Tíminn - 10.03.1923, Page 4
18
T í M I N N
Notid að eins íslenskar vörur.
Kaupið að eins íslenskar vörur.
Haflð þér séð nýju dúkana frá Klæðasmiðjunni Álafoss?
Þeir eru bæði til notkunar í fatnað, dyratjöld, útsaumsdúka
o. m. fl. til prýðis á íslensku heimili.
iar- Islenskir dúkar klæða Islendinga best.
Klæðasmiðjan Alafoss, t. Reykjavtk.
Smásöluverð á tóbaki
má ekki vera liærra en hér segir:
Mellemskraa (Augustinus, B. B., Krtiger eða Obel) kr. 22.00 kg.
Smalskraa (Prá sömu firmum)...........— 25.30 —
Hjól (B. B. eða Obel) . ..............— 10.20 bit.
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0.
Landsverslun.
Til kaupfélaga!
H.f. Smjörlíkisgerðin í Reykjavík er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
Biðjið um íslenska smjörlíkið.
um féð heima, að gera nú ræki-
legar tilraunir með svælu. Byrj-
uðu þeir á að svæla fyrst lítið í
húsunum, sem virtist þá engin
áhrif hafa, en þegar þeir byrjuðu
aftur, fundu þeir ráð sem dugði.
Tóku þeir nú þakjámsplötu,
bleyttu tusku í steinolíu, kveiktu
í henni á plötunni, létu svo tjör-
una drjúpa í logann. Platan hitn-
aði strax, og tjaran rauk meir
en hún logaði. þetta var að kvöldi
dags, og er þeir höfðu fylt hús-
ið af reyk, svo að ekki sáust
dyrnar, ef maður var innan við
kampana, birgðu þeir strompa,
glugga og dyr, ekki þó svo, að
alveg yrði loftlaust, og létu svo
kindurnar vera í reyknum yfir
nóttina. Um morguninn voru all-
ar kindurnar orðnar jafnlitar, þær
hvítu orðnar svartar. Fyrsta til-
raunin var gerð í litlum kofa með
fáar kindur. Síðan voru allir
gemlingamir svældir á sama hátt,
og .síðan ærnar. En svo brá við,
að næstu daga á eftir fóru geml-
ingamir að leika sér eins og ung-
lömb, en höfðu ekki borið það við
áður. Sama var með ærnar, þær
fengu alt annað bragð, og farið
var þá að bera á skituklessing í
fénu, og það batnaði einnig. það
var á einmánuði, að við svældum
féð. Á næsta bæ var einnig far-
ið að bera á veikindum á fénu,
og réðum við til að reyna svælu
á sama hátt við veiku kindurnar,
og sagði bóndinn mér það síðar,
að þeim hefði bráðbatnað, og
strax farið að þrifna.
Eg vil óska, að sem flestir
bændur vildu gera tilraun með
svælu, einkum þar sem ormaveiki
verður vai*t í sauðfé, því ekki
þykir mér ólíklegt, að svælan
drepi garnaorminn líka, og máske
fleira, sem veldur óþrifum, en
rétt er að byrja með fáar kindur
fyrst, og sjá hvernig áhrifin
verða, þó eg hafi alls ekki orðið
þess var, að reykurinn hafi gert
nokkurri sauðkind mein, og ekki
heldur að reykurinn hafi skemt
ullina, þó hvítt fé hafi orðið svart
eða grátt fyrst eftir svæluna.
Eg man eftir því, að eg heyrði
gamla menn segja, þegar þeir sáu
kindur í krók í eldhúsi eða smiðju:
„þessar kindur fá ekki plágu“.
Menn hafa verið búnir að taka
eftir því, að reykur hafði góð
áhrif á fé, og oft var svælt í fjár-
húsum áður, til varnar bráðafári,
og var þá brent allskonar rusli.
