Tíminn - 03.03.1923, Page 4
14
T 1 M I N N
Notið að eins íslenskar vörur.
Kaupið að eins íslenskar vörur.
Hafið þér séð nýju dúkana frá Klæðasmiðjunni Álafoss?
Þeir eru bæði til notkunar í fatnað, dyratjöld, útsaumsdúka
o. m. fl. til prýðis á íslensku heimili.
PHT Islenskir dúkar klæða Islendinga best.
Klæðasmiðjan Aiafoss, P. t. Reykjavík.
Tóm steinolíulöt
utan af landi kaupum vér á 8 krónur hingað komin, gegn greiðslu
við móttöku (með póstkröfu).
Hér í bænum kaupum vér fötin sama verði, sækjum þau til selj-
anda og greiðum andvirðið samstundis. Hringið í síma 262.
H.f. Hrogn & Lýsi,
Reykjavík.
Aðalumboðssölu á
Ferðatöskur, fleiri teg. frá kr.
18.00 uppí kr. 55.00. Skjalamöppur
úr góðu skinni frá kr. 16.00. Seðla-
veski, töskur og buddur í afar-
miklu úrvaii. Bakpokar vatnsheldir,
einkar hentugir fyrir slcólabörn og
ferðamenný'frá kr. 3,90.‘
Pyrirspurnum svarað” um liæl.
gegn eftirkröfu.
TT i
AlCsent
Bsm.-**■*..**
Alþíngi.
Við starfsmannakosningar í
þingbyrjun kom í Ijós, að flokk-
arnir voru þrír á þingi. Fram-
sókn hafði 15 flokksmenn fasta
og einn í kosningabandalagi (B.
Hallsson). Moggadótið var líka 16,
þar með talin Ingibjörg H.
Bjarnason, eftir því sem enn hef-
ir reynst. Sjálfstæðisflokkurinn
hafði 9 atkvæði, þversummenn
gamlir 6, og langsum þrír (M. P.,
M. J. og Jak. Möller). Jafnaðar-
menn hafa einn (Jón Baldvins-
son).
Af þessum þrem flokkum er
sjálfstæðið lausast fyrír. Bjarni
frá Vogi og sumir með honum
fylgja oftast að málum Mogga-
dótinu, énda hefir Mbl. talað með
samúð um Bjama, og hörku Tím-
ans gagnvart honum, líklega að
birta skýrslu hans frá 1920. Aft-
ur á móti lítur út fyrir að Ben.
Sveinsson, Pétur í Hjörsey o. fl.
eigi venjulega samleið í aðalmál-
um með Framsókn.
Ennfremur er bersýnilegt, að
mikilvægur eðlismunur er milli
Framsóknar annarsvegar, og
beggja hinna flokkanna. Fram-
sókn kemur fram sem heild bæði
í sókn og vöm, bæði við að rífa
niður það sem skaðlegt er, og til
að byggja upp framtíðarhag
landsins. Hinir flokkamir geta
tæplega átt samleið innbyrðis
nema í neikvæðum efnum. Um
flest nýmæli mun erfitt að sam-
eina stefnu hinna einstöku full-
trúa. En sá munur er þó á þeim
tveim flokkum, að Moggadótið
styðst við þá sem verið hafa efna-
menn í bæjunum, og alla andstæð-
inga samvinnufélaganna. En sjálf-
stæðið lifir eingöngu á sög-uleg-
um endurminningum.
Við forsetakosningu í Samein-
uðu þingi vann M. Kr. (16 atkv.),
Jóh. Jóh. fékk 15 (Vigurklerkur
var veikur), og Bjami frá Vogi
9. Einn seðill auður. Við úrslita-
kosningu skiluðu sj álfstæðismenn
ailir auðum seðlum. Ef Vigur-
klerkur hefði veríð á þingi, myndi
hafa orðið hlutkesti milli M. Kr.
og Jóh. Jóh. Við þessa atkvæða-
greiðslu fékk M. Guðm. tvö atkv.
í fymi skiftin frá Jóh. Jóh. Er
álitið að það hafi verið Jón á
Reynistað og Ottesen. Bendir það
á, að ekki séu þeir allskostai
ánægðir af samfélaginu við B.
