Tíminn - 21.07.1923, Side 4
90
T 1 M I N N
Smásöluverð á tóbaki
má ekki yera hærra en hér segir:
"VincLlar:
Maravilla.....................................50 stk: kassi á kr. 22,25
3 Stjerner....................................50 — — - — 21,75
Supremo.......................................50 — — — 21,50
E1 Erté..................................... 50 — — — 17,25
1 Stjerne.....................................50 — — - — 12,25
King.......................................50 — —--------15,75
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0.
Xja.xid.s’verslxixa.
P. W. Jacobsen & sen
Timburverslun.
Símnefni: Granfuru. Carl Lundsgade
Stofnað 1824. Köbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá Svíþjóð. — Sís og umboðssalar annást pantanir.
Eik og efni i þilfar til skipa.
Orðsendíng
til kaupmanna og kaupfélaga.
Vér leyfum oss hérmeð að vekja athygli yðar á því, að vér höf-
um fyrirliggjandi töluverðar birgðir af islenskum niðursuðuvörum
frá niðursuðuverksmiðju vorri, svo sem:
Kjöt beinlaust í 1 kgr. dósum. Kæfu í 1 kgr. dósum,
--------í V* - - - Í v, - -
og Fiskbollur í 1 kgr. dósum.
Vörugæðin standast allan samanburð. Gerið svo vel að spyrja um
verð hjá oss áður en þér festið kaup á erlendri niðursuðu. Vörurnar
sendar út um land gegn eftirkröfu.
Styðjið innlenda framleiðslu.
Virðingarfyllst.
Sláturfélag Suðurlands.
Til kaupfélaga!
H.f. Smjörlíkisgerðin í Reykjavík er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, 'sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
■%
Biðjið um íslenska smjörlíkið.
Frá útlöndum.
Loks lítur svo út sem fullur frið-
ur ætli að komast á milli Grikkja
og Tyrkja a. m. k. til bráðabirgða.
— Stjórn Englands á í samning-
um við stjóm Ítalíu, Belgíu og
fleiri landa um afstöðuna til fram-
komu Frakka í Ruhrhéraðinu. En
samningarnir við Frakka eru
strandaðir. Hafa Englendingar við
orð að skipa nefnd, enskra manna,
eða alþj óðanefnd, til þess að
rannsaka gjaldþol þjóðverja.
— Dómur er nýlega kveðinn upp
í hinu mikla Landmandsbankamáli
í Danmörku. Prior forstjóri var
dæmdur í 800 kr. sekt, Riis Han-
sen fyrverandi bankastjóri í 2000
kr. sekt og Friis bankaráðsmaður
fyrverandi í 500 kr. sekt. Koma
þessir vægu dómar mörgum á
óvart. Er talið að dómaramir
muni hafa álitið að höfuðsökin
hvíldi á Gliickstadt, sem er nýlát-
inn. Einn dómaranna gerði ágrein-
ing og vildi dæma Prior í 120 daga
einfalt fangelsi. Dómsmálaráð-
herra Dana, Rytter amtmaður fyr-
verandi á Færeyjum, lætur hafa
það eftir sér opinberlega, að mál
þetta megi ekki skoðast útkljáð.
þar sem því verði skotið til æðri
réttar, enda hafi ágreiningur orð-
ið í þessum rétti. það sé og vafa-
samur skilningur dómaranna að
bankastjóri beri nálega einungis
ábyrgð á starfi bankans innan ein-
hverrar ákveðinnai’ deildar bank-
ans. — Glúckstadt tók katólska
trú rétt áður en hann dó, fékk
hina síðustu smurningu og var
grafinn að hætti katólskra.
— Forsætisráðherrann norski
bar fram þá tillögu nýlega í stór-
þinginu, að skipaðir væru menn
bæði af hálfu Danmerkur og Nor-
egs til að semja um Grænlands-
málið. Skyldi norska stjórnin til-
nefna mennina af hálfu Noregs.
Var tillaga þessi samþykt í einu
hljóði. Danir taka vel í málið að
eiga fund um það við Norðmenn,
en um yfirráðin yfir Grænlandi
þykjast þeir ekki þurfa að semja.
— Á Færeyjum hafa orðið miklar
og harðar umræður um Grænlands-
málið. Hefir blað sjálfstæðisflokks-
ins birt harðorðar greinar um
meðferð Dana á Grænlendingum.
