Tíminn - 12.06.1920, Qupperneq 2

Tíminn - 12.06.1920, Qupperneq 2
90 TiMIN N Hvítárbakkaskólinn starfar frá veturnóttum til sumarmála næsta skólaár, 1920—’21, og verður 1 tveim deildum. Skólagjald kr 120. Nemendur hafa matarfélag, og verður hver nemandi að leggja fram fulla tryggingu fyrir greiðslu á öllum kostn- aði, er skólaveran hefir í för með sér. Umsóknir um inn- töku í skólann, einnig frá þeim, sem voru í jmgri deild í vetur, séu komnar til undirritaðs fyrir 1. sept. næstk. Hesti í apríl 1920. Eiríkur Albertsson. Lifebuoy-hv er ein hin allra besta amerískra hveititegunda. Biðjið ávalt um þá tegund ef þér viljið fá verulega gott hveiti. Hveitið Tr*uLMi|>etex* er einnig góð tegund þótt það jafnist ekki að fullu við Lifebuoy. Pað er mjög ódýrt eftir gæðum. F*ar sem alt hveiti hefir nú hækkað í veröi er enn*brýnni þörf en el!a að ná í notadrýgstu tegundirnar. aukast. Það er kyrstaða. Ekki vegna þess að áhugann vanti né viljann. Að eins vegna þess að menn taka allan heyskap fram yfir jarðabætur — vegna þess að þær eru of seinunnar og dýrar, eins og þær nú eru reknar. — bað þarf meiri hluta heillar aldar til að slétta bara þau lún sem nú eru til, ef þessu fer fram. Og þetta á þeim tímum er bú- ast má við verðfalli og vandræð- um á alla grein. Aðalstaf Búnaðarfélags íslands verður á næstu árum að vinna að því að breyta nýyrkjunni á þann veg, að hún geti komið í staðinn fyrir útsköfuheyskapinn. Eftir því sem bændur sjá sér fært, að hafa »lágmark heyfengsins« hærra, eftir því fer jarðræktinni örar fram. En þar verður margt að taka lil greina á hverri jörð. Leiðirnar sem hugsanlegar eru til þessa, minnist eg lauslega á hér í blaðinu von bráðar. Á leiðangri mínurn í þjónustu Búnaðarfélagsins í sum'ar, tala eg nánar um það við bændur sjálfa. Reykjavík 10. júni 1920. Valtýr Stefánsson. fjrimastjini jrlanðs. Fyrir nokkru síðan lagði breska sljórnin fyrir þingið hið fjórða frumvarp til laga um heimasljórn írlands. Þetta frumvarp verður á- reiðanlega samþykt af þinginu, en hvort hægt verður að koma þessu í framkvæmd, er harla óvíst. Stjórnin leggur til að írlandi verði skift í tvö löggjafar-umdæmi og hvort hafi silt þing. þessi skift- ing er einkar-merkileg, því fált hefir þjóðunum gengið ver, en að fallast á þess konar skifting rikis- ins, meðan þær hafa ekki verið neyddar til þess af erlendum sigur- vegurum. þessi hugmynd er ekki ný á Englandi, en hún hefir engan byr fengið, fyr en Norlhelifte lávarður tók að skrifa um hana í »Times« í júní í fyrra. Hann sýndi fram á það, að á þennan hátt væri hægt að fullnægja kröfum beggja trúar- flokkanna á írlandi, sem annars myndu halda áfram hinum áköfu deilum, sem geisað hafa í landinu síðan heimastjórnar-hugmyndin kom fram. Menn verða að gera sér það Ijóst, að á írlandi hefir um langan aldur verið háð trúarbragða-stríð í gömlum stíl. Þrír fjórðu hlutar íra tala að eins ensku og þeim sem írsku tala, fer fækkandi,,þrátt fyrir öflugar tilraunir til þess, að halda við hinu gamla máli. Þsð er ómögulegt að draga nokkra skýra línu milli hins keltneska og germanska þjóðernis á írlandi, en trúarbragðalínan er Ijós og ákveðin. Þrátt fyrir alla sína harðstjórn hafa Bretar aldrei reynt að þrengja að móðurmáli íra, en kirkjuna kaþólslcu hafa þeir kúgað á allar lundir. Árangurinn hefir orðið sá, að írska tungan er að líða undir lok, en kaþólska kirkjan-hefir slaðið óhögguð til vorra tíma. Kaþólska kirkjan hefir um langan aldur verið máltarstólpinn í bar- áttu íra gegn kúgun Breta. Hin gamla setning: »Hvert einasta alt- ari í kaþólsku