Kr., Proppé o. s. frv.
í neðri deild kusu allir Fram-
sóknarmenn Ben. Sv. sem forseta,
og fékk hann mikinn meiri hluta.
En í efrí deild var Halldór Steins-
son kosinn með 7 atkvæðum,
Guðm. Ólafsson fékk 5. Tveir
seðlar voru auðir. það hafa menn
þar fyrir satt, að Hjörtur muni
hafa kosið með kaupmannaflokkn-
um, en S. E. og K. E. skilað auðu.
Framsókn stóð með sínum manni,
en tapaði kosningunni.
þessari glímu lauk þá svo, að
hver af þessum þrem flokkum
fékk einn forseta. Framsókn vann
upp á eigin spýtur í Sameinuðu
þingi, hjálpaði sjálfstæðinu til að
vinna í neðri deild. Hinsvegar
studdi sjálfstæðið Moggadótið til
valda í efri deild.
Mbl. hefir eitthvað gert til að
mynda nýjan flokk, þ. e. ná
Bjama og einhverjum fylgifisk-
um hans úr sjálfstæðisbrotinu, til
að setja Framsókn í algerðan
minni hluta. Mun meðferð mála
í þinginu skýra þá hreyfingu.
Bandliður milli Bjama og Mbl.
er alltraustur, þar sem er íslands-
bankamálið. Hafa báðir þar sam-
eiginlegar syndir að verja: Töp-
uðu skuldimar, miljónagjafimar,
útkaup Tofte á 70 þús. danskar.
Bjarni leggur til í sambýlið
skýrslu sína og þær 4—6 þús.,
sem hann fékk fyrír þann lyfseðil.
Frá sjónarmiði samvinnuflokksins
er æskilegt að þessi félagsskapur
andstæðinganna verði sem fyrst
fullgerður og heyrin kunnur.
Við eitt af stjórnarfrumvörp-
unum brá flestum aðkomnum
þingmönnum heldur í brún: Fjár-
aukalögin frá tíð J. M. og M.
Guðm. Miljónaeyðslan þar kom
eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Fáum hafði komið til hugar að
átrúnaðargoð skagfirskra stór-
bænda hefði látið svona mikið eft-
ir félaga sínum, Jóni Magnússyni:
Að taka á tveim ámm 13 miljón-
ir að láni, 10 erlendis, þrjár inn-
anlands, og þar að auki skilja
svona við fjárhag landssjóðs.
Marga þingmenn mun fýsa að fá
skýrslu um meðferð fyrverandi
stjórnar á öllu þessu fé.
Fyrri daga síðustu viku lagði
Sig. Eggerz fram í Nd. frumvörp
sín um sameiningu sýslumanns-
embætta og niðurlagningu biskups
og landlæknis.
Var þeim fi-umvörpum vísað til
nefnda, eftir langar umræður.
Magnús. dócent og Vigurklerkur
vörðu biskup. Taldi Sig. St. bisk-
upsembættinu til gildis að á ofur-
veldistímum kaþólsku kirkjunnar
hér á landi hefði kirkjan verið
þjóðleg og staðið móti erlenda
valdinu. Eftir sömu reglum væru
refirnir, sem sleppa úr girðing-
um þessa heiðursklerks, bestu
verndarar sauðanna við Djúpið.
Meirí sögufölsun hefir sjaldan
heyrst en þetta, að Rómakirkjan,
sem var og er í eðli sínu og öllu
skipulagi, alþjóðleg stofnun, en
um leið óþjóðleg, hafi hér á landi
á 14. og 15. öld verið þjóðleg.
Atvinnumálaráðherra sýndi með
sögulegum rökum fram á fáfræði
klerksins. Er því líkast sem Sig-
urður gangi í bamdómi.
Jón á Reynistað gekk hart
fram móti sýslumannafrumvarp-
inu og vildi þar engan sparnað
þola á því sviði. Yfirleitt er það
einkenni sumra þeirra, sem mest
telja sér sparnaðinn til gildis, að
þeir vilja spara embætti í öðrum
kjördæmum en ekki heima fyrir.
