Tíminn - 16.06.1923, Qupperneq 1

Tíminn - 16.06.1923, Qupperneq 1
©jciíbferi og afgrei&slur’aöur Cimans er Sigurgeit ^riÖrifsfon, Sambanösljúsinu, Keyfjauíf. ^fcjreiböía Clmans er í Sambanös^úsinu. ®pin öaglega 9—\2 f. b Sími 496. VII. ár. Reykjavík 16. júní 1928 19. blað 17. júní. pað er ekki langt um liðið síð- an afmælisdagur stjórnarskrár- innar, 2. ágúst, var þjóðhátíðis- dagur íslendinga. En nú er fæð- ingardagur Jóns Sigurðssonar, 17. júní, kominn í hans stað. Áður var stjómarskráin hátíðaefnið, en nú Jón Sigurðsson. Sá hugsunarhátt- urinn, sem beinir þakklæti sínu einkum til konungsins af guðs náð, sem gefur stjórnarskrána, hefir reist sér líkneski, þar sem er stytta Kristjáns IX. á stjóm- arráðsblettinum. Hinn hugsunar- hátturinn, sem beinir þakklæti sínu fyrst og fremst til foringjans af guðs náð, sem knýr fram rétt- arbæturnar, hefir og reist sér líkneski, þar sem er stytta Jóns Sigurðssonar. það sópar að mynd forsetans. Hann er að vísu hvorki í einkennisbúningi né krossaður í bak og fyrir,frekar en í lifanda lífi. Líkneskið hefir ekki einu sinni fengið fálkaorðuna. þess gerist heldur ekki þörf, því það skín út úr svip og fasi, að þar fer þjóð- höfðingi. það fer vel á því, að hald- in sé þjóðhátíð á fæðingardegi hans. Með því auðsýnir þjóðin lotning þeim anda, sem hann starf- aði í. Andinn lífgar, en bókstafur- inn, eða, eins og hér á betur við, lagastafurinn deyðir. Hversu ágæt ar sem stjórnarskrár eru, þá kem- ur jafnan sá tími, að þjóðlífið sprengir þær af sér og sníður sér nýjan stakk. þá er barist á móti þeim lagastaf, sem áður var bar- ist fyrir, og þó altaf í anda braut- ryðjandans. það er því vel farið, að þjóðhátíðir tjóðri við engan lagastaf. Jón Sigurðsson verður aldrei tjóðurhæll. Oss ber að halda minn- ing hans hátt á lofti sem merki þjóðarinnar. Mannadýrkun þarf ekki að óttast. Hún er holl þegar þeir menn eru ágætir, sem litið er upp til. það er eins og einstöku menn eigi trú og festu handa heilli þjóð. Mikið af trú vorri er einmitt fylgi við sterka menn. Hið mikla mark, sem þeir hafa sett sér, slak- ar aldrei á aðdráttarafli sínu. Hversdagsmenniniir lyftast má- ske í sömu hæð í mesta kosninga- hitanum, en hrapa svo niður óð- ara en ólguna lægir. þjóðhöfðingj- ar af guðs náð búa aftur 1 þeirri hæð, sem drungi daglega lífsins, hrævareldur kosninganna, mútur valdhafanna og kjass kjósendanna nær ekki til. Slíkir menn eru fá- gætir. Ef til vill Jón Sigurðsson einn með þjóð vorri nú síðustu ald- irnar.Hann er jafningi annara eins manna og Washingtons og Glad- stones. það er ekki mesta skáldið, sem skrifar á víðlesnasta málinu. Á sama hátt eru stjórnmálamenn- irnir ekki því meiri, sem þegnar ríkisins eru fleiri. Eitt af því, sem smáþjóðirnar þurfa að læra, er að meta sína bestu menn til jafns við ágæta irtenn stórþjóðanna. Jón Sigurðsson hefir unnið stór- virki. Verslunin var í höndum danskra selstöðukaupmanna. öll fiárhagsmál og landsstjóm í hönd- um Dana. Flestir embættismenn töldu sig umboðsmenn danska valdsins. Margar danskar konur ís- lenskra embættismanna lærðu ald- rei íslensku. 