Tíminn - 16.02.1924, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.02.1924, Blaðsíða 4
28 T ! M I N N .. ar, ef kjörviðirnir væru svo fúnir. Hversu mundi þá kjarrið? Hvers- vegna gera lítið úr Jóni Hjaltalín, þótt hann kunni að hafa haft lé- lega atvinnu áður en hann varð skólastjóri? p. Th. þótti engin skömm sjálfum að fara úr skólan- um sökum fátæktar og atvinnu- leysis. Annars kemur þessi hættu- lega söguhlutdrægni átakanlega fram gagnvart Hjaltalín. J>að er enginn vafi á, að sökum meðfæddra hæfileika og langdvala í Englandi var Hjaltalín mesti skólamaður hér á landi á sinni tíð. Maður, sem vann með honum mörg ár, var skyldugur til að láta þá mynd koma greinilega fram. í stað þess fær maður að vita um kú stjúpu hans, um sóðaskapinn í hinu fá- tæka koti Eggþóru, og um að læri- sveinarnir bjarga Hjaltalín fullum og hesti hans úr pytti, sennilega það eina hlægilega atvik úr nokk- uiTa ára sambúð. Gröndal er gerð- ur að huglausu og brigðmálu bleyðimenni. p. Th. segir lítið frá hinum frábæru hæfileikum og fé- lagsmálalærdómi Arnljóts. Heldur ekki að Einar í Nesi nam af sjálf- um sér 7—8 erlend tungumál uppi í sveit á íslandi. Ekkert um hinn óvenjulega kraft og skörungsskap Jóns á Gautlöndum. 1 stað þess er Arnljótur mengaður með „blóð- nasafundinum“, kvígildinu í Mikla- bæ, upphlaupinu á Möðruvöllum og hinum frægu áflogum, þar sem annar þingmaður rífuf hann í and- litið svo að blæðii- úr. Um Einar er sagt frá hinni háðulegu meðferð á strandferðaskipinu og einhverjum afar velmentuðum lækni, sem var svo nærri villimenskunni, að hann vildi gefa stórfé til að sjá Einar í Nesi þannig útleikinn. Vísan um „fylfullu“ Gránu og „fyllirí" Jóns á Gautlöndum á að vera honum nóg veganesti. það merkilegasta, sem p. Th. sér um Björn Jónsson, er að hann hafi verið „hálfgeggjað- ur“, og um Hafstein, að hann hafi selt sig Islendingum í þjóðmála- baráttunni (sbr. „það borgaði sig auðsjáanlega betur“). Niðurl. næst. ——o------- Útdráttur úr yerðabók þiny- og héraðsmálaíund- ar Vestur-ísafjarðarsýslu. Ár 1924, dagana 15., 16. og 17. janúar, var haldinn 25. þing- og héraðsmála- fundur Vestur-ísafjarðarsýslu, að þíngeyri i Dýrafirði. Mættir voru 14 fulltrúar af 18. Fundarstjóri: Jóhannes Olafsson hreppstjóri á þingeyri. Fundarritari: Friðrik Hjartar skólastjóri á Suður- eyri. í fundarbyrjun var svohljóðandi símskeyti sent þessum utanhéraðs- mönnum, er allir höfðu áður verið fulltrúar þessara funda: Bergur Rósin- kransson kaupm., Guðm. Kristjánsson miðlari, Kristinn Daníelsson fyrv. alþm., Kristján Kristjánsson skipstjóri, Mat+hías Ólafsson fyrv. alþm., Sigurð- ur Sigurðsson ráðunautur, allir til heimilis i Reykjavík: „25. þing- og héraðsmálafundur Vestur-ísafjarðarsýslu, settur i dag, sendir yður kveðju sína, með þakklæti fyrir gamla samvinnu". Bárust fund- inum síðar heilla- og samúðarskeyti frá þeim öllum. þessi mál voru tekin til umræðu: I. Landsmál. 