Áskorun hefir þinginu borist frá
alt að 20 kjósendum í Skagafirði,
þar sem þeir skora á þingið að
veita Einari Jónssyni og Helga
Péturss viðunanleg laun. Ekki
hafa þingmenn Skagfirðinga enn
tekið afstöðu til þessa máls opin-
berlega.
Bjami frá Vogi gengur móti
öllurn þessum samsteypufrum-
vörpum, með öðrum „spamaðar-
mönnum“. Hefir slegið í brýnur
milli hans og Sig. Eggerz út af
þeim málum. Sennilega verða öll
sparnaðarfrumvörp stjórnarinnar
drepin í Nd. Má kenna þar um
tvennu: Áhrifum Mbl.flokksins,
og í öðru lagi að frumvörpin
gengu ekki nógu langt. Ef em-
bætti er óþarft, á að leggja það
strax niður, en ekki kosta þar
menn 20—30 ár, aðeins til að
landið veiti þeim atvinnu.
Bjami frá Vogi og Jakob Möll-
er flytja frumvarp um nýtt gjald-
eyrislán, nokkrar miljónir. Senni-
lega munu þingmenn tregir að
steypa meiru í Islandsbanka. Og
hvað á nú að veðsetja, þegar toll-
tekjurnar eru fastar hjá Enskin-
um?
Jón Baldvinsson hreyfði mót-
mælum gegn gengislækkuninni
sem E. Claessen hefir mestu ráð-
kortnm herforin.gjará.ðsms
af íslandi, hefi eg nú fengið. Verða ávalt fyrirliggjandi. Sendi þau
hvert á land sem vill með póstkröfu. Verð 2 kr. blaðið.
Ársæll Árnason, Reykjavík.
ið um, og sem veldur nú almennri
verðhækkun á allri verslunai'vöru.
Urðu tveggja daga umræður. M.
Kr. hélt fast fram hinni gömlu
pólitík samvinnumanna, að með
því að hafa skipulag á meðferð
gjaldeyrisvörunnar, mætti stöðva
gengið, og síðan rétta það við.
Niðurstaða hefir engin orðið, enda
þarf tvent til: Að Islandsbanki
verði látinn setja hagsmuni lands-
ins ofar en hagsmuni hluthaf-
anna, og að andvirði afurðanna
lendi ekki í óendanlegu gengis-
bralli milli Coplands og þeirra,
sem innflytja „skranið“.
Ræða fjármálaráðheiTa, sem
Tíminn birti síðast, hefir vakið
mikla eftirtekt, af því þar er ljóst
heildaryfirlit um hag landsins.
Sést þar hversu skuldir landsins
hafa safnast óhemjulega á veld-
istíma þeirra Jóns og Magnúsar,
1920—21. Tilraun sú, sem gerð
var í fyrra, að fella þessa eyðslu-
menn, hefir að því leyti lánast
vel, að núverandi stjórn hefir tek-
ist að stöðva skriðuna og látið
eyðsluna fara eftir getu. Um
margt annað í frammistöðu
stjóraarinnar má deila, en stöðv-
un skuldafargansins var þýðing-
armest af öllu, sem landsstjórnin
gat gert.
Magnús Guðmundsson kemur
með stjómarskrárbreytingu, um
að þing verði annaðhvort ár og
fækkun ráðherra. Tíminn mun
fyrst og mest hafa barist fyrír
þingi annaðhvort ár allra blaða
hér á landi, og mun ýta á það
mál eftir mætti, að fram nái að
ganga, og ekki fylgja fordæmi M.
G., sem snérist í fyrra móti sín-
um fyrri skoðunum um lands-
verslun, og nauðsynleg verslunar-
höft, af því að Framsókn bar
það mál fram. Annars er þessu
nauðsynlega nýmæli um fækkun
þinga mest hætta búin af því, að
mótstöðumenn fækkunarinnar
byrji að rífa upp alla stjórnar-
skrána og skapi þar með þann
glundi'oða, sem eyði málinu.
Efri deild hefir haft stutta
fundi og fá verkefni. Flest hin
stærri mál koma til Nd. Er það
ein sönnun þess, að betra væi'i
að hafa þingin færri en þá lengri,
ef með þyrfti, að bæði sparast
f erðakostnaður, og . vinnubrögð
yrðu betri.
