Tíminn - 13.10.1923, Síða 1
©)aíbf eti
og afgrei&slur’aöur Cimarts er
Sigurgeir 5r'í>riísíon/
Samban&stjúsinu, Heyfjaoíf.
^fgttifeðía
Címans er t Samban&s^úsinu.
(Ðptn feaglega 9—\2 f. þ
Simi 496.
VII. ár.
Reykjavík 13. okt. 1923
36. blað
SinásöluverD á tóbaki
má ekki vera hærra en liór segir:
!Reyktóbak:
Nix................... pr. kg. kr. 12.65
Feinrichender Shag.... pr. kg. kr. 13.80
Golden Bell........... pr. kg. kr. 13.55
Marigold (Dobbelm.).... pr. kg. kr. 14.95
Golden Shag (Dobbelm.). pr. kg. kr. 17.25
Old Friend............ pr. lbs. kr. 9.20
Utan lteykjavíkur má verðið vera þvi hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0.
Xj a.xicfLsversl\ixa.
Framkvæmdastjórastaðan
við Kaupfélag önfirðinga er laus frá 1. febrúar næstkomandi.
Umsóknarfrestur til 31. des. þ. á.
Iíaupfélagsstj órnin.
Ihaidið
og íslenskir bandur.
Andstæðingum Framsóknar-
flokksins verður skrafdrjúgt um
bændaíhaldið. Morgunblaðið og
eitthvað af kosningablöðum þess
tala um, að þareð Framsóknar-
flokkurinn sé aðallega bænda-
flokkur, þá eigi hann ekki að beita
Framsóknarflokkur heldur fhalds-
flokkur. Bændurnir séu svo íhalds-
samir.
Tilgangslítið er að rífast um
nöfn. En hitt er ekki ástæðulaust
að ræða um þetta mikla íhald, sem
á að vera höfuðeinkennið á íslensk-
um bændum.
það er ekki nema rúmur manns-
aldur síðan bændurnir fóru að
starfa saman að verslun og fram-
leiðslu á félagslegum grundvelli.
En það er ekkert smái'æði sem
liggur eftir þá síðan.
þegar tók fyrir útflutning lif-
andi fjár, tóku bændur brátt til
þess ráðs að reisa sláturhús. þau
eru nú risin upp á hverri útflutn-
ingshöfn.
Mjög var skopast að þessum fyr-
irtækjum bænda í fyrstu. Kaup-
mennirnir voru ekki í miklum vafa
um, að bændur færu á hausinn með
alt saman.
Svona voru bændurnir íheldnir!
Svona voi’u kaupmennirnir fram-
sæknir!
þegar það var komið fyllilega í
ljós, að þetta fyrirtæki bændanna
var þai’fafyrii’tæki, þá komu hinir
framsæknu(!) kaupmenn í slóðina
bændanna.
Bændui’nir íslensku hafa tekið í
sínar hendur meginhluta verslun-
arinnar með landbúnaðarafurðim-
ar. Samtök þeiira hafa áreiðanlega
hækkað verð afurðanna stórkost-
lega og trygt mai’kaðinn.
Afskaplegum árásum hafa þau
sætt þessi vei’slunarsamtök bænda.
En þau hafa staðist allan þann
rógburð. Aðstaðan er nú sú, að
vei’slunin með landbúnaðarafurðir
er að mestu leyti á innlendum
höndum, í höndum bændanna
sjálfra.
En hvei'pig lítur út hjá útgerðar-
mönnunum ? Morgunblaðið mun
ekki vilja kalla þá eins íheldna og
bændur.
því miður er það svo, að þar er
ástandið alt annað. Fáeinir útlend-
ingar hafa nálega alla fiskverslun-
ina á sínurn höndum. Útgerðar-
mennimir hafa ekki enn haft þá
djörfung og þann fi’amsóknarhug,
sem til þess þarf að taka fiskversl-
unina í eigin hendur. það er full-
víst, að þetta atriði hefir kostað Is-
land, útgerðarmenn og sjómenn,
geysilega mikið fé. —
þetta eru tvö dæmi um íheldni
íslensku bændanna. Verður látið
sitja við þau að sinni.
Sannleikurinn er, eins og oftar,
þveröfugur við það, sem Morgun-
blaðið heldur fram.
Bændurnir íslensku hafa um at-
vinnurekstur sinn sýnt meiri djörf-
ung og framsóknarhug en nokkur
önnur stétt á íslandi.
