Tíminn - 06.08.1921, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.08.1921, Blaðsíða 1
* V. ár. Reykjavík, 6. ágúst 1921 32. blað I. Seint í marsmánuði síðastliðn- um var haldinn fjölmennur full- trúafundur Norðurálfuríkjánna í Parísarborg, um heimsbaráttuna gegn vínbölinu. Fulltruafundur þessi samþykti þá ályktun sem hér fer á eftir og beindi henni til al- þj(3ðabandalagsins. Hefir fram- kvæmdaráð alþjóðabandalagsins þvínæst birt ályktunina öllum þeim þjóðum sem eru í alþjóða- bandalaginu. Ályktunin hljóðar svo: „Fundurinn lætur í ljós mikla gleði sína yfir því að alþjðða- bandalagið hefir gert gangskör að því að útrýma hinni hvítu þræla- sölu í hinum ýmsu löndum og að það hefir gert ráðstafanir til þess að vernda innfædda kynþáttu gegn áfengissölu.*) Fundurinn leyfir sér að mælast til þess, að alþjóðasambandið, og framkvæntdaráð þess, geri ráð- stafanir til þess að vernda smá- þjóðirnar gegn því, að þær séu — gegn eigin vilja — neyddar til þess, af stórþjóðunum, að hafa á- fengisverslun. Fundurinn lætur þá von í ljós að alþjóðabandalagið styðji þá grund- vallarreglu, að sérhver þjóð megi ltafa óbundnar hendur unt að á- kveða, ltvaða leiðar hún fer unt að tryggja heilbrigði sína og siðferði- lega velferð, án þess að eiga á hættu að lenda í verslunarófriði eða annaiskonar ófriði.“ Með því að birta öllum þjóðum, sem eru í alþjóðasambandinu, þessa ályktun hefir framkvæmda- ráð alþjóðasambandsins lýst sig henni a. m. k. mjög hlynt. pað er þegar orðið langt síðan að ályktunin var þannig birt. II. AlviðurkendUr sannleiki er það orðinn að eitt aðaleinkennið á hinni núverandi íslensku lands- stjórn ei' það að gera ekki neitt, ef það er mögulegt með nokkru móti aS komast hjá því að gera eitt- hvað. Sverðið sem vofði yfir höfði okkar íslendinga út af spönsku samningunum var bein afleiðing þessarar grundvallarreglu í starfs- aðferð stjórnarinnar. Stjórnin gerði bókstaflega ekki neitt, hvorki fyr né síðar, til þess að firra landið því fári. það að frestur fékst í bili, er ekki að neinu leyti landsstjórninni að þakka. það er Dönum að þakka, sem stóðu við hlið okkar næsta drengi- lega. þeir neituðu að rita undir verslunarsamning við Spán nema við fylgdust með. En Spánverjum reið miklu meir á því en Dönum að samningarnir tækjust. Ef til vill kemur það og síðar á daginn að það sé og ýmsu öðru að þakka að fresturinn fékst. Landsstjórnin íslenska leiddi sverðið beinlínis yfir höfuð okkar *) Mcð þessu mun einlcum átt við Indíánana í Bandaríkjunum sem voru á hraðri leið að gjöreyðast, vegna drykkjuskapar. með því að vanrækja að gera það sem átti að gera. Ilún gætti þess vandlega að láta engan íslenskan mann koma næi'ri samningagerðinni á Spáni. Enginn maður mátti vera þar sem gat túlkað málið af íslands hálfu og hafði til þess næga þekkingu á íslenskum högum. Og þó var Sveinn Björnsson í Kaupmanna- höfn, maður sem mátti bera fult traust til í þessu efni, í þjónustu stjómarinnar og hafði þar ekkert að gera. Stjómin gerði jú eitt: Iiún kallaði Svein Björnsson heim til þess að vera við konungskom- una! Var það beinlínis gert til þess að hindra það að nokkurt gagn gæti orðið*að Sveini Björns- syni suður á Spáni? Hún gætti þess og vandlega landsstjórnin að gera ekkert til þess að leita styrks og aðstoðar hjá öðrum þjóðum gegn þessari kúgunartilraun Spánverja. Að svo miklu leyti sem unt var fór stjórn- in með málið eins og barnsmorð. það var varla mögulegt, lengi frameftir, að fá neitt verulegt um málið að vita. Og þó hlaut stjórn- inni að vera fullkunnugt um ofan- ritaða