Tíminn - 26.06.1920, Side 4

Tíminn - 26.06.1920, Side 4
100 TÍMINN Lifebuoy-hveÍtÍð er ein hin allra besta amerískra hveititegunda. Biðjið ávalt um þá tegund ef þér viljið fá verulega gott hveiti. Hveitið Trumpeter er einnig góð tegund þótt það jafnist ekki að fullu við Lifebuoy. Pað er mjög ódýrt eftir gæðum. Par sem alt hveiti hefir nú hækkað i verði er enn brýnni þörf en ella að ná í notadrýgstu tegundirnar. Skrifstofa Sambands ísl. samvinnufél. er íliitt í hið nýja hús þess á Arnarhólstúni. Útborganir eru kl. 10—12 árdegis, hvern virkan dag. fyrir rótgróna óbeit á Bolsevism- anum. Skýringin á þessu dularfulla fyrirbrigði er sú, að milli Breta og Bandarikjanna er að byrja hin mesta viðskifta-styrjöld. Bretar, sem fyr voru öndvegis-þjóðin í verslun, siglingum, iðnaði og pen- ingamálum, hafa nú þokað úr þeim sessi fyrir frændum sínum í Ameríku. Og þeir kunna því illa, sem við er að búast, og það því síður, sem Ameríkumenn eru ærið umsvifamiklir, og láta sér ekki alt fyrir brjósti brenna, þegar um gróða og gull er að ræða. Það sem Bretum liggur lífið á, er að ná tangarhaldi á Evrópuverslun- inni, til að halda með því jafn- væginu við Vestmenn. hetta hefir skapað straumhvörfin i stefnu enskra fjármálamanna gagnvart Bolsevíkum. Og eins og vant er að vera eru aðgerðir landstjórn- anna að eins spegilmynd af vilja fjárafla-stéttanna. — Bretum gengur erfiðlega að koma steinkola-framleiðslunni i sama horf og var. Framleiðslan nægir alls ekki, og verða hlutlausu þjóðirnar þar harðast úti, sem við er að búast, Fyrst koma inn- lendu atvinnuvegirnir, þá banda- menn Breta, Frakkar og ítalir, og fyrst þar á eftir hinir hlutlausu nábúar. Norðurlanda-þjóðirnar vita að þær fá ekki nú í ár nema þriðjung þeirra kola, sem þær voru vanar að fá frá Englandi fyrir striðið árlega. Að vísu er hugsan- legt að fá kol frá Bandaríkjunum, því að þær kolanámur eru þar miklar og góðar. Kolin sjálf eru stórum ódýrarí í Vesturheimi en í Englandi, en flutningur þaðan dýr og erfiður. far að auki er mikil ókyrð í Bandaríkjunum, verkföll og verkbönn daglegir at- burðir, og truflar það stórum fram- leiðsluna. Svíar ætla að bjarga sér með stórkostlegri mótekju. Hafa þeir reiknað út, að þeir eigi elds- neytisforða til heillar aldar í mó- mýrum sínum. En þá yrði að gera brúnkol úr mónuin, og gera Svíar nú þegar all-mikið að því. — Danir kvíða eldiviðarleysinu, og hafa helst sitt traust, þar sem eru beykiskógarnir, þó að eigi sé þeim sársaukalaust, að fella þá niður. En meiri munu vandræðin verða á íslandi, ef ekki tekst að draga að landinu erlent eldsneyti í sumar. — Finnar og Svíar deila út af Álandseyjum. Þær eru um 300 að tölu en margar óbygðar. Eyjar- skeggjar eru um 20 þúsund, allir sænskir að þjóðerni og vilja óvægir sameinast Svíþjóð. En eyjarnar hafa að fornu fari fylgt Finnlandi og vilja Finnar óvægir halda þeim. Hefir finska stjórnin látið taka höndum helstu frelsisforkólfa eyjar- skeggja og flytja til Helsingfors og kasta þar í dýflissu. Svíar una hið versta við, en fara þó að öllu gætilega, því að þeir eru menn prúðir og kurteisir. Þykir og senni- legt, að Finnum verði erfitt að halda Álandseyingum með nauð- ungarvaldi. A. jslesiingar og ðlympiu!eikarnir. Eftir íþróttamótið, ákvað stjórn íþróttasambands íslands, að engir íslenskir íþróttamenn skyldu sendir til Olympiuleikanna í sumar. Mun þessi ákvörðun koma flatt upp á