Tíminn - 28.10.1922, Blaðsíða 4
148
T I M I N N
Notið að eins íslenskar vörur.
Kaupið að eins íslenskar vörur.
Hafið þér séð nýju dúkana frá Klæðasmiðjunni Álafoss?
Þeir eru bæði til notkunar í fatnað, dyratjöld, útsaumsdúka
o. m. fi. til prýðis á íslensku heimili.
WF íslenskir dúkar klæða íslendinga best.
Klæðasmiðjan Álafoss, p. t. Reykjavík.
Ideal-suðuskápurinn
er nýtísku heimilisáhald — gufusuðuhylki sundurhólfað — til að sjóða í
allskonar mat, steikja fisk og kjöt, baka allskonar brauð, og alt þetta í
einu. Hann er lilutur, sem ekkert heimili, smátt eða stórt, œtti án að vera.
Pótt mun það vera í eigu manna, sem í raun og veru borgar sig svo vel
sem hann. Hann reynist ávalt og öllum svo, — eins og skilvindurnar að
sínu leyti, — að engin í meðallagi greind húsmóðir, sem venst honum
eina viku eða lengur, vill án hans vera. Fjöldi meðmœla útlendra og inn-
lendra eru fyrir hendi, sem ókleift er að birta hér. Lœt eg því nægja að
sýna hér álit aðeins tveggja hérlendra þjóðkunnra manna, er tala um áhald
þetta af eigin reynslu, svo hljóðandi:
Gröf í Breiðuvík, 21. júní 1922.
.... „Suðuskápurinn frá þér reynist ágætlega, — vinnuspamaður, eldi-
viðarsparnaður — matarsparnaður. — Frá því maturinn er settur upp og
þar til farið er að borða, þarf ekki að honum að líta. Hvorki getur þar
brunnið við eða soðið upp úr. Elda má á honum fjóra rétti yfir einu eld-
hoh í senn. Maturinn verður ljúffengari, hollari og næringarmeiri en soð-
inn í vatni, — einkum kjöt, fiskur og garðávextir. Kostur er og það, að
engin gufa skuli koma i herbergið þar sem eldað er. Eg er sannfærður um,
að þú getur selt mikið af þessu áhaldi ef þú auglýsir vel. „Galdrapotturinn"
er þetta áhald kallað hér“........
Einar Gunnarsson.
„Tíminn" 18. mars s. 1. segir:
„Ilentugt áhald. Meðal annara áhalda, sem sýnd voru á búsáhaldasýn-
ingunni í vor sem leið, voru suðuskápar, sem Stefán B. Jónsson kaupm.
hér í bænum hefir til sölu. Telur sá, er þetta skrifar, rétt að mæla bein-
linis með áhaldi þessu, af reynslu á eigin heimili. Sparar áhald þetta
mjög tima við alla matreiðslu og vafalaust eldsneyti til stórra muna. — Er
maturinn soðinn við gufu og má sjóða marga rétti í einu við sama eldinn.
Vegna þess, að ekki rýkur af matnum, sparast vafalaust næringargildi.
Áhaldið gætir sín sjálft, og ekki getur brunnið við eða soðið upp úr. Eink-
anlega um annatíma á meðalstórum eða heimilum í stærra lagi, er
áliald þetta tvímælalaust til hinna mestu þæginda og sparnaðar".
Hversu þýðingarmikið væri ekki einnig áhald þetta fátæka fólkinu, sern
^erður að sjóða alla hluti inni hjá sér í eina ibúðar- og svefnherberginu
sinu, og eyðileggur með þvi bæði andrúmsloftið og liúsmunina, með sí-
ieldu gufuroki, — auk beina sparnaðarins, sem það fólk má allra síst
án vera.
í sambandi við suðuskápa þessa vil eg leyfa mér að benda sérstak-
lcga á Olíugasvélamar A. Kt., sem eru bæði endingarmiklar og olíusparar,
sainanborið við önnur olíusuðutæki, og sérlega þægilegar í notkun, sé þeim
lialdið hreinum.
Auk Ideal suðuskápanna, sem eg hefi nú til hér af öllum stærðum,
þá hefi eg enn til talsvert af hinum öðrum velþektu heimilisvélum, sem eg
hefi haft undanfarið. — En alt á mjög lækkandi verði, svo sem:
Davis saumavélar (stignar) Vertical, — reyndar hér á landi í 20 ár
og án undantekningar ágætlega. —
Crulmans prjónavélar 1. M. M., er hafa alt að 108 prjóna.