tilkynningu alþjóðabanda- lagsins. þó lá það alveg beint við að vinna í samvinnu við Norðmenn. þó var það vitanlegt að sterk öfl og sterkar stofnanir eru til í heiminum sem ekki munu vilja horfa á það að smáþjóð sé kúguð í liáleitu siðferðis og mannúðar- máli. þó er það vitanlegt að voldug- asta þjóð heimsins, Bandai’íkin í Ameríku, hefir beitt sömu aðferð og ísland um að losna við vínbölið. Að gera ekkert hefír hingað til verið grundvallarregla landsstjórn- arinnai' í þessu máli. Með því að gera ekkert reiddi stjórnin sverðið að höfði okkar. Spurningin er nú þessi: Ætlar stjómin að halda fast við þá reglu áfram að gera ekkert? Sú spurning er næsta alvarleg, því að ekki er fenginn nema þriggja mánaða frestur, og sverð- ið vofir því enn yfir. Af undanfarinni reynslu verður ekki við öðru búist en að stjómin haldi fram fast við regluna að gera ekkert. það verðui' vikið að þeirri hlið málsins í næsta blaði. .o- í íslenskri jarðrækt. Eftir Jón Jónatansson. Jai'ðyrkjuvinnan í Fossvogi undanfarna daga hefir þótt mikil nýjung, og hafa margir af bæjar- búum brugðið sér suðureftir; mun flestum hafa getist vel að, og það er síst furða þó að slík vinnu- bi'ögð sem þar má sjá veki athygli okkar hér, sem lifum ýmist á afar- dýrri mjólk eða í mjólkursvelti, þrátt fyrir það þó nóg sé hér af ræktanlegu landi sem bærinn á, en ekki hefir þótt tiltækilegt að reyna að rækta. Er það því ofur- skiljanlegt að ýmsum finnist sem þeir nú sjái hylla undir einhverja úrlausn á mjólkurvandræðunum, láti sig dreyma um stórfelda jarð- rækt hér og kúabú o. s. frv. En svo mikil nýjung sem vél þessi er og vinnubrögð hennar, þá er hitt ekki minni nýjung, að slíkt nýtísku vinnutæki skuli sjást hér í starfi nær því samtímis eða fáum árum eftir að það kemur fyrst í notkun í nágrannalöndunum. Við erum hinu vanastir að slíkar ný- ungar geri hér ekki vart við sig fyr en að minsta kosti svona ein- um mannsaldri eftir að þær eru þar alkunnar og alment notaðar. það þarf áræði og stórhug til þess að brjóta svo í bág við gaml- ar venjur sem Búnaðarfélagið hefir gert með útvegun vélar þess- arar. þökk sé fyrir; það, hefir með þessu sýnt að það vill fylgjast mfeð tímanum og ekki horfa í kostnaðinn, þar sem líklegt er að finna megi úrlausn á þeim mein- um, sem mest kreppa að íslensk- um landbúnaði. Aðalvélin er að ytra útliti sem hver önnur dráttarvél með hjólum. En aftan á sjálfa dráttarvélina er festur „vals“; er hann settur í samband við drifás frá aflvélinni er snýr honum með geysihraða um 1200 snúninga á mínútu. Á þennan vals eru festir hnífar 100 —150 í senn; hefir vélin 5 eða 6 ganga af þessum hnífum af mis- munandi gerð, eftir jarðvegi og tilgangi vinslunnar. 2 gangar eru sérstaklega ætlaðir fyrir mýri og móa; eru það bjúghnífar, er ann- ar þeirra með stuttum, breiðum hnífum, hinn með mjórri hnífum og lengri. þá fylgja vélinni mis- munandi gerðir af höggspöðum; eru þeir fremur ætlaðir fyrir heiðamóa, þar sem lynggróður er og viðartágar. Hér munu yfirleitt mest verða notaðir bj úghnífarnir. þessi hnífaás tætir þúfurnar sundur í smátætlur og þeytir þeim aftur undan sér í samfeldri gusu. Stilla má hnífaásinn eftir vild þannig að hnífarnir taki niður á mismunandi dýpt. Á báðum endum hnífáássins eru hjól sem bera hann uppi. En ásnum sjálfum með öllu tilheyr- andi getur sá er á vélinni situr og stýrir henni, með einu hafidtaki lyft upp, og helst þá ásinn á lofti meðan vill; er þetta gert þegar vélinni er snúið við eða ekið án þess að hnífaásnum sé ætlað að vinna. Aflvélih hefir 80 hestöfl, gerð hennar