1. Fjárhagur rikisins. Svohljóðandi fundarályktun samþ. í e. hlj.: „Með því að fundurinn telur að gjaldþoli alþýðu sé ofboðið með hin- um feiknamiklu gjöldum til ríkis- þarfa, sem gert er ráð fyrir í fjárlög- unum fyrir þetta ár, skorar hann á næsta þing að minka útgjöld að mikl- um mun, og vill hann í því efni benda á: 1. Að þingið verði ekki háð nema annaðhvort ár. 2. Að endurskoðað verði alt starfs- mannahald ríkisins, með það fyrir augum, að leggja niður litt nauðsyn- leg starf, að fækkað verði ráðherrum og öðrum starfsmönnum á þann hátt að sameina störfin sem mest“. 2. Einkasala. Samþykt svohljóðandi ályktun með öllum greiddum atkv.: „Fundurinn er meðmæltur ríkis- einkasölu á einstökum vörutegundum, þegar sérstakar ástæður eru fyrir hendi, svo sem fjárhagsþröng ríkisins, yfirgangur einstakra manna eða fé- laga, að þvi er söluna snertir, vöntun á vönduðum vörutegundum o. s. frv. Hann telur því sjálfsagt, að núverandi einkasölu ríkisins sé haldið áfram". 3. Atvinnumál. Svohljóðandi fundar- ályktun samþykt í e. hlj.: „þar sem það hefir átt sér stað und- anfarin ár, að atvinnufyrirtæki hafa verið rekin hér á landi, að miklu leyti með útlendum mannafla, þótt innlend- ir menn hafi staðið uppi atvinnulitlir eða atvinnulausir, þá skorar fundurinn á þing og stjóm, að setja lög og regl- ur, er tryggi forgangsrétt innlendra þegna til atvinnu við fyrirtæki, sem rekin eru hér á landi". 4. Strandgæsla. Samþykt svohljóð- andi ályktun: „þar sem nú er svo komið, að sjó- menn á Vestfjörðum, sér í lagi í Arn- arfirði mega varla leggja veiðarfæri sín svo í sjó, að þeim sé ekki stór hætta búin af yfirgangi, jafnt innlendra sem útlendra togara, þá leyfir þing- og hér- aðsmálafundur Vestur-ísafjarðarsýslu sér enn á ný að skora alvarlega á þing og stjóm að sjá um að það dragist ekki lengur, að settar verði öruggar hömlur við yfirgangi þessum, með strandgæslu á svæðinu frá Látrabjargi að Hornbjargi. Álítur fundurinn, að til þess að starf þetta verði ekkert kák, þurfi vel hraðskreitt mótorskip eða gufuskip, helst vopnað, og ekki minna en 40 smálestir. Sökum fiskigengdar og almenns bjargræðistíma, þarf strandgæslan að fara fram á tímabil- inu frá 15. júlí til nóvemberloka árlega. Fundurinn álítur ennfremur, að hegningarákvæðum fyrir brot á land- helgislögum beri að breyta þannig, að auk sektarinnar hljóti skipstjórinn réttindamissi til pkipstjómar um ákveðinn árafjölda, þegar við fyrsta brot“. 5. Innflutningshöft. Svohlj. ályktun samþykt í e. hlj.: „Fundinum er Ijóst, að fjárhagur landsins er i voða staddur. Leggur hann því til, að takmarkaður sé meira en nú er, eða afnuminn fyrst um sinn, aðflutningur á ýmsum vörutegundum, svo sem álnavöru, nýlenduvörum, fiski, kjöti, stofugögnum, leikföngum o. fl.“. 6. Samgöngumál. Svohlj. áskoranir samþyktar: „1. Fundurinn skorar á þing og stjórn: a. Að taka veginn frá ísafirði að Rafnseyri i tölu þjóðvega. 1). Að auka styrkinn til póstbátsins á ísafjarðardjúpi, með það fyrir aug- um, að hann hafi að minsta kosti tvær áætlunarferðir i Vestursýsluna á ári, vor og haust, með viðkomustöðum á 4 vesturfjörðunum. 