Tíminn - 15.10.1921, Page 4
122
T 1 M 1 N N
Fréttir.
porsteinn M. Jónsson alþingis-
maður flytur til Akureyrar í
haust, frá Borgarfirði eystra. Hef-
ir hann fengið veitingu fyrir
kennaraembætti við barnaskól-
ann á Akureyri. Var honum hald-
ið veglegt samsæti nýlega á Borg-
arfirði og fært að gjöf málverk
stórt eftir Jóhannes Kjarval.
Jóhannes Kjaaval málari er ný-
kominn til bæjarins. Hefir hann
dvalist á Borgarfirði eystra lengst
af í sumar. Rómar mjög nátt-
úrufegurð austur þar og kemur
með mikið af nýjum málverkum.
Jón þorleifsson málari, sonur
þorleifs Jónssonar alþingismanns,
hefir opna málverkasýningu þessa
vikuna. Verður frá henni nánar
sagt. Jón er á förum héðan til
Parísar til frekara náms í málara-
listinni.
Atvinnuleysi verður mjög mikið
hér í bænum í vetur. Til þess að
draga úr því, hefir bæjarstjórn á-
kveðið að búa til fiskþurkunarreiti
í Rauðarárholtinu. Ætlar bærinn
síðan að leigja út reitina, enda
hefir verið skortur á slíkum reit-
um undanfarið. Bæjarstjórn leit-
aði til bankanna um lán. íslands-
banki treystist ekki til að lána féð,
og bar því við, að bankinn þyrfti
að minka seðlaútgáfuna mjög. pá
ákvað bæjarstjórn að afla fjárins
með lánsútboði. Er það nú ráðið,
að bæjarstjóm býður út lán, alt að
500 þús. kr. með tryggingu í tekj-
um og eignum bæjarins. Vextir
verða greiddir 6Vfe% á ári. Lánið er
til 20 .ára og afborgast minst 25
þús. kr. á ári og eru skuldabréfin
dregin út með hlútkesti. Lánsfénu
á fyrst og fremst að verja til
fiskreitagerðarinnar og sömuleiðis
til að greiða bráðabirgðalán sem
bærinn hefir tekið.
Botnvörpungurinn „íslending-
ur“, sem var eign dánarbús Elías-
ar Stefánssonar, hefir verið seld-
ur. Verðið var 40 þús. kr.
Frú Stefanía Guðmundsdóttir er
nú komin heim aftur. Hefir dvalist
rúmlega ár hjá löndum vestra og
getið sér hinn ágætasta orðstýr,
eins og vænta mátti.
Fjárprettamál hefir nýlega orð-
ið uppvíst hér í bænum og vakið
mikla athygli. Maður er nefndur
þórarinn þorvarðsson og er vest-
Khöfn að dæma, hefir Guðbrand-
ur, líklega nú nýverið, heimtað að
Jón Magnússon léti hefja rann-
sókn. þessi framkoma Guðbrands
er að öllu leyti hin lofsamlegasta.
Og hún stingur mjög í stúf við
pukursdóm Jóns Magnússonar og
samherja hans úr hinu forna
stuðningsliði Einars Arnórssonar.
Guðbrandur heimtar rannsókn af
því að hann sér, að það er eini veg-
urinn til þeirrar sýknu, sem er
nokkurs virði. Guðbrandur sýnir
með þessu, það sem raunar marg-
ir munu hafa vitað áður, að Guð-
brandur er greindari maður og
með næmari sómatilfinningu held-
ur en sumir þeir menn, sem nú
fara með æðstu völd hér á landi.
V.
Meðferð stjórnar og þings á
þessu máli má tákna með einu
orði: P u k u r. En eins og gengur,
breiðist það mest út, sem pukrað
er um. I mörg missiri hafa tugir
og síðan hundruð manna í Reykja-
vík, út um land, og að einhverju
leyti í Kaupmannahöfn, þingið,
menn í stjórnarráðinu, blaðstjór-
ar, eins og ritstjóri Lögréttu, o.
m. fl., heyrt talað um „land-
ráðamálið“, og jafnvel séð skjöl
þar að lútandi. T. d. að taka hitti
einn sýslumaður úr afskektri sýslu
þann sem þetta ritar, áður en
þingið hafði málið til meðferðar,
an úr Dölum. Fer hér á eftir aðal-
efnið úr frásögn hans um málið.