er hin sama og bílvélanna sem nú eru hér alkunnar. Benzín er haft fyrir eldsneyti. þegar vélinni er beitt til jarð- vinslu, eru festar afarbreiðar hlíf- ar á aðalhjólin og tilsvarandi hólk- ar á framhjól. Ilefir þetta þau á- hrif að vélin veltur ekki né hrist- ist þó óslétt sé undir né sekkur í þó á blautu sé. Er þessi mikla breidd afarnauðsynleg, enda fer vélin greiðlega og léttilega yfir kargaþýfi. Er það líka óefað mik- il hlífð fýrir sjálfa aflvélina og vélina alla í heild sinni, að vélin líður svo jafnt og rólega yfir; má gera ráð fyrir að þetta tryggi endingu hennar mjög mikið. I heild sinni er vélin bákn mikið. Dráttarvélin sjálf í heilu lagi með hjólum vegur um 4,5 tonn. þetta er að vísu allmikill þungi og hafa sumir óttast að vélin væri of þung t. d. fyrir brýrnar hér austanfjalls. Um það hefir nú verið leitað álits landsverkfræðingsins og telur hann engin tormerki á þessu. Vélin er hæg í stjórn þó þung sé, 'hefir sterkan mótspyrnuútbún- að til að nota þegar farið er und- an bratta á vegi. Mun því ástæðu- laust að óttast að nokkur vand- kvæði séu á að flytja vélina hér á venjulegum akvegi. þá er flutning- ur hennar t. d. yfir skurði ekki miklum vandkvæðum bundinn. Til flutnings yfir mjóa skurði, um 2 m., hafa við reynslu vélarinnar í Fossvogi verið lögð 8X8” tré, 3 hvoru megin undir hjólin, og vél- inni ekið yfh’ á þeim. Sé um mjög breiða skurði að ræða, yrði senni- lega að fylla upp undir hjólin. “ Vélin virðist sérlega vönduð að öllum frágangi og afartraust, tals- vert af varahlutum fylgir henni. Hún þarf að sjálfsögðu góða hirð- ingu, og nákvæmni í meðferð. Vit- anlega þarf líka kunnáttu og æf- ingu til þess að nota hana svo hagkvæmlega sem verða má und- ir ólíkum staðháttum og mismun- andi vinslu á landinu. Verður að á- líta að Búnaðarfélaginu hafi vel tekist að sjá fyrir þessu. Maður sá sem vélinni fylgdi hingað og hefir stjórnað hér að mestu hing- að til, er óefað afburðamaður í sinni grein og þaulæfður í með- ferð slíkra véla nú um fleiri ára skeið. þá má fullyrða að báðir þeir menn sem Búnaðarfél. hefir valið til þess að læra að fara með vél- ina séu mjög vel valdir. Báðir dug- legir og áhugasamir efnismenn, er hafa áður talsverða reynslu í með- ferð véla. Um vinnu vélarinnar verður það af þeirri reynslu sem hér er feng- in, í stuttu máli sagt, að hún er alveg óviðjafnanleg. Með engum þeim verkfærum öðrum er menn þekkja mundi vera unt að vinna jarðveginn svo vandlega og hag- kvæmlega sem vélin gerir; marg- endurtekin plæging og herfing kæmist þar í engan samjöfnuð. Auk djúprar og jafnrar vinslu má telja það höfuðkost við vinnu vélarinnar, að hún skilur grasrót- artætlur eftir ofan á, en þetta er afar mikilsvert með tilliti til upp- græðslunnai'. En hvað kostar svo þessi vinna ? Um það er erfitt að fullyrða nokkuð að svo stöddu, og liggja til þess margar orsakir. Fyrst og fremst verður slík vél að hafa talsvert mikið verkefni í senn á einum stað, langur flutn- ingur milli vinnustaða mundi valda miklum kostnaði. það er nú að vísu vitanlegt, að fyrir þessa vél, sem hingað er komin, er ærið vei'kefni fyrir hendi, fyrst hér í Reykjavík og grend, og síðan aust- anfjalls, og þar fyrst og fremst í sambandi við áveiturnar stóru á Skeið og væntanlega Flóa. Enn er þó vandhæfi á því að áætla hve margir vinnudagar fást mundu á árinu handa vélinni, én við það verðui’ að miða vinnukostnaðinn. Um það hve vélin afkastar miklu má að vísu nokkuð ráða af tilraun- um þeim, sem þegar hafa verið gerðar með hana. Vélin hefir nú verið notuð rúma viku á sama