Tíminn - 15.09.1923, Qupperneq 1
« ©fcifbfeti
09 afgretftslur’aÓur Cimans er
Sigurgetr ^riferifsfon,
Sambanöst)Ú5Írtu, Seffjamf.
^fjgteifcsía
Cimans er í Sambanbsljúsinu.
©ptn baglega 9—\2 f. t).
Simi 496.
VII. ár.
Reykjavík 15. sept. 1928
32. blað
Til Skagfirðinga.
Nokkrir menn hafa æskt þess,
að eg gæfi kost á mér til þing-
mensku í Skagafirði. Eg hefi af-
ráðið að verða við þessum tilmæl-
um. Er sú aðalástæða til þess, að
síðan eg tók við stöðu þeirri, sem
eg nú hefi með höndum, hefi eg
oft og tíðum fundið til þess, hve
miklum erfiðleikum það er bundið
að geta eigi mælt með sjálfur og
flutt ýmsar tiliögur, er gætu orð-
ið landbúnaði vorum og atvinnu-
vegum til umbóta.
Ef til þingmensku kæmi, myndi
það því verða aðalstarf mitt, að
vinna að þessum málurn. Eg hefi
að þessu staðið utan við hina svo-
nefndu pólitisku flokka og mun
láta mig þá litlu skifta, en fylgja
þeim að málum, sem eg hygg að
vilji og geri mest fyrir land og
þjóð.
Að öðru leyti er eg ykkur Skag-
firðingum svo kunnui’, að eg þyk-
ist ekki þurfa að fjölyrða um
áhugamál mín við ykkur.
Eg veit, að þið Skagfirðingar
eigið völ á öðrum góðum og nýt-
um þingmönnum.
Takið þá mennina, sem þið
treystið best til að vinna eitthvað
gagn fyrir föðurlandið á þeim
erfiðu tímum, sem í hönd fara.
Vegna utanfarar minnar get eg
ekki sótt kosningaundirbúnings-
fundina. En síra Sigfús Jónsson
kaupfélagsstjóri hefir tekið að séi
að vera í einu og öllu umboðsmað-
ur minn við kosninguna.
Reykjavík 29. ágúst 1923.
S. Sigurðsson
búnaðarmálastjóri.
Áskorun til Skagfirðinga.
það er hið mesta gleðiefni að
geta flutt framanskráð framboð.
Miðstjórn Framsóknarflokksins
hefir lagt hið mesta kapp á að fá
sem flesta af forystumönnum land-
búnaðarins til að gefa kost á sér
til þingmensku í haust með stuðn-
ingi Framsóknarflokksins. Með
Sigurði búnaðarmálastjóra Sig-
urðssyni kemur sá maður fram á
sjónarsviðið, sem telja má í allra
fremstu röð slíkra manna. þó að
miðstjórn Framsóknarflokksins sé
það kunnugt, að Sigurður Sigurðs-
son er ekki í öllu flokksmaður í
Framsóknarflokknum, enda hefir
hann nær eingöngu haldið sér við
forystustarf sitt í landbúnaðarmál-
um vorum, þá er lienni það sériega
Ijúft að mæla hið allra sterkasta
fram með kosningu hans við skag-
firska kjósendur. Með þingsetu
hans bættist í þann hóp einn hinn
alli-a færasti og áhugamesti um að
finna ráðin til viðreisnar íslensk-
um landbúnaði. það væri mikill
sómi fyrir Skagafjarðarsýslu að
senda slíkan fulltrúa á þing. það
ei öldungis víst, að önnur landbún-
aðarhéruð landsins munu ætlast til
þess af Skagfirðingum, að þeir
hafni ekki slíkum frambjóðanda,
úr því hann, vegna áhugamála
sinna, hefir látið til leiðast að gefa
kost á sér.
Reykjavík 29. ágúst 1923.
Af hálfu miðstjómar Framsóknar-
flokksins.
Tryggvi þórhallsson.
Nokkrir
Framsóknarmenn.
