Tíminn - 17.07.1920, Síða 2
110
TlMlNN
amerísku eru heimskunnir sem bestu og fullkomnustu
grammófónar er hugvitsmennirnir hafa getað búið til.
Pantið einn slíkan grammófón hjá kaupfélagi yðar eða
kaupmanni með nokkrum plötuin og þér munuð undrast
hve inikill ánægjuauki það verður fyrir heimili yðar, þeg-
ar þetta snildaráhald lætur þar til sín heyra.
Samvinnuskólinn.
Inntökuskilyrði i skólann hafa áður verið aug-
lýst í Tímanum.
Inntökupróf verður haldið fyrstu dagana í okló-
bermánuði næstkomandi.
i Umsóknir verða að vera komnar fyrir lok águst-
mánaðar. í fjarveru minni tekur Tryggvi ritstjóri
Uórhalisson móti umsóknum og svarar fyrirspurnum
viðvíkjandi skólanum.
Reykjavík 25. maí 1920.
Jónas Jónsson.
Rússar láti þá í friði, meðan verið
er að leita samninga. Ef Rússar
vilja ekki ganga að þessu og vilja
halda ófriðnum áfram, þá ætla
Bandamenn að veita Pólverjum
liðstyrk.
— í suðurhlula Rússlands held-
ur Wrangel hershöfðingi áfram
sókn sinni gegn Bolcheviekum.
Sennilega verður sá ófriður þó ekki
langvinnur, því Wrangel hefir mjög
litlum her á að skipa.
— Ýmsar fréttir hafa borist frá
ráðstefnunni í Spa, en endanlegar
ákvarðanir hafa ekki verið teknar
enn, að því er best verður séð.
Mikið hefir verið deilt um kola-
framlög Pjóðverja. Bandamenn gera
svo miklar kröfur um kol, að
Þjóðverjar segjast ekki geta látið
nema tuttugasta hlula af því.
Mitlerand vill láta Frakkland fá
veð í kolaframleiðslu Þýskalands
og láta Bandamenn skipa fasta
kolaeftirlitsnefnd, er hefði aðsetur
í Berlin. Seinni fréttir herma að
Spafundinum hafi verið frestað um
stund vegna ósamlyndis, og mar-
skálkarnir Foch og Wilson verið
kvaddir þangað.
— Hátíðahöldin dönsku á Suður-
Jóllandi hafa verið mjög stórfeng-
leg. Virðist öll danska þjóðin vera
gagnlekin af hrifni yíir því, að
hafa nú fengið landa sína heim/
aftur.
— í Kína gcysar nú blóðugt
borgarastríð. í*að er engin ný-
lunda, því síðan keisarastjórninni
var hrundið, heíir verið næsta róst-
usamt þar í landi.
— Evgenia ekkja Napóleons
þriðja keisara er nýlátin. Lif henn-
ar var harla æfintýralegt og hafa
fáar manneskjur reynt meir hverf-
lyndi hamingjunnar en hún.
Evgenia var fædd 1826 og var
af fálækum spönskum aðalsælíum.
Hún þólti kvenna fegurst og þegar
Napóleon hafði árangurslaust leit-
að sér kvonfangs meðal hinna
konungbornu ætta í Norðurálfunni,
þá tók hann liana fyrir drotningu
árið 1856, móti vilja allra ætt-
menna sinna. Evgenia var ákafiega
glysgjörn, og franska hirðlífið á
hennar dögum var frægt um allan
heim fyrir skraut og óhóf. Hún
fckst einnig við stjórnmál, en ekki
þóttu afskifti hennar heppileg fyrir
Frakkland. Er alment taíið, að
hún hafi átt mikinn þátt í því,
að Frakkar fóru í stríðið við Pjóð-
verja 1870. Eftir ófarirnar miklu
við Scdan í september 1870 var
keisaranuin hruudið frá völdum
og hún varð að flýja til Englands.
Þar dó Napóleon tveim árum síð-
ar, en hún lifði efíir í hálfa öld.
