Tíminn - 24.05.1924, Qupperneq 3

Tíminn - 24.05.1924, Qupperneq 3
T 1 M I N N 83 Kjöttunnur, alt til beykisiðnar, smjörkvartól o. s. frv. frá stærstu beykissmiðjum í Danmörku. L. Jacobsen, Köbenhavn. Valby. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup- manna. Símnefni: »Cooperage«. Alfa Laval skilvindur reynast best. Pantanir annast kaupfé- lög út um land, og Samband ísl. samviélaga. Til kaupfélaga! H.f. Smjörlíkisgerðin í Reykjavík er stofnuð í þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir. Eflið íslenskan iðnað. Biðjið um ,Smára‘-smjörlíkið. hinn alkunna „rétttrúnaðarridd- ara“. Eg ætla ekki að lögsækja guð- íræðiprófessorinn fyrir þetta, nema eg verði frckar til neyddur. Eg býst sem sé ekki við því, að þeir menn, sem kunna að telja þetta samboðið tignarstöðu prófessors- ins, mundu skifta skoðun þótt hann yrði dæmdur fyrir uppnefm ið. — Allir aðrir munu sjá það og vita, að misverknaður er jafn sak- ræmur og ámælisverður, hvort sem um hann er feldur dómur eða ekki. pví að hver verknaður hefir í sér fólginn sinn eigin dóm. Reykjavík 15. maí 1924. Árni Jóhannsson. ----o---- Á við og dreif. Bókafélagið. Enska skáldið Wells segir i bók sinni um björgun menningarinnar, að eitt stærsta atriðið i menningarstarfi nútimans sé að hafa heppilegar kenslubækur og síðan fræðibækur handa börnum, unglingum og full- orðnum. Wells segir, að i hverju landi séu jafnan færri kennarar vel hæfir til að dreifa nauðsynlegri þekldngu, held- ur en þörf sé á vegna æskulýðsins. Wells álitur þessvegna að skýringar þeirra kennara, sem best hepnast að fræða á hverjum tima, eigi að prenta og dreifa til afnota fyrir alla. Hér á landi eru kenslubækurnar upphaf og endir kenslunnar, af því hér vantar svo mörg önnur skilyrði, sem þjóðir í þéttbygðari löndum geta veitt. Ef kenslubækurnar, sem börnum eru 'fengnar í hendur, eru stuttar, þurrar, leiðinlegar beinagrindur, er næstum ómögulegt jafnvel fyrir úrvals kenn- ara annað en svæfa börnin og deyða áhuga þeirra varanlega. Óheppilegar kenslubækur eiga meiri þátt en nokk- uð annað í því, að stundum sýnist eins og barnaskólar hér svæfi og deyfi and- legt líf barnanna. Kenslubækurnar þurfa að vera töluvert itarlegar, fjör- ugar og um fram alt að ekkert atriði sé tekið, nema myndin verði nokkuð glögg og stór. Til að vinna að endur- bót í þessu efni hafa nokkrir kennar- ai bundist samtökum um að starfa saman að slíkri útgáfu. Félag þeirra þeitir Bókafélagið og byrjar að gefa út bækur aí þessu tægi fyrir haustið. Verður meir sagt frá því síðar. Valtýr 00 BúnaSariéiagið. Mjög mælist það iila fyrir, að íhalds- flokkurinn skyldi velja Valtý Stefáns- son fyrir sína hönd í stjórn Búnaðarfé- lagsins, rétt eftir að Valtýr hafði hlaupið á brott úr þjónustu félagsins anlegt er það, að marga slíka skelli þolum við ekki. þegar um það er að ræða, að koma föstu skipulagi á sölu sjávarafurða, þá má vel vera, að um fleiri leiðir geti verið að velja, en eg sé ekki að leiðirn- •ar séu nema tvær. Fyrri leiðin er lögskipuð útflutningsnefnd með víðtæku íhlutunarvaldi um alla sölu afurðanna, er feli í sér neitunar- vald fyrir sölunni um vissan tíma, ef nauðsyn krefur, eftir föstum fyrirmælum reglugerðar, er þar um væri sett. Hin leiðin er einka- sala rkisins á öllum sjávarafurð- um. Fyrri leiðina tel eg að við eig- um að fara, og til þess bendir þingsályktun sú, er hér liggur fyrir. Fyrir þeirri leið höfum við dálitla reynslu, frá nefnd þeirri, er skipuð var 