I.
Fáir menn eru nú á þingi, sem
gesti þingsins langar meira til að
þekkja en Svein í Firði, og mjög
fáir þingmenn hafa eindregnara
fylgi í sínu héraði en hann, nema
ef vera skyldi þorleifur á Hólum.
því að með honum mun vera svo að
segja hvert mannsbarn í kjördæm-
inu. Áður en Sveinn kom á þing,
var það mál sumra þeirra manna,
sem best þekkja til hér á landi, að
Sveinn væri best mentur bóndi á
Islandi. Fáir bændur hafa líka
haft slíkt tækifæri eins og hann,
sem þrásinnis hefir átt kost á að
dvelja erlendis, og haft vináttu og
nána kynningu við marga ágæta
og vel mentaða menn í ýmsum
löndum. En landsfrægð sína á
Sveinn sérstaklega að þakka fram-
komu sinni í fossamálinu, og sigri
sínum þar. þegar Sveinn kom á
þing 1916, var fossabraskið í al-
gleymingi. Nálega hver foss var
seldur eða leigður útlendingum.
Margir hugðu, að stóriðja byrjaði
þá og þegar á mörgum stöðum við
fossana. Löggjöf varð að setja um
notkun vatnsaflsins. þá var sett
fossanefndin og Sveinn kjörinn af
hinurn litla bændaflokki, sem þá
var minstur í þinginu. Fyrir aðra
ílokka voru tilnefndir Guðm.
landlæknir, Jón þorláksson, Bjarni
frá Vogi og Guðm. Eggerz.
Tiltölulega fljótt ungar Bjarni
út vatnsránskenningu sinni, og
nær landlækni og J. þ. inn á þessa
fjarstæðu. Guðm. Eggerz var með
Sveini, það sem hans naut við.
Urðu nú endalausar sviftingar í
nefndinni um eignarréttinn, mest
milli Sveins og Bjarna. Reyndi
meiri hlutinn að þreyta og fJækja
minni hlutann með öllum hugsan-
legum lagakrókum. Að lokum fékk
meiri hlutinn Einar Aniórsson
sem lögráðunaut, til að skinna upp
á vatnsránið. En Sveinn stóð fyrir
fastur eins og klettur og kom með
sérstakt álit og vatnalaga- og sér-
leyfisfrumvarp, bygt á hinni eldri
löggjöf og réttarvenju, að sá ætti
vatnið, sem átti botn undir því.
Tíminn birti síðan gögn Sveins í
málinu og fullkomnaði sigur hans.
Var það tiltölulega fljótt ljóst, að
firra Bjarna hafði ekkert fylgi
með þjóðinni,«en nokkrir kunningj-
ar hans, J. þ. og Guðm. landlækn-
ir hjálpuðu til að tefja framgang
málsins, þar til í vetur, að það
náði fram að ganga. Meiri hlutinn
kom að einni breytingu við aðra
grein frv., sem gerir það álappa-
legt, en breytir ekki meiningu. þar
er sagt, að um vatnsréttinn fari
eftir því, sem mælt er fyrir í lög-
um þessum, í stað þess að vísa líka
til eldri laga og réttarvenja. En
hinsvegar er allur lagabálkurinn
bygður á kenningum Sveins. Hvar
$ears*
NAVY CUT
CIGARETTES
Kaldar og Ijúffengar.
Smásöluverð 65 aura
pakkinn, 10 stykki.
♦
i- -o-
LONDON
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Alþýðuskólinn í Hjarðarholti í Dölum
byrjar 12. nóv. og endar 12. apríl (miðað við ferð „Esjuu til Búðar-
dals). Námsgreinar hinar sömu og á venjulegum ungmennaskólum og
auk þess sálarfræði og bókmentafræði. Sérstök áhersla lögð á hagnýt-
an reikning, t. d. bókfærslu, móðurmálið, ættjarðarsöguna og söng.