1 barnaskóla Reykja- víkur var kent á dönsku þegar hann byrjaði. Svo mikil var makt danskrar menningar. Af því má sjá, hvílíka djörfung þurfti til að hefja þá baráttu, sem varð lífs- barátta Jóns Sigurðssonar. En þá ■djörfung sótti hann í sitt eigið brjóst og sögu þjóðarinnar. þjóð sem eitt sinn hefir verið öndvegis- þjóð, á auðveldara með að trúa á viðreisn sína og reisa við. En það þarf meira en úttroðin ki*ossuð ,,úníform“ til að kveikja þá trú. Til þess þarf foringja, sem trúir á þjóð sína og kveikir þá trú í öðr- um. það er fleira trú en kirkjutrú. Trú er alt, sem styður lífið hér á jörðu til meiri þroska. Islending- um var það nauðsynlegt til meiri þroska að fá fult vald yfir öllum sínum málum, án íhlutunar ann- ara, sem litla þekking höfðu á landi og* þjóð. Baráttan var löng, en þó er markinu þegar náð. Vopnin voru hvorki blóð né eldur, heldur hinn sögulegi og náttúrlegi réttur þjóðarinnar. það er sambandsþjóð vorri sómi, að þau vopn hafa bitið hana. Með þeim hefir alt unnist, sem unnist hefir. En það er ekki alt unnið, þótt pólitiskt sjálfstæði sé fengið. þar er aðeins einum þætti sjálfstæðis- baráttunnar lokið. Mestur hluti hennar er enn eftir. það er ekkert sjálfstæði, að hafa það eitt til síns ágætis að vera óbundinn. þá fyrst er fsland sjálfstætt, þegar öll landsmál eru komin í gott horf. þá fyrst eru landsmálin komin í gott horf, þegar hér býr göfug þjóð við góð kjör. Viðfangsefni stjóm- málanna er uppeldi þjóðarinnar. Heiður þjóðarinnar er ágæti þegn- anna. því ættu smáþjóðirnar síst að gleyma. Látum líkneski Jóns Sigurðssonar minna oss á, að hann var ímynd íslendingsins eins og hann getur verið mestur. Til þess er þjóðhátíðin 17. júní, að minna á það. Á. Á. -----o---- Xhnar Viðar kaupmaður. Hann andaðist hér í bænum 28. f. m., eins og getið var um í næst- síðasta blaði. Einar Viðar fæddist 15. ágúst 1887. Foreldrar hans voru Indriði Einarsson, skrifstofustjóri, og kona hans, Marta Pétursdóttir, organleikara Guðjohnsen. Einar heitinn gekk í lærða skól- ann á unga aldri,en hvarf frá námi er hann hafði lokið prófi upp úr 5. bekk, og gerðist starfsmaður í ís- landsbanka (1905). Var hann þar síðan óslitið fram undir styrjald- arlok, en sagði þá stöðu sinni lausri. Tók hann þá að fást við stórsölu á fiski til Spánar, og horfð ist vel á um skeið, en litlu síðar settu nokkrir fjármálamenn bæj- arins á laggirnar hinn alkunna fiskhring, og tók þá að mestu leyti fyrir söluna og horfurnar urðu slæmar í bili. En Einar hafði ör- ugga trú á því, að úr mundi ræt- ast bráðlega og alt ganga að ósk- um. Síðustu mánuðina, sem hann lifði, var hann aðalbókari í fslands- banka, en hafði víst lítinn hug á að ílendast í þeirri stöðu, þó að hún kynni að verða laus og hann ætti hennar kost. — Einar Viðar var sjaldgæfur mað- ur að ýmsu leyti. Hann var gáf- aður vel, svo sem hann átti kyn til, síglaður, óvenju bjartsýnn ojg góð- viljaður. þótti öllum gott með hon- um að vera, því að glaðlyndi hans r ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ * ♦ ♦ ELEPHANT CIGARETTES Cjúffengar og kaldar að reybja Smásöluverð 50 aur, pb. Tóst alstaðar. THOMAS BEAR & SONS, LTD., L O N D O N. -O* "O- ♦ ♦ ♦ Líftryggingarfél. AIDVAICA h.f. Kristianiu — Noregi Allar venjulegar líftryggingar, barnatryggingar og lífrentur. r. Isla.n.cisc3_eilc3Liix Löggilt af Stjórnarráði Islands í