En þeir hafa ekki framkvæmt
þetta með neinum angurgapa-
hætti. þeir hafa stigið sporin
áfram jafnt og þétt. þeir hafa
hert á framsókninni, með festu og
gætni, þegar Morgunblaðið og út-
sendarar þess hafa hafið ofsóknir
sínar.
Bændurnir íslensku hafa hnigið
að hinni göfugu hugsjón sam-
vinnustefnunnar meir einhuga en
nokkur stétt íslensk önnur. —
Bændaflokkurinn íslenski heit-
ir Framsóknarflokkur og hann á að
heita Framsóknarflokkui’, því að
bændurnir íslensku eru framsækn-
ir menn, sem taka vel göfugum
hugsjónum.
En um annað má bændaflokkui’-
inn íslenski kallast Ihaldsflokkur.
Hann mun berjast fast á móti öllu
tildri og óhófi í rekstri þjóðarbús-
ins. Hann mun leggja áherslu á
það að sýslunar og embættismenn
á þjóðarbúinu séu ekki fleiri en
brýnasta nauðsyn býður. Hann
mun leggj ast fast á móti sérhverri
óhófseyðslu á fé ríkissjóðs.
Hann er fhaldsflokkur á þessum
sviðum til þess að geta vei’ið
Framsóknarflokkur um mikinn og
öi’uggan stuðning við atvinnuveg-
ina, til þess að geta komið fjárhag
landsins á heilbrigðan grundvöll.
ílialdsflokksnafnið er réttnefnið
á hinum flokknum, nafnlausr
flokknum, flokknum sem enginn
vill kannast við, flokknum sem hef-
ir aðalstyrk sinn hjá kaupmönn-
unum, sem skopuðust að sláturhús-
unum bændanna en runnu síðan í
slóðina, flokknum sem á þá menn
að forystumönnum, sem gert hafa
alt til að sundra sjálfbjargarstarf-
semi bændanna, sem komið hefir
helmingi verslunai’innar með út-
fluttar afui'ðir á innlendar hendur.
----o----
Suðurláglendið
oé Framsókn.
Mbl.liðið býður fram á Suður-
landi fimm menn: Sigurð ráðu-
naut, Gísla á Ilrauni, Helga í
Herru, Einar á Geldingalæk og sr.
Eggert Pálsson. Allir þessir m mn
eru studdir leynt og ljóst af bras' -
araliði höfuðstaðaiins og Eyrar-
bakka, af þjónustumönnum hlut-
lrafa íslandsbanka, af þeim, sem
hafa sökt landinu í botnlaust
skuldfen, af þeim, sem valda lág-
gengi íslenskrar krónu.
Síðasta kjörtímabil hafa fulltrú-
ar Suðuiiáglendisins sumpai’t ver-
ið í Framsókn, sumpart vei’ið með
flokknum og notið stuðnings hans
við að koma fram áhugamálum
héraðsins. Sú samvinna við at-
hafna- og framfaramenn annara
héraða hefir borið góðan árangur.
Flóavegurinn hefir verið endur-
bygður, Holtaveginn er verið að
endurbyggja. Viðhaldinu, sem Sig-
urður búfræðingur, sr. Eggert og
Einar Jónsson gátu aldrei l'engið
létt af héruðunum, er nú hjá rétt-
um aðila, sumpai’t ákveðið, sum
part lofað, svo að eigi verður
brugðið. Rangárvallasýsla hefir
fengið sín sandgræðslulög. Vestur-
1/andeyjar og þykkvibær hafa feng
ið hjálp til að vei’jast ágangi þver-
ár, svo að trygt sýnist vei’a til
frambúðar. Fjöldi jai’ða, sem lá við
eyðingu, eni nú álitleg fi’amtíðar-
býli. Framleiðslan í þessum sveit-
um getur aukist til mikilla muna.
Eins og kunnugir vita vel,
reyndu vissir menn í Rangái*valla-
sýslu að spilla fyrir bjargi’áða-
verki þessu. þeir menn allir eru
áberandi smalar og æsingamenn í
hópi Mbl.manna í kjördæminu.
þingmenn Ái’ness ýslu hafa bar-
ist og sigrað með Flóaveginn, síma
að Húsatóftum og Selvogi, komið í
gegn í’íflegri fjái’veitingu til lend-
ingarbóta á Stokkseyri og Eyrai’-
bakka. Allir hafa sunnlensku þing-
mennirnir hrundið fram endanlegri
rannsókn jámbrautai'málsins og
undirbúningi héi'aðsskólans sunn-
lenska.