kirkjunni er ræðu- stóll fyrir sjálfstæði írlands« hefir verið í fullu gildi þangað til á allra síðustu árum, eins og eg skal seinna skýra frá. í stjórnarfrumvarpinu er þvi á- kvcðið, að í hinum kaþólska hluta írlands skuli stofnað þing með 128 meðlimum, og í hinum »pró- testantiska« hluta annað þing með 42 meðlimum. Bæði þingin skulu kosin til fimm ára með hlutfalls- kosningum. Bretum er meinilla við hlutfallskosningar, en þó ætla þeir að innleiða þær á Irlandi, til þess að þeir mótmælendur, sem búa í suðvesturhluta landsins geti fengið fulllrúa á hinu kaþólska þingi, og hið sama gildir auðvitað um hina kaþólsku íbúa i mótmælenda- héruðunum norðaustantil. Því að ómögulegt er að draga línuna milli hinna tveggja löggjafar-uindæma þannig, að allir kaþólskir menn væru í öðru, en allir mótmælendur í hinu. Tutlugu manna nefnd úr hvoru þingi á að reyna að koma á fót samvinnu milli beggja þinganna. í þessari nefnd á landstjórinn að veröa formaður. Löggjafarvaldsvið þinganna verð- ur líkt og i breskum nýlendum með sjálfstjórn. hau mega ekki semja lög er snerta konungdóm- inn, útnefning landstjórans, slríðs- sögn, friðarsamninga, utanríkismál, samninga við önnur lönd, her og flota, orður og heiðursmerki, mynt, mál, vog og einkaleyfi, verslunar- mál utan við löggjafar-umdæmið og svo að síðustu: lög frá hinum írsku þingum mega ekki koma í bága við lög er hið brcska parlament hefir gefið, og ákveðið að skuli einnig gilda fyrir írland. Á írlandi skal vera fullkomið trúarbragðafrelsi, og má aldrei skerða það með neinum lögum. Framkvæmdarvaldið er hjá land- sljóranum (Lord-Lieutenant), sem fulltrúa konuugsins. Lög frá þing- unum þurfa hans undirskrift til þess að öðlast gildi. Hann útnefnir ráðuneytin, en verður að taka ráðherrana meðal þingmanna. — Fyrst um sinn skulu samskonar skattalög gilda á írlandi og í Eng- landi og Skotlaudi. Allir skattar eru greiddir til Englandsbanka, síðan er dregin frá upphæð, sem írland á — hlutfallslega eftir fólks- fjölda — að greiða til hers og flota og afborgunar á ríkisskuldum. Þessi upphæð er ca. 330 miljónir króna á ári nú sem stendur. — Hinum tekjunum er svo skift milli löggjafar-umdæmaírlands.hlutfalls- lega eftir íbúatöiu og ákveða þingin þá hvernig þeim skuli varið. Þessi tilhögun er valin með það fyrir augum, að reyna að vinna fylgi hinna kaþólsku íra, því til- tölulega fær ríkið miklu meiri tekjur frá mótmælenda-héruðunum, því þar eru mest auðæfi írlands saman komin, einkum í borginni Belfast, sem er að verða ein af meslu iðnaðarborgum á Brellands- eyjum. .Það á þannig að nota tals- vert af skattgjöldum mótmælenda I þarfir hinna kaþólsku. Landstjórinn er skipaður af kon- ungi til sex ára í senn. En breska stjórnin getur endurkallað liann hvenær sem henni þóknast. Staða hans er ekki buudin við trúar- bragðaskoðanir. Enn freinur eru sett í lögin ýms ákvæði til þess, að jafna deilur er kynnu að koma milli cnsku krún- nnnar og þinganna írsku. Ileimastjórnarlögin ganga í gildi átla mánuðum eftir að þau hafa verið samþykt í parlamentinu, og svo skulu írsku þingin koma saman innan fjögra mánaða frá þeim tíma. Eins og menn sjá, er löggjafar- vald írsku þinganna mjög tak- markað. Þau mál er snerta her- varnir og ríkisheildina og öll við- skifti við önnur riki, eru algerlega lögð undir breska þingið, og þang- að eiga írar að senda 42 þing- menn framvegis. írland fær líkt stjórnarfyrirkomu- Iag og hinar svonefndu »sjálfstjórn- andi« nýlendur Breta, eins og til dæmis Canada og Ástralía. En þróuuin hefir gengið í þá átt, að þessar