desember 1919. Ábyrgðarskjöiin á islensku! —Varnarþing í Reykjavík! iðgjöldin lögð inn f Landsbankann og íslenska sparisjóði. „Andvaka“ og öll norsk líftryggingarfélög eru fjárhagslega vel stæð og trygg. Þau eru öll leyfð og löggilt af norska ríkinu eftir ná- kvæma rannsókn á fjárhag þeirra og stofnskipulagi. Þau standa öll undir sameiginlegu opinberu eftirliti („Tryggingaráðinu“) aukfulltrúa liins opinbera í stjórn hvers félags. Lífakkeri félaganna, t r y g g i n g- • ars j ó ð u r inn, er „handleikinnu á hverjum ársfjórðungi af opinber- um eftirlitsmönnum ríkisins, 0g mega félögin sjálf eigi ráðstafa hon- um nema með samþykki Tryggingaráðsins. Reikningar félaganna eru endurskoðaðir og samþyktir af því opinbera og birtir árlega.- „Andvaka14 býður ábyggileg, hagfeld og refjalaus viðskifti! Besta félagið er það, sem reynist best! — Láttu r e y n s 1 u n a skera úr málinu! Forstjóri: H e 1 g i Valtýsson, Pósthólf 533 — Reykjavíb — Heirna: Grundarstíg 15 — Sími 1250 A.Y. Þeir sem panta tryggingar skriflega sendi forstjóra umsókn og iáti getið aldurs sins. Samábyrgð. arheildin er hlekkjuð saman, einn fyrir alla og alíir fyrir eimi. 4. Samábyrgð þjóðfélagsins kemur glögt fram í stórviðburð- um sögunnar. Júnkararnir þýsku og auðmenn landsins vilja stríð, og láta það koma, en leiða jafn- framt hræðilega ógæfu yfir alla þjóðina, líka þá, sem vildu frið. 5. Samábyrgð kynslóðanna teng- ir saman eldri og yngri kynslóðir. Hve miltið af hörmungum íslend- inga er að kenna spiltri og léttúð- ugri kynslóð Sturlungaaldarinnar? 6. Andleg samábyrgð tengir sarnan mann við mann. Meginið af andlegri eign hvei*s manns, málið, daglegar venjur, trúin, skoðanir um, hvað sé rétt og* rangt, fagurt og Ijótt, er fengið með blindri eft- irlíkingu frá forfeðrum og samtíð- armönnum. ** -o---- 1. Sumir menn segjast elska í'relsið svo mjög, að þeir geti ekki verið í samábyrgð, eins og kaupfé- lögin hafa. þá ábyrgð, sem leyst hefir verslunarfjöturinn af þjóð- inni, kalla þeir kúgunarband. En til er margs konar ábyrgð önnur, sem lítið ber á. 2. Bændur í sama hreppsfélagi, borgarar í sama kauptúni, eru í samábyrgð um málefni sveitar og bæjarfélags. Hver manneskja sem flytur til Reykjavíkur, tekur sér á herðar nokkurn hluta af þeirri byrði, sem bærinn hefir af 6—8 miljóna króna skuldum. 3. Allir borgarar í sama landi eru í samábyrgð um málefni lands- ins, alla opinbera eyðslu, ríkis- skuldir o. s. frv. Gengi peninga hvers lands er einn þáttur þessar- ar samábyrgðar, þar sem öll þjóð- var mikið og innilegt, hjartað óvenjulega ylríkt og hugartápið mikið. það var eins og þyngstu örðugleikar yrði að fisi, ef talað var um þá við Einar Viðar. — Trú hans á sigur góðleikans og sann- girninnar hvarvetna í tilverunni var máttug og sönn og barnslega fögur. — Eg hefi aldrei þekt lífs- glaðari mann. það var eins og gleðin lægi í loftinu umhverfis hann og hlyti að snerta alla, sem nærri honum komu. Og þess er eg fullviss, að á hans fundi hefir eng- inn maður nokkuru sinni hrygst. — Honum var ekkert ljúfara en að gleðja aðra og fjármunalegt ör- læti hans var áreiðanlega miklu meira en efnin leyfðu. Eg, sem þessi orð rita, á bágt með að sætta mig við þá hugsun, að þessi glaði, góði maður sé geng- inn veg allrar veraldar. Og svo hygg eg að öllum vinum hans muni fara. Foreldrum og systkinum var hann hinn ástríkasti og það er með afbrigðum, hversu ástúðlegur sonur hann var og reyndist móð- ur sinni. — það er mikil huggun í þeim sára harmi, sem nú hefir dunið yfir ástvini hans, að hver og ein minning þeirra um hann er björt og ljómandi fögur. Einar Viðar var mjög listelskm* maður að eðlisfari og ágætur söng- maður. Var hann jafnan fús til að skemta í vinahóp með söng og glaðværð. Hann kvæntist árið 1916 Kat- rínu, dóttur Jóns heitins Norð- mann, kaupmanns á Akureyri, hinni mestu ágætiskonu. — Var sambúð þeirra svo ástúðleg, að hvergi bar skugga yfirf til síðustu stundar. þau eignuðust tvær dæt- ur, og eru þær báðar á lífi. Einar var lágur maður vexti, fríður sýnum og fjörlegur. Hann var göngumaður hinn mesti, svo sem verið hefir faðir hans, og iðk- aði fjallgöngur á sumrum. Segja þeir, er með honum voru á þeim ferðum, að skemtilegri félaga og meiri öðling hafi þeir varla kynst. það mun og líka reynast svo um vini Einars, að hann komi þeim jafnan í hug á undan flestum öðr- um, er þeir heyra góðs manns getið. P. S. ----o---- Sigurður Nordal. Norðmenn hafa sett upp kennarastól í íslensk- um fræðum við háskólann í Krist- janíu og boðið próf. Sigurði Nor- dal embættið. Mestar líkur eru til að Nordal taki boðinu, og er það vorkunnarmál. Islandi er það heið- ur að eiga ágæta menn erlendis, og það er freisting framgjörnum mönnum að varpa sér út í miðjan menningarstrauminn. Og þó eru þetta ekki góð tíðindi. það er mik- ið gleðiefni hverri þjóð að eignast góðan rithöfund. Nordal er að verða einn af oddvitum íslenskr- ar menningar. Hann er einn af bestu mönnum Háskólans. Alt út- lit er til, að hann muni eiga margt óskrifað, sem íslenskar bókmentir mega ekki missa. það kemur ekki í sama stað niður, þó það verði skrifað á norsku, því að Nordal er líklegur til að rita þá hluti sem ókleift er að þýða til fulls. þeim sem meta meir göfugt og glæsilegt þjóðlíf heima fyrir en alt umtal og heiður erlendis, eru þetta því eng- in gleðitíðindi. það væri vel farið, að íslendingar sýndu nú að þeir vildu nokkuð til vinna að halda einum hinum besta núlifandi ís- lenskum rithöfundi. Dansk-íslenska félagið hefir gef- ið út þrjá fyrirlestra um íslenskt þjóðerni eftir Guðmund Finnboga- son, er hann hélt í Danmerkurför sinni í fyrra. Fyrirlestrarnir eru það besta, sem félagið hefir gefið út, og eiga ekki síður erindi til Is- lendinga en Dana. þeir eru um áhrif landshátta á þjóðernið, al- þýðubókmentir o. fl., að nokkni leyti samandregið efni hinnar stóru bókar prófessorsins um „Land og þjóð“, er fylgdi Árbók Háskólans. þar var tekið á þörfu rannsóknarefni. þjóðin þarf að þekkja og skilja sjálfa sig. En Ár- bók Háskólans er lokuð fyrir al- menningi. Góð fylgirit hennar ætti að gefa út sérpentuð í mörgum ein- tökum og selja ódýru verði. Fylgi- ritin þurfa annaðhvort að vera góð alþýðurit eða bygð á sjálfstæðum rannsóknum. „Land og þjóð“ var hvorttveggja, en sum hafa hvor- ugt verið: hvorki bygð á sjálf- stæðum rannsóknum né átt erindi til alþýðu, heldur aðeins til fárrá útvaldra, sem útlend mál kunna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.