1918, og mér er óhætt að fullyrða, að meginþorri smærri útgerðarmanna út um land telur, að sú nefnd hafi unnið sjávarút- veginum afarmikinn hag og að þeir álíta að skipun slíkrar nefndar sé það, sem nú verði að framkvæma, ef fisksala vor á ekki að lenda í höndum útlendra fisksöluhringa áður en við vitum af. Nú hefir háttvirt Alþingi af- greitt tvenn lög um aukna tolla til ríkissjóðs og þar með gert ráðstöf- un til að rétta við fjárhag hans, en þá er eftir að rétta við fjárhag ein- til Berlemé og Co. Sannaðlst með því að náið er neí augum, íhaldið á þingi og eigendur Morgunblaðsins. Lang- oðiilegast var, úr þvi Valtýr mat meira að þjóna Fenger og Copland fyrir 800 kr. á mánuði, heldur en vinna fyrir og með bændunum, að harin væri ekki neitt að dreifa starfskröftum sínum frá nýju húsbændunum. Nýju höítin. Eitt af síðustu embættisverkum Kl. Jónssonar sem ráðherra var að banna meðan á þingi stóö innflutning á fjölda mörgum vörutegundum, svo að þinginu gæfist tími til að afgreiða haftafrumvarp Halldórs og Péturs. Iírlendis var banni þessu veitt mikil eftirtekt, og varð landinu til sóma. í European Commercial Vienna frá 12. april er nákvæmur útdráttur úr reglu- gerð Kl. J. og talið lílclegt að slíkt liann muni fljótlega rétta gengi ís- lensku krónunnar. íhaldsflokkurinn drap haftafrum- varpið, og samþykti tillögu Jakobs Möllers, um að nota höft sem allra nrinst. Samt taldi M. Guðm. alt af á þingi, að hann inyndi halda áfram að banna með reglugerð. Nú er reglugerð Kl. J. fallin úr gildi, en ný komin frá M. G. Er þar að vísu allmikið bannað í orði kveðnu, en sá mikli galli er á, að stjórnin getur veitt undanþágur eftii vild. Er sagt að kaupmenn gangi nú í þéttum fylklngum upp 1 stjórnarráð tii að biðja um undanþágur. Fyrir- fram er ekki rétt að spá neinu um svörin. En ekki er ólíklegt, að þegar kaupmenn eru búnir að selja birgðir sinar með miklum hagnaði, í skjóli við 20% verðtoll Jóns þorl. og undan- gengnar liömlur, þó fari þeir að sverfa allfast að Magnúsi og minna hann máske á, að hann ó núverandi veg- tyllu sem þingmaður að þakka kaup- mannastéttinni og blöðum hennar. það þarf einstaka lukku með, ef reglugerð- arleiðin ó að verða til gagns. Almenn- ingur um alt land liatar undanþág- urnar, alla þá hálfvelgju og ranglæti, - sem af þeim leiðir, Óhjókvæmilegt verður fyrir stjórnina að gefa næsta þingi skýrslu um undanþágurnar og hverjir hafi þar orðið fyrir náðinni. Frá útlöndum. í síðastliðnum mánuði var hafin uppreisn gegn Rússum í Turkest- an. Var talið að uppreistannenn hefðu á að skipa um 20 þús. her- mönnum, er væru að öllu vel búnir og mörgum herforingjum úr keis- araliðinu gamla. — Tyrkjastjórn hefir lokað 88 staklinganna, sem eiga að greiða tollana, og virðist eigi vera hægt hjá því að komast, ef gjöldin eiga að greiðast til ríkissjóðs, á fjárhag og vellíðan einstaklinganna hlýtur hagur ríkisins fyrst og fremst að byggjast. pau lög, sem eg hefi minst á hér, eru: lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að inn- heimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka, og bráða- birgðalög um 20 % verðtoll á nokkr um vörutegundum. Tollaukar þess- ir nema eftir áætlun hæstv. stjórn ar alt að V/> miljón króna, sem auk þeirra tolla og skatta, sem fyrir voru og þóttu allþungir, eru nú að nýju lagðir á þjóðina. þessi aukna gjaldabyrði kemur að mjög miklu leyti, bæði beint og óbeint, niður á sjávarútveginn. þar sem verðtollurinn er neyslutollur, hlýt- ur hann