En blað sambandsmanna bregður
sjálfstæðismönnum um óleyfilega
mikla vináttu við Norðmenn.
— Aðalfréttastofan í Berlín ger-
ir þá grein fyrir athöfnum Frakka
í Ruhrhéraðinu, sem hér segir-
par eru 80 þús. franskir hermenn.
71145 þýskum mönnum hefir ver-
ið vísað úr landi en 9 dæmdir til
dauða. 478000 smálestir af kolum
og 515200 smálestir af koksi hafi
verið fluttar til Frakklands. Er
það tæplega helmingi meira en
þjóðverjar fluttu Frökkum sjálfir
10 fyrstu daga ársins.
— Tyrkir ýfast mjög við Eng-
lendinga. Hermir ný fregn að
tyrkneska stjómin hafi vísað öll-
um þeim innlendum mönnum úr
landi, sem orðið hafi Englending-
um að einhverju liði undanfarið.
— Mikla athygli hefir það vak-
ið, að eitt af aðalblöðum katólskra
manna í Belgíu hefir eindregið
mótmælt aðförum Frakka og Belga
í Ruhrhéraðinu. Krefst blaðið þess
að Belgía gangi í lið með Englandi
um að hefja nýja stefnu í málinu.
— Bretum stendur mikill stugg-
ur af samkepninni sem þeir verða
nú að heyja bæði við Bandaríkja-
menn og þjóðverja um siglingarn-
ar yfir Atlantshafið. Eru þjóð-
verjar óðum að auka skipastól
sinn aftur og hitt er alkunnugt að
Bandaríkjamenn leggja hið mesta
kapp á að ná siglingunum í eigin
hendur.
— Balfour lávarður, einn af
merkusu forystumönnum íhalds-
flokksins enska, hefir borið fram
þær tillögur, að Bandamenn láti
rannsaka fjárhag þýskalands.leggi
héröðin beggja megin Rínar undir
alþjóðaeftirlit og leggi hald á toll-
tekjur þýskalands.
— f>að hefir vakið mikla athygli
að nýlega var borin upp tillaga á
allsherjarfundi verkamanna á Eng-
landi um að skora á þingmenn
flokksins að greiða atkvæði móti
öllum fjárveitingum til vígbúnað-
ar, og var tillagan feld.Hafa verka-
menn hingað til, víðast um lönd,
haft það á stefnuskrá sinni að
vinna á móti öllum vígbúnaði.
— Sem svar við hinni miklu
aukningu, sem Englendingar hafa
stofnað til á flugher sínum, hefir
verið borin fram tillaga um það í
franska þinginu að fimmfalda
fjárveitinguna til flugvélagerðar.
---o--
Yflrlýsingar
um bannmálið.
Stórstúkuþingið sem háð var í-
síðastliðnum mánuði var mjög
fjölment. Góðtemplarareglunni er
aftur að vaxa fiskur um hrygg
Með nýjum áhuga og fjöri hefui
hún baráttuna á ný gegn vínböl-
inu og fyrir hinu, að fá aftur öfl-
uga bannlöggjöf.
Fjölmennur kvennafudur sem
háður var nokkru fyr, lýsti ein-
róma fylgi við bannmálið.
Fjölmenn prestastefna í lok síð-
asta mánaðar lýsti og einróma áliti
sínu með bindindi og banni.
Mjög fjölmennur kennarafund-
ur var háður hér í bænum stuttu
síðar, og ályktanir hans voru jafn-
einróma.
þetta er talandi vottur um það,
hversu miklu fylgi bannmálið á að
fagna.
þátttakendur þessara funda
dreifast nú út um land alt. Mikil
og þung alda gæti af þeim stað-
ið, ef þær og þeir beittu sér jafn-
eindregið hver á sínu sviði, eins og
atkvæði þeirra hafa bent til é
fundum þessum.
Kosningarnar standa fyrir dyr-
um. Á næsta kjörtímabili verður
alveg vafalaust mikið undir því
komið hvert fylgi bannmenn eiga
á þingi.
Fylgi alþjóðar er tvímælalaust
með banninu.
Látið það koma fram við kosn-
ingarnar.
