Tíminn - 30.06.1923, Page 4
78
T I M I N N
Til kaupfélaga!
H.f. Smjörlíkisgerðin í Reykjavík er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
Biðjið um íslenska smjörlíkið.
MuurMr nslui:
Á mánudögum og fimtudögum:
mm
Olfusá, Þjórsá, Ægissíða og Garðsauki.
Á þriðjudögum og föstudögum:
Ölfusá, Þjórsá og Húsatóftir á Skeiðum.
þagt af stað úr Reykjavík kl. 10 árdegis
og frá endastöðvunum eystra: Garðsauka
kl. 9 árdegis á þriðjudögum og föstudögum,
en frá Húsatóftum samdægurs kl. 4—5 e. h.
Vegna þessara ferða hafa
fargjöldín lækkað.
Nýja Bifreiðasiöðm
Lækjaviovgi 2
S ím i 1529. Heima 1216.
Zóphónías Baldvinsson.
— Árið 1921 komu 366 gufuskip
til Petrograd. Árið 1922 urðu þau
700 og búist við að verði a. m.
k. 1500 þetta ár. Sýnir þetta ljós-
lega að verslun Rússa vex mjög
við aðrar þjóðir.
— Síðasta herskipið sem Banda-
ríkin létu hlaupa af stokkunum er
8000 smálestir að stærð. þar er
innanskips símamiðstöð, pósthús,
prentsmiðja og kvikmyndaleikhús.
— Englendingar ætla nú að fara
að vinna að því að ná á flot hinum
miklu þýsku herskipum sem sökt
var í Scapa flóa.
— þrjár konur eiga nú sæti í
enska parlamentinu. Sú þriðja var
kosin 1. þ. m. við aukakosningu og
sigraði með miklum meirihluta at-
kvæða.
— það er talið að fyrri hluta
aprílmánaðar hafi rússneska
stjómin látið lífláta 2000 pólitiska
fanga í Moskva. Og einn daginn
núna í júnímánuði voru 164 pólit-
iskir fangar teknir af lífi, þar af
17 prestar.
— Frá því að Frakkar hófu inn-
rásina í Ruhrhéraðið og til mán-
aðarmótanna síðustu hafa þeir
samtals dæmt þýska embættis-
menn í 443 ára fangelsi og í 464
miljóna marka sektir. Aðra þýska
borgara hafa þeir samtals dæmt í
646 ára fangelsi og í 1314V^ milj-
óna marka sektir.
— Fyrir stríðið áttu Frakkar
fimta stærsta verslunarflota heims
ins. Nú era þeir orðnir þriðju í röð-
inni. Einungis England og Banda-
ríkin eiga stærri verslunarflota.
— Englendingar ætla enn í sum-
ar að gera tilraun til að komast
upp á hæsta fjall heimsins, Mount
Everest.
— Bolchewickasamsæri komst
upp nýlega í höfuðborg Japans,
Tokio. Hundrað mönnum var varp-
að í fangelsi.
— Ofsahiti var í Bandaríkjunum
nýlega. Dóu 15 menn af hita í Chi-
cagoborg einni. Eftir hitann geys-
aði afskaplegt óveður sem gerði
mikið tjón.
— Gliickstadt, hinn frægi banka-
stjóri Landmandsbankans fyrver-
andi, dó áður en máli hans væri
lokið. En rannsókn málsins heldur
áfram engu að síður, því að fjöl-
margir aðrir eru við riðnir.
— Bandaríkjamenn herða enn á
eftirlitinu með bannlögunum. Gera
upptækar vínbirgðir í erlendum
skipum og eru Englendingar sár-
reiðir yfir því. Skipstjórar á skip-
um þeim, sem flutt hafa áfengi,
hafa verið settir í varðhald. Og
loks er því nú hótað, að frá ágúst-
byrjun verði ekki látið við þetta
sitja, heldur verði skipin einnig
gerð upptæk.
— Á ársþingi enskra verka-
manna var sú tillaga feld með
miklum atkvæðamun að taka
kommúnista í samband verkalýðs-
félaganna.