2. Fundurinn skorar á landssíma- stjómina: að gera eftirfarandi viðauka og breytingu á símakerfi sýslunnar, svo fljótt sem fært þykir: a. Að leggja símalinu frá Holti í Ön- unrarfirði að Hjarðardal ytri. b. Að leggja símalinu frá Mýrum að Núpi í Dýrafirði, og flytja jafnframt stöðina frá Mýrum að Gemlufjalli. c. Að leggja línu frá lendingarstaur sæsímans á Laugabólshlið inn að Laugabóli. , 3. Fundurinn skorar á þingmann kjördæmisins að gera tilraun til að fá fjölgað viðkomum Eimskipafélags- skipanna á Bíldudal í mánuðunum maí, júní og júli“. 7. Kosningalögin. Svohljóðandi fund- arályktun samþykt: „Fundurinn telur nauðsynlegt að sett séu ný og tryggari ákvæði um fyr- irkomulag lieimakosninga, svo sem þau, að kosningaseðlar og umslög séu með sérmerkjum og gangi til hrepp- stjóra gegnum hendur yfirkjörstjórn- ar“. 8. Búnaðarmál. Samþykt svohljóð- andi ályktun: „þar eð sjáanlegt er, að landbúnað- urinn þarf að taka verulegum fram- förum, einkum að því er snertir rækt- un landsins, vinnuáhöld og verltlega kunnáttu, til þess að hann geti borið sig, og átt heillaríka framtíð, þá legg- ur fundurinn til: Frá og með deginum í dag eru ior- vextir af víxlum og útlánsvextir 8°|0. Frá sama tíma eru sparisjóðsvextir 5°|0 og vextir af 6 mánaða innlánsskír- teinum Reykjavík 15. febrúar 1924. Landsíaaki ísHs. Íslandsíiaiki. Líftryggingarfél. ANDVAKA h.f. Kristianiu — Noregi Allar venjulegar líftryggingar, barnatryggingar og lífrentur. ísla.ixc5Lsciellci.iix Löggilt af Stjórnarráði Islands í desember 1919. Ábyrgðarskjölin á íslensku! —Varnarþing í Reykjavík! Iðgjöldin lögð inn í Landsbankann og íslenska snarisjóði. Viðskifti öll ábyggileg, hagfeld ög refjalaus! Dýrmætasta eignin er starfsþrek þitt og lífið sjálft. Trygðu það! Gefðu barni þínu líftryggingu! Ef til vill verður það einasti arfurinn! Líftrygging er fræðsluatriðí, en ekki lirossakaup! Leitaðu þér fræðslu! Líftrygging er sparisjóðurl En sparisjóður er engin líftrygging! Hygginn maður tryggir líf sitt! Heimskur lætur það vera! Konur þurfa líftrygging eigi siður en karlar! Með því tryggja þær sjálfstæði sitt! 10.000 króna líftrygging til sextugsaldurs kostar 25 ára gamlan mann um 67 aura á dag! 5000 króna líftrygging lcostar þrítugan mann tæpa 30 aura á dag. Forstjóri: Helgi Valtýsson, Póstliólf 533 — Reykjavík — Heima: Grundarstíg 15 — Sími 1250 A.V. Þeir sem panta tryggingar skriflega sendi forstjóra umsókn og láti getið aldurs sins. a. Að Alþingi styrki Búnaðarfélag Islands og húnaðarfélög lireppanna svo mikið, er það sér sér frekast fært. h. Að Búnaðarfélag íslands auki fjárframlagið til búnaðarsamband- anna. c. Að lilutaðeigandi sýslufélög veiti þoim einnig fjárstyrk". I saina máli var einnig samþykt svohljóðandi tillaga: „Um leið og fundurinn vottar pró- fessor Guðmundi Hannessyni þaklcir fyrir lians mikla starf, í þá átt að hvetja iandsmenn og leiðheina þeim í húsagerð, leggur hann til: að þing og stjórn láti rannsaka byggingarefni landsins, frekar en orðið er, og að út séu gefin heimildarlög fyrir sýslu- og sveitarfélög, til þess að gera byggingar- samþyktir". 