JJvottavélar með tilheyrandi vindum.
Olíugasvélar A. M. kveiklausar (2 gerðir). — Er taka öllum oliutækj-
um, sem eg þekki, langt fram. —
Oliugasvélar N. P., kveikvélar.
Komkvamir fyrir heimili, handhægar á eldhúsborð.
Beinakvamir fyrir heimili, fyrir handafl, nauðsynlegar á hænsa-
heimilum.
Fiskhausa- og beinakvamir, stórar og smáar, fyrir hand- og vélaafl.
Brýnsluvélar — fyrir tól og vélaljái — fleiri teg., stignar og handsnúnar.
Fóðurskera til að kurla með hálm og allskonar fóður.
Skilvindur, sér í lagi 2 teg. (þó hverja sem vill).
Strokka úr málmi, er mörgum lika vel.
Og ennfremur umbúðapappír og pappírspoka, er eg sel á afarlágu
verði til kaupfélaga og kaupmanna, og annara, er þeirra hluta þurfa.
flllap innlendap vöpup leknap sem bopgun á allra hæslu gangvepði.
Útvega alt þetta einnig kaupm. og kaupfélögum á heildsöluverði
beint frá útiöndum.
Allar þessar vélar eru nauðsynlegri kaupandanum en sem svarar sölu-
arði seljandans. Menn ættu því ckki að fresta neitt kaupum þeirra lengur.
Enda er verðið nú orðið hóflegt, og alt gert af seljandans hálfu sem unt
er til að greiða fyrir viðskiftunum.
Nánari upplýsingar þeim er óska.
Stefán B. Jónsson,
Reykjavík, 25. okt. 1922. (Hólf 315. Sími 521.).
rétt, en ekki alment viðurkent, að
pöntunarfélögin voru íslensk npp-
fynding, en ekki eftirliking af nein-
um útlendum félagsskap. Tilgangur-
inn var hinn sami og i ensku félög-
unum, en formið, deildaskipunin,
kostnaðarverðsalan og fyrirfram-
pöntun á vörum var alt sérkenni-
legt fyrir íslensku pöntunarfélögin.
17. (bls. 20—21). B. Kr. kemur með
10 punkta, sem hann segir að Ben.
Jónssyni hafi yfirsést í kaupfélags-
málum. En hverju sætir það um
villu B. Jónssonar, ef kenna á hon-
um eða þakka skipulag K. þ., að
þetta félag, sem á að vera bygt, að
dómi B. Kr., á tíföldum misskilningi,
er búið að standa í 40 ár, fæða
af sér 40 önnur félög, sem mynda
með sér Samband, sem innir af hendi
innkaup og sölu fyrir tvo þriðju af
öllum íslendingum. B. Kr. reyndi
sjálfur á að vera kaupfélagsfor-
sprakki fyrir sýslunga sína, Arnes-
inga. Hvernig fór það? B. Kr. fór
með sauði Árnesinga til Englands.
Alt fór þar í handaskolum. B. Kr.
rnisti alt verðið i umstang og kostn-
að, og Árnesingar urðu að „gefa B.
Kr. upp“, eins og íslandsbanki síld-
argrósserunum. Að lokum kom B. Kr.
hrakinn og hrjáður til einnar enskr-
ar stórborgar, lenti þar fyrir rétti, og
í löngum og leiðinlegum málaferla-
þvælingi. Hafi Ben. Jónsson bygt á
misskilningi, þá ber þó svo undar-
lega við, að starf hans hefir bless-
ast, og borið góðan ávöxt, en B. Kr.
með allan þekkingarhrokann hefir
farið lirakför eftir hrakför, fyrst í
áðurnefndri sauðasölu, og síðan í
bankanum. þar valt hann úr banka-
stjórahorberginu og fram í forstof-
una og húkti þar aðgerðalaus innan
um þá, sem biðu eftir afgreiðslu,
þangað til þingið sá aumur á lionum
og gaf honum ellistyrkinn. þessar
skýringar eru gefnar til þess að B.
