Tíminn - 01.09.1923, Page 1

Tíminn - 01.09.1923, Page 1
(ðjafbfetx og afgreí&slur’aóur Cimans er Stgurgeir ^riórifsfon, Sombanósljústnu, Reýfjcmíf. ^fetexbsía C í m a n s er i Sambanósfjústnu. ®pin óaglega 9—\2 f. b/. Sítni 496. VII. ár. Reykjavík 1. sept. 1923 30. blað Vílilsstaða- skýrslan. Lesendum Tímans er vel kunn- ugt, að fyrir meir en ári síðan byrjuðu sjúklingar frá Vífilsstaða- hæli að kvarta um ýmiskonar ólag á rekstri hælisins og meðferð sjúklinganna. Tíminn birti nokkr- ar af þessum umkvörtunum og bauð jafnframt lækninum að svara. Lengi vel svaraði hann engu, og vakti málið hina mestu eftirtekt úti um land. Að síðustu svaraði hann í Morgunblaðinu með stóryrtri grein, og var auðséð, að hann var reiður við Tímann fyrir að hafa léð sjúklingunum rúm í biaðinu. Jafnframt tók hr. Sigurð- ur Magnússon á sig, sem eðlilegt var, fulla ábyrgð á hjálparfólki sínu bæði við hjúkrun og mat- reiðslu. Sig. Eggerz lét að lokum undan aðhaldi almenningsálitsins og skip- aði rannsóknarnefnd á hælið, tvo lækna og einn lögfræðing. Hefir áður verið sagt frá, að þeir sendu stjóminni skýrslu, en að Sig. Egg- erz stakk henni sama sem undir stól, auðsjáanlega til að hindra þjóðina frá að vita um niðurstöðu rannsóknarinnar. Meðan stóð á birtingu aðfinslu- greinanna, varð læknirinn töluvert skelkaður. Breyttist þá margt til batnaðar á hælinu, sérstaklega maturinn. Og um stund a. m. k. hefir læknirinn sýnt meiri mýkt í umgengni við sjúklingana, heldur en vitnisburður Páls Vigfússonar o. fl. sjúklinga bendir á að fyr hafi verið. Rannsóknamefndin yfirheyrði flesta eða alla sjúklinga á hælinu og marga, sem farnir voru. Skýrsl- an var bygð á þessum rannsókn- um, en sjálfum vitnaframburðin- um var haldið leyndum. En af skýrslunni má sjá, að allur þorri þeirra hefir tekið í strenginn með Páli Vigfússyni um, að býsna margt væri að meðferðinni að finna. 1 skýrslunni telur nefndin upp á að giska 40—50 kæruatríði, sem sjúkiingar hafi fundið að. Em þau atriði snertandi alla aðalliði starf- rækslunnar á Vífilsstöðum: Fram- komu læknisins, yfirhjúkrunar- konunnar og viðurgerninginn. Um nálega öll þessi atríði, að frátöld- um eitthvað 4—5 fremur óveru- legum klögumálum, viðurkennir nefndin, að mikið sé til í aðfinslun- um, eða að þær séu sannaðar. Er á þessu öllu tekið með hógværam orðum, en nokkurri festu. Saga sjúklinganna er þannig sönnuð með starfi og skýrslu nefndar- innar. En þegar dregur að niðurlagi skýrslunnar, fer mjög að skorta á eðlilegt samræmi. Nefndin leggur til, að matreiðslukonan sé látin fara. Hjúkrunarkonan, sú hin danska, hafi að vísu marga ann- marka, en líka ýmsa kosti, og best sé, að hún haldi áfram. Og út á starfsemi læknisins sé ekki neitt sérlegt að setja. Af skýrslunni má draga þá ályktun, að nefndin hefir safnað Lægilega miklu efni til að byggja á ökstuddan dóm um hælið. En þeg- ar kom að því að kveða upp dóm- nn sjálfan, verður hann í algerðu ósamræmi við forsenöurnar, eins og þær koma fram í sjálfri skýrsl- i'.nni. Nefndin virðist gleyma því, að langsamlega flest aðfinsluatriðin játar hún sönnuð, en aðeins fá, sem hún játar ósönnuð eða bygð á misskilningi. Hún gleymir enn- fremur, að eftir eðli málsins ber læknirinn ábyrgð á öllum rekstri hælisins: Lækningunum, starf i hjúkrunarkonunnar og matreiðsl- unni. Ennfremur virðist nefndin gleyma, að læknirinn hafði í Mbl. greininni tekið á sig alla ábyrgð- ina. Kom nú í ljós það, sem ungur læknir, einn af meðhaldsmönnum Sig. Magnússonar