En ef fé er svælt í þesskonar
reyk, fær það brátt hósta, en
kemur varla fyrir, að það hósti
af tjörureyk eintómum, og sér-
staklega ef notuð er sú aðferð,
að láta tjöruna rjúka á heitri
járnplötu. Bæði er mikið fljótara
að svæla á þann hátt, og þarf
mikið minna af tjöru. Eg geri
ráð fyrir, að peli af hrátjöru sé
nægilegt til að svæla í 50 kinda
húsi, ef húsið er ekki óvenjulega
loftmikið, t. d. einfalt jámþak
eða annað óþétt þak, sem reyk-
urinn færi út um viðstöðulaust.
Eg hafði hugsað mér að skrifa
ekki um þetta fyr en eg hefði
fengið meiri reynslu í því efni,
en svo hefi eg verið hvattur til að
skrifa nú þegar,af því þetta þyldi
enga bið. því þrátt fyrir gott ár-
ferði gæti lungnaormurinn ein-
hversstaðar gert tjón, og fjár-
menn mundu þá reyna þessa að-
ferð, og á þann tíátt bjarga nokkr
um kindum strax á næsta vori.
Staddur í Reykjavík, í mars 1923.
Guðmundur Jónsson Hoffell.
----o----
Yfir landamærin.
Innan Mbl.flokksins er altaf flokka-
dráttur og ýfingar út af rekstri blaðs-
ins. B. Kr. vill reka þ. G. frá rit-
stjórninn og segir við vini sína stynj-
andi: „það er aldrei hægt að trúa
þessum gömlu heimastjói'narmönn-
um“. B. Kr. vildi í stað þ. G. taka
unglingspilt, sem lagt hefir stund á
efnafræði. En J. þ. og J. M. halda á
móti sjálfstæðishetjunni.
Kvittur kom upp fyrst á þinginu
um að J. M. hefði lagt sig mjög í
framkróka að ná forsetakosningu í
sameinuðu þingi. En Moggadótinu
fanst það óráð, sem og var, því að
Jón hefði fengið enn minna en Jóh.
Hégómleiki slíkra manna hefir rúm
landamerki, eins og sést á hungri
þeirra í krossa og titla.
Komið hefir til orða meðal sam-
vinnumanna á þingi, að beitast fyr-
ir því, að landið gefi 12 þingmönn-
um úr liði Mbl. og 12 af eigendum
þess blaðs ókeypis fárbréf tvær
fyrstu hringferðir Esjunnar kring um
landið. Eiga þeir að vera í neðri lest-
inni innan um kassa og tunnur. Geta
þeir þá sannfærst um, hvaða farkost
þeir hafa ætlað almenningi. En tvær
ferðir verða þeir að fara, því að ef
þeir hefðu ráðið, myndi Esjan hafa
verið vörudallur, sem hefði komið á
hverja smáhöfn, og verið mánuð með
hverja hringferð.
Jón Bergsveinsson er orðinn bljúg-
ur og auðmjúkur i steinolíumálinu,
enda eru sjómenn búnir að gefa hon-
um marga beiska hirtingu fyrir und-
irlægjuskapinn gagnvart Standard
Oil. Á Fiskifélagsfundi nýlega þorði
hann ekki að bera fram neina tillögu
móti landsverslun með olíu. En ræðu
hélt hann þar, sem Mbl. prentar.
Reynir hann eftir megni að endur-
taka þar sinn gamla skáldskap um
að landsverslun leggi of mikið á olí-
una, og reiknar eftir gróða lands-
<»
verslunar. þetta tekst honum með
þvi að skálda um tunnusöluna, gera
ráð fyrir að enginn kostnaður sé við
olíuna hér á landi, bæta ágóða af
öðrum vörutegundum á olíuna o. s.
frv. En yfirleitt er Jón að sjá að
sér um olíuna eins og Esjuna. Hing-
að til hefir honum verið í meira lagi
villigjarnt.
Á Fiskifélagsfundinum hélt Einar
þorgilsson ræðu um ísl. strandvarn-
arskip. Kvað líklegt, að íslendingar
gætu notað slíkt skip, ef einhver
skipstjóri lærði að draga nærlínu og
fjærlínu í vissan punkt, og beita
áhaldi því, er á voru máli gæti heit-
ið „varðtór, en á útlendu máli héti
„kanóna". — Moggadótið hefir kosið
Einar í mentamálanefnd neðri deildar.
