Tíminn - 20.05.1922, Síða 3
T I M I N N
75
Eignir:
1. Húseignir, lóðir, skip, uppskipunartæki, versl-
unaráhöld o. fl............................. kr. 2.575.976.70
2. Verðbréf, víxlar og ávísanir.....................— 182.214.31
3. Vörubirgðir, útlendar............................— 2.440.058.60
4. — innlendar.................................— 1.261.230.83
5. Bankar og sjóðir.................................— 236.669.42
6. Félagsmenn . ....................................— 3.752.296.99
7. Aðrir viðskiftamenn..............................— 1.085.275.55
8. Fyrirfram greiddir vextir og kostnaður . . — 34.547.95
9.. Peningar í sjóði................................— 374.431.94
10. Tekjuhalli.................................... — 109.106.40
Kr. 12.051.808.69
S k u 1 d i r:
1. Innstæða Innlánsdeilda........................kr. 850.769.66
2. — Varasjóða..................................— 493.191.17
3. — , Stofnsjóða............................— 1.329.709.12
4. — annara sjóða . . . ................. . . . — 242.150.31
5. Eftirstöðvar andv. innlendrar vöru..............— 191.041.08
6. Bankar og sjóðir.......................... . . — 6.947.374.91
7. Félagsmenn.................................. . — 720.530.19
8. Aðrir viðskiftamenn.............................— 1.185.519.65
9. Tekjuafgangur...................................— 91.522.60
Kr. 12.051.808.69
neðstu hæðina. Ljósmæðraskólan-
um, sem þar hefir verið, leigjum
vér framvegis á þriðju hæð í stof-
um Samvinnuskólans. Starfsmönn-
unum er og verið að fækka mik-
ið. Tveir fóru síðastl. vor og fjór-
ir eða fimm fara um þessi mán-
aðamót. Eg skal játa, að hægt
hefði verið að láta sumt af þess-
um starfsmönnum fara fyr, því
störfin hafa altaf farið minkandi
eftir því, sem innkaup félaganna
hafa takmarkast meir og vöru-
forðinn hér gengið til þurðar. En
í atvinnuleysi því, sem nú er,
taldi eg það ekki rétt að kasta
starfsmönnum vorum út á gadd-
inn að haustlagi eða um miðjan
vetur. Sæmd Sambandsins lá við
að slíkt yrði ekki gert fyr en úti-
vinna byrjaði.
I þessu sambandi má minna á,
að samvinnulögin spara oss mikil
útgjöld framvegis, frá því sem
verið hefir áður. Síðastliðið ár
nam skattgreiðsla Sambandsins í
ríkissjóð kr. 46.970.00, og útsvar
til bæjarins kr. 25.000.00. það
munar um minna en nálega 72
þús. kr. á einu ári. Sambandið
hefði sparað af þessu yfir 50 þús.
kr., ef skattur þessi hefði til orð-
ið undir vernd samvinnulaganna.
pá kem eg að þeim þættinum
á verksviði Sambandsins, sem
mestu varðar, auk sölu gjaldeyris-
varanna, en það eru peningamálin
yfii’ höfuð og skuldirnar bæði út
á við og inn á við. Sá þáttur hefir
ekki verið auðveldur viðfangs síð-
ustu 10 mánuðina, og býst eg við,
að flestir giski á það af nokkurri
eigin reynd. það þarf meira en
rétta út hendina til undirskrifta
skuldaviðurkenninganna til þess
að fá þá peninga í útlendum og
innlendum bönkum, sem nauðsyn-
legir eru til þess að Sambandið
geti lánað deildum sínum vörur
og peninga, sem þær geta ekki
komist af án. Og sennilegt er
það, að Sambandið hefði neyðst
til að hætta störfum sökum skorts
á lánsfé síðastl. ár, ef það hefði
ekki verið áður búið að skapa sér
örugt álit og traust erlendra við-
skiftamanna sinna.
þegar kolaverkfallið mikla stóð
yfir í Englandi síðastliðið vor,
varð mikil tregða á flutningi
danskra landbúnaðarafurða þang-
að, sem mun hafa verið orsök
þess, að Samvinnubankinn danski
varð að kippa að sér hendinni
með lánveitingar til Sambandsins
í bili, og hjálpaði þá það,
að vér höfðum það traust að
mega greiða dönskum firmum
vörurnar með þriggja mánaða
víxlum.