Meðan þingmannalið Mbl. hefir
starfað að því að verja óhófs-
eyðslu J. M. og M. G. og brask ís-
landsbankahluthafanna, hafa full-
trúar Suðurláglendisins, í sam-
starfi við Framsóknai'flokkinn, ýtt
áfram nauðsynja- og velferðarmál-
um héraðsins, svo að eigi varð
meir aðgert á þeim tíma. Nú er
eftir að sjá, hvoi't kjósendur í
þessum sýslum vilja með atkvæði
sínu fyrsta vetrardag styðja að
framhaldi þeiri’a umbóta, sem nú
hefir verið drepið á, eða kjósa hina
gi'ímuklæddu andstæðinga sveit-
anna, Sig. ráðunaut, sr. Gísla, Ein-
ar Jónsson, Helga í Hei’ru eða sr.
Eggei’t Pálsson. Ef sú yrði raun-
in á, yrðu Sunnlendingar að líkind-
um að bíða töluvert eftir fé til
ræktunar og samgöng’ubóta. Mbl.-
flokkurinn er búinn að koma fjár-
hag landsins í öngþveiti. Ef þeir
menn fai-a með fjái'málavaldið í
næstu 4 ár, vei’ður fjái'hag lands-
manna áreiðanlega komið í það
horf, að samgöngubætur og nýrækt
bæði á Suðui’landi og annarsstaðar
fá að hvíla sig urn óákveðinn tíma.
>1«
-----0-—--
ísiensk söngmenf.
Svo segir í fornum fræðum ís-
lenskum, að sá maður hét Júbal,
„er fann sönglist og hljóða grein,
er eyrnanna lysting tilheyrir“. En
sá íslendingur, sem mestur lista-
maður hefir oi’ðið á tónsmíðar og
hljóðagrein, er Sveinbjörn Svein-
bjömsson. Hefir enginn maður ís-
lenskur unnið jafnmikið fyrir
eyrnanna lysting sem hann.
það var ánægjulegt að koma í
Nýja Bíó í gæi’kvöld. þar var efnt
til söngíþróttar og var með þeim
hætti, að öll lögin, sem sungin vorU,
voi’u íslensk, samin af Sveinbimi
og hann sat sjálfur við hljóðfærið
og lék undir — aldui’sforseti ís-
lenska sönglistamanna, meir en
hálfáttræður — en einn af yngstu
söngmönnunum söng lögin, Sigurð-
ur Skagfeldt.
Meðan Sveinbjörn tónskáld gekk
upp sönghúsgi’áðumar, þangað
sem hljóðfærið stóð, var það auð-
séð, að þar fór öldungurinn. Eu
þegar hann var sestur við hljóð-
færið og fór að leika á það, þá var
sem hann yrði ungur í annað sinn.
Og áheyi’endumir, og þeir voru
margir, þeir létu hann óspai’t finna
til samúðar sinnar og hrifningar.
það er mikill skaði hve sönglög-
Sveinbj ai’nar ei’u lítt kunn hér á
landi, önnur en sárafá. íslenska
þjóðsöngvasafnið hans, sem gefið
var út í Englandi, er hér í mjög
fárra höndum og hefir verið ófá-
anleg-t í bókabúðunum ái’um sam-
an. Og fjöldamörg hinna gullfalR
egu laga hans munu aldrei hafa
verið gefin út. Úr þessu verður að
bæta sem fyrst. Lögin sem sungin
voru í gærkvöld eru möi’g þannig,
að þau komast óðara á varir al-
þjóðar og verða mjög vinsæl, er
þau vei’ða kunn. —
Sigurður ‘Skagfelt er ungur söng-
maður, Skagfirðingur eins og nafn-
ið bendir til. Ilann hefir síðustu
árin stundað nám í Danmörku við
tilsögn hins fræga söngmanns
Dana,s Vilhelms Herolds. Hann
hefir sungið áður hér í bænum.
Röddin er ekki mikil, en þýð og við-
feldin, fi’amkoman öll einkar að-
laðandi og frambúrðurinn óvenju-
lega skýr. Sjálfsagt er það og
vegna þess, að Sveinbjöni var við
hljóðfæi’ið og lögin voru öll íslensk,
textamir margir ágætir og sumt
þjóðlög með snildarlegu undii'-
spili eftir Sveinbjöi’n — að sá er
þetta skrifar hefir aldrei kunnað
betur við sig á einsöngsskemtun
hér í bæ en í gærkvöldi.
Hafi þeir báðir alúðarþökk, ald-
ui’sforsetinn í listinni og ungi lista-
maðurinn. þeir létu okkur heyra, á
hvaða stig íslensk söngment er
komin. það urðu ekki vonbrigði,
heldur þvert á móti.