nýlendur eru orðnar því nær sjálfstæðar og óháðar Breta- stjórn. Mætti búast við líkum á- rangri á írlandi, ef alt gengi til með friði og spekt, en til þess eru nú sem stendur heldur daufar vonir. Hinn gamli írski Sjálfstæðis- flokkur (Nationalist Party) klofn- aði fyrir nokkrum árum, og við kosningarnar í fyrra unnu binir kröfuhörðustu af flokksbrotunum »Sinn Fein« stórkostlegan sigur. En þeir bönnuðu fulltrúum sín- um að taka sæti á þingi og hafa þeir engan þátt tekið í umræðun- um um heimastjórnarlögin, en þeir hafa lýst því yfir, að þeir muni á engan hátt viðurkenna þau, þar eð þau fullnægi ekki kröfum þeirra. »Sinn Fein« á mikið traust að sækja til Ameríku, þvi að þar búa margar miljónir íra og ráða miklu, einkum i borginni New-York, þar sem hinn alkunni írski wTammany- hringur« hefir oft ráðið lögum og lofum. Þessir írsku Ameríkumenn hafa reynt að gera Bretum alt það ógagn, er þeir geta. Ög vegna Ame- ríku er það lífsnauðsyn fyrir Breta að greiða á einhvern hált úr þess- uin írsku vandræðamálum. Sjálfstæðisflokkurinn gamli, er ekki ánægður með lögin, en ætlar þó að taka við þeim, þar eð þau eru spor í áttina til sjálfstjórnar. En hann á erfitt uppdráttar. Kirkj- an, sem hefir borið flokkinu uppi um langan aldur, er að missa vald sitt yfir liuguin manna og auk þess er hún ekki samhuga. Nokk- ur hluti af klerkastéttinni fylgir »Sinn Fein« að málum. Mótmælendur eru heldur ekki ánægðir með heimastjórnarlögin og sama er að segja um hinn ný- stofnaða írska verkmannaflokk. Enda hefir farið svo við meðferð fruinvarpsins í Parlamentinu, að énginn irskur þingmaður hefir greitt atkvæði með því. Pað eru því lítil líkindi til, að friður komist á á írlandi, þó þetta heimasljórnarfrumvarp verði að lögum. »Sinn Fein« mun alls ekki vilja ganga að því, og þeir munu hafa sömu aðferðina og áður. Þeir kjósa þingmenn, en banna þeim að mæta á þingi, Það mun því varla verða mikil breyting frá því, sem nú er. Her- mannastjórnin og lögleysið inun halda áfram. Stjórnin breska hefir ekki annað upp úr þessu, en að hún getur þvegið hendur sinar og sagt við Ameríkumenn og aðrar þjóðir: »Vér höfum gert alt sem við gátum til þess, að sættast við íra og koma þar á friði, en alt strandaði á fjandskap þeirra og sutidurlyndi«. Ástandið á 'írlandi fer alt af versnandi. Næstum því daglega eru þar einhver illverk framin af póli- tískum ástæðum, lögregluþjónar drepnir, tollstöðvar brendar og þess konar. »Sinn Fein« hefir al- gerlega hætt við samningaleiðina, cn ætlar að kúga Breta með sí- feldum hermdarverkum, til þess OrÖasöíriiiii. Eftir Pórberg Póröarson. I. Alþingi síðasta veilti mér 1200 kr. árlega hækkun á styrk þeim, sem eg hefi notið úr laudssjóði yfirstandandi fjárhagstímabil, til þess að safna oiðum og orðasam- böndum úr íslenzku alþýðumáli. Mér þykir hlýða að gera nú stutta grein fyrir starfi því, sem eg hefi þegar leyst af hendi fyrir styrk þann, er eg befl haft fjárhagstíma- bilið sem nú er að líða, nauðsyn- inni á, að því sé haldið áfram og hugmyndum mínum um fyrir- komulag þess í framtíðinni. II. Orðasöfnunarstarf mitt hefir hingað til einkum verið fólgið í því, að komast í kynni við rnenn víðs vegar af landinu, sem eru bú- settir hér í bænum, eða hafa dval- izt hér um stundarsakir og safna orðuin af vörum þeirra. Þar að auki dvaldist eg þó fimm vikna tírna í fyrra sumar við orðasöfnun á VTestfjörðum (einkuin ísafirði og Dýrafirði). En kostnaðarins vegna varð eg að fara mikils til of fijótt yfir land til þess, að sú ferð bæri þann árangur, sem hún hefði getað borið, ef fjárhagslegu ástæöurnar hefðu verið rýmri en raun var á. Nákvæm, tæmandi og kerfisbundin orðasöfnun er með öllu óhugsandi, ef safuandinn getur ekki dvalizt í næði margar vikur eða mánuði í sama Lbygðarlaginu eða héraðinu og átt kost á að leita fræðslu hjá sem flestum.