Þau eignuðust einn son, en hann
féll á unga aldri, er hann var i
enskri herþjónustu suður í Afriku.
— Hin alþekla enska verksiniðja
Wickers í Barrow hefir nýlega
smiðað loftskip, sem þykir hið
mesta furðuverk. Það er gert úr
aluminium og er 530 fet að lengd,
70 fet að breidd og 80 að hæð.
Það á að gela Ilogið 4000 enskar
mílur án þess að lenda, og hrað-
inn er 65 mílur á klukkutíma.
Það er ætlast til að gangi fastar
ferðir milli Englands og Ameríku.
— Danir liafa hingað til flutt
mest sitt smjöi' til Englands, en
nú er markaðurinn þar óðum að
minka, því Englendingar fá svo
mikið af smjöri frá nýlendum sin-
um og það er ódýrara. Hafa því
Danir tekið upp þá nýbreylni, að
flytja smjör til Ameríku og hefir
það hepnast, þó undarlegl sé, þar
sem Ameríkumenn framleiða og
fiytja út feikna-mikið af smjöri.
En danska smjörið er miklu betra
og selst þar belur en það innlenda.
Sýnir þelta ljóst hinn mikla dugn-
að og framtakssemi bændastéttar-
innar dönsku.
— Frést hefir að friður sé saminn
milli Bolchevicka og Lilhauen.
Jafnframt eru Pólverjar að yfirgefa
þann hlula aí Lithauen, er þeir
höfðu lagt undir sig.
— Æðsla ráð Alþjóðabandalag-
ins hefir nú lekið Álandseyjamáliö
til meðferðar.
— Stjórnarbylting hefir farið
fram í Bolivia. Er slikt ekki sjald-
gæft í lýðyeldum Suður-Ameríku.
— Dönsk blöð gela þess að
vonbrigði séu enn um kolaflutning
frá Englandi og frá Þýskalandi
fáist engin kol. Eru nú meiri
vandræði fyrir dyrum en nokkurn-
tíma.
Gi'ftssprctta. Mjög misjafnar
horfur með grasspretlu. Norður í
Eyjafirði er grasspretla með besta
móli, bæði á lúnum og engi og
sláltur mun þar ahnent byrjaður
fyrir nokkru. í Skagafirði er út-
litið fast að því eins golt, en í
Húnavatnssýslu verra nokkuð. I
Borgarfirði cru lún löluvert kalin
og byrjar þar sláttur ekki alment
fyr en í næstu viku, og hér á
Suðurnesjum er kalið viða verra
en í liitt eð fyrra og heita túnin
vart Ijáberandi enn.
inni einfalt og þeirri reglu fylgt,
að með ábyrgðinni fylgir valdið
óskorað.
Vel væri fyrir séð um stjórn
hins íslenska þjóðfélags, mætti
hið sama skipulag ráða um stjórn
þess, væri hið sama ríkjandi um
sambúð stjórnar og aldingis, þ. e.
meiri hlúta alþingis. Og það er
ekki til mikils mælst í rauninni
að svo sé, því víða í þingræðis-
löndum nálgast það það mjög að
sambúðin sé slik milli stjórnar og
þingmeirihluta. Fyrsta innlenda
sljórnin islenska átti slikri sambúð
að fagna við þingið og margt væri
nú betur komið hefði sá siður
fengið að haldast í aðalatriðum,
að valdið væri hjá stjórninni, meðan
hún sæti, en eftirlitið hjá þinginu.
Pað er skrípamynd af þingræð-
inu, það ástand s*m nú ríkir, að
þingfð láti stjórnina hanga við völd,
en leyfi henni svo ekki að ráða
neinu, láti ekki standa eftir stein
yfir steini af tillögum hennar. —
Meðan svo er búum við við hálf-
velgju og stefnuleysi um stjórn
lancfsins, framkvæmdaleysi og ótal
möguleika fyr einstaklinga að skara
eld að sinni köku á kostnað al-
menningsheillar. Ráðið við þessari
meinsemd er ekki til nema eitt.