Gullkvörn landssjóðs er farin að
hreyfast aftur. Malar í Mogga ósann-
indi og blekkingar um Sambandið,
Samvinnskólann og Sláturfélagið.
Ætlar að sanna að bændur hafi skað-
ast mörg jarðarverð, á kjöti og ull,
sem Sís og Sf. Sl. hafa selt. Skyldu
margir trúa þessu? Hver er svo fú-
fróður og ósvífinn að neita því, að
það eru þessi félög, sem hafa mest
bætt vöruvöndun og vörusölu bænda?
þessum félögum eiga bændur að
þakka, að þeir hafa ekki verið rún-
ir miskunnarlaust inn að skirtunni.
Gullkvörnin gerir J. J. mikinn heið-
ur með því að reikna kaup hans í
jarðaverðum: hvað það verði mikið
á 40 árum, samhliða og ráðist er
með rógi og dylgjum á tvö stærstu
sjálfbjargarfyrirtæki bændanna. Ekk-
ert sýnir betur nauðsyn og þörf fé-
lagsmálafræðslu, heldur en sá gegnd-
arlausi ótti, sem þjónar milliliða-
valdsins sýna stöðugt í viðhorfinu
gagnvart Samvinnuskólanum. Skyldi
þeim verða að trú sinni? X.
-----0-----
Alþíngi.
Framh.
þriðja frv. J. J. er um húsa-
leign í kaupstöðunum, að hún
megi ekki í næstu 3 ár vera meiri
en 12% af fasteignarverði húsa.
Er þetta gert til að minka dýrtíð-
ina 1 landinu. Jarðir, skip, vinna
og allar ísl. afurðr eru fallnar í
verði um helming eða meira. En
húsaleigan í kaupstöðunum er enn
á hámarki. Er þetta ólag á góð-
um vegi með að eyðileggja at-
vinnulíf þjóðarinnar, heldur uppi
kaupi embættismanna og verka-
manna, án þess þó að skapa þeim
nokkra velmegun, heldur þvert á
móti hið gagnstæða. Og í annan
stað eiga framleiðendur til lands
og sjávar í megnustu vök að
verjast, af því framleiðslukostn-
aðurinn er of mikill í hlutfalli við
verð afurðanna erlendis.
Lárus Helgason hefir flutt fyr-
irspurn um kostnað við Löggild-
ingarstofuna. Mun það fyrirboði
frumvarps frá honum um að
leggja þá stofnun niður. J. J. hef-
ir spurt um tvent: Ferðakostnað
ráðherra utanlands og innan síðan
1917. Er talið, að sumar þær ferð-
ir hafi orðið óskiljanlega dýrar á
gullaldarárum J. M. og þörf að
leyfa hlutaðeigendum að gefa
skýringar. önnur spuming er um
hverjir af þingmönnum og dóm-
urum eigi hlutabréf í Islands-
banka. Er hinn mesti úlfaþytur
í liði þeirra, sem bankinn hefir
gefið mest upp, út af fyrirspum
þessari. Gera þeir ráð fyrir að
þetta gæti orðið lítil byrjun á
óþægilegum umræðum. þingmenn
og dómarar eiga að skera úr stór-
miklum deilumálum, sem komið
geta upp milli þjóðarinnar og
bankans. Landið á t. d. í máli
við bankann út af 70—80 þús. kr.
vangoldnum seðlaskatti. Fyrir
dómi Jóh. Jóh. hefir landinu ekki
verið tildæmd nema fáein þúsund
af upphæðinni. Jóh. greiddi atkv.
móti því að fyrirspurn J. J. væri
leyfð, en nú kemur málið fyrir
hæstarétt. þarf að rannsaka,hverj
ir af dómurum þar eiga í bank-
anum, því að ósmekklegt er að
þeir dæmi í eigin sök. Sama er
að segja um þingmenn. þeir eiga
á fjölmargan hátt að gæta hágs-
muna landsins gagnvart hlutafé-
laginu IslandsbankL Undir dómi
þeirra um bankann getur verið
komið, hvort hluthafamir tapa
hlutabréfum sínum í gjafimar til
Coplands, Helga Zoéga o. s. frv.
eða landsmenn verða að borga tap-
ið með óeðlilega háum vöxtum.