Samvinnubankinn danski gekk
mjög hart eftir að vér minkuðum
mikið skuld vora við síðustu ára-
mót frá því sem verið hafði við
ársbyrjun 1921. Svo fór og að hún
minkaði úr rúml. 1400 þús.kr. nið-
ur í um 850 þús.kr. Framkvæmda-
stjóra Guðm. Vilhjálmssyni hepn-
aðist að útvega Sambandinu 25
þús. sterlingpunda lán hjá banka
í London, sem meðal annars mun
mega þakka því, að vér höfum
fasta skrifstofu í Leith, því lánið
er aðeins veitt í þeim tilgangi að
styðja vörukaup frá Bretlandi.
Fast skilyrði var að lánið yrði
að fullu greitt fyrir árslok, enda
var því fullnægt. Sömu upphæð
höfum vér fengið yfirstandandi
ár með sömu greiðsluskilyrðum.
Consul Zöllner í Newcastle
skuldaði Sambandið við ársbyrj-
un yfir hálfa miljón kr., og var
sú skuld greidd að fullu á árinu.
Ástæður Sambandsins í útlöndum
við síðustu áramót voru því mikl-
um mun betri en við áramótin
næstu á undan. Enda varð svo að
vera til þess það gæti haldið á-
fram að lána félögunum vörur.
Aftur á móti óx skuldin við
Landsbankann stórkostlega. Hún
var við síðustu áramót rúml. 2V&
miljón kr. * Landsbankinn er nú
mjög tiægur til að auka skuldina,
sem skiljanlegt er frá viðskiftun-
um síðastliðið ár, og er það orsök-
in til þess, að Sambandið getur
nú ekki annast peningagreiðslur
fyrir félögin í eins stórum stíl og
áður hefir verið, fyr en gjaldeyris-
vörur þessa árs fara að seljast.
Víxilskuld Sambandsins við
Landsverslun um áramótin var
790 þús. kr., auk nokkurrar upp-
hæðar í viðskiftareikningi, sem
var greidd áður en Landsverslun
lokaði reikningum sínum.
Allar bankaskuldir Sambands-
ins utan lands og innan, ásamt
Landsverslunarskuldinni og skuld
við erlend firmu, nema — þegar
frá er dregið inneignir í bönk-
um og hjá erlendum firmum -og
hluti af láni því, sem hvílir á m.s.
„Svala“ — samtals rúml.4 miljón-
um og 400 þús. kr. Jafnframt er
rétt að geta þess, að óseldar
gj aldeyrisvörur í vörslum Sam-
bandsins um áramótin, aðallega
kjötið, munu nema um 900 þús.
kr. Sé þetta dregið frá, verður
fyrnefnd skuld um 31/2 miljón kr.
pá skulu athugaðar skuldirnar
inn á við. Hjá Sambandsdeildun-
um er útistandandi tæplega 3
miljónir og 900 þús. kr., og hjá
félögum utan Sambandsins og
öðrum viðskiftamönnum 220 þús.
kr. eða samtals um 4 milj. og
100 þús. kr. Sé dregið hér frá
andvirði hinna óseldu gjaldeyris-
vara, sem áður er nefnt, og að
mestu leyti er eign þessara
skuldunauta,, verða útistandandi
skuldirnar nálægt 3 milj. og 200
þús. kr.
Við samanburð fjárhagsreikn-
ingamja 31. des. 1920 og 31. des.
1921 kemur í ljós, að útistandandi
skuldir hafa vaxið síðastl. ár um
rúml. 356 þús. kr. En jafnframt
er þá vert að athuga, að óseldar
gjaldeyrisvörur við síðustu ára-
mót nema um 650 þús. kr. minna
en við næstu áramót á undan.
Lætur þá nærri að skuldir 'við-
skiftamanna Sambandsins inn á
við séu um einni milj. kr. hærri
þegar allar gjaldeyrisvörur eru
seldar nú, heldur en var síðastl.
