða, að stíga feti framar í þessu mikla siðferðismáli, þá er vér beyrum um þá óumræðilegu áreynslu og fórnfýsi, sem það kostar aðrar þjóðir, að stíga smátt og smátt það spor, sem við höfum þegar stigið, og þá er vér vituga, að þær vilja með athygli hlýða á reynslu okkar og skipa fulltrúa okkar við ið gefið út af íslenskum húslestra- bókum, sem voru afarmikið lesn- ar og hafa vafalaust unnið gagn, enda margar verið lesnar upp. Þær eru nú allar orðnar úreltar. Byltingar þær sem orðið hafa á þjóðlífinu íslenska, hafa ekki síð- ur orðið á sviði trúmálanna. * Til þess að þjóðin lesi nú sér til gagns og ánægju guðrækilegar bækur verður að smíða þær eftir nútímans kröfum. Megnið af þeirri andlegu fæðu, sem rann Ijúflega niður fyrir 30 árum, er nú orðin með öllu úrelt fæða. íslenska kirkj- an verður þvi að fitja upp á nýtt, eigi hún að geta gert sér nokkra von um að geta haldið sæti sinu hjá þjóðinni. Vilji hún rækja þá einna þýðingarmestu skyldu sína að sjá þjóðinni fyrir nógum og heilbrigðum andlegum bókakosti, verður hún nú að hefja nýja bóka- útgáfuöld. Og er hér um svo mikið atriði að ræða, ekki einungis fyrir kirkj- una, heldur og fyrir þjóðina í heild sinni, að sá er þetta skrifar finnur ástæðu til að koma að því máli enn, að allir kristindómsvinir í landinu taki höndum saman um að leysa þetta mikla verkefni og láti deilurnar niður falla. Án slikrar samvinnu er lítil von um það, að andlegum leiðtogum þjóðarinnar takist það aö full-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.