Sig. Eggerz er ekki enn farinn að
svara þessari fyrirspum. Og í
þingfréttum hverrar viku mun get
ið um, hve lengi sá dráttur varir.
Vinir og blöð hluthafanna hafa
reynt að verja sig með því, að
hlutabréfin væru ekki nafnsett.
En það er engin afsökun. Hluta-
bréf Landmandsbankans vora
heldur ekki upp á nafn, en samt
reyndist auðvelt fyrir þing og
þjóð að fá rannsakað, hvað mik-
ið Cold utanríkisráðherra átti í
þeim bréfum. Jafnvel flokksbræð-
ur forsætisráðherrans heimtuðu
að hlutaeign hans væri rannsök-
uð, og það var gert.
Stjórnin bar fram frumvarp til
hjúalaga, eftir ósk neðri deildar í
fyrra. J. M. var í nefnd þeirri er
fjallaði um málið. Vildi hann
fella niður um 30 gr. af frum-
varpinu, en láta eina eða tvær
standa, og gilda gamla, sundur-
lausa mola. Sást á því, að J. M.
kann vel við glundroðann á lög-
gjöfinni og vinnur móti myndun
heildarlaga. Framvarpið var felt,
og sömuleiðis grautarframvarp,
sem Jón hafði soðið upp úr því.
Frumvai-p J. J. um 5000 kr.
verðlaun á ári í útflutningsverð-
laun fyrir úrvals gráðaost, hefir
komist gegnum 2 umræður í efri
deild. Fátækralögin hafa verið í
nefnd í efri deild. Verða þar átök
milli Framsóknar og Mbl.manna.
Hinir fymefndu vilja hafa sveit-
festistímann stuttan, 1—2 ár,
mest 3, en Mlb.menn hafa sveit-
festina langa. þeir vilja gjarnan
draga sem mest af verkfæru fólki
úr sveitunum 1 sjóþorpin. Láta
það ekki verða sveitlægt fyr en
eftir langan tíma. Halda þeim sem
hraustir eru, en senda þá, sem
heilsulausir verða eða hafa mikla
ómegð, til fæðingarhreppsins.
Hlutverk sveitanna er þannig orð-
ið það, að ala upp starfskraft
handa bæjunum, og ala önn fyr-
ir íniklu af þurftarliði kaupstað-
anna. þessu verður að breyta,
stytta sveitfestistímann sem mest,
en jafnframt gefa hverju bæjar-
félagi eða sveit, rétt til að loka
dyranum fyrir óhollu aðstreymi.
þá býr hvert sveitarfélag að sínu.
Sennilega verður þetta mál ekki
útkljáð nú á þinginu, enda er það
vel fallið til að vera kosningamál.
Frumvarpið um að húsaleiga í
kaupstöðunum verði ekki hærri
en 12% af fasteignamati, er í
nefnd í efri deild. Mbl.flokkurinn
er í miklum vandræðum með lausn
málsins. Vegna húseigenda vildu
þeir eyða framvarpinu, eða spilla
því svo, að það verði gagnslaust.
En í flokki sínum hafa þeir flest-
alla starfsmenn landsins í bæjun-
um. Og margir þeirra eru alveg
að sligast undis húsaleigubyrð-
inni. Verða sumir þeirra að borga
helming launa sinna í húsaleigu.
Fyrir aðra landsmenn er lífs-
nauðsyn að framvarpið nái fram
að ganga. Mistakist það, krefjast
embættismenn hærri launa, kaupa-
fólk og sjómenn hærra dagkaups.
Dýrtíðin heldur áfram stöðvun-
arlaust. Frh.
