Tíminn - 23.09.1922, Qupperneq 2

Tíminn - 23.09.1922, Qupperneq 2
124 T 1 M I N N Til kaupfélaga! / H.f. Smjörlíjkisgerðin í Reykjavík er stofnuð í þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir. Eíiið íslensltan iðnað. Biðjið uni íslenska smjörlíkið. HREINN er nýtt alíslenskt framleiðslufyrirtæki, sem kom- ið hefir verið á stofn í Reykjavík og nú er byrjað rekstur sinn, það framleiðir aðallega þessar vörur: Blautasápu, Stangasápu, Handsápu, Skóáburð, Leðurfeiti, Kjerti. Verksmiðjan hefir nýtísku tæki og æfða erlenda starfskrafta. öll áhersla lögð á, að framleiða aðeins fyrsta flokks vörur. Blautasápan er þegar tilbúin og hinar aðrar framleiðslutegundir- nar verða til á næstunni. Verksmiðjan er í „Skjaldborg“ við Lindargötu og hefir síma 1325. Virðingarfylst H.í. HREINN. H.f. r Bágt er það, að ritstjóri „Bjarma“ er enn þá prestlaus, því að ansi er hann prestslegur. Sést það einna best á gi’eininni sem hann ritar í Tímann 9. sept- ember. það er sem hann geri sér í hugarlund, að hann standi yfir moldum mínum, og semur því dá- laglega líkræðu. Lýsir hann mér fyrst í aðal- dráttum, eins og sumum prestum er tamt, er þeir semja líkræður sínar. þegar hann er búinn að telja upp helstu einkennin, til dæmis: „að mér sé ekki sjálfrátt, sjái ekki mun dags og nætur, sé með alveg ósæmilega árás á hugs- unarhátt bams, sé hart leikinn af trúarhatri og ofstæki“, þá fer hann að tyggja þetta að meira eða minna leyti upp aftur, eins og mörgum prestum er títt við slík tækifæri. Og að síðustu er gefið í skyn, að dvalarstaðurinn muni ekki vera glæsilegur og dóms,dagur muni mér erfiður. „En enginn fær mig ofan í jörð, áður en eg er dauður“. En nú skal vikið að efninu. Ritstjóri „Bjarma“ segir, að pilturinn, sem eg mintist á í grein minni, hafi að eins verið 9—10 vetra. Hann hélt, að sr. Magnús hefði verið gestrisinn, sökum þess, að hann var trúaður. Mér hefir aldrei komið til hugar að áfella krakkann fyrir þetta. Böm- in læra því að eins málið, að það er fyrir þeim haft. það þarf ekki ýkjamikið „æruleysi“ til að giska á, að þessi skoðanabaggi, sem piltur þessi var að burðast með, hafi verið heimafenginn, hversu hollur sem hann hefir verið. það er því til einskis fyrir ritstjóra „Bjarma“ að reyna til að telja nokkrum trú um að hér hafi ver- ið um árás á krakka að ræða. Krakkinn var eins og hljóðritinn. Hann tekur auðvitað á móti því, sem að honum er rétt. Til hvers væri að atyrða plötuna fyrir ljóta vísu, sem á hana hefir verið rit- uð? Krakkamir geta ekki gert áð því, þótt einhverjir fullorðnir troði í þá fávíslegum skoðunum. þá tekur lítið betra við, þegar hr. Ástvaldur fer að lýsa viðtök- unum, sem vinir Krists fá hverir hjá öðmm. Segir hann, að „tungumálamunur og margt ann- að ólíkt verði sem smámunir ein- Ir, þegar vinir Krists finnast, enda þótt þeir hafi aldrei sést“. Hver skyldi þakka þeim, þótt þeir væm ekki verri en allir aðrir. Er það ekki sjálfsagður hlutur, að allir „almennilegir“ menn taki hverir öðrum vel, er þeir hittast, ef þeir hafa sameiginleg