Tíminn - 10.09.1921, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.09.1921, Blaðsíða 2
108 T I M I N N Alþjóðafundur Gruðspekifélagsins í París. Fundur þessi fór fram í júlí síð- astliðnum og hafði Evrópubanda- lag Guðspekifélagsins gengist fyr- ir því að hann var haldinn. Bandalag þetta hefir haldið fundi annaðhvort ár, síðan 1903. Fundirnir hafa verið haldnir í Amsterdam, London, París, Mún- chen, Budapest, Genúa og Stokk- hólmi. Á Stokkhólmsfundinum, sem haldinn var 1913, ákvað Bandalagið að alþjóðafundur skyldi haldinn áttunda hvert ár. Var svo til ætlast að guðspeki- deildir allra landa skyldu senda fulltrúa þangað og taka þátt í fundarhaldinu, eftir því sem kringumstæður leyfðu. Átti fyrsti alþjóðafundurinn að fara fram í París .1915, en sökum ófriðarins mikla var honum frestað þangað til 1921. Við vorum fjögur sem fund þennan sátu af hálfu íslandsdeild- ar Guðspekifélagsins: frú. Aðal- björg S. Níelsson, fröken Sigríður Gunnarsson, þorbergur málfræð- ingur þórðarson og eg. Fundurinn stóð yfir fjóra daga, frá 23. júlí til 27. Dagana á undan voru fundarmenn að streyma til Parísar. Milli þrjátíu og fjörutíu þjóðadeildir sendu fulltrúa, sumar marga. Af Norðurlandaþjóðum voni Svíar langmannflestir á fundi. Frá Hollandi komu 150 manns. Bretar voru og fjölmenn- ir, enda skamt fyrir báðar þessar þjóðir að sækja. Sumir fundar- manna voru ærið langt að komnir: frá Ástralíu, Japan, Indlandi, Cuba og ýmsum stöðum á meginlandi Ameríku. . Ekki vissum við fyrir víst hve margir guðspekinemar voru sam- an komnir í París þessa daga. En sagt var okkur á hótelinu, þar sem við dvöldum, að talið væri að 3000 manns væri aðkomandi í borginni vegna fundarins. Franska deildin á stór og mynd- arleg húsakynni að Square Rapp 4, skamt frá Signubökkum. þar fór fundurinn fram í aðalsalnum, sem raunar er ekki neitt smásmíði. Samt fór nú svo að hann reyndist helst til lítill fyrir fundarmenn, sem munu að líkindum hafa verið á fjórða þúsund. Drógu þrengslin nokkuð úr ánægju fundarins, svo og hitt, að óvenju heitt var í veðri. Suma dagana var hitinn 38° á C. í skugganum og ef til vill stundum orðið enn meiri. Eftir hádegi laugardaginn 23. júlí, fóru menn að streyma inn í fundarsalinn. Var ræðupallur all- stór í öðrum enda, skreyttur lauf- viði og blómum. þar sat forseti, frú Annie Besant og aðalfulltrúar hinna ýmsu guðspekideilda. Fund- ur var settur kl. 2V2 og byrj aði með kórsöng. Að því búnu hjelt forseti frönsku deildarinnar stutta ræðu og bað menn velkomna. þá talaði frú Besant nokkur orð og þvínæst fulltrúarnir hver af öðrum, sem fluttu árnaðaróskir sínar til fund- arins. Mælti hver og einn á tungu sinnar þjóðar, en þó í ræðulok nokkur orð á ensku eða frönsku. Ilöfðum við mjög gaman af að heyra öll þessi mál og bera þau saman, enda þótt við skildum ekki nema sárfá af þeim. Fór mikill hluti dagsins í þessi Vélar Hér taldar heimilisvélar og áliöld, liefi eg nii og venjulega fyrir- liggjandi hér í Reykjavík og ’til sölu á tiltölulega mjög lágu verði. Suðuskápa, fl. sortir, Skilvindur, hinar bestu, Prjónavélar (54—126 prj.), Davis saumavélar, stignar, Patent