Hvergi ódýrari skólavist. Sérlega góðir borgunarskilmálar á fæð-
ispeningum og skólagjaldi.
Skrifið undirrituðum, sem veitir fúslega allar nánari upplýsingar.
IBjöm. IE3I. Jónsson,
skólastjóri.
Líftryggingarfél. ANDVAKA h.f.
Kristianiu — Noregi
Allar venjulegar líftryggingar, barnatryggingar
og lífrentur.
ísla.zxc5Lscie±lci±n
i Löggilt af Stjórnarráði Islands í desember 1919.
Ábyrgðarskjölin á íslensku! —Varnarþing i Reykjavík!
Iðgjöidin lögð inn í Landsbankann og íslenska sparisjóði.
Viðskifti öll ábyggileg, hagfeld ög refjalaus!
Dýrmætasta eignin er starfsþrek þitt og lífið sjálft. Trygðu það!
Gefðu barni þínu líftryggingu! Ef til vill verður það einasti arfurinn!
Líftrygging er fræðsluatriðí, en ekki hrossakaup! Leitaðu þér fræðslu!
Líftrygging er sparisjóður! En sparisjóður er engin líftrygging!
Hygginn maður tryggir líf sitt! Heimskur lætur það vera!
Konur þurfa líftrygging eigi síður en karlar!
Með því tryggja þær sjálfstæði sitt!
10.000 króna líftrygging til sextugsaldurs kostar 25 ára gamlan mann
um 67 aura; á dag!
5000 króna líftrygging kostar þrítugan mann tæpa 30 aura á dag.
Forstjóri: Helgi Valtýsson,
l’ósthólf 533 — Reykjayíb — Heima: Grundarstíg 15 — Sími 1250
A.Y. Þeir sem pant.a tryggingar skriflega sendi forstjóra umsókn og
iáti getið aldurs sins.
Dýrafræði handa börnum.
Bráðum kemur á markaðinn dýrafræði handa börnum með mörg-
uin myndum. Jónas Jónsson frá Hriflu heflr gert bókina, en Ársæll
Árnason gefur út.
sem vatn er tekið til notkunar af
öðrum en eiganda, koma fullar bæt
ur fyrir. Eignarrétturinn á vatni
er því viðurkendur og lögfestur,
eins og verið hefir hér á landi síð-
an ísland bygðist. Sveinn byrjaði í
minni hluta og átti við ofurefli að
etja. En sigur hefir unnist fyrir
ágæta forgöngu hans, með stuðn-
ingi Framsóknarflokksins og sam-
vinnublaðanna, Dags og Tímans.
Rannsókn og endalok fossamálsins
eru talandi vottur um nauðsyn
skipulagsbundinna flokka, sem
vinna í samstarfi við víðlesin
landsmálablöð.
Fyrir utan fossamálið hefir
Sveinn tekið þátt í flestum hinum
stærri málum. Hann kom þeirri
stöðvun inn í launalögin 1919, að
samningar um dýrtíðaruppbótina
skyldu ekki standa lengur en til
1925, í stað þess, að annars myndu
þiggjendur launanna hafa talið
uppbótina æfilaun. Hann hefir bar-
ist manna mest fyrir bættum sjó-
samgöngum á Austfjörðum. Fyrir
hans forgöngu hafa verið bygðir
vitamir við Djúpavog. Gerði
Sveinn þá höfn þar með að þrauta-
lendingu vélbátanna austfirsku, er
þeir sækja sjó á vertíð suður með
hafnlausu ströndinni. Má segja, að
með þessu verki hafi tekist að
tryggja framtíð útvegsins eystra,
í samræmi við náttúruskilyrðin.
pá réði Sveinn með þorst. M.
Jónssyni mestu um breytingu
Eiðaskólans. Hann hefir sótt mjög
fast að koma upp ullarverksmiðju
á Austurlandi, en fátækt og skulda-
basl landssjóðs hefir hindrað fram-
kvæmdir.