— Englendingar bæta 34 flug-
deildum við flugher sinn og eiga
þá 1000 flugvélar. Frakkar eru
sárgramir Englendingum fyrir
þetta, því að þeir segja að Eng-
lendingar segi sjálfir að aukning
þessi sé gerð vegna hei’búnaðar
Frakka. /
— Washingtonfundurinn frægi
átti, sem kunnugt er að draga úr
vígbúnaði á sjó. En flest virðist nú
benda í þá átt að minna verði úr í
reyndinni en til var ætlast á papp-
ímum. Flotamálaráðherra Banda-
ríkjanna hefir nýlega haldið ræðu
og heimtar fleiri herskip og her-
menn. Japanar teygja sig eins
langt og þeir komast um að auka
sjóherinn. Og loks hefir enska þing
ið samþykt að veita 11 miljónir
sterlingpunda til þess að gera
Singapore að fyrsta flokks her-
skipahöfn.
— Úr rústum hinna fornu keis-
aradæma, Austun’íkis-Ungverja-
lands og Rússlands, hafa risið fjög-
ur ríki, sem draga að sér sérstaka
athygli: tvö alveg ný, Tékkó-
Slafaríkið með 14 milj. íbúa og
Suður-Slafaríkið með 12 milj., eitt
gamalt, Rúmenía, með 17 milj. og
eitt endurreist, Pólland, með 27
milj. íbúa. það er ekki að undra
þótt þessi nýju ríki haldi töluvert
saman, því að öll sameiginlega
hafa þau beig af þýskalandi, Rúss-
landi og leifum Austurríkis. þrjú
þeirra, hin fyrstnefndu, era í
föstu sambandi sem nefnt er
„litla sambandið“, og Pólland
stendur því mjög nálægt. Og öll
eru þau í mjög náinni vináttu við
Frakkland — enda er það það
stórveldið, sem á sömu áhugamál-
in. það er alveg víst að þessi ríki
öll eru í beinu hernaðarsambandi
undir veradarvæng Frakklands.
þau hafa öll mikinn vígbúnað.
Tékkó-Slafaland hefir 180 þús.
manna her á friðartíma, en í stríði
á að vera hægt að bjóða út 1300
þús. hermönnum. Til samanburðar
má geta þess, að þjóðverjar, sem
eru 60 milj., hafa ekki nema 100
þús. menn undir vopnum nú.
Tékkaherinn hefir nú 800 flugvél-
ar og á að eignast 1400. Suður-
Slafar hafa 140 þús. menn undir
vopnum á friðartíma en 1500 þús.
í ófriði, en Rúmenar 210 þús. í
friði og 1700 þús. í ófriði. Pólski
herinn er þó langmestur og öflug-
astur, en um hann eru ekki til op-
inberar tölur. — Sést af þessu að
Frakkar eiga öfluga bandamenn í
austurhluta álfunnar þar sem þessi
ríki eru. En þau eru ennfremur
bundin traustum fjánnálaböndum
við Frakkland. Frakkar hafa lán-
að Pólverjum 400 milj. franka,
Rúmenum 100 milj. og Suður-
Slöfum 300 milj. franka. Lánin eru
veitt með því skilyrði að þeim
verði varið til hersins, og einkum
til að kaupa hergögn, og hergögn-
in eru vitanlega unnin í hinum
miklu verksmiðjum heima á Frakk-
landi. Er það vafalaust, að hinir
geysiauðugu menn sem eiga hinar
miklu hergagnasmiðjur á Frakk-
landi standa á bak við þessar
miklu lánveitingar. Og áhrif þeirra
á stjórnmálastefnu og hermensku-
stefnu Frakklands munu vera
meiri en nokkum grunar. Óttinn
við hefnd þjóðverja og hræðslan
við Bolchevickauppreisnir — þetta
er vatn á myllu þessara ríku her-
gagnaverksmiðjukónga. Hver get-
ur reiknað út „samspil“ þeirra og
stjórnmálamannanna, sem heita
að stjórna landinu. — En Frakkar
veita þessum bandamönnum sínum
ekki einungis fjárstyrk til herbún-
aðarins. þeir senda mestu hers-
höfðingja sína og hæfustu fag-
menn í hernaðaríþróttinni hvað
eftir annað í eftirlitsferðir. Foch
var þar nýlega á ferð og margir
aðrir. Með enn meira kappi en
nokkru sinni áður er lögð stund á
það nú að vígbúast og fullkomna
hemaðartækin sem mest.
— Fyrir mánuði síðan komst það
upp um danskan stórkaupmann
að hann hafði smyglað 1000 flösk-
um af „whiský“ til Kaupmanna-
hafnar. Hann var dæmdur í 10 þús-
und króna sekt og þriggja mánaða
fangelsi. Hann hafði mútað tveim
tollþjónum, gefið hvorum 200 kr.
til „að loka augunum". þeir vora
reknir úr vistinni og dæmdir í
tveggja mánaða fangelsi. Hvað
ætli þeir segðu um slíka dóma
Reykj avíkursmyglaramir ?