þvottavélar, ----. vindur, ---- pressur, Steinolíugasvélar, Smj öraukastrokka, Kjötsöxur, Korn- og beinakvarnir, Beina- og fiskúrgangsmylnur, Fóðurskera, Brýnsluvélar fl. stærðir, fyrir vélaljái og tól allsk. Skrifblek í plötum, fl. litir o. m. fl. Gólfþvottavindur, Hjólbörulijól. Sérstalct tækifærisverð og borgunarkjör nú sem stendur á einni fisk- úrgangsmylnu nr. 3 (fyrir 4 hestafla vél), er gerir alt að 2—500 pd. á klukkustund. Ennfremur útvega eg eftir pöntunum ýmsar aðrar og stærri vélar, á ákvæðis- eða verksmiðjuverði, auk flutningskostnaðar, til búnaðar, smíða og ýmisk. iðnaðarfyrirtækja. — Nánari upplýsingar ókeypis. Reykjavík, (Hólf 315. — Sírni 521). Stefán B. Jónsson. Tilboð óskast í 300 tunnur af fóðursíld liggjandi hér á staðnum; tilborð merkt „Fóðursílda leggist inn á afgreiðslu þessa blaðs. ræðuhöld. Um kvöldið var sýndur sym- bólskur leikur eftir Maurice Magre. Var þar tekin til meðferð- ar barátta hins æðra og lægra eðl- is mannsins, sýnt hversu þau tog- ast á um yfirráðin í mannssálinni, uns hið lægra bíður úrslitaósigur að lokum. Var leiknum tekið með miklum fögnuði. það sem eftir var kvöldsins var notað til þess að fundarmenn gætu kynst hver öðrum, og var öllum viðkynningar „cerimonium“ slept. Ávörpuðu menn hverjir aðra eins og gamlir kunningjar. Hefi eg sjaldan eða aldrei betur fundið til þess hve auðvelt er að kynnast þegar aðaláhugamálið er sameigin- legt. Af þeim mönnum, sem eg kyntist þarna um kvöldið, fanst mér mest til um Finna og Hollend- inga. Var eins og við ættum enn fleira -sameiginlegt en aðrir. Fleiri af okkur íslendingunum höfðu svipaða sögu að segja af viðkynn- ingu Hollendinga. Indverja einn hittum við að máli og féll ágæta vel við hann. Hafði hann orð,á því, að sér fynd- ist íslensku nöfnin lík indverskum. Stundaði hann nám við háskól- ann í London. Hann kvaðst fylgja heimspekiskóla þeirra Vivekanan- da og Tagore, og var fullur af eld- legum áhuga. Varð hann glaður við er hann varð þess vís að þor- bergur var aðdáandi mikill Vive- kananda. — Höfðum við mikla á- nægju af þessu kvöldi. Næsta dag hófst fundur aftur á sama tíma og daginn áður. Stýrði B. P Wadía fundi. Hann er all- kunnur og hefir tekið mikinn þátt í Indlandspólitík frú Besant. Var hann annar tveggja, sem settir voru í gæsluvarðhald með henni um árið, þá er Indlandsstjórn þótti hún glæða of mjög sjálfstæðisþrá Indverja. Ekki fanst okkur mikið til þess koma, sem hann sagði þarna á fundinum. þennan dag var rætt um ætlunarverk og hluttöku Guðspekifélagsins í andlegum málum veraldarinnar. Tóku margir til máls og þótti okkur Dr. Haden Guest, Englendingur, tala einna best. Um kvöldið klukkan 9 héldu Frakkar hljómleika í fundarsaln- um. Voru mörg hlutverkin ágæta vel af hendi leyst. Mest fanst okk- ur þó koma til einsöngs er ungfrú Simonet söng, og kom okkur sam- an um, að við hefðum aldrei heyrt jafn hljómfagra kvenrödd. Frú Mudocci lék og afburðavel á fiðlu. — þriðja fundardaginn var rætt um uppeldismál. Var talað um hvað guðspekin hefði að leggja til þeirra mála, með hverjum hætti uppeldi og skólar gætu greiðlegast þroskað bróðurþel milli þjóða, og hver ráð væru best til þess fallin að kynna