ár við lok sölu gj aldeyrisvar-
anna þá. þetta er nú að vísu mjög
athugavert, en sé litið á málið
með sanngirni, má finna nægar
afsakanir yfirleitt, þótt mjög sé
það misjafnt um hin einstöku fé-
lög. Samvinnufélögin stiltu yfir-
leitt pöntunum sínum mjög í hóf
síðastliðið ár, og engan grunaði
alt fram að síðasta ársfjórðungi,
að verðfall gjaldeyrisvaranna
yrði eins gífurlegt og raun varð
á. Mun verðfall þetta nema full-
komlega eins miklu og því, hve
hagur manna hefir versnað á ár-
inu. Eg játa, að skuldir félaganna
og þar af leiðandi Sambandsins
eru miklar og að svo búið má alls
ekki standa, en að félögin yfirleitt
ásamt Sambandinu eigi ámæli
skilin fyrir þær og að nokkur
veruleg hætta sé á ferðum, því
neita eg afdráttarlaust. Sannleik-
urinn er, að hvortveggja hafa
siglt furðu vel fram hjá skerjum
þeim mörgum, sem aðrir hafa
strandað á. Hver verður niður-
staðan, ef samvinnufélögin eru
borin saman við fiskhringinn sál-
uga hér í Reykjavík, mörg togara-
félögin, síldarútvegsmenn um alt
land, mótorbátafélög og nokkra
heildsala og kaupmenn, sem ann-
aðhvort eru orðnir gjaldþrota eða
rétt við það að fara á höfuðið?
Fjármunatap þessara félaga og
einstaklinga skiftir tugum milj-
óna, og margir þeir, sem áður
voru stórríkir, eru nú eignalausir.
Ýmsir af þeim mönnum, sem hér
eiga hlut að máli, hafa þó verið
taldir miklir fjármálamenn, sum-
ir meðal þeirra allra bestu, sem
þjóðin á til.
Ekki virðist samanburðurinn
hér óhagstæður fyrir Sambandið,
eða kemui' nokkrum í hug að það
hafi til að bera einhverja þá ó-
skiljanlegu eiginleika, vitsmuni
og orku, sem eigi að geta varnað
íslenskum samvinnumönnum frá
því að verða nokkuð varir við það
alheimsböl, sem er afleiðing
styrjaldarinnar miklu.
Skiljanlegt er það, að keppi-
nautar og mótstöðumenn sam-
vinnufélaganna reyni að nota sér
örðugleika þá í fjármálum, sem
nú standa yfir, til þess að vekja
toi'trygni og ugg þekkingarlítilla
og talhlýðinna manna gegn félags-
skapnum og grípi handhægasta
vopnið, sem eru skuldimar, en
íinsvegar er það vitanlegt öllum
góðum drengjum, að ekkert er
það annað en auðvirðilegasti ó-
drengskapur að ráðast á fjárhags-
ástæður einstakra manna eða
stofnana, ekki síst á fjárkreppu-
tímum.
En hvað er að segja um það,
þegar sambandsdeild eða deildir,
sem sjálfar stórskulda Samband-
inu, fara að átelj a það fyrir skuld-
ir deildanna yfirhöfuð? Virðistþar
farið aftan að siðunum, því frek-
ar mun það vera venja að lánar-
drottinn ávíti skuldunaut fyrir að
standa ekki í skilum, heldur en
hitt, að skuldunautur ásaki lánar-
drottinn fyrir hjálpina.
Sem betur fer hefir ekki bor-
ið á þessu nema í örfáum deildum
Sambandsins. En nú skulum vér
rannsaka skuldir Sambandsins og
deildanna dálítið nánar.
Samkvæmt áðursögðu nema úti-
standandi skuldir Sambandsins
við síðustu áramót, þegar frá er
dregið andvirði óseldra gjaldeyr-
isvara í vörslum þess, um 3 milj.
og 200 þús. kr. Við athugun á
hagskýrslum Sambandsdeildanna,
sést að forði útlendra vara í vörsl-
um þeirra við áramótin, með ná-
lægt 20% jafnaðarniðurfærslu
frá útsöluverði, nemur samtals
um..............kr. 2.165.000.00
Sé þar við bætt
inneignum þeirra í
bönkum og spari-
sjóðum..........— 67.000.00
peningaforða .. — 345.000.00
og verðbréfum . . — 22.000.00
Nemur þetta alls kr. 2.599.000.00
Drögum vér þetta handbæra
verðmæti, sem eg leyfi mér að
kalla svo, frá skuldunum, verður
eftir um 600 þús. krónur. Nú er
félagatal Sambandsdeildanna sam-
kvæmt hagskýrslunum um 8000,og
nemur þá þessi skuld um 75 kr.