óumflýj anlega að auka dýrtíð og valda kauphækkun. þeir sem við sjávarsíðuna búa og lifa á einn eða annan hátt á sjávarútveyi, eiga mjög erfitt, ef ekki alveg ómögulegt með að neita sér um ýmsar af þeim vörutegundum, sem verðtollurinn fellur á. Virðist því öll sanngirni mæla með því, að þeg- ar slíkri geypilegri gj aldabyrði er varpað á þjóðina, þá sé einnig um leið rannsakað og gerðar ráðstaf- anir til, með hverjum hætti gjald- skólum kristinna manna. Um 14 þús. nemendur voru í skólum þess- um. — Kyrt hefir verið um Rúss- land um hríð, en margir eru þeirr- ar skoðunar, að svo verði ekki lengi. Að vísu er nú talið víst af flestum að ekki verði ráðist á Rússa af öðrum. það hefir öllum mistekist öldum saman að fara herferð til Rússlands og árásir keisarasinnanna eru gersamlega úr sögunni. Hitt óttast menn miklu þegnunum verði trygt sannvirði fyrir starf sitt og framleiðslu. 1 þá átt stefnir tillaga sú, er eg hefi leyft mér að bera hér fram og er nú hér til umræðu. Ber eg það traust til háttv. deildar, að hún sjái, hve mikið lífsnauðsynjamál hér er um að ræða, og samþykkiy þingsályktunartillögu þessa. þótt eg að vísu ekki beri fult traust til hæstv. stjómar, er nú situr við völd, þá vildi eg gjarnan mega bera svo mikið traust til hennar, að hún, eftir að hafa lagt svo óvenju mikið kapp á að keyra í gegn um þingið tollaukalög, er krefja hina örmagna gjaldþegna um eina miljón króna í ríkissjóð að nýju um tveggja ára skeið, að hún þá um leið teldi sér skylt og ljúft að gera tilraun til að tryggja þessum sömu gjaldþegnum sann- virði fyrir framleiðslu sína og vinnu og að hún vilji ekki horfa á það aðgerðalaus, að þeir séu árlega sviftir svo miljónum króna skiftir af sínum réttmætu tekjum af út- lendum braskaralýð og fjárglæfra- mönnum. -----o—— Ritstjóraskifti hafa nýlega orðið við Heimskringlu, annað aðalblað landa vestra. Stefán Einarsson er látinn af ritstjóm en Sigfús Hall- dórs frá Höfnum tekinn við. heldur að Rússar muni fara með ófrið á hendur nábúum sínum, einkum hinum ungu ríkjum við Eystrasalt, sem upp úr stríðinu losnuðu undan Rússaveldi. Hefir það verið stefna Rússa í meir en tvær aldir að tryggja sér aðgang að hafinu. þótt Rússland hafi mist nokkur lönd, einkum við Eystra- salt, gæti það enn verið langmesta herveldi Norðurálfunnar. Ibúatalan í Rússlandi sjálfu er a. m. k. 95 miljónir og í löndum Rússa í Asíu búa á að giska 40 miljónir manna. Herinn rússneski hefir verið stór- bættur síðustu árin. Hver maður er herskyldur frá 18 til 40 ára ald- urs. Herþjónustutíminn er V/% ár í fótgönguliði og stórskotaliði, 3% ár í flugliðinu og 4ár í sjóliðinu. Á friðartímum eru aldrei færri menn undir vopnum en 800 þús- und. Alvarlegasta hindrunin fyrir Rússa um að heyja stríð er sú, að iðnaðurinn er vart nógu fullkom- inn til að byrgja herinn að öllum gögnum. En nú er lögð hin mesta áhersla á að fullkomna þær verk- smiðjur. — Mjög merkilegar tilraunir hafa verið gerðar ytra um að lækna vissa tegund af geðveiki sem hingað til hefir verið talin með öllu ólæknandi. Aðferðin er sú að smita þessa sjúklinga af malaríuveiki, með því að spýta í þá blóði úr malaríusjúklingi. Útkoman á ein- um danska geðveikraspítalanum er sú, að 38,6% af þessum geðveiku sjúklingum, sem taldir voru alveg ólæknandi, hafa náð fullum bata og geta nú unnið og 26% hafa feng ið nokkurn bata. Er tilraunum þessum vitanlega haldið áfram. — Bandaríkjamenn eru í þann veginn að banna algerlega inn- flutning Japana