—Einnig hefi eg orð- tekið Númarímur nijög vandlega, eftir ósk dr. Bjarnar heitins Bjarna- sonar. Þannig hefir vinnufarögðum mínum verið hátlað í meginatrið- unum hingað til. Með þessum hætti hefi eg safn- að samtals, hreinskrifaö á þar til gerða seðla, ritað við skýringar eftir því sem föng eru á án frek- ari samanburðar og raðað eftir stafrófsröð um 5600 orðum og orðasamböndum; Þar af eru um 3888 tekin úr mæltu alþýðumáli ög 1712 úr Númarímum. Megin- þorri alþýðuorðanna er kynjaður af Vestfjörðum (ísafjarðarkaupstað, Súgandafirði, Önundarfirði, Dýra- firði og Arnarfirði), töluvert úr Árness-, Rangárvalla- og Austur- Skaftafellssýslu, og loks drefjar hingað og þangað annars staðar af landinu. Aftan við þýðingu hvers alþýðuorðs hefi eg tilgreint heim- ilisfang hennar í skammstöfun, og síðan í júnímánuði 1918 hefi eg fylgt þeirri reglu að tilgreina nafn heimildarmanns míns eða heim- ildarmanna (einnig í skammstöfun) innan sviga aftan við heimilis- fang hverrar þýðingar. Yfir þessar skammstafanir og aðrar, sem fyrir koma í safninu, hefi eg samið eins konar spjaldskrá, þar sem skamm- stafanirnar eru skýrðar og raðað eftir slafrófsröð, og fylgir skráin •safninu. Aftan við skýringu hverja á skammstöfun mannanafna hefi eg skráð örslutta athugasemd um uppeldisstað, þáverandi heimili, stöðu og aldur viðkomandi manns. Þessar alhugasemdir geta komið að góðu haldi síðar, þegar unnið verður úr safninu. Hreinskrifaður seðill lítur þvi hér um bil þannig út: So'IZaCuA'. -Ír-cáiúJ dcoubi í scudðýt+icufi. stcfouf dcuudfl jZfizjcdk txj ■ sft/nj. yV'CuC alfr t <yvu*ui, /CA+ifydoesmi 'þofátuZt JtMMÁ, /yiú. Þess skal getið, að Sigfús Blön- dahl bókavörður fékk afrit af hér um bil einum þriðja hluta alþýðu- orðasafns míns, þ. e. öllum þeim orðaforða, sem eg hafði hrein- skrifaðan í janúar 1918. Eg vænti að ráða megi af skýrslu þessari, að eg hefi þegar leyst af hendi allmikið starf, að minsta lcosti að vöxtum, fyrir styrk þann, sem eg hefi nolið fjárhagstimabilið, sem nú er liðið, eigi sízt þegar þess er gætt, hve orðasöfnun er í raun réttri vandasamt og seinlegt verk. Því að þótt eg hafi ekki hingað til getað geíið mig við kerfisbundinni orðasöfnun, hefir þetta starf mitt samt sem áður verið ærið seinlegt og töluvert margbrotið. Eg hefi fyrst og fremst orðið að temja mér að hafa at- hyglina sívakandi, þar sem nokk- ur minsta von var um fágæt eða einkennileg orð, merkingar orða eða orðasambönd. Eg hefi og orðið að halda spurnum fyrir um menn, sem von var um, að gætu látið einhverja fræðslu í té í þessum efnum, ná siðan tali af þeim, ef þes* hefir verið kostur, og spyrja þá timum og dögum saman spjör- unum úr. Hvert orð, sem mér hefir áskotnast, hefi eg venjulega orðið að skrifa tvisvar sitinum. Fyrst hefi eg hripað það til bráðabirgðar í vasabók, gert mér síðan far um að leita mér frekari fræðslu um það, hvort orðið sé áreiðanlega til á þeim stað og lima, sem mér hafði verið sagt og hvort merking þess sé rétt túlkuð. Þar að auki hefi eg leitast við að grafast fyrir umtak orðsins eða merkingarinnar bæði í rúmi og tíma, að því leyti sem þau tilheyra »nútíðar alþýðu- máli«. Og þótt rannsókn minni á þessu atriði sé mjög skamt á veg komið enn þá, dugir ekki að láta

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.