Tíminn - 29.10.1921, Blaðsíða 4

Tíminn - 29.10.1921, Blaðsíða 4
130 T I M I N N Kjörkaup fást á tveim góðum hlutum er eg hefi nú fyrirliggjandi: 1. Fiskúrgangs- og beinamylna nr. 3, er malar allskonar bein, fiskhausa (hráblautt sem þurt), — svo og korn með smábreytingu o. m. fl., alt að 2—500 pd. á kl.st., með 3—4 hestafla hreyflvél. Sú vél er ómissandi áhald á hverri einustu veiðistöð. 2. Miðstöðva-lofthitunar-vél „Monroeu, er liitar 1300 rúmfet, brennir mó og hverju sem er, og sparar alt að V4-—x/2 eldsneytis, og mikið rúm; mikla vinnu, óþrifnað og óþægindi, sama-nborið við algenga ofna. Henni fylgir „Waterboiler“ og „Selfregulator“. Hér býðst tækifærisverð af sérstökum ástæðum og langur gjald- frestur, ef þarf, til áreiðanlegs kaupanda. Semjið sem allra fyrst. Reykjavík, — Pósthólf 315 — Sími 521. ©tefán B. Jónsson. Jörðin Neðpi-Háls í Kjós, 29,6 hundr. að nýju mati fæst til ábúðar frá næstkomandi fardögum um 3—5 ára tímabil. Jörðinni fylgja 3 kúgildi og 2 ásauðakúgiidi. Yeiðiréttur fyrir landi jarðarinnar fylgir ekki í leigumálanum. Tilboð um eftirgjald og leigu sendist fyrir 30. okt. til hr. lögfræð- ings B. P. Kalman, hús Nathans & Olsens, Reykjavík. útyegar beint frá yerksmiðjuimi liið yiðurkenda ágæta Mc. Dougalls baðlyf. Hviinberiskraðnr Skóversiuii Hafnarstræíi 15 Selur landsins bestu gúmmí- stígvél, fyrir fullorðna og börn — ásamt allskonar leðurskó- fatnaði, fyrir lægst verð. Q-reið og ábyggileg viðskifti. geta þeir tæplega orðið liðsterkir á þingi. Línumar verða mikið ljós- ari heldur en áður var, er Jón Magnússon kastaði grímunni og fór opinberlega að starfa með Mbl.- liðinu. Fram að þessu ári hafa ýmsir þingmenn, sem talið hafa sig samvinnumenn, talið hann hlutlausan a. m. k. Nú er það ekki lengur hægt. Hver sem styður eða lætur stjórn J. M. hlutlausa hér eftir, hefir blandað blóði við eig- endur Mbl. og fslendings. Sjálfsagt verður ýmsum þingmönnum þungt fyrir brjósti, er þeir standa á gatnamótunum. En vegirnir eru ekki nema tveir til þess pólitiska lífs. Sá þriðji er að draga skip á land. það munu sumir gera — nauðugir þó. En þegar skiftin fara fram, þá getur samvinnan tæplega sætt sig við að eiga parta í mönn- um móti málstað milliliðanna. Sá sem styður óvin samvinnunnar, er óvinur hennar sjálfrar. Steinolíuverslunin. þetta ár hefir landsverslunin flutt inn steinolíu og kept við hinn alræmda ameríska hring hér. Hvað eftir annað hefir landsversl- unin sett verðið niður. Starfsemi verslunarinnar þetta ár hefir á- reiðanlega sparað fslendingum mörg hundruð þúsund krónur á þessum eina lið. Landsverslunin hefir trygt sér sambönd við hinn sterkasta keppinaut ameríska hringsins, sem til er, enskt félag, sem stjórn Breta á meiri hluta 1. Olían kemur frá Perísu og Mesó- pótamíu, en er hreinsuð í Eng- landi. það er fullyrt í bænum, að félag þetta hafi haft mann hér til að semja um að byrgja landið al- veg að olíu, ef stjórnin vildi. En stjórnin hefir vafalaust ekki þor- að. Ekki var þjóðin hrædd. Allir óska íslenska steinolíufélaginu norður og niður. Enginn gat verið hræddur við einkasölu á steinolíu nema þeir sem eiga hluti í útibúi ameríska hringsins. En það eru sumir af helstu eigendum Mbl. og efldustu stuðningsmenn stjómar- innar. Svona er veröldin skrýtin. íslenski anginn af ameríska hringnum verður varla brotinn á bak aftur nema með stjómarskift- um. Hvað segja útvegsmenn og