stað. Land það, sem unnið hefir verið, er sundur hólfað af skurðum og' hver reitur milli skurða fremur lít- ill. því minni sem hver reitur er sem tekinn verður fyrir í senn, þess meiri tími eyðist í snúninga. þá hafa reitirnir sumir verið ó- reglulegir að lögun, og hefir það líka á sumum þeirra tafið vinnuna alhnikið að eltast við smáskækla og horn. Enn hefir grjót sumstað- ar valdið nokkrum töfum. Enn- fremur má taka tillit til þess að ýmsar tilraunir og athuganir sem gerðai' hafa verið á vinnu vélarinn- ar þarna hafa hlotið að seinka vinnunni nokkuð, og auk þess er verið að æfa tvo menn í að stjóma vélinni. Alt þettá hlýtur að valda því að vinnan gangi mun seinna en annars mundi. þrátt fyrir þetta alt verður þó niðurstaðan sú, ef reiknað er eftir þessari reynslu, að óhætt mun að fullyrða, að vinn- an verður svo miklu ódýrari en önnur vinna, að engan samanburð þolir. það er nú vitanlegt, að tafir vegna þröngra reita og óreglulegi’a geta altaf komið fyrir, sömuleiðis tafir vegna grjóts, og verður vinn- an að sjálfsögðu dýrari þar sem svo er ástatt, og því ódýrari sem stærri spilda verður tekin fyrir í senn. Vinnunni hefir þarna í Fossvogi verið hagað þannig, að flestar spildurnar — eða allar nema eina — hefir verið farið yfir tvisvar sinnum, ein þeirra hefir verið völt- uð með vélinni sjálfri til reynslu og æfingar. Ein spilda hefir feng- ið aðeins eina umferð og völtun. það er sem sé unt að valta með vélinni sjálfri, og er ekki mjög seinlegt, því aka má vélinni með mesta hraða, og benzíneyðslan við völtun eingöngu er þá aðeins um . Vé af því sem eyðist í fyrri um- ferð við að ryðja. En sennilega væri þó ódýrara og hagkvæmara að hafa í seinni umférð valtara sem tæki yfir bilið milli hjólanna á vélinni og sem festur væri aftan í hana; með því móti mundi mega valta um 4 metra breitt bil í senn, og bensíneyðslan í heild sinni verða minni. Við sléttun til túnræktar mun jafnan mega gera ráð fyrir tveim umferðum og völtun, hvort þess- ar umferðir fara fram í einum svip eða lengri eða skemmri tími er látinn líða á milli, fer eftir á- stæðum, tilhögun með ræktun landsins, árstíma o. fl. Aftur á móti er sennilegt að við engjaslétt- un muni oftast nægja ein umferð með eða án völtunar, og líklega oft- ast án hennar. En til engjaslétt- unar í sambandi við áveitu er mik- ið verkeíni handa slíkri vél sem þessari, hér í austursýslunum. Vélin hefir nóg afl til þess að draga við seinni umferð önnur tæki, sem með þyrfti til ræktun- arstarfanna, svo sem sáðvél, á- burðardreifara, valtara, svo að þessi störf geta öll orðið unnin í einu, og er það mikill kostur, og yfir höfuð er líklegt að vél þessi, þó stór sé, sé í rauninni ekki of stór fyrir íslenska staðhætti, þar sem henni á annað borð yrði við komið. Um það, hvort minni vélar af sömu gerð mundu oss hentari, má að sjálfsögðu deila að óreyndu, en úr því verður ekki leyst nema með reynslu, en ýmislegt bendir til þess, að svo mundi ekki verða. Eins og áður er tekið fram, er erfitt ennþá að gera sér grein fyr- ir hvernig reikna skuli vinnu vél- arinnar til kostnaðar. Forseti Bún- aðarfélagsins áætlar kostnaðinn 300—500 kr. pr. hektar, 100—166 kr. pr. dagsl., og er líklega réttast að láta þar við sitja þangað til fyllri reynsla fæst. þess má þó geta með tilliti til framtíðarinnar, að búast má við lækkandi verði á bensíni, og eins á vélunum sjálfum. Meira. Jónas Jónsson skólastjóri fór utan með Gullfossi. Látinn er í Kaupmannahöfn Jón J. Dalbú trésmiður héðan úr bæn- um.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.