til Bandaríkjanna. Taka Japanar það mjög óstint upp. — ókyrt er enn á Grikklandi eins og löngum áður. Konungssinn- aff hafa nú orðið alveg undir og konungur afsettur og landflótta, en mesti órói stendur af þeim í landinu. Smáuppþot eru tíð, árásir á járnbrautarlestir o. s. frv. — í Suður-Slafalandi hafa vatns flóð valdið geysimiklu tjóni. Er tal- ið að slíkir vatnavextir hafi ekki orðið þar í landi síðustu tvær ald- imar. — Lýðveldisstjómarfyrikomu- lagið var samþykt með 3/4 atkvæða við alþjóðar atkvæðagreiðslu á Grikklandi. .— Árin 1921 og 1922 gerðu Eng- lendingar miklar tilraunir tii að komast upp á hæsta fjall heimsins Mount Everest. þeir komust í 27235 feta hæð, en urðu þá að hverfa aftur. Nú er nýr leiðangur að fara af stað. -----o---- Itinslonr sanoii. IV. Niðurl. Sr. M. H. segir um vin sinn, að hann hafi verið „glöggur á það skoplega, gramdist það, sem hon- um fanst ljótt, ranglátt eða óvit- urlegt“. Ennfremur að hann hafi „ekki verið myrkur í máli og sagt hispurslaust það, sem honum bjó í brjósti". Svona er útfararsannleikurinn. Skjólstæðingurinn má segja að Is- lendingar hafa keypt Hannes Haf- stein frá Dönum, að Bjöm Jónsson hafi verið geggjaður o. s. frv. 1 munni hins framliðna verða þessir dómar til af því hlutaðeigandi per- sóna hafi elskað sannleikann, verið hispurslaus, haft auga fyrir því skoplega. En ef sömu hreinskilni er beitt við þann, sem vafinn er í útfararsannindi, þá er hreinskiln- in orðin „níð“ og ómengaður sann- leikur „Gróusaga“. Hið undarlega og óvenjulega framferði sr. M. H. er fullskýrt með þessu. Honum þykir svo vænt um skólabróður sinn og vin, að hann þolir ekki að nefnd sé í ná- vist hans nema lofsamlega hliðin á æfiferli þ. Th. En hann gætir þess ekki, að til þess að halda skildi þ. Th. hreinum, verður hann að ganga inn á og gera með þögninni að sínum orðum hin ferlegu illmæli og öfundarorð þ. Th. um fjölda merkra manna. 1 þessu liggur hættan við útfararsannindin. það er undarleg tilviljun, að sr. M. H. skyldi geta gert grein, sem óbeðið hefir verið prentuð upp í kosninga- pésa Berlémes, þann sem ætlaður er bændum. Sú „æra“ hefir ekki veist sr. M. H. þegar hann hefir talað fögur orð og drengileg, eins og hans hefir verið vani fram að því óhappaaugnabliki æfinnar, er hann tók sér fyrir hendur að verja hina verstu og hlutdrægustu sögulegu heimild, sem til er á ís- lensku máli, og ef sr. M. H. verð- skuldaði hegningu fyrir frumhlaup sitt, þá hefir hún hlotnast honum þegar í stað með því að vera gerð- ur óumbeðið að heiðursfélaga í því málgagni, sem póstarnir sligast undir að bera heim til eigendanna, af því fólk út um land vill eklti sjá ósómann í sínum húsum. Af því málstaður sá, sem sr. M. H. tekur að sér að verja, er óverj- andi, lendir hann í kynlegum rök- villum. Til að breiða yfir skjall þ. Th. um enska reyfarahöf., segir M. H., að orðið „frægur“ megi á ís- lensku nota engu síður um mann, sem er að illu kunnur. Sliyldi St. G. St. nota orðið í þeirri merkingu, er hann segir um ágætan mannvin og mælskumann: „Frægðarmaður“? Islenskir lesendur skera úr um þýðingu orðsins. Dr. H. P. hefir kallað þ. Th. „níðing“. Sr. M. H. kallar þennan dóm H. P. um þ. Th. „sáryrði“, sem einn ágætismaður hafi sagt um annan slíkan mann. En er eg bendi á dóm H. P., sem bæði var lærisveinn og samverka- maður þ. Th., þá verður „sáiyrð- ið“ að „níði“. Eftir þessu getur dr. H. P. haldið áfram að vera ágætis-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.