sjómenn um þetta, þeir sem hafa lánað J. M. mest fylgi með því að kjósa á þing Einar þorgilsson, Proppé, Jón Auðunn, Vigur-klerk o. fl. slíka menn? ** -----o---- Ágengni við landssjóð. Landið er að fara á höfuðið. Út- g jöldin eru mikil. Tekjurnar litlar. Ekkert er gert til framfara. Sum- ir búast við, að innan skamms geti landssjóður ekki staðið í skilum með laun embættismanna, hvað þá til verklegra fyrirtækja. Allir skynbærir menn sjá, að taka verð- ur í taumana, ef ekki á alt að sökkva. Verða hér nefnd nokkur dæmi um óþarfa eyðslu, sem úr má bæta. Fjöldi íslenskra embætt- ismanna tekur margföld laun fyrir starfa sinn. Tökum lögjafnaðar- nefndina, Jóhannes, Bjarna og Einar. Alt eru þetta starfsmenn þjóðarinnar á föstum árslaunum. Landið á starfskrafta þeirra. Tveir af þeim eru þingmenn. þeir taka þar aftur kaup og fæðispeninga fyrir starfsafl, sem áður er borgað fyrir. I þriðja lagi eru þeir í lög- jafnaðamefnd. Hafa þar 2000 kr. í árskaup hver og 50 krónur á dag, meðan þeir eru á ferðalagi í nefnd- arstörfum. Með þessu getur kostn- aður við hvem lögjafnaðarmann orðið hátt á 4. þúsund fyrir að skreppa til Danmerkur og vera þar á stuttum fundi. par er starfs- aflið selt í þriðja sinn. Embættis- maður í slíkri nefnd á ekkert sér- kaup að fá, aðeins hóflega reiknað- an ferðakostnað. petta er eitt dæmi af mörgum, er nefnd verða síðar. Á þessum eina lið ætti að mega spara 8—9 þús. kr., hvert ár, þegar nefndin siglir, og 6—7 þús. þegar hún starfar hér heima. þingkaup embættismanna, bú- settra í Reykjavík, sem ekki kaupa menn til að gegna aðalstarfinu, þó þeir sitji á þingi, verður að falla niður. Sá sem landið hefir í vinnu, á að fá lífvænlegt kaup, en ekki margfalda bitlinga, fyrir vinnu sína í þágu landsins. Norsku kosningamar. Norsku kosningarnar fóru fram 24. þ. m. og snerust aðallega um bannmálið. Voru í gamla þinginu 126 þingmenn, en nú var þeim fjölgað og eru 150. Nákvæm at- kvæðatala flokkanna er ófrétt enn. En talið er víst, að úrslitin verði þau, að hægri menn verði 56, vinstri menn 37, kommúnistar 29, bændaflokksmenn 18, jafnaðar- menn 8 og hinir róttæku alþýðu- flokksmenn 2. Aðalbreytingin su, að bændaflokkurinn hefir unnið mörg þingsæti frá vinstri mönn- um og kommúnistar frá jafnaðar- mönnum. Fullyrt verður ekki um það, hve fara muni um bannið. Ilægri menn einir lýstu sig and- víga banninu, en flokkur þeirra er hlutfallslega jafnstór og áður. Vinstri mennimir, kommúnistarn- ir og jafnaðarmennirnir standa fast með banninu og hafa um helming atkvæðanna. Óvissara er um bændaflokkinn. ---o---- Fréttír. Eyjólfur Jónsson málari hefir sýnt myndir sínar undanfarið. Liggur mikið verk eftir hann eftir sumarið. Flestar eru myndimar úr Borgarfirði. það er altaf hlý- leikablær yfir myndum Eyjólfs. það leggur af þeim bæði birtu og yl. þær njóta sín vel í litlum stof- um og eru hin bestu híbýlaprýði. Nokkrar myndirnar eru af útlendu landslagi, frá utanför Eyjólfs í vor. Eyjólfi mun hafa gengið á- gætlega vel að selja myndir sínar. Ritdómur. J. B. ritar dóm um hina nýju kvæðabók Einars Ben- ediktssonar í Morgunblaðið. Hann nefnir þar mörg kvæðin. En hann gleymir alveg einu almerkilegasta kvæðinu. það er kvæðið „Fróðár- hirðin" sem J. B. þorir ekki að nefna í Morgunblaðinu. Hvemig stendur á þessu? Er það af sömu ástæðu og þeirri, að ekki má nefna snöra i húsi vissra persóna? Síra Friðrik Friðriksson