suma, en til þessa eru góðar og gildar ástæður. í flestum greinum íþrótta eru íþróttamenn vorir ekki enn þá búnir að fá nægi- lega æfingu til þess að rétt sé að þeir komi fram á þessu frægasta íþróttamóti heimsins. Betra að bíða nokkur ár og standa sig svo betur. Auðvitað var hægt að senda góða menn til þess að sýna íslenska glímu. En hér er hvorttveggja að vér þyrftum að taka þátt í fleiri íþróttum og svo mun stjórn íþrótta- sambandsins hafa þótt óviðeigandi, að allir bestu glímumennirnir skyldu vera fjarverandi er konung- ur vor kemur hingað í sumar. Því sjálfsagt er að sýna þá eins vel og föng eru til hina einu þjóðlegu íþrótt íslensku þjóðarinnar. í sambandi við ritgerð þá um Beltisglímuna, er birtist hér í blað- inu, mætti geta þess, að flesta, en samt ekki alla, glímumenn vora skortir um of frjálsmannlega fram- komu. íþróttamenn verða að bera sig vel, bera höfuðið hátt og vera »glaðir og reifir«. Falleg og frjáls- leg framkoma skapar meiri samúð hjá áhorfendum, en fáeinir vinn- ingar. Ennfremur má benda mörgum glímumönnum, einkum þeim er utan Reykjavíkur búa á, að þeir verða að vanda betur til glímu- búnings síns er þeir glíma opin- berlega. Þeir eiga ekki að vera svartklæddir eins og syrgjandi konur. Búningurinn ætti jafnan að vera Ijós og smekklegur. Glímukonungurinn okkar sálugi, Sigurjón Pétursson, gæli verið fyrir- mynd glímumanna i fallegri fram- komu og laglegum búningi. S. Fréttir. Tíðiu. Veðrátta hefir kólnað nokkuð síðustu dagana og rignt með köflura. Horfur um grassprettu eru víðast sæmilegar. Steingrími Jónssyni sýslumanni í Þingeyjarsýslu hefir verið veitt Eyjafjarðarsýsla. Landspítalasjóðs-dagnrinn 19. júní var haldinn hátíðlegur eins og undanfarin ár. Var vel til hátíðarinnar vandað, en veðrið ekki sem ákjósanlegast, og spilti það nokkuð fyrir hinu góða mál- efni. Etasráð J. Y. Havsteen á Ak- ureyri andaðist þann 18. þ. mán. Hann var um langt skeið einn af faemstu kaupmönnum á Norður- landi. Itnattspyrnumót íslands er háð þessa daga í Reykjavík. Að eins þrjú félög keppa. Pað eru »Fram«, »Knattspyrnufélag Reykjavíkur« og »Víkingur«, öll héðan úr bænum. Er leitt til þess að vita, að engin félög utan af landi skuli koma hingað til þess að keppa um sig- urinn í þessari fögru og ágætu iþrótt. „Gmllfoss” fór vestur og norður um land 23. þ. m. Fer síðan til Leith og þaðan aftur til Reykjav. Fjöldi farþega var með skipinu. Hallgrímur Kristinsson fram- kvæmdarstjóri kaupfélaganna og Tryggvi Pórhallsson ritstjóri lögðu af stað til Akureyrar 23. þ. m. og fara landveg. Ætla þeir að vera þar á Sambandsþingi kaupfélag- anna, sem hefst 2. júlí. Embættisprófi í lögfræði hafa nýlega lokið við Háskóla íslands: Þorkell Blandon með II. einkunn 862/3 stigs, og Lárus Jóhannesson með I. einkunn 1402/3 stigs. Er það hin hæsta einkunn er tekin hefir verið. Embættisprófi í læknisfræði hafa lokið: Páll Kolka með I. eink., Kjartan Ólafsson I. eink., Helgi Guðmundsson II. eink. og Kristm. Guðjónsson II. einkunn. „Botnía“ kom frá Kaupm.höfn til Reykjavíkur í gær. „Lagarfoss“ er alt af í Kaupm.