9. Mentamál. Svohlj. áskoranir sam- þyktar: „Fundurinn skorar á Alþingi að stefna framvegis að því markmiði í mentamálunum: a. Að gagnfræði og hin svonefndu klassiska fræði verði greindar að, og telur hann heppilegra að skólinn í klassiskúm fræðum sé utan Reykja- víkur“. — þessi liður samþyktur með 12:2 atkv. b. „Að afgreiða sem fyrst frumvarp milliþinganefndarinnar í mentamál- um, um ungmennafræðslu". — Sam- þyktur í e. hlj. 10. pegnskylduvinna. Samþykt svohlj. ályktun: „Fundurinn álítur það heillavænlegt fyrir þjóðina, að taka upp þegnskyldu- vinnu með hagkvæmu fyrirkomulagi. Leggur hann því til að þing og stjórn rannsaki möguleika á framkvæmd hennar“. 11. Tóvinna. Svohlj. ályktun samþ.: „Fundurinn hallast frekar að fleiri og smærri tóvinnufyrirtækjum í land- inu, en stórum og fáum, eins og rann- sóknarnefnd tóvinnufyrirtækjanna hef ir ráðið ríkinu til að styrkja og stofna“. II. Héraðsmál. 1. Mentamál. Svolilj. fundarályktun samþykt: „Fundurinn æskir þess, að samvinna takist sem allra fyrst með Alþingi og Vestfirðingum um að koma upp við- unanlegum ungmennaskóla fyrir Vest- firði. Skorar liann því á sýslunefnd Vestur ísafjarðarsýslu að kjósa nefnd til þess að starfa að samvinnu þeirri, og að^’áfiamlialdandi framgangi þessa máls, heima í héraðinu". 2. Sundkensla. Samþykt svohljóð- andi ályktun: „þing- og héraðsmálafundur Vestur- ísafjarðarsýslu beinir þeirri eindregnu ósk til sýsiunefndarinnar, að hún fylgi fast fram stuðningi þeim og fjárstyrk til sundkenslu liér í sýslu, sem hún byrjaði árið 1920. Jafnframt mælist fundurinn til þess, að sýslunefndin krefji ríkissjóð um ógreiddan sund- styrlc, móti tillagi sýslusjóðs, fyrir árið 1922. 3. Heimillsiðnaður. Svohij. ályktun samþykt: „Fundurinn vill eindregið styðja að eflingu heimilisiðnaðarjns og skorar því á ungmennafélög, kvenfélög og ráðandi menn í sveitum og kauptún- um að sýna viðleitni í þá átt, með sýn- ingum o. fl. Einnig telur fundurinn nauðsynlcgt að auka handavinnu í barnaskólum kauptúnanna og að það sem unnið er, séu gagnlegir hlutir, gerðir sem mest úr innlendu efni“. I tilefni af aldarfjórðungsafmæli fundarins vaf að kvöldi hins 16. jan. sest að veislufagnaði, er fulltrúar þingeyrarhrepps gengust fyrir og kostuðu. Auk fundarmannanna voru þar viðstaddir allir þeir, er einhvern- tíma áður höfðu verið fulltrúar fund- anna, og til náðist. Var þar veitt af mikilli rausn, ræður fluttar, sungið og skemt sér á ýmsan hátt við endurminn ingar liðinna funda. Stóð hófið til kl. 3 um nóttina og fór hið besta fram. Suðureyri 27. janúar 1924. I umboði fundarins. FriSrik Hjartar. Kr. A. Kristjánsson. ---—O---- Kærleiksheimilið. Mbl.menn sýnast móðgaðir vegna Magnúsar, út af ímynduðum saman hurði á honum og Lenin. Tíminn hefir liælt hvorum þeirra einu sinni. Öðrum fyrir að hafa verið vinnusamur sýslu- mannssnuddi, hinum fyrir að hafa gef- ið kúguðum