-----o----
Sigurður Magnússon
læknir frá Patreksfirði tekur að sér
allskonar
tannlækningar og tannsmíði.
Til viðtals á Uppsölum 10y2—12
og 4—6. Sími 1097.
i. síðastliðnu hausti var mér
undirrituðum dregin livít ær á 4.
vetri með mínu marki, stýfður
helmingur framan hægra, biti aftan
og stúfrifað vinstra. Þessa kind á
eg ekki. Réttur eigandi sanni eign-
arrétt sinn, semji um markið, vitji
andvirðis kindarinnar til mín og
greiði áfallinn kostnað.
Snæringsstöðum í Húnavatussýslu,
30. des. 1922.
Jón Baldvinsson.
Kirkjuhjáleigan Svartagil í Þing-
vallasveit fæst til ábúðar í r.æstu
fardögum. Á jörðinni eru hægar
slægjur og góð beit. Semja ber
við sóknarprestinn á Þingvöllum.
Hljómleikar. Reykvíkingar eiga
að fagna óvenjulega góðum hljóm-
leikum um þessar mundir. Páll
Isólfsson hefir efnt til hljómleika
undanfarið í dómkirkjunni. Leik-
ur sjálfur á orgel ög jafnframt
syngur afarfj ölmennur söngflokk-
ur, kvenna og karla, afbragðsfög-
ur lög eftir hina frægustu tón-
snillinga. Kirkjan hefir verið troð-
full af fólki þessi kvöld, enda eig-
um við höfuðstaðarbúar engan
kost betri skemtunar og áhrifa-
meiri guðsþjónustu. — Svo hefir
prófessor Sveinbjörn Sveinbjörns-
son efnt til hljómleika í Nýja
Bíó. Stúdentar sungu, þórarinn
iék á fiðlu, sjálfur lék prófessor-
inn á píanó og öll vora lögin eft-
ir hann. Stúdentarnir sungu ekki
sérlega vel, og Sveinbjöm leikur
ekki sérlega vel á hljóðfæri leng-
ur, enda er hann nú orðinn há-
aldraður. En engu að síður verð-
ur flestum mjög minnisstæður
þessi hljómleikur. Fyrst og fremst
þlátt áfram það að fá að sjá tón-
listarkonung íslands, hið háaldr-
aða, tígulega göfugmenni, silfur-
háran og sviphreinan, er hann
varð að fá stuðning upp á söng-
pallinn, en sat svo spengilegur og
eins og kornungur við hljóðfærið
og var eins og ekkert annað en
,sönglistin. Og í annan stað að fá
að heyra fjölda af nýjum tón-
smíðum hans, og er þar um
rniklu auðugri og mikilfenglegri
auð að ræða en nokkurn hefir
grunað. Og alt er það svo háís-
lenskt og eins og sungið út úr
hjarta íslendinga. Meðferð Svein-
bjarnar á rímnalögunum íslensku
minnir á það líf og þá djúpsettu
hugsun sem Einar Jónsson getur
iátið birtast í köldum steininum.
— Mikill heiður hlotnast höfuð-
staðarbúunum að fá að háfa
Sveinbjörn hjá sér síðustu árin
hans. þeir hafa það hlutverk af
hálfu landsbúa að gera hlýtt í
kringum hann og frú hans. Börn-
um okkar og barnabörnum verð-
ui sagt frá því, hvernig okkur
ferst nú við þennan óskmög ís-
lands.
Út af grein eftir sjúkling, sem
farinn er frá Kleppi, sem birtist
nýlega í blaði hér í bænum, hefir
læknirinn þar beðið stjórn
Læknafélags Islands að rannsaka
á hvaða rökum umrædd grein
var bygð.
Síra Björn þorláksson á
Dvergasteini er nýkominn til bæj-
arins til stuttrar dvalar.
Leikfélagið ætlar að fara að
fara að leika hið fræga leikrit eft-
ir Ilinrik Ibsen: Víkingarnir á
Hálogalandi.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðja Aeta h/f.