Tíminn - 09.06.1923, Síða 2

Tíminn - 09.06.1923, Síða 2
64 T 1 M I N N H.f. Eimskipafélag íslands. Oplding arðmiða frá árinu 1918. Það tilkynnist hérmeð að arðmiðar frá árinu 1918 eru, samkvæmt lögum félagsins, ógildir frá 28. júní þ. á. að telja og verða þeir ekki innleystir eftir þann dag. Reykjavík, 5. júní 1923. H.f. Eiinskipafélag’ íslaiids. Kjöttunmir, alt til beykisiðnar, smjörkvartél o. s. frv. frá stærstu beykissmiðju í Danmörku. L. Jacobsen, Köbenhavn Valby. Iiöl'um í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup- manna. Tveir þingmenn. Blöð kaupmanna hafa mjög fjöl- yrt um það nú undanfarið, að ann- ar landkjörni þingmaðurinn í Framsóknarflokknum (J. J.jmyndi ekki vera fulltrúi síns flokks, sem aðallega er myndaður af sveita- mönnum, heldur miklu fremur vinna fyrir kauptúnin. Til fróð- leiks fyrir þá, sem ekki hafa þing- tíðindin, ætlar Tíminn að birta skrá yfir þau frumvörp, er tveir þingmenn fluttu, eða voni við- riðnir í vetur. Annar þeirra er 5. landskj. (J. J.). Hinn 1. þm. Skag- firðinga (M. G.). Taflan er ef til vill ekki alveg tæmandi, en það á þá jafnt við báða. Aðstaða þess- ara tveggja þingmanna er lík að því leyti, að báðir hafa nær ein- göngu verið kosnir til þings af bændum. Skal þá fyrst sagt frá frv. og tillögum M. Guðmunds- sonar: 1. Um lierpinótaveiði í Skaga- firði. Eftir tillögum fundar á Sauðárkróki. 2. Um breytingar á stjórnar- skránni. þing annaðhvort ár. Tek- ið eftir tillögum Tímans. Bætt við að lengja kjörtímabilið, til að minka áhrif kjósenda á þingmál. Frv. og tillögur Jónasar Jónsson- ar frá Hriflu: 1. Bankaráð íslands. Að sveit- irnar hefðu 2 fulltrúa yfir öllum lánsstofnunum, móti 2 frá kaup- túnunum. B. Kr. lagðist á móti þessu (og Morgunblaðsflokkurinn yfirleitt), af því að ósvinna væri að ætla að draga helminginn af veltufé bankanna til þarfa landbún aðarins. 2. Um kirkjugarð í Reykjavík (meðflm.). Lagt til að garðurinn beri sig, svo að landssjóður hafi ekki að óþörfu árleg útgjöld. 3. Byggingainefnd landsins (með E. A.). Til að gera landinu kleyft að nota vörugeymsluhúsið Nýborg undir vínverslunina. Hefði sparað landinu 30—40 þús. kr. í húsaleigu. Vísað frá með dagskrá frá J. M., sem er einn af þeim mörgu, sem leigja áfengisverslun- inni í húsi sínu. 4. Vaxtakjör landbúnaðarins (Framsókn í Ed.). Vextir af veltu- fjárlánum til sveita skyldu vera 1% lægri en á öðAim lánum. Mið- að við áhættuna, að láta ekki bænd ur borga nema að nokkru leyti skakkaföll síldarkaupmanna og annara, sem mestu tapa í bæjun- um. Móti þessu börðust Mbl.menn af alefli. Ræða Jónasar Jónssonar frá Hriflu þegar rætt var um rannsókn á fjárhagsaðstöðu íslandsbanka gagnvart ríkinu. ------- (frh.) Eg skal ekki fara mikið út í mat- ið sjálft. Niðurstaðan varð sú, að hlutabréfin væru enn nálega í full- virði. Að vísu væri um verulegt tap að ræða, en varasjóður myndi duga til að jafna það, að mestu. Nefndin virti hlutabréfin á 91%, en einn bankastjórinn, Eggert Claessen, var óánægður með þá virðingu, vildi láta landið, ef það keypti þau, kaupa þau yfir nafn- verð. En það hefir fallið annar dómur um störf nefndarinnar. Erlendis hafa bréfin mjög fallið síðan mat- ið var framkvæmt. þau munu jafn- vel hafa komist niður í 38%. Sá dómur er bygður á kauphallar- verði í Danmörku, bygður á dómi þeirra manna erlendis, er mest af- skifti hafa af íslandsbanka. Hann er því þungur dómur á rannsókn- arnefndina. það er hæpið, þegar 5. Verndu'1 þingvalla (með G. G.). Friða þingstaðmn og skóginn í þingvallahrauni. Mbl.menn í Ed. töfðu það meðan þeir gátu, og svæfðu það í Nd. 6. Fátækralögin. Kom með breyt ingartillögu um að lækka sveit- festistímann í 2 ár. Bygt á því, að sveitin geti ekki í einu alið upp starfsafl handa bæjunum og tekið við þeim, sem hellast úr lestinni. Mblflokkurinn vildi vegna bæj- anna hafa sveitfestistímann sem lengstan. Kom honum loks í 4 ár. 7. Húsmæðraskóli á Staðarfelli (með S. J.). Tillaga um að byrja þegar í stað fyrsta húsmæðraskóla í sveit, þar sem til væri jörðin, húsið, stór sjóður og kenslukona vel hæf. Móti þessu lagst eftir föngum af Mbl.flokknum. 