guðspekilegar hugsjónir um uppeldismál. Urðu umræður miklar, en ekki er unt að skýra nánar frá þeim hér. Síðasta daginn var á dagskrá: hlutverk Guðspekifélagsins í þjóðfélagsmálunum. Stóð umræð- ur yfir tvo tíma. En eftir það fluttu þeir sinn fyrirlesturinn hvor, G. Chevrier og Wadía, sá er fyr var nefndur. Að því loknu var fundi slitið með ræðu er forseti hélt. Og svo að endingu kórsöngur. þrjá fundardagana hélt frú Be- sant fyrirlestra: tvo í Champs- Elysées leikhúsinu og einn í fyrir- lestrasal Sorbonne háskólans. Var aðsókn mikil. þessir fyrirlestrar voru fluttir á frönsku og töldum við því gagnslaust fyrir okkur að sækja þá. En í London hlýddum við á fyrirlestra hennar, 0g undr- uðumst þessa afburða mælsku, sem hún á yfir að ráða,- Einkum er mér fyrir minni síðasti fyrir- lestur hennar í Queens Hall. Mælskukrafturinn var þá orðinn afskaplegur undir ræðulokin. Menn stóðu á öndinni. Og var lík- ast því sem um hana lékju leiftur og hún yrði ung í annað sinn. Samt sögðu sumir að hún væri heldur farin að tapa sér við ræðu1 flutning, enda ekki undarlegt þótt svo væri, þar sem hún er nú kom- in á áttræðisaldur. En þrátt fyrir það bar hún langsamlega af öllum ræðumönnunum, seni eg heyrði til á alþjóðafundinum í París. Jakob Kristinsson. ---0---- Rödd úf sveitinni. Herra ritstjóri! þér hafið undanfarið verið að birta í blaði því, sem þér eruð rit- stjóri að, afstöðu yðar gagnvart svokölluðu „vatnamáli“, sem nú er á dagskrá þings og þjóðar, og hef- ir hún altaf verið á eina lund, sem sé að það að taka vötnin án endur- gjalds út úr lögfestri landareign,sé eignarán eða „vatnarán“, sem þér kallið svo, og hljótið þér að hafa marga á yðar máli. því þó að svo virðist, sem hljótt hafi verið um það nú um skeið, bæði í yðar blaði og öðrum blöðum, þá mun það ekki stafa af breyttum skoðunum á málinu sjálfu, heldur af því, að þeir sem eru hér réttir hlutaðeig- endur gagnvart málinu, styðja yður ekki með ótvíræðummótmæl- um gegn vatnaráninu, bygðum á lands og þjóðar lögum og högum. Og eg álít það rangt af vatna- eigendum, að þegja alveg við þvi, að löggjöfin nú upp úr þurru svo að segja sé að bera vötnin bæði í höndunum og munninum út í sjó og sjávarlöggjöf, löngu áður en þau eru búin að inna af hendi skyldustarf sitt við upplandseig- endur, skyldustarf sem er: að veita hverju svæði, sem þau standa á eða eiga leið um, þau gögn og gæði, sem þau hafa meðferðis, ýmist sem ár og lækir í líkingu við farandsala, sem skilur eftir á hverju býli varning sinn, eftir því sem um semur um kaup og sölu, eða sem standandi veitingaþjónn í líkingu við tjarnirnar og hin svo- kölluðu stöðuvötn, sem eru þó, ef þau eru til nokkurra verulegra nytja, rennandi eins og árnar. Veitingamaður líður það ekki, að gestir hans, sem búnir eru að borga með lögmynt það sem fram er reitt, séu afétnir af óviðkomandi aðskotadýrum, heldur sér um, að einungis borðgestir hans í hvert sinn og á hverjum stað njóti síns keypta verðar. þó að vötnin séu eigi með laga- setningum borin út í sjó, komast þau þangað samt af eðlilegum á- stæðum, og eru þá hoi’fin veg allr- ar veraldar og komin í samx’æmivið löggjöf sjávarins, en meðan þau