Hann réðist í vor í vinnu til Guð-
mundar þorlákssonar bónda á
Korpúlfsstöðum í Mosfellssveit.
Brátt fór Guðmundur að fala af
honum peningalán. Varð það úr,
að þórarinn lánaði Guðmundi
fyrst 3000 kr. og síðan 1500 kr.
gegn veði í kúm og hestum Guð-
mundar. Síðar komst þórarinn að
því, að kýrnar voru veðsettar áður.
Upphæðina átti að greiða 15. júní,
en ekki varð af því og um miðjan
júlí fóru þeir þórarinn og Guð-
mundur hingað til bæjarins. Kem-
ur þá Guðmundur með inann til
þórarins sem hann segir að sé
Magnús Sigurðsson bankastjóri.
Segir „bankastjórinn" að Guð-
mundur geti fengið 10 þús. kr.
lán í Landsbankanum eftir 3—4
daga. Fáum dögum síðar kemur
þórarinn aftur til Reykjavíkur
með Guðmundi. Hitta þeir aftur
„bankastjórann“ og segir hann að
það standi við sama um lánið.
Verður það nú úr, að þórarinn
lánar Guðmundi 3000 kr. í viðbót
og átti öll skuldin að greiðast 31.
júlí. Seinna um daginn talaði þór-
arinn við „bankastjórann“ í síma
og segir hann að öllu sé óhætt um
lánið og afhenti þórarinn þá Guð-
mundi þessar 3000 kr. Lét Guð-
mundur koma í móti skuldabréf
sem hann sagði samið af lögfræð-
ingi. Var nú skuldin öll, með kaupi
þórarins orðin 8300 kr. Nokkru
eftir gjalddaga hringir „banka-
stjórinn“ til þórarins að Korp-
úlfsstöðum og segir honum að
Guðmundur geti ekki fengið lánið
fyr en ríkissjóðslánið sé fengið.
— Svo var það loks, nú fyrir
skömmu, að þórarinn leitaði rétt-
ar síns hjá yfirvöldunum. Hefir
bæjarfógetinn í Hafnarfirði tekið
málið til rannsóknar og hefir Guð-
mundur á Korpúlfsstöðum verið
tekinn fastur. Sömuleiðis hefir
Bjorn Gunnlaugsson kaupmaður
hér í bænum verið tekinn fastur,
því að þórarinn þykistrþar þekkja
mann þann sem honum var sagt
að væri Magnús Sigurðsson banka-
stjóri. Loks hefir þriðji maður orð-
ið riðinn við málið, að nafni Stefán
Loðmfjörð. Hann er maður sá sem
Guðmundur sagði þórami að væri
lögfræðingurinn. En Stefán segir
sér með öllu ókunnugt um málið
og þessi ummæli Guðmundar.
Hann hafi ekki gert annað en að
afrita skjöl fyrir Guðmund eftir
uppkasti.
Atkvæði voru greidd um það á
ísafirði nýlega hvort skipa skyldi
og mintist á það að fyrra bragði,
og virtist þekkja söguna út í ystu
æsar. Og að síðustu kemur fyrir-
lestur Guðbrandar Jónssonar í vor
sem leið fyrir fullu húsi í stærsta
samkomusal höfuðstaðarins. Menn
ásaka broddborgarana í Reykja-
vík, sem mest hafa fjargviðrast
um að tíðindamaður í Stokkhólmi
birti þessa sögu, ekki að jafnaði
fyrir að vera of greinda eða víð-
sýna. En þeir hafa sjaldan sýnt
heimsku sína á jafn eftirminnileg-
an hátt eins og í því, að álíta furðu-
verk, að útlendir blaðamenn kynnu
að frétta sögu sem var á jafn
margra vitorði eins og sú, sem hér
ræðir um. Og réttlætistilfinningu
sína hafa þessir sömu menn sýnt
með því að halda við pukrinu, og
varna þar með Guðbrandi og Ein-
ari að fá fulla uppreist, eins og
verða myndi, ef þeir væru sýkn-
aðir af óhlutdrægum dómstóli.