á hvern félagsmann. Ef vér at-
hugum skuldir Sambandsins út á
við, aðrar en þær, sem trygðar
eru með lóð þess og hluta þess í
skipinu. Svölu, og.drögum svo frá
þeim fyrgreint verðmæti deild-
anna að meðtöldu samskonar verð-
mæti þess sjálfs, verður eftir tæp
hálf miljón kr. Sé þeirri upphæð
jafnað á félagsmannatalið, koma í
hlut kr. 62.50.
Rétt er að benda á, að deildirn-
ar skulda Sambandinu misjafn-
lega mikið. Hefi eg athugað á-
stæður þeirra, hverrar um sig, á
þeim grundvelli, sem gert er um
heildina hér að ofan. Kom þá í
ljós, að af 41 félagi, sem er í
Sambandinu, skulda 21 félag neð-
an við jafnaðar-skuldaupphæðina
6 félög innan við 200 kr., 5 milli
200 og 300 kr., 5 milli 300 og 500
kr., og 4 ofan við þá upphæð, á
hvern félagsmann. það eru því að-
eins 4 félög, sem með þessum út-
reikningi skulda yfir 1 meðal kýr-
verð á hvern félagsmann og hjá
félagi því, sem stendur verst,
nemur skuldin ekki tveim kýr-
verðum á félagsmann. þess ber
og að gæta, að þar sem skuldir
eru í félögunum hjá utanfélags-
mönnum, þá er þeim í þessum út-
reikningi bætt við skuldir félags-
manna sjálfra.
Nú er vitanlegt, að félög þau,
sem í Sambandinu eru, skulda
ýmsum öðrum lánardrotnum en
því. Er því ekki unt að dæma full-
komlega um fjárhag þeirra, þótt
viðskiftaniðurstaðan í Samband-
inu sé kunn. Fyrir því hefi eg
gert sameiginlegan efnahagsreikn-
ing Sambandsins og deildanna
samkvæmt hagskýrslum þeirra
við síðustu áramót, og hljóðar
hann þannig:
Um fyrsta lið eignanna skal
það upplýst, að fasteignir Sam-
bandsdeildanna eru yfirleitt metn-
ar vægu verði. Mikið af þeim með
því verði, sem á þeim var fyrir
stríðið, og gert fyrir hæfilegri
fyrningu hjá þeim mörgum. Frá
útsöluverði útl. vara er dregið
5—35%, eða til jafnaðar nálega
20% eins og fyr segir.
Aftur á móti munu innlendar
vörubirgðir metnar fullhátt hjá
sumum deildunum, en aðeins mun-
ar það smáum upphæðum.
þegar athugaðar eru skuldir
þessa samandregna efnahags-
reiknings, sjáum vér að einungis
tveir póstar þeirra eru skuldir við
aðra en samvinnumenn sjálfa.
pað eru skuldaliðirnir „Bankar og
sjóðir“ og „Aðrir viðskiftamenn“.
Ef vér drögum þessa tvo liði frá
heildarniðurstöðu skuldanna, verð-
ur eftir hátt á fjórðu miljón kr.
Sé svo ennfremur dreginn frá
tekjuhallinn, verður eftir rúml.
3 milj. og 800 þús. kr., sem er
það fé, er samvinnumenn innan
Sambandsins eiga í verslunar-
veltunni.
Gerurn nú ráð fyrir, að eitthvað
af fasteignum deildanna sé hér of
hátt metið, að afföll vöruforðans
séu ekki nægileg og að eitthvað af
skuldunum tapist. En hiklaust
treysti eg mér til að fullyrða, að
ómögulega gæti þetta numið
meiru en 800 þús. kr. Hvernig
sem vér því veltum þessu fyrir
oss, þá hlýtur hrein eign félags-
manna Sambandsins í verslunar-
veltunni að nema minst 3 miljón-
um króna.
þess skal getið, að eg hafði ekki
í höndum hagskýrslur síðasta árs
frá fj órum Sambandsdeildunum.
En auk þess sem eg studdist þar
við hagskýrslur þeirra næsta ár á
undan, hafði aðalendurskoðandi
vor og eftirlitsmaður deildanna,
Jón Guðmundsson ritað hjá sér
helstu töluniðurstöður við nýaf-
staðna endurskoðun hjá einni
þeirra og frá annari gaf forstjóri
hennar mér upplýsingar eftir
minni nú fyrir fundinn. Hinar
‘tvær eru sláturfélög, sem tæpast
geta haft mikið breyttan efnahag
frá árinu á undan.