Kr. hætti sér ekki aftur út á þann
hála ís að fara í mannjöfnuð við
Benedikt á Auðnum.
18. (bls. 21). þar fer B. Kr. með
ein stórósannindin enn, að ísl. sam-
vinnumenn haldi því fram, að félög-
in hér séu sniðin eftir ensku félög-
unum, og ásakar þá, sem staðið hafa
að Tímariti kaupfélaganna, fyrir að
hafa ekki skrifað um samábyrgðar-
leysi enskra kaupfélaga. Um uppruna
ísl. félaganna er áður talað. Énginn
maður hefir mér vitanlega haldið því
fram ,að alt í ísl. samvinnufélögun-
um væri lánað frá Englendingum.
Vegna staðhátta er skipulag ísl. fé-
laganna sniðið eftir ísl. staðháttum.
í Englandi er samábyrgð óþörf. þess-
vegna nota félögin hana ekki. þar
má komast af með lága hlutafjárupp-
hæð tii veltufjár. En hve mikið held-
ur B. Kr. að mætti kaupa inn af
ársforða handa meðal heimili á Is-
landi fyrir 90 kr. veltusjóð, eins og
hann tilfærir sem fyrirmynd? Hér
verður þvælingur B. Kr. tóm endi-
ieysa eins og endranær. Hinu gleym-
jr B. Kr., að samkvæmt samvinnu-
lögunum leggja öll ísl. samvinnu-
félög, sem slarfa að innkaupum, 3%
í stofnsjóð, sem er varanlegur veltu-
fjársjóður. Sumir ísl. félagsmenn
leggja í þennan sjóð árlega, eins
mikið og B. Kr. þykir fyrinnynd að
enskur samvinnumaður á samtals í
hlutabréfum. Hvergi erlendis leggja
samvinnumenn jafn mikið á sig til
að eignast varanlegan veltufjársjóð,
eíns og Sambandsdeildirnar hér á
landi. þessvegna er það frámunalega
heimskulegt af B. Kr. að halda að
hann geti tortrygt íslensku félögin
á því sviði.
-----o----
Hlín, ársrit sambandsfélags
norðlenskra kvenna, 6. ár, er ný-
komið út. Fjölbreytt og skemti-
legt aflestrar eins og áður.
Framh. af 1. síðu.
ráðherra og núverandi forsætis-
ráðherra Sig. Eggerz. Sigurður
lét >á skoðun uppi, að málið væri
borið fram í öðrum tilgangi en
látið væri í veðri vaka, af Pétri
Jónssyni. par væri verið að marka
nýja stefnu í viðskiftamálum. 1
svari sínu (Alþt. 1921, C, 297)
segir hann:
„Að eg hafi flutt þetta frv. í
öðrum tilgangi, það hefir hv. þm.
(S. E.) leyfi til að segja, ef hann
þekti dæmi upp á slíkt frá minni
hendi. Og eg ætla að biðja hann
að nefna dæmi — eitt einasta
dæmi — til þess, síðan eg kom
á þing 1894, að eg hafi nokkurn
tíma farið með undirferli eða
siglt undir fölsku flaggi“.
Af orðum ráðherrans er auð-
skilið, að honum þykir með slíkri
aðdróttun vera ráðist á heiður
sinn. Og hann er þess hvergi var-
búinn að verja hann. Sú aðdrótt-
un, er hann þannig reis gegn,
var þó hvergi nærri eins illkynj-
uð eins og sú, sem B. Kr. réttir
honum í gröfina. Pétur hlaut
gegnum langa þingsetu alþjóðar-
viðurkenningu fyrir strangheiðar-
leik í stjórnmálum. Nú er hrafn
sendur út af örk Mbl. til að
kroppa bein hans. Á þingi 1921
reis hann sjálfur úr sæti til að
verja heiður sinn. Hverjir rísa nú
úr sæti til að skjóta skildi fyrir
fallinn foringja? Verða það þeir
menn, sem þóttust vera mestir
vinir hans síðustu stundirnar, en
sem nú standa saman um óhappa-
manninn, er vinnur það fólsku-
verk, að níða af honum æruna
dánum? það er ilt geðleysi, sem
kemur fram í því að samvinnu-
menn margir þola engin harð-
yrði sinna manna í garð andstæð-
inga, en finst lítið til um, þó
þeirra eigin forystumenn séu
barðir brixlum lífs og liðnir.