kom frá útlöndum með Gullfossi síðast úr ‘sumardvöl í Danmörku. Var hann þar fulltrúi íslensku kirkj- unn á minningarhátíð trúboðsins danska. Hann var ennfremur full- trúi stórstúkunnar á alþjóðafundi bindindismanna sem háður var i Kaupmannahöfn. Síra Friðrik á ótal vini í Danmörku, sem báru hann á höndum sér. Gunnar Hafstein, bróðir Hann- esar, hefir í undanfarin ár verið bankastjóri á Færeyjum. Nú hefir hann látið af því starfi og flust búferlum til Kaupmannahafnar. / Nýi hafnarbukkinn við austur- hlið hafnarmnar verður fullger áð- ui en langt líður. Verður að því hin mesta bót. Meðan botnvörp- ungarnir eru xð veiðum, er hafn- íirbakkinn gam.i alt of lítill. Úr bréfi Dæmalaust finst mér fara vel á því, að sagan sem fór að birtast í Lögréttu, um leið og Lögrétta ánetjaðist kaup- Nýprentað: Sig. Heiðdal: Hrannaslóð, sögur. Svör við Reikningsbók Ólafs Daní- elssonar. Fást hjá bóksölum. SÉu. Mj. Sitsii. mannaklíkunni reykvísku, skuli heita: „Hinn bersyndugi“. það er svo þægileg áminning um það, í hvert skifti sem blaðið er opnað, hvaða blað er hið bersynduga í ís- lenskri pólitík. Franskur markgreifi, du Grim- aldi, hefir dvalist hér í bænum í sumar. Skömmu áður en harm fór gelck hann að eiga unga íslenska rtúlku, þuríði þorbjarnardóttur, sem ættuð er héðan úv bænum og övalist hefir iengi á heimili Finn- boga mágs sins á Búðum. Eru þau hjónin nýfarin til Frakklands. Dánarfregn. í síðastl. júnímán- uði andaðist á Miðfelli í þingvalla- sveit ekkjan Kristbjörg Kristjáns- dóttir, eftir stutta legu í lungna- bólgu, frá 5 bömum, og var hún aðeins 42 ára gömul. Hún var dótt- ir Kristjáns Daníelssonar íshús- varðar á Akranesi. Mann sinn, Jó- hannes Kristjánsson, misti hún úr sóttinni miklu 1918. Síðan hafði hún búið ein síns liðs með börnum sínum. Er elsti sonur hennar nú 17 ára, en yngsta barnið 5 ára. Kristbjörg sáluga var framúrskar- andi þrek- og dugnaðarkona. Hún vann jafnt karla verk sem kvenna og dró ekki af kröftum sínum. þetta snögglega fráfall hennar vakti mjög almenna hluttekningu og hafa menn nú sýnt það í verk- inu með því að bjóða hinum mun- aðarlausu börnum fóstur. Kunnugur. Úr bréfi úr Eyjafirði: ,,----Illa líkar mér við suma þingskörungana, sem í fyrra börð- ust mest móti innflutningshöftum og landsverslun. Flokkur sá, sem nú rís upp móti Morgunblaðs- og íslendingsliðinu verður að hafa bæði samvinnu og landsverslun á dagskrá sinni. Hvað á við á sínum stað. Nú við landkosningarnar, og síðar við almennu kosningarnar verðum við að hafa flokk manna, sem er alráðinn í að ganga milli bols og höfuðs á öllum bannsettum áhættubröskuram, sem verja veltu- fé þjóðarinnar til gróðabragða eft- ir sínu höfði og setja þjóðina í æ meiri vanda. Sjálfstæði þjóðarinn- ar er í veði. Fari það, fer fleira". Silfurbrúðkaup áttu uro síðustu helgi: frú Stefanía leikkona Guð- mundsdóttir og Borgþór Jósefsson bæjargjaldkeri. Barst þeim fjöldi heillaskeyta og kvæða. Magnús Kristjánsson forstjóri landsverslunarinnar fór utan með Gullfossi síðast. Mun meðal annars vera að undirbúa ríkiseinkasöluna á tóbaki. Maður hvarf nýlega á Akureyri og er haldið að hann muni hafa druknað. Iiét hann H. Bebensee, þýskur að ætt og stundaði klæð- skeraiðn þar í bænum. Jón þorleifsson. Jón er sonur þorleifs alþingismanns á Hólum. Hann hefir fengið hið besta upp- eldij sem Islandi er unt að veita listamannsefnum sínum, þar sem hann er