Hversu virðist yður nú um nið-
urstöðuna af þessari rannsókn?
Er hún þannig að ástæða sé til að
æðrast? En nú kann svo að vera,
að einhverjum sé hugleikið að at-
huga, hvort búast megi við tapi
á fasteignum Sambandsins, hvort
samábyrgðin beri þar ‘ekki uppi
hættulegan bagga fyrir samvinnu-
menn auk hinna útistandandi
skulda. Verð hússins, sem vér er-
um í, var fært niður yfir 70 þús.
kr. í fyrra og er tilfært hú á 240
þús. kr. Samanborið við verð ann-
ara húsa hér í Reykjavík er þetta
lágt verð og eg þykist og mega
fullyrða, að fasteignamat þess,
sem enn er óframkvæmt, verði
síst lægra en þetta. Húseign og
lóðarréttindi í Vestmannaeyjum
ásamt uppskipunarbátum er talið
í fjárhagsreikningi 33 þús. kr„
eins og gert var fyrir ári síðan.
þetta er of hátt, og ætti að færast
niður, að minsta kosti um helm-
ing. þá er þriðjungurinn úr m.s.
„Svala“, sem éftir áðurnefnda
niðurfærslu á verðinu er tilfærður
fyrir tæp 67 þús. kr. þetta er
einnig of hátt, eftir því sem verð
slíkrá og annara skipa er nú.
Ætti að færast niður í 40 þús/ kr.
Loks er hin stóra og dýra lóð
Sambandsins hér við húsið, sem
telst 360 þús. kr. virði. Eg efast
nú ekkert um, frekar en þegar
hún var keypt, að hún er, og verð-
ur sérstaklega í framtíðinni, full-
komlega þess virði sem hún var
keypt. Feralinin var 20 kr„ og
þeim sem þekkja hve lóðir eru
dýrar hér í miðbænum og við
höfnina, og vita að verð þeirra
hefir nálega ekkert fallið þrátt
fyrir fjárkreppuna, blöskrar ekki
þetta verð á lóð Sambandsins.
Hitt er annað mál, að æskilegt
væri að geta fært verð hennar nið-
ur að mun til þess að alt sé sem
varanlegast metið. En til þess eru
líka ráð, ef oss sýnist svo. Vér
getum tekið Varasjóðinn og jafn-
vel alla sjóðina, sem til eru, að
u ndanteknum Innlánsdeildarsj óðn-
um, og notað þá til að færa niður
matsverð eignanna. Vér förum þá
að eins og stjórn Eimskipafélags
íslands, sem leggur til á næsta
aðalfundi þess, að Varasjóðurinn
verði tekinn til að færa niður verð
Goðafoss og hins nýbygða húss.
Ef vér viljum verja sjóðunum til
að færa niður verð fasteignanna,
gætum vér fært skipspartinn nið-
ur um kr. 26.866, og yrði hann þá
reikningsfærður . . . . 40.000 kr.
V estmannaeyj aeign-
ina um kr. 18.000.00,
og yrði hún þá reikn-
ingsfærð.............. 15.000 —
húsið um kr.40.000.00
og yrði það þá reikn-
ingsfært............. 200.000 —
lóðina um kr. 160.000
og yrði hún þá reikn-
ingsfærð-............. 200.000 —
Ættum vér þá enn eftir af sjóð-
unum um 47 þús. kr„ og mætti
taka af því þær 18 þús. kr„ sem
Sambandið getur mest tapað á „fé-
glæfraspekulationum“ þeim, sem í
góðgjörnum viðræðum manna á
meðal og í einu blaðinu hefir ver-
ið haldið fram að eg háfi teygt
það út í. Á eg þar við hlut þess
í h.f. „Norðri“ í Gufunesi. Eg
býst nú ekki við, að yður þyki
ástæða til að ráðstafa sjóðunum
á þennan hátt, nema þá Varasjóði
eða einhverjum hluta hans, en
þessi greinargerð ætti að sanna
það, að ekki standi mikil hætta
af fasteignum Sambandsins fyrir
einstaklingana í deildum þess.
Eg skal nú draga saman í fáa
aðaldrætti það, sem eg hefi verið
að reyna að skýra yður frá:
þrátt fyrir takmörkuð vöru-
kaup samvinnumanna og vérðfall
varanna, sérstaklega þeirra út-
fluttu, nemur vöruvelta Sam-