— Mikið hneiksli vakti það á
þýskalandi er Vilhjálmur keisari
kvæntist í annað sinn, í nóvember
síðastl. þýskri prinsessu. Nú batn-
ar ekki í búi, því að þau hafa ákveð
ið að skilja eftir þessa stuttu sam-
veru.
— Ekki er lokið enn írsku óeyrð-
unum. Nýlega handtók stjómar-
herinn heilan flokk uppreistar-
manna og um leið náðust 58 byss-
ur, 500 riflaskot, 500 sprengjur og
600 pund af sprengiefnum.
— Stambulinsky forsætisráð-
herra í Rúmeníu, sem var myrtur
nýlega, var bændaættar og foringi
bændaflokksins þar í landi. Kon-
ungssinnar og Bolchewickar voru
vel sammála um að reyna að
steypa honum úr völdum.
— Enn hefir gengi þýska marks
ins fallið stórkostlega. Ein dönsk
króna jafngildir nú 29 þús. mörk-
um þýskum. Austurríska krónan
stendur orðið töluvert hærra en
markið. það er rússneska rúblan
ein sem nú er lægri en þýska
markið.
— Uppvíst hefir orðið um stjórn-
leysingjasamsæri í höfuðborg Pól-
lands, og er talið að hafi staðið í
sambandi við samskonai félags-
skap í Berlín. Höfðu samsærís-
menn gert tilraun til að sprengja
háskólann í loft upp og fleiri op’n-
berar byggingar áttu að fava á eft-
ir. Miklar birgðir af sprengiefn-
um fundust í fórum manna þess-
ara.
— Um síðustu mánaðamót kom
svo mikill jarðskjálfti í nágrenni
höfuðborgarinnar í Persíu,að mörg
hundruð hús hrundu til grunna og
fjöldi fólks tíndi lífi. Er giskað á
um 3000 manns.
— Fyrir löngu síðan er svo kom-
ið, að fjárgreiðslur allar fyrir við-
skifti þjóðverja við útlendinga
fara fram í erlendri mynt. Gengi
marksins er svo óstöðugt. Og nú
krefjast þýsku verkamennimir
þess, að fá kaup sitt goldið í gulli
eða gulltrygðri mynt.
— Enskur hagfræðingur hefir
reiknað það að á árinu sem leið
hafi peningaseðlaumferðin í heim-
inum tífaldast að nafnverði. Á
Rússlandi er hún 40 sinnum meiri
en í fyrra, á þýskalandi 35 sinn-
um, í Austurríki 17 sinnum. Seðla-
umferðin á Rússlandi var um síð-
ustu áramót 150 þúsund miljarð-
ar rúbla.
%
---o----
Yfir landamærin.
1. Samkepnismenn fárast yfir því, að
smýglurum og fylliröftum hefði ekki
enst æfin til að bæta fyrir brot sín, að
sitja af sér hegninguna i steininum, ef
fram hefði náð að ganga herðing á
bannlögunum, sem J. J. flutti í vetur.
En hvað hafa smyglarar annað betra
að gera en vinna fyrir landið? Mætti
nota þá við skurðagröft og vega-
gerðir.
2. þó að Jón á Reynistað og þórar-
inn vilji f yrir kosningarnar afneita
Mbl. og eigendum þess, þá vill svo til,
að pappírinn í kosningableðlum þeirra
er Morgunblaðspappír.Kjósendur ættu
að bera saman stærðina. Fallegt af Jes
Zimsen og öðrum Morgunblaðseig-
endum, sem gefið hefir verið upp í ís-
landsbanka, að launa vel þeim bænd-
um, sem vörðu garð þeirra í vetrar-
harðindunum. "
3. Bjarni og B. Kr. hafa hvor um
sig auglýsingar frá eitthvað 20 kaup-
mönnum í Reykjavík á kosningabækl-
ingum sínum. Enginn auglýsir i al-
vöru á slíkum sneplum, sem sendir
eru fyrir kosningar á heimili í einu
liéraði. En auglýsingarnar sýna að
kaupmenn vilja koma báðum þessum
mönnum að aftur, Bjarna engu síður.