Slerkur meiri hluti kjósenda, með
ákveðinni slefnuskrá.sem sendir ein-
dreginn og samstæðau meiri hluta
inn í þingið, þann er gelur og vill
skipa slerka sljórn og afsala i
hendur hennar því valdi, sem
þingið nú fer með, í beinu trássi
við anda þingræðis-skipulagsins.
Sá kraftur getur ekki komið
nema úr einni átt. Það er ekki
lil nema ein nógu styrk og nógu
heilbrigð stofnun i landinu til þess
að leggja hann til. Það eru sam-
vinnufélögin. Með pólitiskum sam-
tökum samvinnumannanna á ís-
landi, á grundvelli samvinnunnar,
nAin sá meiri hluti myndast. Þá
mun andi aðal-fundar Sambands-
ins llylja inn í alþingi. Þá er von
um að fá heilbrigða, stefnuíasta,
framsækna og sljTka stjórn land-
inu til handa. Tíminn sér snga
von til þess aðra.
tfrá iitlöiicluin.
Rússar hafa unnið mikla sigra
yfir Pólverjum nýlega og sótl fast
frarn. Pólverjar hafa beðið Banda-
menn hjálpaf en fengið daufa á-
heyrn. Loksins hafa þó Bandamenn
lagl það til, að ófriðnum sé hætt
þegar í slað. Pólverjar dragi sig til
baka inn yfir landamærin, en
^mágreinar
úl’ bréfam frá Jónt Jónsstjni frá Slcðbrjót.
VI.
l'jóðernisvavnirnar í nýju stjórn*
arskránni.
• Mig langar að segja fáein orð
um þjóðernisvarnir þær er íslenska
þjóðirt hefir nú lögleitt með stjórn-
arskránni nýju, geri það þó með
hálfum hug, því ekkert vildi eg
það sagl hafa, er aukið gæti kala
milli Austur- og Vestur-íslendinga,
því málið mun viðkvæmt vera á
báðar hliðar.
En ekki ætti það að valda ó-
vináttu, þó báðir hlutaðeigendur
segðu skoðun sina um þetta mál
rneð sæmilegum orðum, því hvað
sem um það er sagl, hvort V,-
ísíéndipgar hafi þjóðlegan réll lil
að ræða málefni íslands, þá mun
enginn neita þeim um rétt til að
ræða þelta mál, því það snertir
þá beinlínis.
Ekki er hægl að neita því, að
meðal íslendinga veslan hafs eru
ýmsir meiin, scm hafa iöngun til
að flylja heim, ahnent er það lík-
lega ckki, en þá skorlir þrek til
að rífa sig upp frá sæmilega góð-
um áslæðum, og það hamlar lika
að endurminningar um ýmsa erfið-
Jeika frá fyrri árum heima draga
úr þeim kjark, ekki síst þeim, og
þeir eru býsna margir, sem ekki
gera sér þess fulla grein hve mikil
breyting er orðin á atvinnuvegum
heima síðan þeir flultu veslur.
Ekki er því að neita, að 5 ára
búsetuskilyrðið, fyrir fullum borg-
ararétti, í stjórnarskránni nýrju,
var löðrungur á vanga þeirra er
heimfýsi hafði hreyft sér hjá.
Vestur-íslendingum fanst það ljóst
vitni um það, að íslendingum
heima væru Vestur-íslendingar engu
kærari innflyléndur en annara þjóða
menn. Eg ætla að nefna að eins
eilt dæmi þess, þó mörg mætti
telja. Eg átti tal um Þetta efQÍ
við bónda nokkurn, góðan og
greindan íslending, sem komist
hefir hér í all-góð efni, en alt af
alið þá þrá i brjósli, að flytja
hcim aftur. Orðréll unimæli lians
við mig, þegar hann heyrði um
5 ára skilyrðið fyrir borgararélti
á íslandi voru þessi: »Eg var að
húgsa um að hætla heimförinni,
þegar eg sá þetta skilyrði, mér
fanst það svo óvinsamlegt í garð
okkar Veslur-íslendinga«.