En yfir Pétur Jónsson er skot-
ið skildi almennrar vitundar um
það, að allar aðdróttanir í hans
garð um fals í stjórnmálum, er
æruþjófnaður og þjóðlygi. Orð
Péturs og verk halda vörð um
gröf hans. „Dagur“.
----o---
Bækur.
Sigfús Blöndal: I s 1 a n d s k-
Dansk Ordbog. Fyrri hluti.
Rvík 1920—22. Stærð 480 bls. í
stóru broti. Verð 85 kr.
þetta er fyrri hlutinn af Jiinni
miklu orðabók Sigfúsar Blöndals,
sem hann hefir unnið að í mörg
ár. Síðara bindið kemur út eftir
2—3 ár. Bókin er bæði yfir gamla
og nýja málið og hefir aldrei ver-
ið gerð jafn orðmörg bók yfir nú-
tímamálið. Að bókinni hafa unn-
ið með aðalhöfundinum kona hans,
Björg Blöndal, Jón Ófeigsson og
Ilolger Wiehe. þar að aúki hafa
fleiri málsnjallir menn lesið hand-
ritið yfir í próförk, þar á meðal
Sig. Nordal og Guðm. Finnboga-
son.
Kostur þessarar bókar er það,
að að henni hefir verið unnið með
elju og atorku af mörgum vel
hæfum mönnum. Frágangurinn að
pappír og prentun er í besta lagi.
Bókin er sérstaklega ódýr, enda
verið lagt til hennar almannafé
bæði danskt og íslenskt. Góð ný-
ung er það, að bókin á sig sjálf.
Andvirðið rennur í sjóð, sem kost-
ar næstu útgáfu.
Með þessum línum verður eng-
in tilraun gerð að skrifa tæmandi
ritdóm, heldur aðeins vakin eftir-
tekt á bókinni. Hún hefir vafa-
laust ýmsa galla, stærri og
minni. Skal minst á tvo. Skrá
fylgir yfir rit þau, sem talið er
að hafi verið orðtekin. Er þar
auðséð, að höf. hefir unnið mjög
af handahófi, bygt á góðum rit-
um og lélegum jöfnum höndum.
Framburð er reynt að tákna
mjög nákvæmlega, en lagður til
grundvallar linmæli og latmæli,
sem ekki eru notuð nema í viss-
um hlutum landsins. Má það ekki
standa ómótmælt, að framburðar-
táknun orðabókarinnar er mjög
villandi, einkum fyrir útlend-
inga, sem ekki geta borið um
málið af eigin reynd. Vafalaust
verður bætt úr þessum mikla
galla, þegar bókin verður gefin
út í næsta sinn. Hafþór.
Benedikt Björnsson: í s le n s k
málfræði handa alþýðu-
s k ó 1 u m. Akureyri 1922. Útgef.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Verð 2 krónur.
Höf. þessarar bókar hefir lengi
verið skólastjóri við bamaskól-
ann á Húsavík og jafnframt
haft unglingaskóla árum saman.
Benedikt er orðlagður fyrir
kenslu sína í íslensku, enda hefir
hann lagt hina mestu alúð við
það starf. Bók hans er, eins og
þeir menn bjuggust við, sem til
þektu, mjög ljós, fáorð, en þó
efnismikil. Fyrsti aðalkafli er um
orðflokkana, annar um beygingar,
þriðji um raddstafi og samhljóð-
endur, fjórði um beygingareðli
orða, fimti um orðmyndun, sjötti
um setningafræði, sjöundi grein-
ingarreglur. það er spá mín, að
bókin verði einkar hentug í ungl-
ingaskólunum. Höf. leggur mikla
áherslu á að nemendur læri vel
að greina og þar næst að skilja
eðli og myndun orðanna. Höf.
hefir fáein málfræðisnýyrði. Er
það ekki beinlínis sagt honum til
hróss, því að aðrir, sem fyr hafa
gert kenslubækur, hafa gengið
þar alt of langt. Nýyrði Bene-
aikts eru yfirleitt góð, en samt
er ekki víst að þau ryðji eldri
goðum af stalli. Kennai-i.
-----o----
Dánarfregn. Látin er 14. þ. m.