sagði við þann, sem þetta ritar: „Rannsókn á Víf- ilsstöðum leiðir aldrei neitt í ljós. Stéttin heldur saman“. En að vísu er þetta ofmælt. Skýrsla nefndar- innar segir mikið um ástand hælis- ins. það mun þjóðinni finnast, þeg- ar hún verður birt. Og sem betur fer eru til margir læknar, sem ekki myndu vilja villa þjóðinni sýn í nokkru, sem viðkemur starfi þeirra. Sig. Eggerz fékk þessa skýrslu og sendir hana landlækni til um- sagnar. Ef hann hefði verið starfi sínu vaxinn, myndi hann hafa séð, að verulegra breytinga þurfti með á hælinu, t. d. að skifta um yfir- hjúkrunarkonu og yfirlækni, eða a. m. k. að flytja Sig. Magnússon til Rvíkur og láta hann stunda berkla- veika menn þar og að einhverju leyti á Vífilsstöðum, en fá þangað annan lækni, sem hefði hlýrra handalag og væri betur fallinn til að vera heimilisfaðir á stóru heim- ili. Með þessu móti hefði mátt nota kunnáttu Sig. Magnússonar, án þess að skapgallar hans spiltu fyrir. En landlæknir fór ekki þessa leið. Hann sýnist ekki hafa lesið skýrsluna, heldur fyrirfram ákveð- inn meðhaldsmaður Sig. Magnús- sonar. Hann kallar aðfinslur sjúkl- inganna „argafár“ og hefir þó fyr- ir sér skýrsluna, sem einmitt sann- ar, að stjórn hælisins var í alveg óviðunandi ástandi. Er þessi frammistaða landlæknis þess eðlis, að hjá engri þjóð, nema íslending- um, myndi slík umsjón með heil- brigðismálunum vera látin við- gangast. þarf ekki að rugla því tvennu saman, að Guðm. Björnson hefir mikla og merkilega fortíð, en að hann og þjóðin hefði best af að hann fengi nú sem fyrst annað verkefni en umsjón heilbrigðis- mála, sem betur væri í samræmi við krafta hans eins og þeir eru nú. Sig. Magnússyni var ennfremur send skýrslan til umsagnar. Svar- ar hann með gremjublandinni þvælu, sem síst af öllu bætir mál- stað hans, enda koma þar engin rök fram. Nú var sjálfsögð skylda Sig. Eggerz 0 birta þessa skýrslu þeg- ar í stað, alveg eins og fyrverandi stjómir hafa birt skýrslur í fossa- málinu, launamálinu, skólamálum 0. s. frv. það minsta var að gefa opinberlega skýrslu í málinu þegar í þingbyrjun. En Sig. Eggerz gerði hvorugt. Hann lá á skýrslunni fram undir þinglok. Eg krafðist oft að fá að sjá hana, en S. E. neitaði jafnan, og kvaðst myndi láta hana í einhverja nefnd. Fyrst datt honum í hug allsherjamefnd Ed. En þar var Jón Magnússon for- maður, og það þótti fullskylt. Að síðustu fékk allsherjarnefnd Nd. skýrsluna. Jón þorl. og M. Guðm. vora þar formaður og skrifari. Ennfremur Björn á Rangá fastur samherji þeirra. Nefndin fór með skýrsluna eins og helgidóm, sem þyrfti að gæta vandlega. Enginn þingmaður fékk að sjá plaggið eða ♦ ♦ %ecm' NAVY CUT CIGARETTES Kaldar og Ijúffengar. Smásöluverð 65 aura pakkinn, 10 stykki. THOMAS BEAR & SONS, LTD., LONDON. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Alþýðuskólinn í Hjarðarholti í Dölum byrjar 12. nóv. og endar 12. apríl (miðað við ferð „Esjuu til Búðar- dals). Námsgreinar hinar sömu og á venjulegum ungmennaskólum og auk þess sálarfræði og bókmentafræði. Sérstök áhersla lögð á hagnýt- an reilcning, t. d. bókfærslu, móðurmálið, ættjarðarsöguna og söng. Hvergi ódýrari skólavist. Sérlega góðir borgunarskilmálar á fæð- ispeningum og slcólagjaldi. Skrifið undirrituðum, sem veitir fáslega allar nánari upplýsingar. BjöriA lEi. J“ónsson, skófástjóri. heyra neitt um það. Og að lokum létti nefndin af sér ásökunum sam- viskunnar með því að fá S. E. skýrsluna aftur. þegar eg sá, að tilgangurinn væri sá, að fela