En heimþráin var slerkari. Nú
cr hann að reyua að sclja iand
silt og lausafé, og hyggur á heim-
ferð, ef það tekst. En trúað gæti
eg því, ef lionum auðnast að kom-
ast heim, og hann finnur margt,
sern andar cins kalt og 5 ára
skilyrðið, i garð þeirra heimkomnu,
að hann hikaði lítt við að snúa
aftur veslur um haf. Þess verður
vel að gæta, að V.-Íslendingar eru
orðnir svo vanir skarpri hlultöku
í almennum málum, að þeim mun
flestum finnasl sér misboðið, ef
þeir verða að silja hjá og mega
ekki greiða atkvæði við kosningar
sem fyrir kynnu að koma fyrslu
5 árin þeirra heima, þó þeir hafi
alla sömu kosti og þekkingu, eins
og mcnn liafa almenl heima til
að dæma uin mál þau er kosn-
ingu ráða.
En eg býsl við þið heima svarið
þvl: »Við gátum ekki haft þetta
ákvæði öðru vísi, því allir sem
inn í landið ílylja verða að hafa
jafnrélti, og 5 ára búsetu-skilyrðið
vildum við hafa«.
Svarið hjá okkur hér veslra
mundi verða eillhvað á þessa leið:
»Það var af því þið trúðuð á 5
ára búselu-skilyrðið, sem elnu
þjóðernisvörnina. En á hinu höfðuð
þið enga trú, sem reynslan hefir
sýut í öllum lönduin, að besla
þjóðernisvörnin er að innflytjand-
inn tali og skilji mál þjóðarinnar,
og þekki sæmilega hagi f hennar,
og það skilyrði mundu Vestur-
íslendingar hafa getað uppfylt«.
Þella þjóðernismál hefir valdið
miklum umræðum hjá Canada-
þjóðinni, sem eins og kunnugt er
hefir ýmsa ólíka þjóðflokka innan
sinna þjóðlegu vébanda, og nú á
siðustu tímum hefir það leilt til
þess, að viss flokkur manna hér
hefir amast við ýmsum þjóðflokk-
um hér og viljað gera þeim erfið-
ara um kosningarétt, og það hefir
komið hjá þessum mönnum ber-
lega í ljós, að orðið útlendingur
(foreigner) er notað sem lítilsvirð-
ingarnafn, um þá, sem ekki eru
af breskum ættum. En af öllum
þeim deilum, sem um þelta hafa
orðið, hefir sú sannfæring sprottið
bæði hjá þeim sem eru andmæl-
endur og meðmælendur útlendinga
að þckking og kunnáttu á málinu,
og þar af leiðandi þekking á hög-
um lands og lýðs, og nánari kynni
og samband við innfædda menn
væri eina ráðið til að gera úl-
lendinga að góðum Canada-borg-
urum, og mynda hér canadiskl
þjóðerni.
í blaði, sem ný-komið er út hér
hefir einn merkur þjéðmálamaður
bent á það, sem besta veg til
þjóðernis-eflingar, að leggja alt
kaþp á, að koma upp scm bestri
alþýðu-kennaraslétl, svo börn út-
lendinga ællu hér sem bestan kost
á góðri fræðslu, og þekking á hög-
um lands og lýðs, því það væri
eini áreiðanlegi vegurinn til að
skapa þjóðernis-tilfinning á æsku-
lýðnum. Hér er 3 ára búsetuskil-
Frá Eyrarbakka.
Ej'rarbakka 4. júlí 1920.
Timi góður!
Eg sendi þér í vor ádrepu um
atburði nokkra, er gerðust hér á
Bakkanum. (Sjá Timann 10. apríl
þ. á.). Eg þykist liafa orðið þess
var, að fréttir þær hafi vakið eftir-
tekt lesenda þinna. Má því vera,
að þér og þeiin sé forvitni á að
vita einhverja grein þeirra tíðinda,
er gerst hafa hér á síðustu tímum,
og þá einkum í sambandi við það,
er fyr ritaði eg um.