áhuga- mál? Annað mál er það, að það fer stundum tvennum sögum um samlyndi „vina Krists“. þess em dæmi, að sumir þeirra hafa ekki vílað fyrir fyrir sér að vega að öðmm „vinum Krists“, hafi þeir haft nokkra nasasjón af því, að þeir hafa þótt helst til frjáls- lyndir. Og kristnum þjóðum tjáir ekki að tileinka sér alla gestrisni. Talið er víst að Búddhatrúar- menn séu þeim miklu fremri um hana. það er til dæmis fullyrt, að í sumum Búddhatrúarlöndum þurfi meira að segja kristnir trú- boðar enga peninga til þess að fara þar fram og aftur. Og eiga samt Búddhatrúarmenn mörgum kristniboðanum grátt að gjalda, fyrir allan trúmálaróginn. Hólið, sem hr. Ástvaldur ber á hina „trúuðu“, á miklu fremur heima í „Bjarma“ litla en víðlesnu blaði, því „alt er gott í gula kött- inn“, segir máltækið. Lesendur -,,Bjarma“ eru að minsta kosti orðnir slíkum vottorðum vanir. En verst er þegar ritstjóri „Bjarma“ snýr alveg bakinu við henni Höfðabrekku-Jóku. Honum blöskrar, að eg skuli nefna þær fcáðar í sömu andránni. Segist hann vera „alveg forviða" á því, að eg skuli tala um kirkjuna og Jóku, „líkast því, sem þar væri um tvær stallsystur að ræða“. Satt var það, að eg nefndi þær í sömu andránni. En hvernig í ósköpunum getur maðurinn látið svona? Hann veit, að eg hefi aldrei nefnt þær stallsystur. Hitt veit hann, eða ætti að vita, alveg eins og eg, að hér var um andleg- ar m æ ð g u r að ræða. Eða var ekki „hin sannlúterska evangel- iska íslenska þjóðkirkja“ hennar andlega móðir? það er meira að segja ekki vonlaust um, að hún hefði verið ein af kaupendum „Bjarma“, ef hann hefði verið fæddur þegar hún var uppi á foldu. Og þá hefði hún eflaust skrifað ritstjóranum eitt þessara þakkarbréfa eða vottorða, sem birtast ekki svo sjaldan í sjálfu blaðinu frá ónafngreindum mönn- um hingað og þangað utan af landi. En hr. Ástvaldi ferst illa við Jóku. þykist hann ekki þekkja kenningu hennar? Er það í meira lagi undarlegt, þar sem hún er skráð í þjóðsögunum. Munu flest- ir læsir menn kunna samtal þeirra síra Magnúsar og Jóku. „Ula fórstu með þig, Jóka“, sagði klerkur. „Og minstu ekki á það, Mangi prestur“, ansaði Jóka, „seint er að iðrast eftir dauðann“. Allir vita að kirkjan hefir hald- ið mjög þessari kenningu á lofti, að seint væri að iðrast eftir dauð- ann. Eða hefir hún ekki verið að brýna það fyrir mönnum að bæta ráð sitt, áður en þeir yrðu að kveðja þennan heim? Er það tóm- ur misskilningur ? Satt að segja mun það vera með því fáa, sem telja má kirkjunni til gildis, að hún heíir leitast við að gera þetta. Hitt er annað mál, að hún hefir gert það með því að ota að mönnum hinum fáránlegustu kenningum. Ritstjóri „Bjarma“ segir, að fáfræðin skíni út úr öllu hjá mér, er eg tala um þessi efni. Hvernig? Eg lét þær standa hlið við hlið, kirkjuna og Höfabrekku- Jóku, einmitt af því að eg vissi, að þeim kom hér saman um þessa kenningu: „að seint er að iðrast eftir dauðann“. Og kirkjunni er engin minkunn að Jóku. Sá var hagur sem hana gerði, — alveg eins og allir þeir, er hafa verið að klöngra saman kirkjunni, þessu „ófullkomna mannavefki“, sem alt af er ð bila, þrátt fyrir siðabæt- ur, heimatrúboð, vakningar og hver veit hvað. Reyndar verður ekki annað sagt en að klerkar og kennimenn hafi stundum verið fúsir til að íella úi kenningarkerfi kirkj unnar, þegar vandað hefir verið um við þá. Vil eg benda hér á dæmi, sem er alveg við hendina. Herra Ástvaldur hefir — eins og allir vita — verið á háaflugi með helvítis- og útskúfunarkenn- ingu kirkjunnar. Og mergurinn í prédikunum hans hefir verið þessi kenning Ilöfðabrekku-Jóku: „áð seint væri að iðrast eftir dauð- ann“. En nú er hann eins og laf- hræddur álftarungi, er fatast fiugið. pví sjáum vér ekki hvar hann hnígur niður úr háa lofti, þegar hóað er duglega í hann? Hann fullyrðir nú, „að meiri hluti starfsmanna kristinnar kirkju“ voni, að menn geti snúið sér til -Krists eftir dauðann. „Öðru vísi roér áður brá“. En á hverju reis- ir „meiri hlutinn“ þessa von sína? Líklega á líkum. En hvaðan eru honum komnar þessar líkur? Frá réttlætistilfinningu manna, er hafa risið gegn þeirri endemis- kenningu, sem kirkjan hefir verið að hampa, að sjálfur guð ætti að skapa sálir af kappi miklu og senda þær þangað, sem hann vissi að ekkert annað gat legið fyrir þeim en að verða að ævar- andi eldivið hjá andskotanum. pessu heíir kirkjan haldið fram og tjáir þar ekki á móti að mæla. petta vita allir, því allir höfum vér, sem komnir erum til vits og ára, alist upp við þennan þokka. En nú er kirkjan íarin að fara í felur með þessa kenningu, að minsta kosti hér á landi. En það verður ekki annað séð en að hel- vítiskenningin sé í fullu fjöri á ættlandi Bjarmastefnunnar, Dan- roörku. Sést það greinilega á eft- irfarandi orðum sr. Estrups, er hann sagöi í ágúst í sumar á fundi einum í Kellerup á Jótlandi. Klerkur þessi segir: „Helvítislygar, hræðilegar lyg- ar, hljóma frá mörgum prédikun- arstólum trúlausra presta í land- inu. pað eru margir prestar hér 1 landi, er draga heila söfnuði til helvítis. Til eru líka djáknar, er draga marga með sér til vítis.“ Svona glæstum augum lítur þessi drottins þjónn á trúarlífið suður í Danmörku. En hvað skyldi hann segja, ef hann vissi um seinasta undanhald ritstjóra „Bjarma“, vissi hvernig honum fatast flugið ? / En svo er annað. Gerum ráð fyrir, að hr. Ástvaldur telji sig fylgjandi „meiri hluta starfs- manna kristinnar kirkju“, er álít- ur að framliðnir rnenn geti iðrast eítir dauðann. Hvar hyggur hann að þeir séu, meðan þeim gefst kostur á að iðrast eftir dauðann? Fara þeir eins og þeir eru fyrir kallaðir, rakleitt upp í himnaríki, og er þeirn boðuð hin rétta trú þar? Eða fara þeir niður til hel- vítis og taka þar kristna trú? Er nú „meiri hlutinn" farinn að skoða helvíti sem einskonar trú- boðsstöðvar, þar sem reynt sé að snúa mönnum til réttrar trúar eft- ir dauðann? Eða er nú meiri hlut- inn farinn .að trúa því, að til sé þriðja tilverustigið, þar sem „kristnir“ og „heiðnir" heiðingjar geta hafst við, er þeir hverfa héð- an? Ilr. Ástvaldur gefur í skyn, að skoðun þessi muni vera komin af barnsárunum. En