í því sambandi þetta: 1 mörgum
opinbei'um kaffistofum bæj arins er
daglega leikið á hljóðfæri fyrir
gestina. það eru útlendingar lang-
flestir, sem það gera, að engu leyti
fremri okkar löndum, sem þá list
iðka, nema síður sé. Hversvegna er
þá vei’ið að draga hingað útlend-
inga til þess? — í annan stað:
Hingað koma við og við söngmenn
og aðrir sönglistannenn frá út-
löndum. Venjulega miðlungsmenn
eða varla það. En dagblöðin fylla
dálka sína með lofgjörðarromsu
um þessa menn. Birta jafnvel
hvert eftir öðru hlægilega löng og
loðin vottorð fi’á hinum og þessum
útlendingum, sem enginn hér hefir
heyrt nefnda, um þessa farfugla.
það ér rétt eins og það sé einka-
ráð til að verða talinn í mestu
manna í’öð í mentinni, að fara
hingað norður á hala veraldar og
láta heyra til sín. það er a. m. k.
að sjá af dagblöðunum að svo sé.
Með þessum fagurgala dagblað-
anna er fólki smalað á þessar sam-
komur og sumir þessara útlend-
inga hafa farið með byrði fulla
fjár suður yfir pollinn. það er von
að þeir og þær beri Islandi vel
söguna.
Okkur hættir stundum við því
altof mikið Islendingum að skríða
fyrir útlendingum. Okkur væri nær
að hlúa betur að okkar innlendu
söngment og sönglistarmönnum.
Við þui’fum ekki að skammast
okkar fyrir það, sem unnið hefir
verið á því sviði.
----0-----
Konulát. Guði'íður Jósefsdóttir,
kona Kristjáns S. Sigurðssonar
trésmíðameistara þingeyinga, lést
á Akureyri 21. ágúst síðastl. —
Guðríður var Húnvetningur að upp
runa, af Háagerðisætt á Skaga-
sti’önd. — Hún var á fimtugsaldri
er hún lést. þau hjón voru búsett
í Reykjavík um eitt skeið. Á þeim
árum var heimili þeirra mörgum
Norðlingum, einkum þingeyingum,
griðastaður. þótti foreldrum ör-
yggilegt að hafa unglinga sína
undir handarjaðri Guðríðar, hún
gætti þeiri’a eins og hún ætti þá
sjálf. Heimili þeirra Kristjáns og
Guðríðar var fyrirmynd að allri
umgengni og smekkvísi. þótt þau
hjón væru ekki rík, og ættu lengst
af við heilsbilun að etja, voru þau
þó jafnan fremur veitandi en
þiggjandi, mun hagsýni húsmóð-
urinnar, reglusemi og nýtni hafa
átt þar í góðan þátt.
Guðríður vildi hvax-vetna láta
gott af sér leiða og var mjög vönd
að virðingu sinni og sinna og fann
vel, hvað við átti á hverjum stað
og tíma. — Hún mátti ekkert aumt
sjá, sérstaklega áttu börn og gam-
almenni drjúg ítök í huga hennar.
Sagði hún oft, að sér hefði þótt
gaman að mega starfa á gamal-
menna- eða bamahæli. það er
óhætt um það, að henni hefði ver-
ið trúandi til að gera þeim lífið
létt eftir mætti.
þeim hjónum varð ekki bama
auðið, en tóku munaðarlaust barn
og gengu því í foreldrastað. x.
Um 50 þúsund laxaseiðum var
slept í Elliðaárnar seint í sumar.
Voru þau fengin frá Alviðm í
Ölfusi. Gott er að vita til þess, að
áhugi er þegar farinn að vakna á
fiskaklaki. Nokkrar leiðbeiningar
um það efni geta menn fengið í
riti, Um fiskaklak, sem fæst á af-
greiðslu Tímans og hjá Guðm.
Davíðssyni á Fralckastíg 12.
Pétur þórðarson í Hjörsey er
orðinn sjálfkjörinn alþingismaður
Mýramanna. Jón Sigurðsson á
Halkagili hefir tekið framboð sitt
aftur. Munu fleiri fara samskonar
för erendrekai'nir Morgunblaðsins.
David Östlund fór með „Sirius“
til Vestfjarða. Ætlar hann að ferð-
ast kring um Djúpið og flytja fyr-
irlestra. Hann er væntanlegur aft-
ur til Reykjavíkur eftir vikutíma.
Stephan G. Stephansson Kletta-
fjallaskáld varð sjötugur nýlega.
Vora honum send heillaskeyti héð-
an að heiman.
——0-------