alinn upp í Hornafirðin- um, Eden íslenskrar landslagsfeg- urðar. Náttúran þar virðist sjálf hafa leitt hann út á listamanns- brautina, því ekki mun þar til að dreifa mannanna áhrifum. þó ung- ur sé, hefir Jón þegar málað lengi. Hann hefir einu sinni áður sýnt myndir eftir sig hér í Reykjavík, og vöktu þá myndir hans athygli. Nú er nýafstaðin sýning á mynd- um hans frá í sumar. Er um mikla framför að ræða og hlutu mynd- irnar einróma lof. Hann hefir og haldið sýningar víðar um landið í sumar og verið hvarvetna vel tek- ið. Jón er ekki í tölu þeirra mál- ara, sem ætla sér að gera betur en skaparinn og breyta bæði línum og litum svo afkáralega, að úr verður hreinasta hrákasmíð. Myndir hans eru eðlilegar, og þó „stíliseraðar". Iiann hefir sérstaklega gaman af að leysa landslagið upp í fleti, gras- og skriðugeirum og kletta- beltum. Glöggur einstaklingsblær Páll J. Ólafson D. D. S. tannlæknir Pósthússtræti nr. 7. — . Herbergi nr. 39. Sími 501. — P. 0. Box 551. Reykjavík. iiíif Reykjavík. Pósthólf 122 Simi 228 selur kornvörur, kaffi, sykur o. m. fl. —- — alt með lægsta verði. — — Fljót afgreiðsla! Áreiðanleg viðskifti. þakkarávarp. Innilegt þakklæti votta eg öll- um þeim, sem hjálpuðu mér í veik- indum mínum í sumar. Sér í lagi ber mér að minnast heiðursfólks- ins á þykkvabæjarklaustri (aust- urbænum), og Norðurhjáleigi, með innilegu þakklæti, þar sem það tók mínar byrðar sér á herð- ar og linuðu þrautir mínar og minna með ástúðlegri hjúkrun og umhyggju. Og bið eg góðan guð að launa því af ríkdómi sinnar náð- ar, fyrir þess göfugu mannkær- leika og hjálpfýsi. þykkvabæjarklaustri (Vesturb.) Brynjólfur Oddsson. Brúnn hestur tapaðist frá Varmá' í Mosfellssveit í vor. Meðalhestur að stærð, fax og taglrýr, hæruskotinn í fax. Mark: biti fr. hægra. Hver sem kynni að hafa orðið var við þenn- an hest, geri svo vel og gjöri að- vart Pétri Jóhannessyni, Njáls- götu 36 b., Reykjavík, sími 978. Jörð til sölu. 12 hndr. að fomu mati í jörð- inni Botni í Súgandafirði í Vestur- Isafjarðarsýslu fæst til kaups og ábúðar frá næstu fardögum(1922). Listhafendur snúi sér til undirrit- aðs. Botni í Súgandafirði 8. okt. 1921 Guðm. Ág. HaJIdórsson. er yfir öllum hans myndum. I vet- ur mun Jón dvelja við nám í París- arborg. það er jafnan gleðiefni þegar íslenskir námsmenn. setjast að í höfuðbólum menningar. Tím- inn óskar Jóni góðrar ferðar og er þess fullviss, af þeim myndum, er hann nú hefir sýnt, að hann muni lenda í tölu útvaldra, er hann nær fullum þroska. Látinn er á Mosfelli í Mosfells- sveit Gísli Jónsson, tengdafaðir síra Magnúsar þorsteinssonar á Mosfelli. Jakob Thorarensen. Tíminn von- ast eftir því að geta við og við eftirleiðis birt kvæði frá Jakobi Thorarensen skáldi. Væntir þess að lesendum þyki fengur í því, því að Jakob er einna snjallastur yngri skáldanna. Náhvalstönn hefir Náttúrugripa- safninu nýlega borist að gjöf frá Sigurði kaupfélagsstjóra á Lauga- bóli. Er tönnin 84 þumlungar að lengd og hin mesta gersemi. Er það þakkarvert þegar menn sýna Náttúragripasafninu þá velvild, að senda því sjaldgæfa náttúrugripi. Tönninni hefir nú verið komið fyr- ir á sai'ninu, og getur almenning- ur þar fengið að sjá hana. 195 nemendur eru í mentaskól- anum. ísland kemur frá útlöndum á morgun. Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson Laufási. Sími 91. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.