hvers vegna lrefir lúterska kirkjan þagað yfir þessari skoðun sinni eða trú í allar þessar aldir? pessu verð eg að biðja hr. Ástvald að svara, og reyna að verða nokkru rökfastari en hann er vanur að vera í „Bjarma“. pá minnist hr. Ástvaldur á Sadhu Sundar Shing. Segir hann að það hafi ekki komið flatt upp á sig, að eg mundi reyna að varpa skugga á þann mann. þegar þurk- uð er helgislepján af ummælum hr. Ástvaldar, mundu þau hljóða eitthvað á þá leið, að hahn þekti mig svo, að eg væri manna vís- astur til að bera óhróður á þeim- Komandi ár. Gagnstæðir straumar (frh.). Verðhækkunin hefir lialdið áfram sigurför sinni hér á landi. peir sem hafa átt hús, lóðir eða jarðeignir hafa haldið, að þeir væru orðnir ríkir og myndu halda áfram að vera það. En nú er nokkuð annað að verða uppi á leningnuin. Islenskar afurðir falla erlendis á heims- markaðnum, fyrst og fremst í hlutfalli við hið almenna verðfall, en sérstaklega af því að þær hafa flestar þröngan eða staðbundinn markað, og eru sumar ekki taldar nema í annari eða þriðju röð að gæðum. Tekjur landsins minka þannig ár frá ári, eftir því sem afurðirnar falla. En inn- anlands helst dýrtíðin við. Dýru jarðirnar, sem gengið hafa kaupum og sölum í sveitum siðustu 8 árin, eru banabyrði á bökum þeirra, sem keypt hafa og starfrækja þær nú. En þó er dýrtíð kaupstaðanna miklu hættu- legri. þar hafa hús og lóðir viða fimmfaldast í verði. Og þeir sem búa í þessum húsum, nýkeyptum eða leigð- um, verða að gjalda vextina af þessum háu upphæðum. Daglaunamenn, sjómenn, búðarfólk, handiðnamenn og starfsfólk landsins, verður að hafa 10—20 krónum hærra kaup fyrir hvern venjulegan starfsdag til að geta staðist þessa óeðlilegu verðhækkun. Tekjur þjóðarinnar fara þannig sílækkandi. Útgjöld við daglegt líf manna fram- leiðsluna, lækka að visu nokkuð, en langtum seinna. þannig hættir þjóðin að vera samkepnisfær. í fyrstu eyðist stríðsgróðinn, og hann er nú löngu farinn. þar næst eru tekin lán til að jafna hallann. það hefir nú verið gert um stund. En til lengdar getur engin þjóð glímt við tekjuhalla á framleiðslunni. þá kemur hrunið. Verðhækkunin með öllum sínum afleiðingum er verk samkepnisstefnunnar. Hún hefir drotnað á flestum svið- um þjóðlifsins.Hún freistaði hinna þröngeigingjörnu og skammsýnu með stundargróða, sem ekki þurfti fyrir að hafa. Eignir hækkuðu í verði um tugi þúsunda meðan eigendurnir sváfu. En nú eru vextirnir af þessum gróða, sem enginn vann til, að sliga þjóðfélagið. Fyr en varir kemur eldurinn að húsveggjum þeirra, sem kveikt haía l)álið, og vonuðu þó, að hinni óverðskulduðu verðliækkun fylgdu engar skuggahliðar, fyrir þá persónulega. þetta er önnur hlið málsins. þetta er straumur lcaupmenskunnar og gróðabrallsins. Einstaklingurinn leitast þar við að auka sína eigin gæfu með því áð hækka sem mest í verði lifsnauðsynjar nábúans. En ein hækkunin fæðir aðra. pannig vex dýrtiðarbylgjan, uns hún gleypir sína eigin höfunda. Andi og starfshættir samkepninnar hafa skapað dýr- tíðina, og afleiðingar hennar. En andi