8. Sameina forstöðu síma og póstmála á Akureyri (með E. Á.). Spara þar með einn starfsmann. 9. Um laxveiðar (með G. G.). Banna að þvergirða ár með veiði- vélum. Gert ráð fyrir verulegum landssjóðsstyrk, þar sem bændur við veiðiár starfræktu laxaklak sameiginlega. Dæmi um nytsemi slíkrar breytingar má sanna með því, að 62 bændur í Aðaldal og Reykjadal höfðu árangurslaust beðið um fyrra atriðið 1918. Ein jörð þar hefði tapað einhverju við breytinguna. 10. Um bifreiðaskaít (brtt. með G. G.). Um að lækka skattinn á hinum stóru og ódýru mannflutn- ingabifreiðum. Varð upphaf að því, að þingið styrkir nú slíkar ferðir, og sparar fólki á Suðurlandi tugi þúsunda í útgjöld nú í sumar. 11. Um áfengissjóð. Nota fyrstu 20% af gróða áfengisverslunar- innar til að styrkja þjóðina beint og óbeint í baráttu við vínbölið. 12. Um menningarsjóð landsins. Nota hin 80% þannig: 10% til náttúrufræðisiðkana, 10% til að gefa út ódýrar og góðar fræði- og skemtibækur, 10% til að kaupa fyrir listaverk landinu til handa. En heiming fjárins skyldi varið til nauðsynlegra húsabygginga til menningar og manndómsauka. Fyrst og fremst til að „koma upp nauðsynlegum byggingum fyrir héraðsskóla í sveitum“. Ennfrem- ur til landsspítala o. fl. 13. Að veita smáupphæð til að fá prestvíðgan mann úr Reykjavík til að annast guðsþjónustur í Mos- íellssveit, fremur en stofna þar nýtt embætti, eins og Mbl.fl. vildi. 14. Um landsspítala. Lagt til að byggj a hann við Laugarnar í Rvík, vegna hitans. Húsameistari áætlaði kolahitun í byggingunni 70 svona stendur á, að nota allra svæsnustu skammaryrði málsins um þá menn, er ekki að öllu leyti vilja ganga inn á dóm nefndarinn- ar, sem hefir þar að auki ekki á minsta hátt rökstutt þetta mat op- inberlega. Og skrítin tilviljun er það, að nálega sömu menn, sem kusu hagstofustjórann og þm. G.-K. (B. Kr.) til þessarar virðing- argjörðar, lögðu á flótta út af lok- aða fundinum í vetur, þegar far- ið var fram á heimulega athugun á íslandsbanlca. þeir vildu þá ekki einu sinni eiga tal við þá, sem vildu á friðsamlegan hátt kynna sér tryggingar þær, er íslands- banki hafði gefið fyrir því fé, er hann hafði fengið af enska láninu. Um þetta leyti höfðu banka- stjórar íslandsbanka mjög farið að týna tölunni. Einn hafði fengið lausn, vegna heilsubilunar, og ann- ar lengi legið veikur. Bankaráðið er svo skipað, að í því eru 7 menn. Eru 3 kosnir af þingi, 3 af hlut- höfum, og forsætisráðherra ís- lands sá 7. Island hefir því jafnan meiri hluta í bankaráðinu, auk þess sem forsætisráðherra hefir venjulega umboð fyrir erlenda hluthafana. Val bankastjóranna ætti því að vera á ábyrgð íslenskra manna, og gæti verið það. En í framkvæmdinni mun það hafa oi’ð- þús. kr. á ári, með núverandi kola- verði. 15. Rannsókn á íslandsbanka (öll Framsókn). Mbl.flokkurinn allur á móti, vegna hluthafanna, og ef til vill þein’a, sem gefið hef- ir verið upp. 16. Um læknisembætti (með H. Kr.), að veitingarvaldið skyldi taka tillit til þess, ef meiri hluti héraðsbúa í einhverju læknishér- aði, mæltu með eða móti vissum umsækjendum. Tókst meðan á þingi stóð, í skjóli þessarar til- lögu, að tryggja einu sveitahéraði ágætan lækni, og forða öðru frá óhæfurn lækni. 