eru í landinu, hljóta þau að vei’a í samvinnu við landið af því að þau eru bundin af því og í félagsskap við það, með þeim þvei’sum- og langsum-mei'kjum, sem löggjöfin hefir sett utan um hvert eignar- svæði, og að taka þau, vötnin, út úr landareigninni kringum þau, eða nokkui'n part af þeim, finst manni eins og hleypt væri almenn- ingi í úthagann, engið, eða jafnvel túnið. því að vötnin hljóta eins að fylgja hverri landareign, eins og maður getur best skilið á allri lög- gjöf frá byggingu þessa lands og til vorra daga, alveg eins og læk- urinn og lautin, mói’inn og mýrin, vætur og vilpur, hrjóstur og hag- ar, börð og brunasandar, hraun og hávaðai’, holt og gjótur. það er vandi fyrir lítt pennavan- an mann á sjötugs aldri að fara að þæfa á móti þessu fáheyrða vatna- ráni. En af því að eg er Mývetn- ingur og get líka verið þingvell- ingur eða Alvetningur, þar sem til þessa máls kemur, þá stKist eg ekki mátið, þegar eg sá í gegnum öll skrifin, að böndin bárust að Fiskirannsóknir. 25 ára starfsemi. Sumarið 1896 hóf Bjai’ni Sæ- mundsson adjunkt fiskirannsóknir héi' við land og hefir jafnan starf- að að þeim síðan á sumrum. í ný- útkomnum Andvara birtir hann skýrslu um rannsóknirnar árin 1919 og 1920. í lok skýrslunnar gefur hann yfirlit yfir þessa 25 ára starfsemi sína að fiskirann- sóknum og víkur jafnframt að því sem starfað hefir verið í þessu efni af öðrum. En af íslands hálfu hefir enginn annar starfað að rannsóknunum en hann. Skýrslur um í’annsóknirnar hefir hann jafn- óðum birt í Andvara. Eru þær nú samtals orðnar stærðar bók, 900 blaðsíður í Andvarabroti, og er þar stórmikinn og merkan fróðleik að fá. Höfundur kemst þannig að oi’ði um sjálfan sig, að hann hafi verið „nokkurskonar milliliður milli vís- indamanna og íslenskra fiski- manna og þekkingarmiðlari". Er það nú orðið alviðurkent mál að rannsóknir vísindamannanna hafa orðið atvinnuvegunum að hinu mesta liði. Og tvímælalaust er það með öllu að á þessum 25 árum hef- ir Bjarni Sæmundsson unnið sjáv- arútveginum íslenska mikið gagn, bæði með eigin rannsóknum sínum og með því að gei’a fiskimönnum kunnar og heimfæra til íslenskra staðhátta, þær niðurstöður sem fiskifræðingar annara landa hafa komist að. Höf. nefnir einkum þrjú stór- mál, þar sem hann hefir getað gef- ið mikilsverðar leiðbeiningar, út frá eigin rannsóknum og fiski- fræðum og reynslu annara þjóða. Er þar fyi’st að geta fiskiveiða- samþyktanna, sem oft og tíðum bönnuðu notkun veiðarfæra og beitu, en var oft sprottið af þekk- ingarleysi og þröngsýni. Eru þær nú flestar úr sögunni, en menn al- ment famir að nota þorskanet með allri suðursti’öd landsins frá Snæ- fellsnesi til Austfjarða, en sumar samþyktirnar höfðu reynt að út- xýma þeim. — Annað málið voru hvalveiðarnar og áhrif þeirra á fiskigöixgui' og fiskafla, einkum síldar. Munu skoðanir höf. í því efni nú alment viðurkendar og hann mun fyrstur hafa bent á hve síldveiði væri stopul ef menn biðu hennar inni í fjörðum og hvatt menn til að veiða hana í reknet úti á rúmsjó. — þriðja málið eru botn- vöi’pungaveiðarnar. Höfðu sjó- menn alment mikinn ímugust á þeim veiðum í fyrstu, en með rannsóknum sínum komst höf. að þeirri niðurstöðu „að ekki mundi vera nein bráð hætta á því, að fiskurinn gengi til þurðar af völd- um botnvöxpunga, ef landhelgin, þar sem mest er um ungviði þess- ara fiska, væri vel varin, né held- ur að fiskur legðist til lengdar frá miðum af þeirra völdum.