Rochdale-stefnunn- ar er allur annar. Samvinnan er gagnverkandi straum- ur. Takmark hennar er að minka dýrtíðina sem allra mest. Gera neytendunum kleift að fullnægja sem flest- um þörfum, með sem minstu fé. Eins og nú er komið fyrir íslensku þjóðinni, liggur hennar einasta bjargar- von i því, að starfsaðferðir samvinnunnar geti notið sín, þannig að samræmi komist aftur á milli útgjalda og tekna. þetta er ekki áhlaupaverk. það verður ef til vill óslitið starf margra kynslóða. En því fyr sem stefnu- breytingin er hafin, því fyr gætir áhrifanna. Menn munu þá spyrja: „Hvernig eru starfsaðferðir samvinnunnar? Hvernig hefir þessari stefnu tekist að framkvæma hugsjónir sínar?" Spurningunni er að nokkru leyti svarað hér á und- an. I-Iið fyrsta kaupíélag í Rochdalc var stofnað af blá- fátækum vefurum. Með mestu sjálfsafneitun gátu þeir 'sparað nokkra aura á viku til að safna sér veltufé. En með því að versla í kaupfélaginu, spöruðu þeir kaup- mannsgróðann. Um hver áramót fékk hver félagsmað- ur sinn hlut af þessu sparifé. þá gátu verkamennirnir, sem verslað höfðu í kaupfélaginu, fullnægt ýmsum þörf- um, sem stallbræður þcirra, er versluðu- við kaupmanns- búðina, gátu ekki. Sumir þessir verkamenn sáust með nýjan hatt. Börn annara gengu betur til fara á sunnu- dögom en títt var um börn þessara blásnauðu manna. í liús eins þessa öreiga kom hljó.ðfæri, fyrir kaupmanns- álagningu nokkurra ára samanlagða. þetta hafði áhrif. Nábúarnir sáu að kaupfélagið sparaði útgjöld, og fjölgaði lífsþægindum, með þvi að minka dýrtíðina. þessvegna fjölgaði félagsmönnum. þessvegna liefir samvinnan farið sigurför land úr landi. í spor kaupfélaganna fylgdu iðn- aðarfyiiitæki, sem rekin voru af neytendafólögunum. í þeim tveim löndum, sem íslendingar skifta mest við, Dan- mörku og Englandi, eiga sambönd kaupfélaganna margar verksmiðjur, og er þeim fjölgað ár frá ári. Altaf er stefnt nær því takmarki, að samvinnuielögin geti trygt félagsmönnum sínum sem allra flestar neysluvörur með sannvirði, bæði miðað við sölukostnað og framleiðslu. Af öllum þeim öflum i heiminum, sem vinna að þvi að minka dýrtiðina, og það böl, sem af hcnni leiðir, er samvinnan áhrifamest. Braskarar, auðmenn og auðmanna- hringir nota eftir fremstu getu afl sitt og aðstöðu til að auka dýrtíðina. Samkepnisstefnan veldur hinum öeðlilega hækkandi straum verðlagsins, sem virðist kominn nærri því að valda kollsiglingu framleiðslunnar liér á landi. Samvinnan er hinn gagnstæði fjármálastraumur. Takmark hennar í öllum iöndum er að lækka framleiðslulcostnað- inn til að auka lífsþægindi og bæta mannleg kjör. Úr fcögu síðusþu ára má nefna nokkur dæmi. þegar stríðið skall á 1914, áttu flestir kaupmenn og kaupfélög meiri og minni vörubirgðir, sem vitanlega var alt keypt inn áður en nokkur maður vissi von styrjaldar og verðhækk- unar. því nær allir kaupmcnn hæklcuðu fyrirliggjandi vörur, þegar neyðin færðist nær, og sumir stórkostloga. Kaupfélögin hækkuðu ekki neitt, enda hefði hækkun þar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.