Skeytið frá Stokkhólmi kom til
þess af Parísarblöðunum, sem er
einna harðvítugast í garð þjóð-
verja. Og í umræðunum um málið
'tók aðallega þátt sá hluti Parísar-
blaðanna, sem mest sinnir því, sem
Frakkar kalla hina stöðugu hættu
af þjóðverjum. þeir sem eitthvað
þekkja til, hvernig franskir hægri-
menn líta á aðstöðuna til þjóð-
verja, munu skilja, að hvar í heim-
inum sem franskur blaðamaður
fréttir um gömul eða ný leyniráð
sérstakan borgarstjóra. Var það
felt með 88 atkv. gegn 69.
Embætti. Sveinn ögmundsson
guðfræðingur, sonur ögmundar
Sigurðssonar skólastjóra í Flens-
borg, hefir verið settur prestur í
Kálfholti. — Friðrik A. Friðriks-
son guðfræðingur fer vestur um
haf til prestsþjónustu meðal Is-
lendinga í Saskatshevan. Voru þeir
báðir prestsvígðir á sunnudaginn
var.
Ný útgáfa aukin, er komin út af
hinnu kunnu bók Ólafíu Jóhannes-
dóttur „De ulykkeligste". Fyrri út-
gáfan seldist upp á skömmum tíma
og fá eintök bárust þá hingað til
lands. Nú fæst nýja útgáfan hjá
frk. Ólafíu og kostar 6 kr. bund-
in en 4 kr. óbundin.
Látinn er nýlega á Fagurhóls-
mýri í Öræfum síra Gísli Kjart-
ansson, áður prestur í Mýrdals-
þingum og á Sandfelli.
FjaJlvegirnir. Eins og í fyrra
var aftur í ár unnið að því að bæta
fjallvegina. Verkstjórinn var hinn
sami og í fyrra: Ilalldór Jónasson
frá Hrauntúni. Voru þeir þrír
saman félagar framan af, en einn
veiktist og varð að fara til bygða
24. júlí. Byrjað var að vínna á
Kaldadalsvegi í Sandkluftum fyrir
ofan Hofmannaflöt, aukið við
gömlu steinbrúna og rutt og bætt
niður að Sandkluftavatni. þar var
unnið í rúma viku til 26. júní. þá
var farið norður á Kjalveg. þar
var varðað og rutt eftir föngum
alt sem eftir var á leiðinni frá
Hvítá og norður að Blöndu. Er þá
öll hin nýja leið vörðuð og rudd
vestan Kjalfells. þessu verki var
lokið 9. ágúst. þá var farið til Am-
arvatns hins mikla og rudd og
vörðuð þar sem þurfa þótti leiðin
þaðan og suður að Hólmavaði á
Norðlingafljóti, norðan við þor-
valdsháls. Loks var vegurinn bætt-
ur í kring um Kalmanstungu.
Vinnunni var lokið 29. sept. —
Halldór kom ekki í bygð frá 3. júlí
til 12. ágúst og munu ekki margir
núlifandi menn hafa legið lengur
úti í einu. — Gott verk og þarft
hefir þama verið unnið, og að
sjálfsögðu verður því haldið á-
fram.
Hagtíðindi nýútkomin birta yf-
irlitsskýrslu um búpening í far-
dögum 1920 og um jarðargróða
haustið 1920. — Sauðfénaður var
í fardögum 1920 alls 578,768 og er
sú tala alls rúmum 14 þús. hærri
þjóðverja til að auka vald þýska
ríkisins með nýjum landvinning-
um, þá eru slíkar fréttir tilkyntar
frönsku þjóðinni, til að sannfæra
hana enn betur, ef á þyrfti að
halda, um hina yfirvofandi hættu,
sem Frakklandi sé búin af lævísi
og ágirnd þjóðverja.
VI.
Nú er tvent til. Að halda áfram
að pukra með málið og reyna að
svæfa það. Eða að skifta um að-
ferð. Taka drengilega í sanngimis-
kröfu Guðbrands Jónssonar. Birfa
öll gögn. Leysa upp dulrúnir
þýska bréfsins. Gefa Jóni Dúasyni
Guðbrandi og Einari tækifæri að
segja söguna eins og þeir vita best
um. Gefa Jóni Magnússyni tæki-
færi á að skýra sína afstöðu.
Sömuleiðis Jóhannesi og Sveini að
segja frá „rannsókn" sinni 1920.
Ef allir eru saklausir, og eftir því
vonast menn, þar til hið gagnstæða
reynist, þá er a. m. k. einhvers-
staðar um misskilning og ankana-
lega málsmeðferð að ræða. Og það
er öllum best, að sá misskilningur
hverfi úr sögunni.