17. Um strandvarnar- og björg- unarskip (með Sv. Ó.). Sýnt fram á, að strandvarnarskip myndi langdrægt geta borið sig, ef það hefði fullkomin björgunai’tæki, og stýrimannaefnin lærðu þar eins og á skólaskipi. Mbl.menn vildu hvor- ugt, heldur eyða 200—300 þús. kr. árlega í relcsturshalla á gæslu- skipi. 18. Takmörkun á húsaleigu í kauptúnunum. Lagt til, að leigan yrði miðuð við 12% af fasteigna- mati. Mundi hafa lækkað húsa- leigu í Reykjavík meir en um helming, og þó verið sanngjarnt. Létt undir með öllum atvinnurek- endum, sem verða að miða kaup- gjald við dvalarkostnað í kauptún- ið svo, að minni hlutinn, útlend- ingarnir, hafa stungið forsætisráð- herranum og hans fríða íslenska fylgdarliði í vasann. pegar nú að stjórn Jóns Magnússonar og hlut- hafarnir fóru að svipast um eftir manni í stað þess, sem burtu fór, þá völdu þeir málafærslumann einn hér í bænum, sem verið hafði lögfræðilegur ráðunautur mjög margra af stærstu útgerðar- og kaupsýslufyrirtækj unum hér í bænum. Og mörg af þeim voru þá orðin höfuðskuldunautar íslands- banka. Eg vil nú á engan hátt segja það, að sá bankastjórinn, sem skipaður var af hluthöfunum, sé ekki duglegur og gegn maður, eða að það hafi ekki að ýmsu l^ti verið ávinningur fyrir bankann að fá hann, einkum ef miðað er við dáðleysi fyrirrennaranna. Eg álít meira að segja, að bankinn myndi hafa tapað minna 1919—20, ef hr. Claessen hefði þá verið einn í stjórn hans. En að hann er skip- aður af hluthöfum, og telur sig því fyrst og fremst eiga að gæta hagsmuna þeirra, kom ljóst fram á fundi, er 1. þm. Rang. (G. S.) hafði boðað til hér í bænum í vet- ur, og ræddi um bankamál. Eggert Claessen lýsti því yfir á þeim fundi, að gengismálið kæmi Is- unum. Mbl.flokkurinn lagði mikið kapp á að halda uppi húsaleigunni. M. Guðm. taldi sig tilleiðanlegan að hjálpa embættismönnum í Rvík með húsaleigustyrk úr lands- sjóði. I þinglokin komu Mbl.menn fram með styrk og lán úr lands- sjóði handa embættismönnum í Rvík. peirra lausn var að lofa hús- eigendum að okra á atvinnuvegun- um, en láta embættismönnum landsins hjálp í té, svo að leigan kæmi ekki við þá. 19. Hæstiréttur. Lagt til að fækka starfsmönnum um helm- ing, dómurum úr 5 í 3, og leggja niður ritaraembættið. Mbl.menn á móti. 20. Póstflutningur í Skaftafells- sýslur. Tillaga um að gera tilraun- ir með að koma pósti í land á ein- um stað í Vestur-Skaftafellssýslu, og öðrum stað í Austur-Skafta- fellssýslu, í vatnsheldu hylki, á streng, gegnum brimið. Tilraunir verða gerðar í sumar. Ef þetta lánast, geta Skaftfellingar fengið og látið póst í hvert íslenskt flutn- inga- eða farþegjaskip, sem fer með ströndinni. 21. Um póstflutninga yfirleitt. pingsályktun að rannsaka kostnað við'að breyta póstgöngunum þann- ig, að póstur verði fluttur hálfs- mánaðarlega um næstu bygðir frá aðalhöfnum. Skipaferðir notaðar landsbanka ekkert við. Ef rétta ætti við gengið, þá ætti landið að gera það. petta er auðvitað rétt frá lagalegu sjónarmiði. Islands- banki er gróðafélag, eign erlendra manna. Bankastjóri, sem hluthaf- arnir skipa með aðstoð vina sinna í landsstjórninni, skoðar sig fyrst og fremst sem fulltrúa hluthaf- anna, og telur sig eiga að gæta réttar þeirra. En þetta kemur þjóðinni við, sem líka á sinna hagsmuna að gæta í bankanum, vegna þess fjár og þeirra hlunn- inda, sem hún hefir látið bankan- um í té. En hér kemur til greina vanræksla frá hálfu stjórnarinnar. Illuthafar bankans hafa einn mann til að gæta sinna réttinda, en land- ið á að hafa tvo til að gæta sinna. Og nú kemur að því, hversu lands- stjórnin hefir þar gætt skyldu sinnar. Fyrverandi landsstj órn hafði látið bankanum í té meiri hluta enska lánsine, honum til hjálpai’, en framfylgdi ekki þeirri heimild, er hún hafði, til að skipa tvo bankastjóra í hann, til að gæta hagsmuna landsins. Danski banka- stjórinn, Tofte, mun því hafa ráð- ið mestu um, hvernig þessu láni var ráðstafað. petta var hvorki til- gangur þingsins, né í samræmi við erlenda venju, þar sem líkt stend- ur á. milli hafna. pessi umbót myndi ná til hvers einasta heimilis í land- inu, einkum minka einangrun sveitanna. 