- höfn; er verið að breyta skipinu, og á að stækka farþegjarúm þess að miklum mun. Búist er við að hinn nýi »Goða- foss«, sem Eimskipafélagið er að láta smíða í Kaupmannahöfn verði tilbúinn um næstu áramót. Elugið. Flugmaðurinn nýi Frank Fredrickson brá sér nýlega til Englands og keypti ýmislegt, sem vantaði til flugvélarinnar. Hann kom einnig með enskan vélfræð- ing til þess að gera við vélina. Svo nú er alt í góðu gengi og flugið að byrja. hann né sumir aðrir læknar fengju þar nægju sína. En þessar kröfur læknanna urðu til þess, að nú gefa þeir ávísan- irnar á lyfjabúðirnar á þvi nær allskonar vín og selja það sjálfir líka, þeir er langt búa frá lyfja- búðum. Spritt láta þeir nú í stór- skömtum »til lækninga« auðvitað. Þegar nú lalað er um, að inn- flutningur áfengis aukist, þá er það vitanlegt, að það er eingöngu Jæknanna skuld. Það eru þeir en ekki alþýða manna, sem brjóta bannlögin, ef áfengi er nolað frá lyfjabúðum eða umsjónarmanni áfengiskaupa fram yfir það, sem beinlínis gengur til lyfjablöndunar og lækninga í einstökum tilfellum. Eg veit það, að læknum er nokkur vorkun í þessu efni, þeir eiga sjálfsagt oft erfitt með að neita góðum kunningja um vín- lögg, og gefa þvi að öllum líkind- um oft út vínseðla, meira af greiða- semi en af því, að þeir vilji brjóta lögin. En það má ekki taka tillit til þessa. Læknarnir verða að fylgja lögunum, það er réltmæt og sjálf- sögð krafa. Sumk halda þvi fram, að mikið af spritti gangi til iðnaðarmanna. Þingmaður Strandamanna sagði á síðasla þingi, að lionum væri kunnugt um, að »iðnaðarmenn þefðu stundura fengið fulia lunnu af áfengi út á áfengisbækur«. Ef þetta er rétt, sem eg vil ekki efa, þá er engum öðrum um það að kenna en lögreglustjórunum, þeir hafa gefið út hinar svonefndu á- fengisbækur. Kemur það hér þá enn fram, sem áður er drepið á, að lögreglu- stjórarnir virða einskis bannlögin, sumir hverjir, að minsta kosti. Eftir bréfi stjórnarráðsins 14.jan. 1918 til lögreglustjóranna að dæma, er það harla lítið, er iðnaðarmenn þurfa af hreinum vinanda. Flestir þeirra hafa hans engin not til iðnreksturs, þeir fáu, er vínanda þarfnast, nota ekki meira en 1 til 2 lítra á ári, þótt þeir hafi 3—4 menn á vinnustofu. Það er því ljóst, að iðnaðar- menn hafa fengið mikið af vín- anda, þrí að hver sá, er einhverja iðn rak, mun hafa íengið nokkuð af honum um tíma, þótt lítilræði hafi það verið móts við það, sem læknar hafa ausið úti. En það, að iðnaðarmenn hafi fengið of mikð, er ekki lögunum að kenna, heldur þeim, sem með lögin fara, stjórnarráðið og lög- reglustjórarnir. Landlæknir fylgir að vísu bann- lögunum, en hann vefst og flækist í allskonar nefndum og embættum. óviðkomandi störfum, og hefir á- hrifum hans þvl gætt miður en skyldi í þeseu máli. Mér virðist að hann hefði þegar í byrjun get- að komið fram með og fengið staðfesta reglugerð, svipaða þeirri, sem nú er fram komin, og hefði þá minni vínaustur ált sér stað en tíðkast hefir. En betra er seint en aldrei. Eftir margnefndum ræðum séra S. St. að dæma, ætlast hann ekki til neins af þeim, sem laganna eiga að gæla. Þeir standa og eiga að standa »magnþrota og ráð- þrota« í þessu máli og því ber að afnema lögin. En slíkri kenningu verður að mótmæla. Ef embættismenn þjóð- arinnar láta það ógert, sem þeim er beint ætlað að gera og sem þeir eru skyldir að gera, þá á þjóðin að taka til sinna ráða, fara svipað að og húsbóndi við hjú, er ekki gegna skyldustörfum sínum, heimta trúlega unnið eða víkja þeim úr vistinni að öðrum kosti. Þjóðin eða þingið verður að fá lögreglustjórum nægilega að- stoð til þess, að halda lögum landsins i heiðri, hvort heldur það eru bannlögin eða önnur lög, og um leið á hún að heimta, að þeir ræki