Ingvar Pálmason mun vera á ald-
ur við Svein. Hann nýtur mikils
trausts í héraðinu hjá öllum, sem
til þekkja. Hafa þeir Sveinn og
hann lengi unnið saman að héraðs-
málum. Báðir eru þeir eindregnir
Framsóknarmenn og manna djarf-
astir í að vilja halda í skefjum
áfengisbölinu. Aftur eru andstæð-
ingar þeirra, Kvaran og sýslumað-
ur, í fullu samræmi við Mbl. í
áfengismálinu. Kvaran vildi í vetur
f jölga útsölustöðum spánskra vína,
og sýslumaður hefir jafnan verið
mjög ákveðinn og trúaður and-
banningur. Má furðanlegt heita, ef
bannmönnum hér á landi, og þá
ekki síst kvenþjóðinni, þykir ekki
meir en nóg að gert um vínaústur-
inn, þó að smyglun og verslun með
sterka drykki sé haldið í skefjum.
En það mátti Kvaran ekki heyra
nefnt í vetur, og Mbl. gerir gys að
tilraunum goodtemplara, að hafa
hendur í hári smyglara og laun-
sala. Frh.
Frá Japan.
Japanseyjar, sem liggja við
austurströnd Asíu, eru með mestu
eldfjallalöndum í heimi, enda eru
eldsumbrot og landskjálftar þar
alltíðir viðburðir, og eins jafnvel í
sjálfu Kyrrahafinu, sem tekur við
fyrir austan Japan. Koma þar
stundum upp miklar hafbylgjur, er
stafa af landskjálftakippum á sjáv-
arbotni, oft á fima dýpi.
Austan til á eynni Nippon, sem
er stærst af Japanseyjum, stend-
ur höfuðstaður ríkisins, Tokio,
mikil borg með eitthvað 2y2 miljón
íbúa, en skamt þaðan er eitthvert
helsta eldfjallið í Japan, og hafa
landsmenn haft á því helgi mikla.
Nokkru sunnar (30 km.) er Joko-
hama, hafnarbær höfuðborgarinn-
ar, við Jedoflóann. Tokio tekur yfir
mikið svæði; húsin eru flest ein-
lyft og úr timbri. Aftur á móti er
Jokohama að nokkru leyti gerð úr
steini.
þann 3. sept. bárust hingað þær
fregnir, að Tokio væri gereydd af
landskjálftum, eldi og sjávarflóði,
en Jokohama hrunin til grunna og
símalínur allar og járnbrautir á
stóru svæði að engu nýtar. Um
manntjón voru fregnirnar ekki
Ijósar, eins og að líkindum lætur,
en það er vitanlega stórkostlegt,
eitthvað um hálfa miljón, að því
er sagt hefir verið. Bandaríkja-
menn buðu þegar Japönum allan
flota sinn til láns í hjálpar skyni.
En það er enginn efi á því, að tjón-
ið er og verður enn meira en sagt
er, þegar gætt er að kringum-
stæðum þeirra, sem eftir lifa, og
það athugað, hve mörgum er lífs-
nauðsyn á hjálp umsvifalaust.
Efnalegt tjón hefir verið áætlað
um 1000 milj. sterlingspunda.
það er vafalaust, að þessi stór-
kostlegu slys og mannalát eru eins
dæmi í veraldarsögunni. Einhver
mestu landskjálftaslys, sem áður
hafa orðið, eru þessi:
Landskjálftinn í Lissabon 1765;
manntjón 30—40 þús.
Landskjálftinn í Messína 1908;
manntjón 77 þús.
Landskjálftinn í San Francisco
1906; manntjón lítið, en annar
skaði mikill.
Eldgos og landskjálfti á Martini-
que 1902; manntjón 30 þús.
Ekkert af þessu stenst neinn
samanburð við jarðbyltingarnar,
sem nýlega hafa orðið í Japan, og
hafa stórveldin ein verið mikilvirk-
ari í manndrápum, er þau gengu
berserksgang í ófriðnum mikla.