22. Um gráðaost. Útflutnings- verðlaun næstu tvö ár, svo að reynt verði til þrautar, hvort ekki geti orðið til almennra hagsbóta fyrir bændur að framleiða þessa vöru. 23. íþróttasjóður Reykjavíkur. Lagt til, að skattur af íþróttasýn- ingum í Reykjavík rynni í sjóð, sem nota mætti eingöngu til að koma upp sundhöll hjá Rvík. Leiða heita vatnið úr Laugunum heim að bænum, og dæla sjó upp í eina sundþróna. Mentamaður úr Skaga- firði sagði, að þetta hefði verið merkasta frumvai’pið sem lá fyrir þinginu. 24. Um opinberar skrifstofur í Rvík (allir Framsóknarmenn í Ed.). Áskorun til landsstjómar- innar um að fá tvær efstu hæðirn- ar Landabankahúsinu (25—30 herbergi) og flytja þangað eins mikið og unt væri af hinum dýru skrifstofum landsins, sem verða sumar að borga mörg þúsund krónur árlega í húsaleigu hjá ein- stökum húseigendum. 25. Ófriðun sels í Ölfusá. Selur á tveim jörðum spillir laxveiði fyr- ir meir en 30 bændum við Ölfusá og ám, sem í hana renna. 26. Eftirlaun B. Kr. Niðurlagn- ing þeirra. Opinbert leyndarmál að maðurinn er stórríkur. Mbl,- flokkurinn bjargaði B. Kr. 27. Um síma að Brekku í Fljóts- dal og til Loðmundarfjarðar frá Seyðisfirði. 28. Um hækkun sekta fyrir smyglun áfengis og opinbert öl- æði. Felt við 1. umræðu í Ed., af Mbl.mönnum, eftir ósk dómarans í Rvík, Jóh. Jóh. 29. Um viðboð til sjómanna, þ. e. að láta rannsaka, hvort ekki væri unt á ódýran hátt að vara sjómenn með þráðlausu símtali við komu ofviðra. 30. Um framfærslu ekkna og barna druknaðra sjómanna. Lagt til, að þeim yrði veittur lífeyrir með sérstakri álagningu á útflutt- ar sjávarafurðir. 31. Fyrirspurnir: a. Um ferðalög ráðherra. Sann- aði sparnað Jóns Magnússonar. b. Um lán og ábyrgðir lands- sjóðs. Kom upp, að landið er í geysimiklum ábyrgðum fyrir Rvík og einstök útgerðarfélög þar. c. Hlutfallið milli eyðslu lands- sjóðs síðan um 1900, til starfs- mannahalds og verklegra fram- kvæmda. Fullsvarað næsta ár. J>á sést, hvernig Mbl.flokkurinn hefir I sambandi við þessa ráðningu hr. Claessens hefh- komið fram megn eyðsla á fé bankans, og þar með þjóðarinnar. Umræddur bankastjói'i, sem sagt er að hafi samning til 10 ára, mun hafa ver- ið ráðinn þangað með 40 þúsund kr. árslaunum, eða með hæstu launum, sem þekst hafa nokkrum Islendingi til handa, fyr eða síð- ar. Nú mun það verða sagt, að bankinn borgi þessi laun, og það komi því þjóðinni ekki við. En þetta er ekki rétt, því að er þjóð- in, sem borgar þau með háu vöxt- unum. — pá hefir og annar ís- lenski bankastjórinn, sem hætti störfum, íengið há eftirlaun, lík- lega, eftir því sem mælt er, ein 13-—14 þús. kr. á ári, undanfarin ár, að meðtalinni dýrtíðaruppbót. Að ákveða eftirlaunin svona há, er hvorki rétt né eðlilegt. pessi bankastjóri ber að sínu leyti ábyrgð á tapi bankans, og er þar að auki ríkur maður, svo ekki er um þurftarlaun að ræða. petta er því eyðsla, sem seint verður álitin réttmæt, og er ekkert hliðstætt fordæmi til um eftirlaun hér á landi. Eg þarf naumast að taka það fram, að þegar bankar tapa erlendis, fyrir ógætilega stjóm, og bankastjórarnir eru látnir fara fiá, þá eru færð niður laun starfs-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.