skýrsluna fyrir þinginu og þjóðinni, bar eg fram áskorun til stjórnarinnar að leggja skýrsluna fram á lestrarsal hjá skrifstofustjóra Alþingis, með fleiri svipuðum plöggum, sem stjórnin hafði í fórum sínum. S. E. brá þá við og gerði þetta. Lá skýrslan nokkra daga hjá Jóni Sig- urðssyni. Geta kjósendur spurt þá þingmenn, sem leita endurkosn- ingar í haust,um efnið á þingmála- fundum, og hvort þingmennirnir ætli að láta Vífilsstaðamálið sofna eins og það er nú. Sérstaklega geta Skagfirðingar og Norðmýlingar fengið nákvæmar upplýsingar um meðferð málsins hjá M. Guðm. og Birni á Rangá. Töluvert hefir áunnist í þessu máli þrátt fyrir alt. Aðbúðin hefir. í verulegum atriðum batnað á hæl- inu. Sennilega kemur gamla lagið aftur á sumum sviðum, þegar mesta umtalið er afliðið, og þegar læknirinn sér, að hann hefir ekk- ert aðhald hjá stjórn eða land- lækni. En einhver spor verða þó eftir, sem ættu að vera til bóta fyrir sjúklingana. Og varla verður um það deilt, að sú bætta aðhlynn- ing, sem sjúklingarnir hafa notið, eða kunna að njóta í framtíðinni, er afleiðing þess, að Tíminn hefir gert skyldu sína sem landsmála- blað. Um hitt verður þjóðin að dæma, þegar skýrslan loks kemur á prent, hvort rannsóknarnefndin, landlæknir, heilbrigðismálaráð- herrann og allsherjarnefnd Nd. hafa gætt skyldu sinnar, svo sem vera bar. Tíminn mun una því vel, að hafa eftir megni reynt að bæta fyrir berklasjúklingum landsins, sem hvergi hafa að leita bata og að- hlynningar nema á Vífilsstöðum. Hitt er aftur minna gleðiefni, að yfirstjórn heilbrigðismálanna skuli hugsa meir um hagsmuni ein- stakra af starfsmönnum landsins, heldur en sjúklingana, sem á að lækna. J. J. B. Kr. leitar að guili. 6. Bak við löngun B. Kr. til að fá gamla kaupmenn til að stýra kaupfé- lógunum liggur bæði umhyggja fyrir hmum atvinnulausu kaupmönnum og umhyggja fyrir velferð kaupfélaganna. B. Kr. gerðist sjálfur einskonar kaup- félagsforsprakki og seldi sauðafarm fyrir hændur í Árnessýslu til Eng- lands. Sagan segir, að bændur hafi ekki fengið neitt fyrir sauðina. Versl- unarvit og verslunarþekking B. Kr. er mikil að hans dómi. Samt varð endir- inn svona liörmulegur þegar hann fór að versla fyrir kaupfélag. þessi reynsla B. Kr. ætti að sanna honum, hve misróðið er frá sjónarmiði félags- manna að fá svona „verslun", eins og þessa sauðasölu Árnesinga, þar sem bæði kaupmannavitið og hið tilvon- andi bankavit tvímentu við allar fram kvæmdirnar. 7. B. Kr. segiy, að í Tímaritinu hafi verið vendilega þagað um löggjöf og fyrirkomulag kaupfélaga erlendis. En í tíð núverandi ritstjóra hefir Tímarit- ið verið fylt með erlendum fróðleik um samvinnu og skattalöggjöf annara þjóða, jafnvel prentaðir upp á erlend- um málum textar úr erlendri löggjöf. Svo mikinn fróðleik er um þetta að finna í Tímaritinu, að óhugsandi er fyrir kaupmannavaldið að kúga sam- vinnufélög á íslandi með tvöföldum skatti. þessi rök í Tímaritinu voru meira að segja svo þung á metunum, að B. Kr. beygði sig á þingi 1921, sagði ekki eitt orð á móti lögunum og rétti „putann" upp við að lögfe'sta sam- ábyrgðina í íslenskum kaupfélögum. Annars væri fróðlegt að vita, með hvaða töfrum samvinnumenn stungu B. Kr. svefnþom ó þingi 1921, svo að hann lagði blessun sína yfir sam- vinnulögin og samóbyrgðina. 8. B. Kr. segir, að það sé allmikill prófsteinn á siðmenningu íslendinga, hversu hún taki á móti 1. hefti af Tímariti kaupfélaganna nú í ór. Á Sambandsfundinum síðasta á Akur- eyri var samþykt óskorun til kaup- félaganna að útbreiða ritið enn meir en orðið er. Og pantanir, sem síðan hafa komið, gera það bert, að upplag- ið verður of lítið. 