vel starf sitt, annars fer alt á ringulreið. Þetta vita víst allir og sjá. En það er eins og menn veigri ser við að kveða upp úr með það. Þingið setur allskonar lög, en þingmenn tíma ekki að kosta til lögreglunnar, sem vera ber. Þeir eru oft greiðari á smá-bitlinga og allskonar fjárstyrki, er vel mættu hverfa sumir hverjir. Þannig hefir það verið með bannlögin. Þingið hefir enn ekki tímt að kosta neinu verulegu til gæslu þeirra, og þar með óbeinlínis lijálpað til að ala upp smyglarana. Séra S. St. segir, að »áfengis- smyglararnir risti blóðörn á bak þjóðarinnar«, það er vitanlega rétt. En hann hreyfir því ekki, að auka þurfi löggæsluna til þess, að koma í veg fyrir þetta. Það er og ekki smyglunin sjálf — ekki innflutn- ingur vínsins, sem angrar hann, heldur það hve dýrt smyglararnir selja vínið, það er blóðörnin, sem þeir rista, eftir ræðu hans að dæma. Þess vegna vill hann láta hið opinbera taka vínsöluna í sínar hendur, og selja með sanngjörnu verði. Vitanlega mætti það svo vera, ef bannlögin yrðu afnumin — og — þó ekki. — Landinu væri það til vansæmdar, að selja eða taka upp einkasölu á þeim varningi, er áður var með öllu bannaður í landinu, til annars en lyfja. Það yrði líka ekki til annars, en að auka gengi smyglaranna, þeir mundu þrifast afar vel i skjóli Simí 646. 8ími 646. Aktýgi, reiðtýgi, kliftöskur, hnakk- töskur, keyrsluteppi, vagnayfir- breiðslur, fiskyfirbreiðslur og tjöld af ýmsum stærðum. — Ennfremur allar mögulegar ólar til reiðskapar, einnig allir varahlutir í aktýgi. — Beislin ódýrustu og bestu, sem hægt er að fá. Beislisstengur, stórt úrval. — Sérstaklega skal bent á spaðahnakka með lausum dýnum, bæði enska og íslenska, sem eru alment viðurkendir bestu reiðtýgin. Gömul reiðtýgi keypt, seld og leigð. A ð g e r ð i r fljótt og vel af hendi leystar. Sími 646. Siml 646. Söðlasmiðabúðin, Laugaveg 18 B. E. Kidstjánsson. Ksíiara raitar við farskóla MosvalJahrepps í V.-ísafjarðarsýslu. Umsókn sé komin til fræðslunefndar- innar fyrir ágústm.lok. n. k. 1. júní 1920. Frœðslunefnd Mosvallahr. Bækur og ritíöng kaupa menn í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar Kenari ósiast í fræðsluhérað Mýrahrepps. Umsóknarfrestur til 15. júlí. Núpi 7. júní 1920. Frœðslunefndin. ATl Haflð þér gerat kaupandi að Eimreiðinni? Ritstjóri: TryggYÍ ÞórhallBBon Laufási. Sími 91. Prentsmiðjan Gutenberg. vínverslunar landsins — líklega betur en nú. Ef til víll má þrálta um það hve rétt það hefir verið að lög- leiða vínbannið í fyrstu. Sumir halda því fram, að það hefði mátt dragast nokkur ár til en nú betri undirbúnings. En úr því að lögin urðu til og eftir fenginni reynslu af þeim er alveg ástæðulaust, að heimta þau afnumin — meira en ástæðulaust, það væri þjóðar- smán. Eg sé því ekki betur, en að þeir, sem sifelt hrópa afnám laganna, ráðist beint á sæmd þjóðarinnar. Þeir líta ekki á það, hve mikil vanvirða felst í því fyrir hið nýja sjálfstæða ríki, að upphefja lög vegna þess, að það treysti sér ekki að halda þeim í heiðri. Slík uppgjöf má ekki eiga sér stað. Þingið og þjóðin verður að bera þann metnað í brjósti, að láta þvílíkt aldrei koma fyrir. Það verður að efla löggæsluna eftir því sem þörfin krefur, og heimta lögunum framfylgt sóma- samlega í öllu tilliti, Alt annað i þessu efni er og verður skömm og skaði fyrir þjóðfélagið. Gunnar Qlajsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.