Sá stjórnmálaflokkurinn, sem
langöflugast hefir staðið með bann
málinu, bæði á þingi og í blöðum
sínum, er Framsóknarflokkurinn.
þeim flokki einum er trúandi til
samtaka átaks um að hrinda þessu
mikla mannúðar, siðferðis og fjár-
hagsmáli þjóðarinnar aftur í sæmi-
legt horf.
þeim flokki einum er treystandi
til þess að skipa þá stjóm, sem
leggi alúð við og festu að fram-
fylgja áfengislöggjöfinni.
-----o----
Frá Gróðrarstöðinni.
1 Gróðrarstöðinni er nú verið að
gera tilraunir með 14 afbrigði af
gulrófum og 20 afbrigði af kartöfl-
um. Hafa verið fengnar útsæðis-
kartöflur af harðgerðustu afbrigð-
um frá Norður-Noregi, Norður-
Svíþjóð og Norður-Skotlandi.
Vorið hefir verið fremur hlýtt,
grösin standa prýðilega, og verð-
ur fróðlegt að sjá í haust, þegar
upp verður tekið. Mun verða skýrt
frá því. þó fæst vitanlega ekki
ábyggileg reynsla fyrsta sumarið,
sem afbrigðin eru ræktuð hér, en
oft má þó fá góðar bendingar um
hvernig þau muni reynast. En þeg-
ar reynsla er fengin, þá mun reynt
að greiða fyrir því, að þeir sem
vilja fá góð afbrigði af kartöflum
til ræktunar, geti hæglega feng-
ið þau. R. Á.
-----o----
Væmið lof. Eitt fyrirbrigði er
eftirtektavert um „samvinnu“
Morgunblaðsins og kosningapésa
þess. Birta þeir þar ræður sínar
Jón Magnússon og Magnús Guð-
mundsson. Og svo sitja þeir um
hvert tækifæri til þess að skjalla
hvor annan. 1 Moggapésa sínum
syngur M. G. Jóni lof og dýrð. Og
J. M. gerir M. G. sömu skil í Mbl.
Kallar Jón M. G. besta fjármála
ráðherra sem verið hafi á íslandi
og líklegasta manninn til að rétta
við fjárhag landsins. En allra kát-
legast er þó þegar Jón fer að vitna
í M. G. eins og í biblíuna og prenta
eftir honum langar glefsur. Er það
stórfurðulegt að þessir samherjai
skuli ekki sjá hvað það á illa við
að þeir hlaða þannig lofinu hver
á annan. öll þjóðin veit að þeir
styðja hvor annan til valda og
ætla að fljóta hver á öðrum upp í
ráðherrastól. það er því sama og
að bera lof á sjálfan sig, þegar
þeir eru að hossa hvor öðrum.
pað er hlegið að þeim fyrir um
endilangt Island.
Altaf að kingja. þeim er ekki
klýjugjarnt Morgunblaðsmönnun-
um. Nýlega flutti það ósvikið lof
um síðasta eintakið af kosninga-
pésa Björns Kristjánssonar. En í
þessu eintaki pésans er nrent-
að upp með feitu letri sem Morg
unblaðsritstjórinn „át ofan í sig“
af hinum þjóðkunnu ummælum
um Sambandið, og farið miður
virðulegum orðum um. Ennfremur
eru í þessum sama pésa ummæli
um jámbrautarmálið og Jón J>or-
láksson, sem vart verða talin góð-
gjöm, en J. J>. er eins og kunnugt
er eitt helsta eftirlætisgoð Morg-
unblaðsins. öllu þessu verður
Mbl. að kyngja og flytja lof um.
Sýnir þetta best óeininguna sem er
undir niðri í Morgunblaðsliðinu,
þótt nú sé öllu kyngt til þess að
láta svo líta út á yfirborðin, að
sambúðin sé góð.
Sorglegt slys vildi til um miðja
vikuna rétt við Eliðavatn. J>riggja
ára piltur, sonur Brynjólfs Björns-
sonar tannlæknis, datt af brú yfir
Hólmsá og druknaði. Móðir sveins-
ins sá slysið álengdar, fór út í ána
til að reyna að bjarga, en varð þá
hætt komin að drukna sjálf.
Eimreiðin. Sveinn Sigurðsson
cand. theol. hefir keypt Eimreiðina
ar Ársæli Árnasyni. Tekur hann
sjálfur við ritstjóminni.