Fossamálið kom til efri deildar
og er J. M. formaður nefndar, er
urn það fjallar. Vatnsránið mun
þar vera í minni hluta. En í Nd.
bíða Bjai’ni og Jón þorláksson
eins og tvö lítil Ijón, reiðubúin að
tefja málið, svo að enn vei’ði tæki-
færi að eyða að óþörfu tírna í
málið í sjötta og sjöunda sinn.
þingmannafrumvörp eru fá
enn þá. J. J. hefir borið fram
þrjú: Eitt um gráðaost, að í
næstu 2 ár megi veita 5000 kr. til
að verðlauna útfluttan gráðaost í
næstu tvö ár, alt að 50 aura hvert
kg. pingeyingar hafa með styrk
kaupfélagsins haldið uppi sam-
vinnu-ostabúi síðastliðin tvö ár,
en skaðast á tili’auninni bæði ár-
in. Myndu þeir ekki halda áfram
stuðningslaust, og félli þá þessi
vísir til ostagei’ðar niður fyi’st
um sinn. Málið fær fremur góð-
ar undirtektir í deildinni. Annað
frv. er um íþróttasjóð Reykjavík-
ur. Á hann að fá í tekjur 20%
af tekjum íþróttasýnnga í Rvík.
Sjóðnum skal varið til að byggja
sundhöll við Rvík. Leiða þangað
heita vatnið úr Laugunum og sjó-
vatn í eina sundþi’ó eða tvær.
Sýndi ræðumaður, að þessi að-
gex’ð myndi bæta heilsu og lengja
líf höfuðstaðarbúa, og þeir væru
i/5 allra landsmanna. Auk þess
væi’i jafnan mikill fjöldi annara
íslendinga langdvölum í Rvík, og
myndi sundhöllin þannig ná til all-
mikils hluta þjóðarinnar. Var
þetta fyrsta ræða J. J. í þing-
inu. Jón Magnússon ýfðist við
þessa tillögu. Er auðséð, að hann
gerist nú gamall og þungfær í
hugsun. Mun lítils að vænta af
honum hér eftii’, nema silakepps-
legrar mótstöðu gegn öllum fram-
i'örum. *
----o----
Morgunblaðsfloklmrimi
og „Esjan“.
Stjórnin hefir skírt hið nýja
sti’andfei’ðaskip. Heitir það „Esj-
an“. þau býsn hafa orðið í sam-
bandi við skip þetta, að kaup-
mannadótið í bæjunum hefir
spunnið upp heilan hóp af ósann-
indasögum um það, sem jafnóð-
um hafa verið reknar ofan í höf-
undana. Og ástæðan er sú, að all-
ir vita að Esjan hefir tiltölulega
betra 2. farrými heldur en nokk-
urt annað skip, sem siglt hefir
hér við land. par eiga að vei’a
um 100 rúm, góð loftræsting og
aðbúnaður sæmilegui’. þetta svíð-
ur oflátungum þjóðfélagsins, sjálf-
ir vilja þeir fai’á á fyrsta far-
rými. En hinum efnaminni hluta
þjóðarinnar ætla þeir lestina fyrir
farkost, innan um tunnur og
kassa, karlar, konurtog böi’n, veikt
og heilbrigt fólk aðhlynningar-
laust. þar sem svín eru flutt á
skipum milli landa, er langtum
meira hugsað um heppilega að-
búð þeim til handa, heldur en
„fullveldis“- og peningahetjurnar
unna borgurum hins svonefnda ís-
lenska í’íkis.
Á fjölmennum fundi sumi’a
kjósenda hér í bænum, réðist Jón
kaupm. porláksson á Framsókn-
arflokkinn fyrir að hafa ráðið því
að Esjan væi’i fyrst og fremst
fai-þegaskip, en lítið lestarrúm.
Taldi hann þetta vísa leið til mik-
ils tekjuhalla á útgerðinni. Jón
Bergsveinsson fór í sömu slóð.
Kallaði Esjuna „luksusskip“ o. s.
frv.