En ef haldið er áfram að pukra
hér heima? Hvað þá? Allur lands-
lýður veit um málið. það hefir
vakið eftirtekt í erlendum blöðum.
I Danmörku hafa staðið út af því
allmiklar sennur milli hægri
manna og frjálslynda flokksins.
en 1919. Ám fækkaði á árinu um
4%, sauðum og hrútum um 15%,
en gemlingum fjölgaði um 45%.
Fjölgunin er mest á Suðurlandi:
6%. Nautpeningur var í fardögum
1920 alls 23,498 eða rúmlega 500
fleiri en árið áður. Kúatalan var
nálega hin sama, þó heldur lægri.
Griðungum og geldneytum fækk-
aði um 6%, en veturgamall naut-
peningur fjölgaði um 25% og
kálfum um 4%. Fjölgunin er mest
á Austurlandi. Hross voru í far-
dögum 1920 50,645, nálega einu
þúsundi færi’i en árið áður. Full-
orðnu hrossunum fjölgaði að vísu
um 2%, en tryppi fækkuðu um
8% og folöld um 14%. Geitfé er
talið alls 2010 í fardögum 1920,
en 1817 í fardögum 1919. — Sam-
kvæmt búnaðarskýrslunum heyuð-
ust sumarið 1920 595 þús. hestar
af töðu og 1411 þús. hestar af út-
heyi. Taðan 2% minni en 1919, en
útheyið 2% meira. En sé borið
saman við meðalheyskap fimm
undanfarinna ára, er töðufengur
1920 2% lægri, en útheysheyskap-
ur 6% lægri. Á Norðurlandi einu
var heyskapunnn meiri en í með-
allagi. — Skýrslumar telja að
kartöfluuppskeran hafi orðið 33
þús. tunnur árið 1920. Meðaltal 5
undanfarandi ára er 27 þús. tunn-
ur. Af rófum og næpum var upp-
skeran 11 þús. tunnur. Var 10 þús.
tunnur 1919. En meðaltal fimm ár-
anna á undan var 14 þús. tunnur.
inn höndum, grunaður um þjófn-
aðinn, en hefir ekld játað. Fund-
ust í fórum hans töluvert miklir
peningar. Kvaðst hann hafa grætt
þá á áfengissölu og er nú verið að
rannsaka það.
Látinn er á Húsavík Aðalsteinn
Kristjánsson kaupmaður. Bana-
mein hans var krabbamein.
Látinn er hér í bænum Halldór
Gunnlaugsson verslunarmaður,
starfsmaður við Edinborgarversl-
un í mörg ár.
Sigurður Sigurðsson ráðunautur
er nýkominn til bæjarins úr ferða-
lagi um Dala- og Snæfellsnes-
sýslur.
Fullyrt er það um bæinn að
Morgunblaðsliðið sé búið að á-
kveða þrjá efstu mennina á kosn-
ingalista sínum til landkjörsins
næsta sumar. það eigi að vera þeir
Björn Líndal síldarkaupmaður á
Svalbarðseyri og Jón Magnússon
forsætisráðherra og Gísli Johnsen
kaupmaður í Vestmannaeyjum.
Fálkinn tók tvo botnvörpunga í
þessari viku fyrir landhelgisveiðar
við Austurland og flutti til Seyðis-
fjarðar. Var annar sektaður um
•12 þús. kr. Skipstjórinn af hinu
skipinu þrætti fyrir brotið og er
ekki úr því skorið enn.
Málararnir Jón Stefánsson og
Guðmundur Thorsteinsson1 hafa
dvalist í sumar í Borgarfirði, eink-
um á Húsafelli og Gilsbakka. Jón
Stefánsson hefir opnað málverka-
sýningu nýlega. Guðmundur Thor-
steinsson'ætlar að dveljast hér í
bænum í vetur og kennir teikn-
ingu.
Bjarni Ásgeirsson frá Knarrar-
nesi á Mýrum hefir flutt búferlum
að Reykjum í Mósfellssveit. Eru
Reykir vafalaust mikil framtíðar-
jörð og sennilegt að reka megi þar
fjölbreyttari búskap en víðast ann-
arsstaðar.