9. B. Kr. segir, að marka megi sið- menningu landsmanna á því, hversu þeir meti Tímarit samvinnufélaganna. Til skýringar er rétt að geta þess, að þegar dreift hafði verið til fundar- manna á síðasta aðalfundi Sís fyrsta heftinu þetta ár, kom fram tillaga fró Arnór í Hvammi að leggja ritið niður. Tillagan var feld með öllum atkvæð- um gegn einu (Arnórs). Siðan var samþykt að auka sem mest útbreiðslu Tímaritsins og þá um leið stækka upp- lagið. Virðist Sambandið alls ekki vera að búa sig undir að leggja niður mól- gagn sitt, svo að blöð og tímarit and- stæðinganna eigi því léttara með að fegra braskið og milliliðagróðann. 10. B. Kr. segist hafa skrifað ósann- indapésa sína um kaupfélögin og Sam- bandið af eigin hvötum, en ekki fyrir kaupmannastéttina. Nú er B. Kr. fyrst og fremst kaupmaður sjálfur, og má sjá þess merki i Rvík. Hann er þesa- vcgna að berjast við að níða sem mest keppinaut sinn. Og hver græddi, ef ósannindum og blekkingum B. Kr. væri trúað, nema stéttarbræður hans? 11. B. Kr. ber sannleikanum þannig vitnisburð, að hann hafi „aldrei amast við sjálfstæðum kaupfélögum". En hversvegna lagði hann þá út í hina fyrri baráttu við pöntunarfélögin, til að láta Jón í Múla og Pétur Gauta veita honum sömu skil og hann nú hefir fengið fyrir frammistöðu sina hjá Tímanum, Degi og Tímaritinu? 12. B. Kr. vill afsaka blindan ofsa sinn gagnvart félögunum, með því, að þau njóti skattfrelsis. Fyrst er það ósatt, að þau séu skattfrjáls. þau gjalda margskonar skatta, samkvæmt samvinnulögunum. En að því leyti sem ekki er hægt að leggja á félögin ótakmarkað aukaútsvar, þó er B. Kr. eitthvað með ó þeim nótum. Hann andæfði ekki með einu orði samvinnu- lögunum, þegar þau voru samþykt 1921, heldur ekki skattamálaák.væðun- um. Ef hann álítur þau röng nú, hefir hann annaðhvort verið svo sljór ó þingi 1921, að sjá ekki hættuna, sem hann nú talar um, eða hann hefir skammarlega brugðist fulltrúaumboði sinu fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu. 13. B. Kr. segist ekki vilja leggja niður kaupfélögin. Hann vildi eyði- leggja Sambandið og kljúfa hvert fé- lag upp í hreppsverslanir. Hvergi í víðri veröld eru slík kaupfélög til. í öllum siðuðum löndum róða staðhætt- ir og vilji félagsmanna stærð félag- anna. í þýskalandi er til félag, sem hefir um 60 þús. félagsmenn, og í Bretlandi félag með 40 þús. félags- mönnum. Félagsmenn eru altaf full- orðið fólk og venjulega húsráðendur. Af þessu getur B. Kr. séð, að sam- kvæmt erlendum fyrirmyndum gætu allir íslendingar verið i einu kaupfó- , lagi og meira en það. Og í öllum lönd- um, þar sem kaupfélög eru komin úr barnæsku, stofna þau til sameiginlegra innkaupa til að brjóta af fólki milli- liðabönd stórkaupmanna engu síður en smósala. Ef B. Kr. vill drepa allar samvinnuheildsölur, verður hann að snúa sér að fyrirtækjum erlendis, sem hafa veltu, sem nemur tugum og hundruðum miljóna. 14. Ef Sambandið íslenska er ekki stofnað til verslunarsamtaka, heldur til landsmálastarfsemi á öðrum svið- um, hví hafa þá aðrar þjóðir stofnað samvinnuheildsölur, Englendingar, Skotar, Danir, Norðmenn, Svíar, þjóð- verjar, Frakkar, Finnlendingar, Sviss- ii og ítalir? Hversvegriá þurfa erlend- ai þjóðir samvinnuheildsölur, en ekki íslendingar? J. J. -----O-----

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.