Þar er þá til að taka, sem fyr
var frá horfið, að hið göfuga og
hávelborna yfirvald vort Árnesinga
hefir enn ekki tekið fyrir kærur
skólanefndar Eyrarbakkaskólahér-
aðs um skemdir í Barnaskólahús-
inu, þær er eg skýrði frá i vor.
Þykir nú hafa ræst sá grunur, að
ráðið hafi verið að stinga því máli
undir stól. Sýslumaðurinn hefir
enga tilraun gert til að þvo hend-
ur sinar eða réttlæta sig i þessu
máli, enda mundi þurfa meiri bur-
geis til að láta slíka tilraun hepn-
ast. Iívað hann hafa lekið það
ráðið, er slíkum mönnum er hag-
kvæmasl, er þeir komasl í bobba:
að gera sem minst úr öllu saman.
Af atburðum, sem gerst hafa
hér og þýðingu hafa, má fyrst
nefna slofnun Ungmennafélags
Eyrarbakka. Það var slofnað 5.
maí vor og telur nú 48 félaga.
Gekk félagið þegar í samband U.
M. F. í., og hefir því sömu skuld-
hindingu og svipuð lög og önnur
U. M. F.
Á fyrsla fundi sínum ákvað fé-
lagið að koma á námsskeiði í sundi
og öðrum íþrótlum hér á Bakk-
anum, nú í vor. Sundkcnsla hefir
ekki farið fram hér um langan
aldur, og afar-fátl um synda menn.
Sjá þó margir, að svo má ekki
ganga til, og varð mönnum það
einkum ljósl, er það hörmulega
slys vildi til í vetur, að tveir efn-
ismenn druknuðu hér inni á lónum.
— U. M. F. E. var félaust, svo
sem gefur að skilja, þar sem það
er nýgræðingur. Varð það því að
vera sér úli um styrk úr cinhverri
átl. Sneri félagssljórnin sér fyrst
lil sýslufundar Árnessýslu og bað
um styrk til námsskeiðsins, og
svo meðmæli sýslunefndar með því,
að til þess fengist rikissjóðsstyrkur
af fé því, er veilt er lil sundkenslu.
Gerði stjórnin sér að visu litlar
vonir um að sækja gull í greipar
sýslunefndar, því að hún er kunn
að þröngsýni og hefir auk þess úr
litlu að moða; en meðmælin taldi
yrði fyrir borgararétti, og lel eg
þar lítinn inun hvort árin eru
5 eða 3.
Eg lief benl á þelta, sem reynslu
Canada-þjóðarinnar, sem Ilestum
þjóðum framar hefir reynslu í
innflutningsmálum, og væri vel að
íslendingar tækju það til athugun-
ar og reyndu, hvort þeir komast
ekki á þá skoðun, þegar þeir al-
huguðu betur, að þekking á is-
lenskri tungu og góð alþýðufræðsla
mundi vera ekki einungis sú besla,
heldur eina þjóðernisvörnin á ís-
landi.
Það er öllum ljóst, að þessar
svokölluðu þjóðernisvarnir eru til
þess gerðar, að ekki hafi aðrir
áhrif með atkvæði sínu á hag
lands og lýðs, en þeir sem geti
samlagast þjóðinni, kunni inál
hcnnar og þekki hag og horfur
hjá þjóðinni. Hefði sú skoðun verið
jafn-vakandi bjá öllum, sem að
endurskoðun stjórnarskrárinnar
unnu, að þekking á málinu og
þjóðarhögum væri besta þjóðernis-
vörnin, þá sýnisl hefði verið auð-
velt að hjálpa því við, að mál-
þekkingin hefði ráðið, jafnvel þó
5 ára ákvæðið hefði verið látið
standa þeim lil huggunar sem á
það trúa, hefði það ákvæði verið
sett, að þeir sem skildu og töluðu
íslenska tungu fengju borgararélt
eftir eilt ár. En aðrir ekki fyrr