Haraldur Níelsson prófessor er
nýkominn heim úr utanför. Sat
hann meðal annars fund sálar-
rannsóknamanna í Kaupmanna-
höfn, flutti þar erindi og vakti
mikla athygli.
t
þjófnaður. Um miðja vikuna
varð það uppvíst að stolið hafi ver-
ið um 1600 kr. úr búð Tryggva
kaupmanns Siggeirssonar á
Laugavegi. Maður hefir verið tek-
Vitanlega gera allir ráð fyrir, að
íslendingar geri hreint fyrir sín-
um dyrum. En ef engin rannsókn
færi fram, eða pukursmeðferð —
hvað yrði þá sagt um „hið unga ís-
lenska ríki“? Myndi það styrkja
trú annara þjóða á því, að sjálf-
stæði íslendinga væri grunnmúrað,
ef endirinn yrði sá, að nábúaþjóð-
irnar sæju, að þótt kvittur kæmi
hér upp um landráð, þó að sá mað-
ur, sem hafður væri mest fyrir
sök, bæði um rannsókn, þó að
nokkur hluti blaðanna heimtaði
rannsókn, þá væri málið samt
svæft, af mönnum, sem borið hefði
siðferðislega ábyrgð á þeirri
stjórn, sem rannsóknin myndi
snerta ?
Að pukra með málið hefir verið
til ógagns allri þjóðinni, en mest
þó Guðbrandi, Einari og stjórnar-
völdum þeim, er haft hafa það til
meðferðar. Hér eftir yrði það ís-
lensku þjóðinni allri til stórtjóns,
ef sömu stefnu yrði fylgt. Jón
Magnússon dómsmálaráðherrahef-
ir borið aðalábyrgðina á meðferð
málsins alla sína stjórnartíð. Hann
ber ábyrgðina enn. Skyldi honum
finnast styrkur sinn svo mikill, að
hann geti ekki unt sjálfum sér
þess léttis að láta þennan bagga á
herðar óhlutdrægra, rannsóknar-
fúsra dómara? J. J.
----o----
Ásgeir Sigurðsson kaupmaður
hefir gegnt „vice-konsúls“ embætti
Breta hér í bænum í undanfarin
14 ár. Hefir hann nú fengið út-
nefningu Bretakonungs sem aðal-
ræðismaður og hefir jafnframt
verið sæmdur bresku heiðurs-
merki.
Svik. Maður kom inn í Söluturn-
inn nýlega, sem kvaðst heita Jón
Björnsson. Bauð hann til kaups
eina „mottu“ af neftóbaki og átti
bitinn að kosta 5 kr. En hann
kvaðst þurfa 100 kr. fyrirfram og
þær fékk hann. En svo leið og
beið og ekki kom hann aftur. Lög-
reglan náði í manninn. Iieitir
hann Sigurður Sigurðsson og hefir
áður komist í kynni við lögregl-
una.
Aðvömn. Enn verður Tíminn að
vara almenning við því að trúa því
sem Morgunblaðið segir um sögu-
lega viðburði. það flutti í gær
langa grein um steinsúlu frá
Egyptalandi sem kölluð er „Nál
Cleopötru“. Er fyrst sagt frá því
því að „nálin“ sé 3500 ára gömul
og þvínæst að meir en 2000 árum
síðar hafi Cleopatra Egyptalands-
drottning látið flytja hana til
Alexandríu. Eftir þessu hefði
Cleopatra átt að lifa um það bil
400 árum e. Kr. b. Skakkar um
það bil 400 árum. — Og þó er enn
varhugaverðara að trúa því sem
blaðið segir um nútímaviðburði.
Önnur aðvörun. Ekki er hitt á-
byggilegra sem Morgunblaðið seg-
ir um fjármál. Á laugardaginn var
birti það grein um fjárhag Pól-
verja. Segir þar að sterlingspund-
ið enska kosti 1100 pólsk mörk, en
danska krónan um 500 pólsk mörk.
Eftir þessari kenningu ætti danska
krónan að jafngilda 5/xl pörtum
úr sterlingpundi. Kauphallirnar
segja að á venjulegum tímum séu
18 danskar krónur í sterlingpundi.
Morgunblaðið segir að dönsk
króna sé þá rúmar 8 danskar krón-
ur. — Svona er því varið um allar
kenningar Morgunblaðsins um
fjármál og viðskiftamál.
Skúli Árnason læknir í Skálholti
hefir sótt um laus frá embætti.
----o-----
Ritstjóri:
Tryggvi þórhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.