“ Geta má þess enn að í fiskatali Gröndals, 1891, eru taldar þektar 66 fiskategundir við ísland, innan við 400 m. dýptarlínuna, en nú tel- ur höf. 124. Ýmislegar nýungar í veiðiaðferðum og beitutöku hefir hann gert kunnar, haft afskifti af silunga- og laxaklaki o. fl. Bjarni Sæmundsson getur því litið yfir mikið og þarft staxf eftir þessi 25 ár. I lok skýi'slunnar vík- ur hann að þörfinni á sjó og fiski- rannsóknum hér framvegis. Telur hann þær bæði sjálfsagðar og nauðsynlegar. Rökstyður hann það með þessum orðum: „í lok síðustu aldar var farið að bera nokkuð á fækkun á sumum dýrmætari flatfiskategundum og smækkun á sumum öðrum fiskteg- undum (t. d. ýsu) í Norðursjó og víðar, og var kent um of mikilli veiði. Vildu menn þá fá vísinda- lega rannsakað, hve mikil brögð væru að þessu og hvað valda mundi. Eins vildu menn fá að vita orsakirnar til hinna miklu breyt- inga á síldargöngum við Norður- lönd, um sambandið milli hvala og fiska, um gagnsemi sjófiskaklaks, um sambandið milli hafstrauma og veðráttu 0. fl. En þá sáu menn, að þeir þurftu að fá að vita svo margt óþekt um lífshætti þessara fiska, og um eðli sjávarins, til þess að geta svarað hinum umræddu og öðrum spurningum. Höfðu að vísu einstakar stofnanir eða einstakir menn í ýmsum löndum unnið mik- ið í þessa átt síðustu tugi aldar- innar, en það vildi verða lítill á- rangur af því starfi, af því að sjór- inn er svo víðáttumikill. Sáu menn þá, að fyrsta skilyrðið fýrir veru- legum rannsóknarárangri væri vís- indasamvinna milli allra þjóða yið norðanvert Atlantshaf og innhöf þess. Varð það svo úr, að stofnað var til áðurnefndrar samvinnu í sjó- og fiskirannsóknum laust eftir aldamótin. Hefir þeirri samvinnu verið haldið áfram síðan, þó að hún færi að miklu leyti út um þúf- ur styrjaldarárin, og mikið hefir áunnist; menn hafa fengið mikla þekkingu á straumum og hita N.- Atlantshafs og á áhrifum þeirra á líf svifjurta og svifdýra, sem eru frumnæring allra æðri sjávarbúa; sömuleiðis hafa menn fengið víð- tæka þekkingu á hrygningu og hrygningarskilyrðum margra nytjafiska, á seiðum þeirra á ýmsu þroskastigi og þýðingu frumnæringarinnar fyrir þau. það hafa fundist áður óþekt fiskimið. þekkingin á lífsskilyrðum skar- kola og vexti hans hefir orðið til þess, að Danir hafa fundið upp á því að flytja kolaseiðin í Limafirði af svæðum, sem þau gátu ekki vax- ið á vegna fæðuskoi’ts, á svæði, -sem að undangenginni rannsókn sýndu sig að vera gott „haglendi“ fyrir þau; og þar vaxa þau eins ört og í Norðursjó, og Danir og Svíar hafa í sameiningu ákveðið lágmarksstærð á þeim fiski af þessari tegund, sem veiða megi og selja. Með ákveðinni veiði á til- teknum svæðum hafa menn reynt að reikna út fjölda skarkolans í Noi’ðursjó og af afla botnvöi’punga þar um nokkur ár draga ályktanir um áhrif botnvörpuveiðanna á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.