bændur jarðir. Aftur hafa báðir verið áfeldir. Annar fyrir að koma landi sínu í botnlausar skuldir. Ilinn fyrir að vilja koma á byltingu í frjálsum löndum. Sennilega er gremj- an í Magnúsi mest út af því, að hann finnur, að Lenin var sniðugri í fjár- málum fyrir land sitt. Hann vildi enga skuld horga. Magnús vill koma öllu upp í skuldir. x. -----0---- H.f. Jón Sigmundsson & Co. IMZ±11ul3? og alt til upphluts sér- lega ódýrt. Skúfhólkar úr gulli og silfri. Sent með póstkröfu út um land, ef óskað er. Jón Sigmundsson gullsmiður. Sími 383. — Laugaveg 8. atin meS mestu áfergju; veldur smitandi og drepandi sjúkdómi; er óskaðlegt mönn- um og húsdýrum; ernotað af stjórnum rikja og bæja til út- rýmingar á rottum; er búið til og háð vísindalegu eítirliti í Bakteriologisk Labora- torium „Ratin“, Kaupm.höfn. Bæjarstjórnir og hreppsnefndir geta sent pantanir beint til „Ratinkontoret“, Köbenhavn, eða til mín, sem gef allar upplýsing- ar íyrir fjelagið hjer á landi. ÁGÚST JÓSEFSSON, heilbri g ðisf ulltrúi — Reykjavík. Skemdir af ofviðri. Seinast í janúar gerði hið mesta fárviðri á Vesturlandi og hlaust af mikið tjón. Víðast vai-ð eitthvað að og nemur skaðinn tugum þúsunda þegar saman kemur. I Súganda- firði fauk þinghúsið af grunni, stórt íveruhús, fjórar hlöður á Suðureyri; hlöður fuku auk þess í Vatnsdal og á Laugum, bátur á Gelti, brúin af Staðará o. fi. I Ön- undarfirði fauk forðabúrshlaða, fjós á Vífilsmýrum, hlaða á Veðr- ará, tvær hlöður hjá Hólmgeiri dýralækni á þórustöðum, hlaða á þorfinnsstöðum o. fl. I Dýrafirði misti Friðrik á Mýrum hlöðu, hjá Ólafi kennara á þingeyri fauk hlaða, hjallur og þakkhús o. s. frv. Fauk yfirleitt alt sem lauslegt var, og má segja, að ekki sé ein báran stök, því nóg eru menn aðþrengdir fyrir af óhagstæðri verslun og margra ára fiskileysi. Kirkjan fauk á Sæbóli á Ingjaldssandi. Látinn er hér í bænum Th. Thor- steinsson kaupmaður, einn af helstu kaupmönnum og útgerðar- mönnum bæjarins. Fiskiþingið er háð hér í bænum þessa dagana. Inflúensan er nú að réna hér í bænum. Hefir reynst væg. Tjón. Á Bersatungu í Dölum hjá Stefáni skáldi frá Hvítadal, fauk gaflinn af íbúðarhúsinu og ýmsar skemdir urðu aðrar. 1 Duf- ansdal í Arnarfirði hrakti 24 kind- ♦ ur í sjóinn, og í Trostansfirði fauk heilt hey sem stóð á bersvæði. - -. Dr. Jón þorkelsson þjóðskjala- vörður andaðist hér í bænum 10. þ. m. Verður þess merka manns síðar getið. 9 hestar hröktust í sjóinn 28. jan. á Horni í Hornafirði. .. fi’ V. ■ | ■ . 1 þing- og héraðsmálafundur fyr- ir Vestur-ísafjarðarsýslu, hinn 25. í röðinni, var haldinn um miðjan janúar, og eru fundarályktanir birtar hér á öðrum stað í blaðinu. Fundir þessir eru einstakir í sinni röð og væri betur að tíðkuðust víð- ar. Styður það mjög að efling stjórnmálaþroska í héröðunum og samvinnu um opinber mál, eins og ályktanir þessa fundar bera með sér. Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson. Prentsmiðjan Acta h/f.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.