Vinir J. p. myndu hafa unnað
honum betra hlutskiftis. Óviljandi
kemur hann þeim heiðri á Fi’am-
sókn, að hún hafi beitt sér fyrir
að afnema lestarflutninginn ill-
ræmda, sem auðvirt hefir íslensku
þjóðina heilan mannsaldur. þetta
er satt. En það dregur þó ekki úr
heiðri núverandi stjórnar, sem
samdi um smíði Esjunnar. Hún
vildi að skipið væi’i gott mann-
flutningaskip. En hún studdist í
því efni við ótvíræðan vilja Fram-
sóknai’.
Enn hörmulegri verður úti’eið
J. p. í útreikningum hans um fjár-
hagslegt gildi lestarrúms og far-
þegarúms fyrir útgerðina. Hann
(hefir ekki einu sinni spui’st fyrir
íxm reikninga Stei’lings. Af hverju
fékk það skip mestar tekjur? Af
farþegjaflutningi. Á hverju skað-
aðist það skip? Á tóma lestar-
•vnpiino
Harmonikur:
Einfaldar frá kr. 18.00—kr. 34.
Tvöfaldar (ítalskar ’ og þýskar frá
kr. 36.00). Þrefaldar frá
kr. 125.00—200.00.
Ski’ifið! — öllurn fyrirspurnum
svarað.
HljóSfærahúslð,
Laugaveg 18.
(höfuðból) með áhöfn, nál. Rvík
til sölu.
Áreiðanlegt tækifærisverð.
Ennfremur húseignir og lóðir
til sölu.
Jón Magnússon,
Njálsgötu 13 B.
Kirkjuhjáleigan Svartagil' í Þing-
vallasveit fæst til ábúðar í næstu
fardögum. Á jörðinni eru hægar
slægjur og góð beit. Semja ber
við sóknarprestinn á Þingvöllum.
Fyrir rjómabú.
Gerber’s mjólkurmælar
mjólkurpípettur
sýrupípettur
alkohoipípettur
mjólkurprufuglös.
Mjög ódýrt í stærri kaupum.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Bankástr. 11. Simn.: Sportvörahúsið.
rúminu. því að vönxflutningar
með ströndum fram eru nú næsta
litlir, en þörfin fyrir hraðskreitt
mannflutningaskip afarmikil.Hvað
heldur J. p. um gróðann af stóru
gufuskipi, sem fer strandferð með
15 smálestir, sem dæmi eru til?
Ekki fór betur fyrir hinum Jón-
inum. Rétt eftir fundinn kom
hann til forstjóra Eimskipafél. og
fékk að sjá teikningar af Esjunni.
Varð hann þá að játa, að skipið
væri hið álitlegasta, og rendi þar
með á venjulega Morgunblaðs-
vísu niður öllum sínum fyrri um-
mælum, sem bygð voni á full-
kominni vanþekkingu.
Svo fór um sjóferð þá. J. J.
--------------o-----
Morgunblaðið flytur þá fregn
að það hafi borið sig' árið sem
leið. „Síðan Morgunblaðið varð
hlutafélagseign er þetta fyrsta ár-
ið sem það hefir borið sig fjár-
hagslega", segir blaðið. En það
á eftir að geta nánar um ýmsa
tekjuliðina. Hvað var upphæðin
há t. d. sem Morgunblaðið fékk
að launum frá Steinolíufélaginu
fyrir skrifin móti landsverslun-
inni? Og hvað fær Morgunblaðið
háa „drykkjupeninga“ frá bjór-
gerðarmönnunum dönsku, fyrir
hinar mörgu og leiðinlegu greinar
sem það hefir flutt undanfarið
um það, að leyfa ætti innflutning
á áfengu öli?
Morgunblaðið flytur þá fregn
að maður einn af Vestfjörðum,
ónafngreindur þó, hefir skrifað
það, að Bimi Kristjánssyni muni
ganga „gott eitt til að skrifa um
verslunarmálin og að hann geri
það af innilegri sannfæringu“.
þykja blaðinu þetta fágæt tíðindi
og gleðileg, sem vonlegt er.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Prentsmiðja Acta h/f.