á heimili sínu Grund í Skorradal
Petrína Fjeldsted systurdóttir
Bjarna hreppstjóra Péturssonar
á Grund og sonardóttir Daníels
bónda Fjeldsteds á Hvítárósi.
Petrína heitin var á þrítugs aldri,
prýðilega vönduð stúlka og vel
látin.
Morgunblaðið furðar sig á því,
að ekki skyldu vera nefnd einstök
atriði um spamað í embættis-
færslu ríkisins í grein um það efni
í síðasta blaði. En blaðinu er það
vel kunnugt, að Tíminn er marg-
búinn að nefna einstök dæmi um
þetta efni og var því óþarfi að
endurtaka það. En það kemur
ljóslega fram hjá Morgunblaðinu,
að það hefir beig af því að far-
ið væri að athuga embættaskip-
Laugaveg 20 B.
Sími 830.
Við sendum gegn eftirkröfu:
Ljósakrónur og allskonar hengi-
lampa, borðlampa, straujárn, suðu-
plötur ýmsar stærðir o. fl.
Ennfremur allskonar efni til inn-
lagninga, svo sem: Pípur, vír,
slökkvara tengla og fleira.
Aðeins fyrsta flokks vörur.
G-reið viðskifti.
,Valet‘-rakvélin
er heppilegasta rakáhaldið, sem
menn nota í heimahúsum. Slíp-
ar blöðin sjálf, og er því ódýrust
í notkun. Rollfix-slípivél til að
slípa á Gilletteblöð, verð aðeins
kr. 10,00, og Dux-slípivél kr. 8,00.
Hefi einnig ágæta og ódýra rak-
hnífa, verð frá 3—9 kr. Raksápu
afaródýra o. fl. o. fl. tilheyrandi
iðninni. Notið gott tækifæri. Vör-
ur sendar gegn eftirkröfu.
Virðingarfylst
Sigurður Ólafsson.
Rakarastofan í Eimskipafélags-
húsinu.
Ljósjörp hryssa, 7 vetra, mark:
st. fj. fr. hægra, st. fj. aftan
vinstra, vetrarafrökuð, jámuð,
vökur og viljug, tapaðist um
miðjan júlí síðastliðinn. Hver
sem yrði var við þessa hryssu, er
beðinn að gera aðvart
Jóni Brynjólfssyni,
Irpuholti í Villingaholtshreppi.
unina, enda er sá beigur ekki
ástæðulaus. Er það fyrirfram
vitanlegt, að þá muni margt
óþægilegt rifjast upp um ráðs-
mensku gömlu stjórnarinnar, sem
blaðið hjálpaði til að stritast við
að halda í völdin ámm saman. —
þá er sambúð blaðsins við sann-
leikann að venju hneikslanleg er
það sakar Tímann um hið hneiksl-
anlega mikla mannahald við áfeng
isverslunina. Hlýtur Morgunblað-
inu að vera það vel kunnugt, að
Tíminn hefir þegar tvisvar vítt
það fargan alt mjög harðlega.
Varnarrit gegn laumupésa
Björns Kristjánssonar er nú ver-
ið að prenta og kemur út í þess-
ari viku. Augljóst mun það þá
verða öllum þeim, sem ekki eru
slegnir blindu kaupmenskunnar í
málum þessum, að ekki stendur
eftir steinn yfir steini af vaðli
B. Kr.
Eldur kom upp í húsi við Bald-
ursgötu nýlega, en tókst að
slökkva áður en húsið brann til
kaldra kola. Mikið tjón varð af
brunanum, því að mest var óvá-
trygt er inni brann.
Málverkasýning. Listvinafélagið
opnaði málverkasýningu í gær í
hinu nýja húsi sínu í Skólavörðu-
holtinu. Ásgrímur, Kjarval, Jón
Stefánsson, Guðmundur Thor-
steinsson og fleiri málarar sýna
þar nýjustu myndir sínar. Engin
myndanna hefir áður komið á
sýningu. Verður sýningar þessar-
ar nánar getið síðar.
Um áfengisvei-slun ríkisins
verður enn rætt í næsta blaði.
Svargrein frá Páli Vigfússyni
til nemendanna á Vífilsstöðum
kemur í næsta blaði.
Ritstjóri:
Tryggvi þórhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta,