Tíminn - 16.06.1923, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.06.1923, Blaðsíða 4
70 T 1 M I N N 7 spurningar og svör. 1. Hvað er Sleipnir? Svar: Sleipnir er langstærsta, besta og því þektasta reiðtýgja- og aktýgjavinnustofa á Islandi. 2. Hversvegna er mest smíðað þar af reiðtýgjum? Svar: Af því að eftirspurn er þar mest. þar eru hlutir allir gerðir, eins og kaupend- ur æskja eftir, og kaup öll ágæt. 3. Hversvegna gera menn.bestu kaupin í Sleipni? Svar: Af því alt efi>i er keypt beint frá fyrstu hendi og mikið smíðað í einu, við það verður framleiðslukostnaður minni, og vörumar því ódýrari og betri. 4. Hversvegna reynast öll reiðtýgi og aktýgi best frá Sleipni? S v a r:, Af því öll vinna er framkvæmd af æfðum og vandvirkum fag- mönnum, og aðeins unnið úr fyrsta flokks efni. 5. Hversvegna hefir Sleipnir fyrirliggjandi 10 teg. af unglinga-, kven- og karlmannahnökkum ? S v a r: Af því að hann vill vera viss um að allir geti fengið það er þeir helst kjósa. 6. Hversvegna koma menn og gera kaup í Sleipni, þegar mikils þykir við þurfa og eitthvað vantar, sem erfitt er að fá? Svar: Af því þar er ávalt afgreitt fljótt og áreiðanlega og allir hlutir til. 7. Hversvegna gera allir hygnir kaupendur verslun sína í Sleipni? Svar: Af þeim ástæðum, sem áður eru nefndar, og svo er það megin- regla: sanngjarnt verð og góðir borgunarskilmálar. Ef þér hafið ekki nú þegar gert pantanir á reiðtýgjum og aktýgj- um, þá gerið það tafarlaust í Sleipni. Reiðtýgi og aktýgi, vagnar og alt tilheyrandi. Ennfremur alt efni fyrir söðla-, aktýgja- og skósmiði sent gegn eftirkröfu hvert á land sem er. Erfiðisvagnar með aktýgjum seldir mjög ódýrt. Verðið er mikið lækkað og skal t. d. nefna hnakka frá 40 kr., beisli frá 16 kr., töskur frá 10 kr. o. s. frv. Reynslan er sannleikur. Látið hana skera úr. Sérlega vandaðir erflðisvagnar ásamt aktýgjum seljast mjög ódýrt. NB. Vagnarnir eru til sýnis hjá hr. kaupmanni Ámunda Árnasyni. Pantanir afgreiddar fljótt og nákvæmlega um land alt. Sími 646. Söðlasmíöabúöin Sleipnir. Símnefni: „Sleipnir££ Orðsendíng tíl kaupmanna og kaupfélaga. Vér leyfum oss hérmeð að vekja athygli yðar á því, að vér höf- um fyrirliggjandi töluverðar birgðir af islenskum niðursuðuvörum frá niðursuðuverksmiðju vorri, svo sem: Kjöt beinlaust í 1 kgr. dósum. Kæfu í 1 kgr. dósum, -------Í V* - - - í v, - - og Fiskbollur í 1 kgr. dósum. Vörugæðin standast allan samanburð. Gerið svo vel að spyrja um verð hjá oss áður en þér festið kaup á erlendi'i niðursuðu. Vörurnar sendar út um land gegn eftirkröfu. Styðjið innlenda framleiðslu. Virðingarfyllst. Sláturfélag Suðurlands. Kjöttunnur, alt til beykisiðnar, smjörkvartél o. s. frv. frá stærstu beykissmiðju í Danmörku. L. Jacobsen, Köbenhavn Valby. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup- manna. Auglýsing um bifreiðaferðir. Ráðuneytið hefir veitt styrk til bifreiðaferða austur um Suður- landsundirlendið, og verða íerðirnar farnar þannig: Fólksflutningaferðir til septemberloka í hverri viku: Að Húsatóftum á Skeiðum þriðjudaga og föstudaga. Að Garðsauka á Rangárvöllum mánudaga og fimtudaga. Bifreiðarnar leggja af stað kl. 10 f. h. frá nýju bifreiðastöðinni á Lækjartorgi og er fargjald ákveðið að Kolviðarhóli 4 kr. 50 a., ölfusá 7 kr., Þjórsártúni og Húsatóftum 9 lcr., Ægissíðu 10 kr. og Garðsauka 11 kr. og hlutfallslegt gjald til staða þar á milli. Fyrir börn innan 10 ára greiðist hálft gjald. Vöruflutningaferðir verða farnar þrisvar í viku til miðs októbermánaðar næstkomandi frá afgreiðslustaðnum á Laugavegi nr. 33, þannig: Að Garðsauka á þriðjudögum. Að Húsatóftum á fimtudögum. Að Brúará á laugardögum. Plutningsgjöld samkvæmt gjaldskrá, sem ráðuneytið hefir samþykt. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 12. júní 1923. Kl. Jónsson. Vigfús Einarsson. hefir áætlunarferðir í sumar austur yfir Hellisheiði alla mánudaga og fimtudaga. Prá Reykjavík kl. 10 f. m. að: ölfusá, Þjórsártúni, Ægis- síðu, Garðsauka og Hvoli og til baka daginn eftir frá Hvoli kl. 10 f. m. Alla þriðjudaga og föstudaga frá Reykjavík kl. 10 f. m. að: öl- fusá, Þjórsártúni og Húsatóftum á Skeiðum. Til baka sama dag. í þessar ferðir höfum við góðar fólksflutningabifreiðar fyrir mjög sanngjarnt verð, og einnig alla þessa daga kassabifreið fyrir lægri fargjöld en þekst hafa áður, svo sem að Ægissíðu kr. 9.00 pr. mann, Hvoli 10.00, Húsatóftum á Skeiðum 8.00 og Þjórsártúni 8.00. Afgreiðslumenn okkar eru: Við ölfusá Egill Gr. Thorarensen, kaupm. „ Þjórsártun Olafur Isleifsson, læknir. „ Húsatóftir á Skeiðum Þorst. Jónsson, bóndi. „ Ægissíðu Jón Guðmundsson, bóndi. „ Efra-Hvol Björgvin Vigfússon, sýslumaður. Til Eyrarbakka og Stokkseyrar verða áætlunarferðir alla miðviku- og laugardaga frá Reykjavík kl. 10 fyrir hádegi. Frá Eyrarbakka kl. 3 e. h. sama dag. H.f. Bifveiðasíöð Reykjavíkur Ausiurstræii 24 Símar 716 og 715 Minnisblað sveitabænda. uVerslun B. H. Bjarnason Reyicjavík cr sú, sem best fullnægir þörfum og kröfum yðar, því þar fæst alt, sem þér þarfnist og full vissa um vandaðar og góðar vörur fyrir lægst verð. Hér verða ekki taldar upp aðrar vörur en þær, sem hver búandi þarfnast: Ljáblöðin þjóð- frægu með fílsmerkinu og B. H. B.-stimpiinum — bíta öllum öðrum blöðum beíur, -Dengingarsteðjar, Ljáklöppur, Brýni, Hverfisteinar, Orf, Hnoð í ljábakka, Brúnspónn, Mjólkurbrúsar, Skjólur, Sigti, Skilvinduolían besta (hvít vaselín- oiía) á aðeins kr. 1.65 pr. ltr., Hellulitur, Blásteinn á kr. 1.55 kg., Stunguskófl- ur afbragðs teg. á 5.70 stk., Hestajám, HestskófjaÖrir, Nautabönd, Girðinganet, Net í pússningar, Sand- og Sementsigti, Eldhúsáhöld og Borðáhöld af öllu tagi, t. d. Pottar, Pönnur, Eatlar, Kaffikönnur, Kaffikvarnir, Blikkbrúsar allar stærð- ir afar ódýrir, Olíuvélar, Primusar og alt þeim tilheyrandi, Leir- og Glervörur af öllu tagi. Byggingarvörur af öllu tagi, þ. á. m. Afbragðs pakjárn 18% ódýrara en ósam- bærileg teg. annarsstaðar, Asfaitpappi á kr. 6.50 15 ferálna rúlla, paksaumur yalv. og Naglar ailar lengdir, Skrár, Hjarir, Hurðarhúnar — landsins mesta og ódýrasta úrval, Skrúfboltar allar lengdir á fáa aura stykkið, Málningarvörur af öllu tagi af allra bestu teg. og jafnhliða langtum ódýrari en sambærileg teg. hjá öðrum. Trélím á kr. 2.50 pr. kg. Gólfdúkar margar teg. með landsins lægsta verðL Verkfæri af öllu tagi — mesta úrval. Kom- og Nýlenduvömr, Kaffi, Syk- ur, Sjókólaði, Kex og Smákökur, — stórt og ódýrt úrvaL — Sódi, Sápa ág. teg. á kr. 1.10 pr. kg., og allskonar hreinlætisvörur, og alt annað, sem hvert heimili þarfnast. HVERGI BETRI VÖRUR. — HVERGI BETRI KAUP EN í Versl. B. K. Bjarnasou. Öíuguági. „Sólarlitlir dagar", sagði Axlar- Bjöm, en þá skein sólin í heiði. Hann var orðinn svo syndugur, að hann var hættur að sjá sólina. „Eftirtaldar-stór- syndir fremur „Tíminn" sífeldlega", segir nýr Moggaspámaður, en þegar betur er að gáð, telur hann ýmist upp höfuðkosti Tímans eða eignar honum ávirðingar samkepnismanna. Að svo komnu virðist því þessi ónefndi Mogga-nýliði eiga skilið að heita Björn. 1. Bangsi þessi talar um að „ginna bændur eins og þursa inn i skaðræði samábyrgðarinnar". pað nægir að benda honum á grein með feitu letri hér á framsíðu blaðsins. þá beinir hann ef til vill ásökunum sínum að foreldrum sínum, sem hafa getið hann inn í þennan synduga heim sam- ábyrgðanna, eða máske har.n hefjl upp lofsöng til þeirra manna, sem berjast fyrir samvinnu og þeim sam- ábyrgðum, sem nauðsynlegar eru til að leysa þjóðina úr fjötrum hinnar blindu samkepni. Og er síðari kostur- inn betri. 2. pá ásakar Bangsi Tímann fyrir að hafa leitt kaupfélagsskapinn „inn á hina skaðvænu braut stjómmála- deilanna, sem þó er vís voði hverri umbótastarfsemi í atvinnumálum, því þar ræður flokksfylgi meira en aðgæt- ið mannvit". Látum hann vita það, þennan nýja Mogga-bangsa, að mann- vit ráði litlu í stjómmálum; hann les sjálfur Mogga og skriíar í hann. En merkilegt er, að hann skuli hætta sér sjálfum út á þessa hálu braut. Máske lítið mannvit sé orsökin. Annars má biðja Bangsa að benda á nokkurt stór- mál, sem ekki sé þjóðmál og snerti þá um leið stjórnmálin. Hvenær og hvar liafa verslunarmálin verið aðgreind frá öllum stjórnmálúm? Er það ekki þakkarvert, að „Tíminn" styðji „þessa ágætu viðleitni til sjálfsbjargar, kaup- félagsskapinn", í sjálfsvörn hans gegn höfrungum samkepninnar? 3. „„Tíminn" og hans menn hafa stóraukið hina banvænu skuldaversl- un íslendinga", segir hann enn frem- ur, þrátt fyrir það, þó margupplýst sé að S. í. S. skuldar langsamlega minst allra íslenslcra stórfyrirtækja. í und- anfarandi verslunaróæri hefir S. 1. S. verið skjöldur bænda gegn skuldun- um. Hugsið ykkur þá hlekki, sem hin blinda samkepni hefði smeygt á hend- ur og fætur bændastéttinni á síðustu árum, ef kaupfélaganna og Sambands- ins hefði ekki notið við! Stingið hend- inni í eigin barm, Moggamenn, og kveinið undan eigin skuldum, en fell- ið ekki þessi krókódilatár út af skuld- um Sambandsins, sem eru furðu litl- ar og koma ykkur' ekki við. Óburðug er kosningabeitan. En þið haldið líka að hægt sé „að ginna bændur eins og þursa". 4. Enn segir Bangsi: „Tíminn styður nefnilega af alefli Samband káupfé- laganna, en það hefir endurreist þessa illkynjuðu vöruskiftaverslun selstöðu- kaupmannanna dönsku". Nú er það orðin sök Tímans að styðja Samband- Sigurður Magnússon læknir Irá Patrekslirði tekor nö cér ailskonar tannlækningar og tannsmíði. Til viðtals á Uppsölum loy2—12 og 4—6. Sími 1097. Kennarastaða við barnaskólarm á Akranesi er laus til umsóknar. Umsóknarfrest- ur til 10. ágúst. Skólanefndin. ið. En Bangsi hefir valið sér það verk- efni, að verja hin saklausu kaupfólög fyrir Tímanum og Sambandinu. það er ekkert undarlegt, þó að úlfurinn vilji verða hirðir. Hitt er annað má', hvort það er lömbunum fy 'ir bestu. Vöruskiftaverslun Sambandsins er ekki of góð handa Bangja að narta i, því hún er engin. Sambandið heíir ein- göngu peningaverslun. það útvegar félögunum lán til vörukaupa að því leyti sem þörf lcrefur, og tekur svo innlendu vöruna i umboðssölu og greiðir félögunum hámárksverð fyrir. Verðlag hinnar innlendu og útlendu vöru er alveg óháð hvort öðru. Bangsa væri nær að narta í þá kaupmenn, sem fá fyrst innlendu vöruna lánaða hjá bændum, ákveða síðan sjálfir verðlagið og borga hana i útlendri I vöru, sem þeir einnig ráða verðinu á. En hrafnarnir kroppa ekki augun hver úr öðrum. Annars er það starf all- flestra þessara Moggabangsa að níða Sambandið. Sambandið vilja þeir norður og niður, til að heildsalarnir reykvísku fái viðskiftin, og þegar það er úr sögunni, verður auðveldara að ráða niðurlögum kaupfélaganna. (Frh.) --_o----- Danskir víkingar. Nú stendur yfir í Kristjaníu grænlensk sýn- ing, sem þjóðmenjasafn ríkisins hefir stofnað til. þar er meðal ann- ars til sýnis danskt dagblað, sem segir, að danskir víkingar hafi fundið Grænland. Norðmennimir hafa undirstrikað fróðleikinn með rauðu. Norðmenn hafa vakandi auga á Grænlandsmálum, og er ekki ósennilegt, að barátta þeirra endi von bráðar með því, að land- ið verði opnað öllum þjóðum. Á sýningunni voni myndir af menn- ingarleifum hinnar íslensku ný- lendu á Grænlandi og undir letr- að, að á þessar slóðir sé Norð- mönnum og Islendingum nú bann- að að koma. Kvennaþing hefir verið haldið í bænum undanfarna daga. Átti frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir frum- kvæði að og beittist mest fyrir. Konum utan af landi var boðið hingað og fengin ókeypis vist í bænum. Er þetta góð hugmynd og ætti framhald að verða á. Sveita- konurnar eiga það skilið að varpa af sér áhyggjunum vikutíma, hitt- ast og ræða mál sín, og það er kleift, þegar systur þeirra í Reykjavík styðja þær til þess. Mun nánar vikið að þessum fundi síðar. Lág fargjöld. Athygli skal vak- in á hinum þægilegu og tiltölu- lega ódýru bifreiðaferðum austur yfir fjall, er Bifreiðastöð Reykja- víkur auglýsir á öðrum stað í blað- inu. Er það fyrsta flokks farkost- ur fyrir Árnesinga og Rangæinga með hinum venjulegu fólksflutn- ingabifreiðum, og sérstaklega ódýrar ferðir með „kassabifreið- unum“, og er það að líkindum óbeinlínis að þakka styrk þeim, er Alþingi veitti til bifreiðaferða. Tveir Svíar dvelja hér í sumar, Ivar Wennerström, ríkisþingmað- ur, og Gunnar Leijström norrænu- fræðingur. Ætlar Leijström að fara víða, athuga og bera saman málið í öllum fjórðungum lands- ins. Signe Liljequist, finsk-sænsk söngkona, hefir undanfarið sungið í Reykjavík og unnið sér mikla hylli. Hún er bæði ágæt söngkona og svo hefir henni tekist betur en nokkrum erlendum og jafnvel mörgum innlendum söngvurum að syngja íslensk ljóð með skýrum og fögrum framburði. Kardínálaheimsókn. Van Ross- um kardínáli, forstöðumaður hins kaþólska trúboðs, er væntanlegur til íslands í sumar. það mun vera fyrsti kardínálinn, sem sýnir sig hér á landi. Golfstraumurinn. 1 vor hafa rek- ið hingað með Golfstraumnum bréfaflöskur er hafa haft óvenju mikinn meðalhraða, um 8 mílu- fjórðunga á dag, frá því þeim var varpað í sjóinn. Bendir það til að Golfstraumurinn hafi verið sterk- ari í vetur en venja er til, og kem- ur það heim við veðurfarið, ef svo er. Jónas Jónsson frá Hriflu fór til Austfjarða með Esjunni. Ætlar hann síðan norður í pingeyjarsýsl- ur og er ekki væntanlegur aftur fyr en eftir mánaðartíma. Guðmundur Guðfinnsson alþm. er farinn til útlanda til augnlækn- inganáms. Ritstjóri: Tryggvi JJórhallsson. Laufási. Sími 91. Prentsmiðja Acta h/f.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.