4. Morgunblaðsmenn eru undir
niðri stórreiðir þingliði sínu fyrir af-
neitanir þess. þykir skörin færast upp
í bekkinn, ef þeir rjáli nokkuð við
samvinnuna. Jafnvel þó að ekki sé
meint meira með slíku, heldur en þeg-
ar B. Kr. talar um ást sína á bænda-
lýðnum.
5. B. Kr. er stórum leiður á því, að
sumir Tímamenn hafi miklar hug-
sjónir. Hann hefir sínar, þótt lágfleyg-
ar séu. Eftirlaunin og löngunina til að
gera verslunina dýra fyrir almenn-
ingi.
6. í sumum pésum hans ægir sam-
Bújörð óskast.
Góð jörð með allri áhöfn óskast
til kaups eða leigu á næsta hausti
eða vori fyrir góða og arðberandi
húseign í Reykjavík.
Semja ber við H. A. Fjeldsted
Bakka, Reykjavík, Sími 674.
an kristilegu tali um „ráðvendni",
„frómleik", „drenglund" og saman-
hrúguðum illyrðum um samvinnu-
menn.
7. Úr bréfi að austan er sagt að
kjósendur Kvarans hafi talað um það
upphátt á bryggjunni er hann gekk í
land, að liann mætti gjarnan fara
norður og niður. Talið að varla sé
nokkur maður í kjördæminu, sem
mæli karli bót með framkomu hans í
bankamálinu í vetur. X.
-----O-----
Fréttir.
Prestafélagsritið. Fimti árgang--
ur þess er nýkominn út, svipaður
að stærð hinum fyrri. En efnið er
merkilegra og fjölbreytilegra en
áður, enda eru höfundarnir 14.
Mynd er fremst af síra Valdimar
Briem hálfáttræðum í fullum
biskupsskrúða. Síra Ásmundur
Guðmundsson skólastjóri ritar
ágæta grein um þorvald víðförla.
Síra þorsteinn Briem ritar grein:
Hversvegna eru konur kirkjurækn-
ari en karlar, og síra Magnús
Helgason skólastjóri: Skilað
kveðju — er það lýsing á hinum
ágæta kirkju- og skólamanni
norska, Kristofer Braun. Era þess-
ar greinar báðar afbragðsgóðar
sem líklegt var. — Jón Helgason
biskup ritar um kristni og þjóðlíf
á íslandi í katólskum sið, Sig. P.
Sívertsen: I kirkju á Spáni, Valdi-
mar V. Snævarr kennari þýðir
sálm eftir Berahard frá Clairvaux,
Ólafur Ólafsson kristniboði ritar
um kristniboð í Kína, síra Halldór
á Reynivöllum um safnaðasöng í
kirkjum, Páll ísólfsson um með
ferð sálmalaga og síra Eiríkur Al-
bertsson á Hesti um píslarsjón-
leikana í Oberammergau.
Bruni. Fimtudagsmorgun síðast-
liðinn kom upp eldur í stóru þrí-
lyftu steinhúsi við Grundarstíg.
Hafði kviknað frá gasi. Eldurinn
magnaðist mjög fljótt, svo að það
var með naumindum að fólk gat
forðar sér. Brann alt nálega sem
brunnið gat á tveim efri hæðun-
um, neðsta hæð og kjallari er
óbrunnin en stórskemd af vatni.
Brunaliðið kom mjög fljótt á vett-
vang og var framganga þess ágæt
um að slökkva eldinn. Leikur það
ekki á tveim tungum að stjórn
brunaliðsins er í góðu lagi.
Ensk kona, Evelyn Heepe, er ný-
komin til bæjarins og ætlar að lesa
upp ýms fræg skáldrit á ensku og
frönsku. Kemur hún hingað á veg-
um félagsins Anglia. Hún er fi’æg
ytra vegna upplestraríþróttar
sinnar.
Aðalfundur Eimskipafélags Is-
lands stendur yfir í dag.
Prestastefna er nýafstaðin og
var fjölmenn. Kennaraþing stend-
ur yfir þessa dagana.
Stórtemplar var kosinn á Stór-
stúkuþinginu Einar H. Kvaran
skáld.
Erlendur leikendaflokkur kemur
hingað bráðlega og ætlar að sýna
mörg útlend leikrit.
Aðalfundur Læknafélagsins er
settur í dag. Margir læknar utan
af landi sækja fundinn.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Laufáai. Sími 91.
Prentamiðja Aeta h/f.