Tapast heflr
jörp hryssa, marklaus, klárgeng
og hærð í faxi. Eigandi Jón Guð-
mundsson yfirkjötmatsmaður, Berg-
staðastíg 20, Rvík. Sími 1018.
Tveir hestar tapaðir, rauðstjörn-
óttur 7 vetra, mark: blaðstýft fr.
h., biti aftan. Jarpur, 14—16 vetra.
Finnandi er vinsamlega beðinn að
gera aðvart R. P. Leví, Reykjavík.
Magnús Guðmundsson verðui
að sætta sig við að hann er látinn
bera ábyrgð á kosningapésanum
sem hann gefur út með hjálp
Morgunblaðsins. þegar pésinn „fær
leyfi“ til að birta „siðferðisvott-
orð“ um Magnús sjálfan eða aðra
hans líka, verður það skrifað í
hans reikning. Hann verður vitan-
lega líka að bera ábyrgðina af því,
ef hann hefir fengið ómögulegan
lepp til að stjórna pésanum.
Eins og stafur á bók. Samhliða
því sem Jón Magnússon hleður lof-
inu á M. G. í Mbl., kastar hann
hnútum til ritstjóra Tímans. Er
J. M. afarreiður yfir bréfi sem Tr.
J>. sendi út fyrir landkjöiið síðasta.
Kvartar undan því að þar hafi ver-
ið snúist gegn sér einum. Ætlar
það að verða höfuðvörn þeirra
beggja J. M. og M. G. að gera sig
að píslarvottum. Vesalingarnir sem
verða svo hart úti hjá Tímanum.
J. M. prentar í lok ræðunnar kafla
úr þessu kosningabréfi. Ætlar
að sýna með því hvað hann hafi
verið hart leikinn. En blindur er
hver í sjálfs sín sök. J. M. varar sig
ekki á því að allur þorri þjóðar-
innar telur hvert einasta orð satt
og rétt sem hann prentar upp úr
bréfinu. Eins og stafur á bók
standa þau óhrakin. Ritstj. Tím-
ans finnur ástæðu til að þakka J
M. fyrir að hafa birt þetta í Mbí.
Einhverjir eru það sennilega sem
sjá Mogga sem ekki sjá Tímann.
Af Sambandsfundi. Sigurður
Kristinsson forstjóri S. í. S., Jón-
as Jónsson skólastjóri, Aðalsteinn
Kristinsson forstjóri og ýmsir
fleiri komu með Esju í morgun af
Sambandsfundi.
Ólafur Briem formaður S. I. S.
dvelst norður í Skagafirði um þess-
ar mundir. Fór þangað af Sam-
bandsfundi.
Guðbrandur Magnússon kaup-
félagsstjóri í Hallgeirsey er stadd-
ur í bænum.
Ágætur síldarafli hefir verið
fyrir Norðurlandi undanfarið.
Svör við kattarþvotti þeim hin-
um langa sem Magnús Guð-
mundsson fyrverandi ráðherra hef-
ir birt í Moggadilk sínum, til varn-
ar fjármálastjórninni hans, hafa
orðið að bíða vegna anna ritstjóra
Tímans.
Að vestan herma fregnir að Jón
Auðunn sé farinn að halda þing-
málafundi í Norður-ísafjarðar-
sýslu. Afneitar hann Mogga þar al-
gerlega, en fylgir þó stefnu kaup-
manna fram í verki. Ver hann eft-
ir bestu getu á fundunum uppgjaf-
ir Isandsbanka, tap síldar og fisk-
spekúlanta, fall krónunnar o. s.
frv. Fylgismenn Jóns halda því
fram, að stjórn Landsbankans
muni ekki treysta sér að segja Jóni
upp þótt hann hafi sjálfur sagt af
sér með því að brjóta móti skipun
yfirboðara sinna. Móti Jóni býður
sig fram Jón Thoroddsen, Skúla-
son, gáfaður maður og prýðilega
máli farinn. Hann er utan flokka.
En í banka- og fjármálunum hefÍY
hann á fundunum ráðist harðlega
á „fallent-stefnuna“.
Ritstjóri: Tryggvi párhallason.
Laufáai. Sími 91.
Prentemiðja Acta h/1